Morgunblaðið - 19.10.1983, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1983
Canaris sagði Bretum af áætlun
Hitlers um innrás í Rússland
London, 17. október. AP.
WILHELM Canaris yfírmaður þýzku leyniþjónustunnar lét Bretum í té
leynilegar upplýsingar um stríðsáform Adolfs Hitler, þar á meðal áætl-
unina um innrásina í Sovétríkin, að sögn brezka blaðsins The Mail on
Sunday.
Hins vegar lagði brezka leyni-
þjónustan ekki trúnað á ýmsar
fullyrðingar Canaris, og var því
ekkert aðhafst er hann skýrði frá
áformunum um innrásina í Sov-
étríkin, sem hann skýrði frá
tveimur mánuðum áður en hún
varð að veruleika.
Blaðið segir Canaris hafa veitt
Bretum ýmsar leynilegar upplýs-
ingar á árunum 1940 til 1944.
Milligöngu milli hans og brezku
leyniþjónustunnar MI6 hafði
Halina Syzmanska, eiginkona
háttsetts pólks diplómats, sem nú
er 78 ára og búsettur í Bandaríkj-
unum. Hann hefur staðfest sann-
leiksgildi fréttar The Mail.
Einhver mesta uppljóstrun
Canaris var áætlunin um innrás-
ina í Sovétríkin, sem gekk undir
dulnefninu Barbarossa. Hermt er
að Canaris hafi viljað bjarga
þýzku þjóðinni undan skefjalaus-
um metnaði Hitlers. Bar Canaris
ekki mikið traust til Hitlers.
Vantraust Hitlers og Canaris
gerðist gagnkvæmt og jókst þeg-
ar á leið með þeirri afleiðingu að
Hitler setti Canaris af 1944. Can-
aris var síðar sama ár bendlaður
við sprengjutilræði gegn Hitler
Canaris
og varpað í fangelsi og pyntaður.
Og þegar her bandamanna sótti
lengra inn í Þýzkaland fyrirskip-
aði Hitler að Canaris skyldi líf-
látinn.
Álandseyjar:
Miðflokkurinn
missti fylgi
Helsíngforti, 18. október. Frá fréttarit-
ara Morgunblaósins, Harry Granberg.
JAFNAÐARMENN og Hægri flokk-
urinn unnu á á kostnað Miðfíokks-
ins í kosningunum til landsþings
Álandseyja, sem lauk á mánudag.
Frjálslyndir héldu þingsætum sín-
um, en kommúnistar fengu engan
mann kjörinn.
Rúmlega 63% atkvæðisbærra
manna neyttu kosningaréttar síns
og var það svipaður fjöldi og kaus
í kosningunum fyrir 8 árum, en þá
var metkjörsókn. I framboði voru
158 manns á fimm listum, en kosið
var í 30 þingsæti á landsþinginu,
sem er „þjóðþing" Álandseyja.
Fylgisaukning jafnaðarmanna
kom ekki á óvart, en þeir endur-
heimtu nú það fylgi, sem þeir
höfðu misst fyrir fjórum árum.
Fengu þeir nú 5 þingsæti eða 2
fleiri en í síðustu kosningum.
Hægri flokkurinn fékk líka 5 þing-
sæti og vann eitt, en Miðflokkur-
inn tapaði þremur og hefur nú 11.
Frjálslyndir héldu þeim 9 þing-
sætum, sem þeir höfðu, en eini
frambjóðandi kommúnista náði
ekki kosningu. Kommúnistar hafa
ekki átt sæti á landsþingi Álands-
eyja síðan 1967.
Polugajevsky vann
Tilburg, 17. október. AP.
ANATOLY KARPOV heimsmeistari í skák hélt forystu sinni á sjöunda
áriega „Interpolis“-skákmótinu með því að gera jafntefli við Ungverjann
Portisch í fimmtu umferðinni, sem lauk á mánudagskvöld.
Karpov varðist til jafnteflis í viðureign sinni við landa sinn Boris
Spassky í fjórðu umferð mótsins og náði þar með forystu.
Karpov stýrði svörtu mönnun-
um gegn Spassky fyrrum heims-
meistara, sem hafði frumkvæðið
framan af, en varð að gefa eftir
stöðuyfirburði þegar á leið.
Karpov hefur 3 vinninga og
því hálfs vinnings forskot á
landa sinn Polugaevski, sem
gerði í dag jafntefli við Hollend-
inginn Wiel, og Portisch, sem
báðir eru með 2'/4 vinning.
Jan Timman og Rússinn Rafa-
el Váganian, sem hvor um sig á
tvær óútkljáðar biðskákir, eru í _
4.-5. sæti með 2 vinninga.
f fjórðu umferð tefldi Timman
við Ljubojevic, sem beitti Sikil-
eyjarvörn og náði yfirburða
stöðu áður en skákin fór í bið.
Sérfræðingar segja ekkert geta
komið í veg fyrir sigur Júgóslav-
Timman
ans. Vaganian tefldi við Banda-
ríkjamanninn Serawan, sem var
með hvítt og hefur Serawan góð-
ar sigurlíkur.
Viðureign Spassky og Vagani-
an í dag fór í bið, en Spassky er í
6.-8. sæti ásamt Wiel og Ljub-
ojevic með 2 vinninga og bið-
skák.
í 9.—10. sæti eru Húbner og
Sosonko með 2 vinninga, í 11.
sæti er Anderson með lVfe vinn-
ing og tvær biðskákir og Seiraw-
an er neðstur með 1V4 vinning og
tvær biðskákir.
