Morgunblaðið - 19.10.1983, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1983
Peninga-
markaðurinn
f
GENGISSKRANING
NR. 195 — 18. OKTÓBER
1983
Kr. Kr. Toll-
Ein. Kl.09.15 Kaup Sala gengi
1 Dollar 27,710 27,790 27,970
1 SLpund 41,641 41,761 41,948
1 Kan. dollar 22312 22377 22,700
1 I)önsk kr. 2,9661 2,9750 2,9415
1 Norskkr. 33071 33181 3,7933
1 Scnsk kr. 3,5725 3,5828 3,5728
1 Fi. mark 4,9341 4,9484 4,9475
1 Fr. franki 33104 3,5205 3,4910
1 Belg. franki 03272 03287 03133
1 Sv. franki 133267 133649 13,1290
1 Holl. gyllini 93740 9,6016 9,4814
1 V-þ. mark 10,7316 10,7226 10,6037
1 II Kra 0,01764 0,01769 0,01749
1 Austurr. sch. 13255 13299 13082
1 PorL escudo 03239 03246 03253
1 Sp. peseti 0,1847 0,1853 0,1850
1 Jap. yen 0,11961 0,11949 0,11983
1 írskt pund 33366 33362 33,047
SDR. (SérsL
dráttan.) 17/10 293046 29,5897
1 Belg. franki 03083 03098
V
Vextir: (ársvextir)
Frá og með 21. september 1983
INNLÁNSVEXTIR:
1. Sparisjoðsbækur.................35,0%
2. Sparisjóðsreikningar. 3 mán.1).37/)%
3. Sparisjóösreikningar, 12. mán. 1)... 39,0%
4. Verðtryggðir 3 mán. reikningar..0,0%
5. Verðtryggöir 6 mán. reikningar. 1,0%
6. Ávisana- og hlaupareikningar...21,0%
7. Innlendir gjaldeyrisreikningar:
a. innstæður í dollurum.......... 7,0%
b. innstæöur í sterlingspundum.. 8,0%
c. innstæður í v-þýzkum mörkum... 4,0%
d. innstæður í dönskum krónum.... 7,0%
t) Vextir færöir tvisvar á ári.
ÚTLÁNSVEXTIR:
HÁMARKSVEXTIR
(Verðbótaþáttur i sviga)
1. Vixlar, forvextir.. (27,5%) 33,0%
2. Hlaupareikningar .. (28,0%) 33,0%
3. Afuröalán, endurseljanleg (25,5%) 29,0%
4. Skuldabréf ........ (333%) 40,0%
5. Visitölubundin skuldabréf:
a. Lánstími minnst 6 mán. 2,0%
b. Lánstimi minnst 2% ár 2,5%
c. Lánstimi minnst 5 ár 3,0%
6. Vanskilavextir á mán...............5,0%
Lífeyrissjóðslán:
Lifeyrissjóóur starfsmanna ríkisins:
Lánsupphæð er nú 260 þúsund ný-
krónur og er lánið vísitölubundiö meö
lánskjaravísitölu, en ársvextir eru 2%.
Lánstími er allt aö 25 ár, en getur verlö
skemmri, óski lántakandi þess, og eins
ef eign sú, sem veö er i er litilfjörleg, þá
getur sjóöurinn stytt lánstímann.
Lífeyrissjóöur verzlunarmanna:
Lánsupphæö er nú eftir 3ja ára aöild aö
lífeyrissjóðnum 120.000 nýkrónur, en
fyrir hvern ársfjóröung umfram 3 ár
bætast viö lániö 10.000 nýkrónur, unz
sjóösfélagi hefur náö 5 ára aöild aö
sjóönum. Á tímabilinu frá 5 til 10 ára
sjóösaöild bætast viö höfuöstól leyfi-
legrar lánsupphæöar 5.000 nýkrónur á
hverjum ársfjóröungi, en eftir 10 ára
sjóösaöild er lánsupphæöln oröin
300.000 nýkrónur. Eftir 10 ára aöild
bætast við 2.500 nýkrónur fyrir hvern
ársfjóröung sem liöur. Því er í raun ekk-
ert hámarkslán i sjóönum.
Höfuöstóll lánsins er tryggöur meö
byggingavísitölu, en lánsupphæöin ber
2% ársvexti. Lánstíminn er 10 til 32 ár
aö vali lántakanda.
