Morgunblaðið - 19.10.1983, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 19.10.1983, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1983 23 Þeir Guðmundur og Benedikt með dúfur við kofann sinn. Dúfum stolið í Seljahverfi FYRIR nokkru var tveimur dúfum stolið frá Guðmundi F. Sigurjóns- syni og Benedikt Sölva Stefáns- syni, en þeir eiga dúfnakofa í Seljahverfi í Breiðholti. Um er að ræða uglu og bréfdúfu að þeirra sögn, en þeir eru nú með fimm dúfur. Þeir félagar, sem eru 12 ára gamlir, sögðu að undanfarið hefði mjög borið á að dúfum væri stolið úr dúfnakofum. Aðeins tvær dúfur voru í kofa þeirra þegar þjófarnir brutust inn. Geti einhverjir strák- ar í Seljahverfi gefið þeim upplýs- ingar, þá eru þær vel þegnar. Ragnheiður Jóns- dóttir sýnir í Gallerí Grjóti RAGNHEIÐUR Jónsdóttir, myndlist- armaður, opnar á morgun sýningu í Gallerí Grjóti við Skólavörðustíg. Þar sýnir Ragnheiður grafíkmyndir og er þetta fimmta einkasýning hennar hér á landi. Ragnheiður hefur áður haldið einkasýningar í Svíðþjóð, Dan- mörku og Kanada, auk þess sem hún hefur tekið þátt í fjölmörgum samsýningum víða um heim. Þá hafa myndir hennar fjórum sinnum hlotið verðlaun á sýningum erlend- is, nú síðast á alþjóðlegri grafíksýn- ingu i Frechen sem haldin var í þessum mánuði. Sýningin í Gallerí Grjóti opnar sem fyrr segir á morgun kl. 18.00, en hún verður opin um helgar frá kl. 14.00 til 18.00 og virka daga frá kl. 12.00 til 18.00. ísland og friðarumræðan Samtökin Líf og land halda ráðstefnu með fulltrúum þeirra hópa sem hafa frið, afvopnun og örvggismál á stefnuskrá sinni Stjórn Lffs og lands, samtaka um umhverfismál, sem gangast fyrir ráðstefn- unni á laugardag. F.v.: Gunnar Gunnarsson, séra Gunnar Kristjánsson, Kristinn Ragnarsson, formaður, Sigríður Ingvarsdóttir og Ágúst Valfells. Á myndina vantar Áslaugu Brynjólfsdóttur. Ljósm Mbi./ói.K M „MARKMIÐIÐ með þessari ráð- stefnu er að fá þverskurð af þeirri friðarumræðu sem átt hefur sér stað að undanlornu og að fá fram á mál- efnalegan hátt sjónarmið þeirra hópa og samtaka sem hafa friðarmál á stefnuskrá sinni,“ sagði Sigríður Ingvarsdóttir, varaformaður Lffs og lands, samtaka um umhverfismál á blaðamannafundi sem samtökin efndu nýlega til. Tilgangur fundar- ins var að kynna ráðstefnu sem haldin verður á Hótel Borg nk. laug- ardag, þann 22. október, undir yfir- skriftinni „ísland og friðarumræð- an“. Ráðstefnan skiptist í þrjá hluta. Kl. 9.30 hefjast fyrirlestrar og standa fram að hádegi. Fyrirles- arar verða þeir séra Gunnar Kristjánsson sem flytur erindi um friðarhreyfingar samtímans, Sig- urður Björnsson, læknir, sem fjallar um áhrif kjarnorku á heil- brigði og heilsufar manna nú og hvernig þau mál myndu líklega þróast ef til kjarnorkustríðs kæmi. Ágúst Valfells, verkfræð- ingur, rekur í erindi sínu sögu vígbúnaðarkapphlaupsins, Albert Jónsson, stjórnmálafræðingur, ræðir um ógnarjafnvægið og Gunnar Gunnarsson, stjórnmála- fræðingur, fjallar um afvopnun og þær hugmyndir sem lagðar hafa verið til grundvallar afvopnunar- viðræðum af hálfu stjórnvalda. Þórður Ægir Óskarsson, stjórn- málafræðingur fjallar síðan um stöðvun vígbúnaðarkapphlaups- ins, og umræðu undanfarinna ára í þá veru. Annar hluti ráðstefnunnar hefst kl. 13.00 með ávarpi utanrík- isráðherra, Geirs Hallgrímssonar, en að því loknu taka við fyrir- spurnir þar sem fulltrúar samtaka og hreyfinga sem hafa frið, af- vopnun og öryggismál á stefnu- skrá sinni, auk