Veður
víða um heim
Akureyri
Amsterdam
Barcelona
Beriin
Brussel
Buones Aires
Chicago
Dublinni
Feneyjar
Frankfurt
Genf
Helsinki
Jerúsalem
Jöhannesarborg
Kairó
Kaupmannahöfn
Las Palmas
Ussabon
London
Los Angeles
Madrid
Malaga
MaHorka
Mexico City
Miami
Montreal
Moskva
New York
Ostó
Paris
Reykjavík
Rio de Janeiro
Róm
San Fransisco
Stokkhóimur
Sydney
Tei Aviv
Tókýó
Vancouver
Vínarborg
0 alskýjaó
13 rigning
19 skýjaó
12 skýjaó
15 rígning
19 heiósklrl
16 lAttskýjaó
12 skýjaó
23 lóttskýjaó
12 rigning
14 skýjaó
11 skýjaó
26 heióskirt
24 heióskirt
27 helðskfrt
11 skýjsó
24 alskýjaó
21 heióskfrt
17 skýjaó
24 heióskfrt
21 heióskfrt
23 lóttskýjaó
22 hólfskýjaó
23 heióskfrt
30 skýjaó
16 rigning
14 heióakfrt
17 heióskirt
7 heiðskfrt
14 skýjaó
3 úrk. gr.
40 skýjað
22 rigning
19 heióskfrt
11 skýjaó
22 skýjaó
28 heióskfrt
18 skýjaó
16 skýjaó
17 rigning
eigendur
Við bjóðum ykkur BRIDGESTONE
vetrarhjólbarða á felgum fyrir allar
gerðir MAZDA bifreiða.
Sérlega hagstætt verð
og góð greiðslukjör.
Tryggið öryggi í vetrarakstri og notið
ykkur þetta hagstæða boð.
BÍLABORG HF.
Smiöshöfða 23 Sími 81265
Elzti maður á Norðurlöndum:
Hélt upp á 110 ára afmælið
ELZTI íbúi Norðurlanda, munkurinn Akaki í grísk-
kaþólska klaustrinu Nýja-Valamo í Finnlandi, varð 110
ira gamall sl. mánudag. Hann hélt upp á þennan ein-
staka afmælisdag með bænastund í klaustri sínu, en
Paavali, erkibiskup rétttrúnaðarkirkjunnar í Finnlandi
var viðstaddur og stjórnaði helgiathöfninni.
Faðir Akaki heitir annars réttu nafni Andrej
Kusnetsov. Hann var fyrst bóndi í Vologda-léni, en
fór árið 1898 til klaustursins í Petsamo í því skyni að
gerast munkur. Síðan settist hann að í klaustrinu
Nýja-Valamo, sem stofnað var til þess að koma í
staðinn fyrir klaustrið i Valamo á Ladogavatni, sem
þá var orðið sovézkt yfirráðasvæði.
Faðir Akaki er enn mjög hress bæði andlega og
líkamlega. Hann er ágætlega rólfær, sjón hans er
góð og hann notar engin meðul. Einu sinni í viku
tekur hann þátt í guðsþjónustu í klausturkirkjunni
og hann biðst oft fyrir hátt og innilega og þá ýmist á
rússnesku eða eins konar kirkjuslavnesku.
Leyndardómurinn að baki langlífi föður Akakis er
sennilega fólginn í hinu kyrrláta og reglubundna
klausturlífi, sem er laust við streitu en felur í sér
næga áreynslu og nægjusamt en heilsusamlegt mat-
aræði.
Enginn maður hefur nokkru sinni orðið 110 ára í
Svíþjóð. Samkvæmt þjóðskrá þar er þó vitað til þess,
að þrjár konur hafi náð að verða 109 ára. Ánna
Mathilda Johanson frá Varberg varð þeirra elzt eða
109 ára, þriggja mánaða og tveggja daga gömul, er
hún lézt.
Munkurinn Akaki í Finnlandi varð 110 ára á mánudag
og er UUinn elsti núlifandi maður á öllum Norðurlöndum.
Gdansk:
Jankowski yfirheyrður
Varsjá, 18. október. AP.
LECH Walesa, friAarvcrÖlaunahafi
Nóbels, fylgdi skriftaföður sínum og
ráðgjafa, séra Henryk Jankowski, í
dag á skrifstofu saksóknarans í
Gdansk, þar sem presturinn var yfír-
heyrður um meinta misnotkun á trú-
frelsi. Séra Jankowski hefur verið
ráðgjafí og skriftafaðir Walesa frá
því fyrir stofnun Samstöðu, samtaka
hinna frjálsu verkalýðsfélaga í Pól-
landi, sem stofnuð voru í verkföllun-
um í skipaverksmiðjunum í Gdansk
í ágúst 1980.
Séra Jankowski skýrði frétta-
mönnum frá því eftir yfirheyrsl-
una, að hann hefði neitað að svara
spurningum saksóknarans og
sömuleiðis neitað öllum sakargift-
um. Walesa var ekki kallaður fyrir
í þessum réttarhöldum, en fór með
séra Jankowski til þess að tjá
stuðning sinn við hann. Um 200
stuðningsmenn biðu þeirra, þegar
þeir tveir gengu inn í skrifstofu
saksóknarans kl. 9 að staðartíma í
morgun. Er séra Jankowski kom
út aftur um 45 mínútum síðar,
hafði stuðningsmönnunum, sem
biðu þeirra, fjölgað í 500 og gengu
þeir með prestinum til kirkju heil-
agrar Brigidu, sem er sóknar-
kirkja skipasmíðastöðvanna í
Gdansk.