Lánskjaravísitala fyrir október 1963
er 797 stig og er þá miöaö viö vísitöluna
100 1. júní 1979.
Byggíngavísitala fyrir október—des-
ember er 149 stig og er þá miöaö viö
100 í desember 1982.
Handhafaakuldabróf i fasteigna-
viöskiptum. Algengustu ársvextir eru nú
18—20%.
„Við vatnsbólið“
Hljóðvarp kl. 20.10:
„Peyi“ - saga um ungling sem
elst upp í steinsteyptu úthverfi
Á dagskrá sjónvarpsins kl.
18.30 verður bresk náttúrulífs-
mynd, sem ber heitið „Við vatns-
bólið". Að sögn Jóns O. Edwald,
sem er þýðandi og þulur mynd-
arinnar, er hér um að ræða litla
fallega mynd frá Etosha-þjóð-
garðinum í Namedíu í Afríku.
Myndin sýnir þá fugla sem ýms-
ist halda sig við vatnsbólið eða
koma þangað af og til. Að sögn
Jóns verða sýndar margar og
fjölbreytilegar fuglategundir.
„Höfundur sögunnar heitir Hans
Hansen og 4 bækur eftir hann hafa
komiö út í íslenskri þýðingu. Ætli
hann sé ekki hvað þekktastur hér á
landi fyrir bók sína „Sjáðu sæta nafl-
ann rninn“,“ sagði Vernharður Linn-
et, sem í kvöld kl. 20.10 byrjar lestur
þýðingar sinnar á bókinni „Peyi“.
„Sagan fjallar um strák, 14—15
ára, sem býr í úthverfi í danskri
útborg þar sem allt er steinsteypt.
Höfundur dregur fram sambands-
leysi fólks í steinsteypuhverfi. Að-
alsögupersónan og félagar hans
lenda í utistöðum við mótorhjóla-
klíku og svo koma svona smá ást-
arævintýri fram í sögunni, eins og
vera ber. Mér finnst þessi saga ein-
staklega vel skrifuð og mér finnst
hún eiga erindi til allra sem eru 10
ára og eldri. Hans Hansen skrifaði
áður aðallega skáldsögur, svokall-
aðar „fullorðinsbókmenntir”, en
síðastliðin 10 ár hefur hann ein-
beitt sér meira að bókmenntum
fyrir börn og unglinga.
Það sem mér finnst athyglis-
verðast við þessa bók er á hve eðli-
legan hátt fjallað er um hlutina, til
dæmis er talað um fyrstu ástina á
því máli, sem unglingar skilja og
höfundur er alveg laus við að pre-
dika. Hann einfaldlega talar um líf
ungs fóiks á eðlilegan og raunsæj-
an hátt.“ Lestur sögunnar hefst,
sem fyrr segir, kl. 20.10.
Vernharður Linnet les um „Peyja“
í kvöld.
Hljóövarp kl. 22.35:
„Við-þáttur um
fjölskyldumál“
Fangamál efst á baugi í kvöld
Þátturinn „Við“, fjallar að þessu
sinni um fangelsismál. Rætt verður
við Erlu Jónsdóttur, deildarstjóra
hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins
Erla rekur feril sakamála, frá því
atburðurinn gerist og þar til málið
kemur fyrir dómstóla.
Björn Einarsson, starfsmaður
Verndar, kemur í heimsókn, fjall-
ar um daglegt líf í fangelsum og
drepur lítillega á það sem honum
finnst að betur mætti fara í fang-
elsismálum á íslandi, félag fanga
og þeim óskráðu lögum sem í því
samfélagi ríkja.
Fjallað verður um samfélag
fanga og þau óskráðu lög, sem þar
ríkja, samkvæmt skráðum heim-
ildum. Að lokum fjallar Helga
Ágústsdóttir, umsjónarmaður
þáttarins, vítt og breitt um fanga-
mál á íslandi, afstöðu okkar til
þeirra sem hrasað hafa á vegi
réttarkerfisins, o.fl. Þátturinn
hefst kl. 22.35 og stendur í 40 mín-
útur.
Fjallað verður um fanga á íslandi, samfélag fanga og þau óskráðu lög,
sem þar ríkja, í hljóðvarpi í kvöld kl. 22.35.
Útvarp Reykjavfk
jMIÐMIKUDKGUR
19. október
MORGUNNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
Á virkum degi. 7.25 Leikfimi.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veð-
urfregnir. Morgunorð — Erling-
ur Loftsson talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Leitin að vagnhjóli“ eftir
Meindert DeJong. Guðrún
Jónsdóttir les þýðingu sína (14).
9.20 Tónleikar. 9.30 Tilkynn-
ingar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
Forustugr. dagbl. (útdr.).
10.35 íslenskir einsöngvarar og
kórar syngja.
11.00 Úr ævi og starfí íslenskra
kvenna. Umsjón: Björg Einars-
dóttir.
11.30 íslenskur djass.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
SÍDDEGID
13.30 Kate Bush, Neil Young og
Jethro Tull syngja og leika.
14.00 „Katrín frá Bóra“ eftir
Clöru S. Schreiber. Benedikt
Arnkelsson þýddi. Helgi Elías-
son les (14).
14.30 Miðdegistónleikar. Félagar í
Vínar-oktettinum leika „Adag-
io“ fyrir klarinettu og strengja-
kvintett eftir Richard Wagn-
er/ Andrey Volkonsky, Ladislw
Markiz, Fiodor Drushinin og
Laszlof Andreyev leika Kons-
ertínu fyrir sembal, fíðlu, viólu
og kontrabassa eftir Joseph
Haydn/Félagar í Vínar-oktett-
inum leika „Andantino" úr
klarinettukvintett í b-moll eftir
Johannes Brahms.
14.45 Popphólfið — Pétur Steinn
Guðmundsson.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veð-
urfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar.
Josef Suk og St. Martin-in-the-
Fields-hljómsveitin leika Róm-
önsu nr. 1 í G-dúr op. 40 eftir
Ludwig van Beethoven; Neville
Marriner stj./ Fflharmóníu-
sveitin í Vínarborg leikur Sin-
fóníu nr. 4 í e-moll op. 98 eftir
Johannes Brahms; Karl Böhm
stj.
MIÐVIKUDAGUR
19. október
184)0 Söguhornið
Strákurinn sem lék á tröllkarl-
inn.
Sögumaður Siguröur Jón
Ólafsson.
Umsjónarmaður Hrafnhildur
Hreinsdóttir.
18.10 Amma og átta krakkar.
9. þáttur.
Norskur framhaldsmyndaflokk-
ur gerður eftir barnabókum
Anne-Cath. Vestly.
Þýðandi Jóhanna Jóhannsdótt-
ir.
(Nordvision — Norska sjón-
varpið.)
18.30 Við vatnsbólið
Bresk nátturultfsmynd um
fuglalífið við vatnsból í Afríku.
Þýðandi og þulur Jón O.
Edwaid.
19.00 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Horfínn heimur
Kwegú-ættflokkurinn í Eþíópíu.
Bresk heimildarmynd um fá-
mennan en sérstæöan ættflokk
sem á heimkynni við Ómófljót í
Eþíópíu.
I>ýðandi og þulur Bjarni Gunn-
arsson.
21.45 Dallas
llandarískur framhaldsmynda-
flokkur.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
22.35 Dagskrárlok.
17.10 Síðdegisvakan.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÓLDID
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Við stokkinn. í kvöld
skemmtir Brúðubfllinn í
Reykjavík.
20.00 Ungir pennar. Stjórnandi:
Hildur Hermóðsdóttir.
20.10 Útvarpssaga barnanna:
„Peyi“ eftir Hans Hansen.
Vernharður Linnet byrjar lestur
þýðingar sinnar.
20.40 Kvöldvaka. Umsjón: Helga
Ágústsdóttir.
21.10 Einsöngur. Peter Schreier
syngur „Dichterliebe“, laga-
flokk op. 46 eftir Robert
Schumann. Norman Shetler
leikur á píanó.
21.40 Útvarpssagan: „Hlutskipti
manns" eftir André Malraux.
Thor Vilhjálmsson les þýöingu
sína (14).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.35 Við — Þáttur um fjölskyldu-
mál. Umsjón Helga Ágústsdótt-
ir.
23.15 fslensk tónlist. Rut Ing-
ólfsdóttir, Páll Gröndal og Guð-
rún Kristinsdóttir leika Tríó I
a-moll fyrir fíðlu, selló og píanó
eftir Sveinbjörn Sveinbjörns-
son.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.