fulltrúa allra stjórnmálaflokkanna, sitja fyrir svörum. „Með þessum fyrirspurn- um viljum við fá fram skýra stefnu og afstöðu þessara hópa I friðarmálum," sagði Gunnar Gunnarsson, stjórnmálafræðing- ur, en ásamt honum sjá þau Mar- grét Heinreksdóttir og Bogi Ág- ústsson, fréttamenn, um spurn- ingar til friðarhópa. Þegar full- trúar stjórnmálaflokanna sitja fyrir svörum verða spyrjendur þeir Magnús Torfi Olafsson, blaðafulltrúi, Kjartan Ragnars- son, leikari, Þórður Harðarson, læknir, og séra Gunnar Kristjáns- son. Fulltrúar hópa sem hafa frið á stefnuskrá sinni verða frá Sam- tökum lækna gegn kjarnorkuvá, Friðarhreyfingu framhaldsskóla- nema, Samtökum herstöðvaand- stæðinga, Varðbergi, Friðarhreyf- ingu íslenskra kvenna, Þjóðkirkj- unni og Friðarsamtökum lista- manna, auk fulltrúa frá hverjum stjórnmálaflokki. Spurningarnar fá hóparnir að sjá áður og undir- búa þannig svör sín og málflutn- ing. „Nú, það má segja að með ráð- stefnunni séum við að kanna hvað þessir hópar eiga sameiginlegt," sagði Kristinn Ragnarsson, for- maður Lífs og Lands, „þó aðalat- riðið sé að stofna til málefnalegr- ar umræðu um friðarmál. Allir hóparnir hafa tekið mjög vel í þessa ráðstefnu, enda teljum við hjá Lífi og landi að sú friðarum- ræða sem nú á sér stað hafi breyst nokkuð frá því sem áður gerðist. Fólk er farið að líta á friðarmál út frá manninum og samfélaginu en ekki með flokkapólitísku hugar- fari. Með ráðstefnu sem þessari teljum við að hægt sé að nálgast friðarumræðuna á málefnlegum grundvelli. Við komum ekki til með að semja ályktanir eða annað slíkt, heldur reynum við að gefa viðkomandi aðilum tækifæri á að skiptast á skoðunum og kynna sér málið frá sem fiestum hliðum. Endanleg ákvörðun um að halda ráðstefnuna var tekin í byrjun september og hafa þeir Gunnar Kristjánsson og Gunnar Gunnars- son haft veg og vanda að undir- búningi hennar. Hugmyndin varð til fyrir tveimur árum, en nú þykir okkur réttur tími til að halda hana, enda friðarumræðan í brennidepli," sagði Kristinn Ragn- arsson, formaður Lífs og lands, að lokum. Ráðstefnunni lýkur síðan með pallborðsumræðum, þar sem full- trúar friðarhópanna skiptast á skoðunum. í tilefni ráðstefnunnar hefur Atli Heimir Sveinsson, tónskáld, samið verk við ljóð nób- elsverðlaunaskáldsins Pablo Neruda, sem verður frumflutt á undan ávarpi utanríkisráðherra. Þá verða gefin út hjá ísafoldar- prentsmiðjunni þau erinai sem flutt verða á ráðstefnunni. Bestu bílakaupin í dag! Mazda323 Hatchback DeLuxe 1300 árg. 1984 Innifalinn búnaður: Stillanleg hæð á framsæti • Litað gler í rúðum • Rúllu- belti • Öryggisljós að aftan • 60 Ampera rafgeymir • Quarts klukka • Niðurfellanlegt aftursæti í tvennu lagi • Tauáklæði á sætum • 3 hraða rúðuþurrkur • Halogen framljós • Stokkur milli framsæta • Farangursgeymsla klædd í hólf og gólf • 3 hraða miðstöð • Útispegill • Þurrka og sprauta á afturrúðu Verð aðeins kr ZOO.OöU Munið: MAZDA — bestur í endursölu undanfarin 10 ár. gengisskr 10.10 83 BÍLABORG HF. Smiöshöföa 23 sími 812 99 Bestu bílakaupin í dag! Mazda 323 Saloon DeLuxe 1300 árg. 1984 Innifalinn búnaður: Stillanleg hæð á framsæti • Litað gler í rúðum • Rúllu- belti • Öryggisljós að aftan • 60 Ampera rafgeymir • Quarts klukka • Niðurfellanlegt aftursæti í tvennu lagi • Tauáklæði á sætum • 3 hraða rúðuþurrkur • Halogen framljós • Stokkur milli framsæta • Farangursgeymsla klædd í hólf og gólf • 3 hraða miðstöð • Útispegill Verð aðeins kr. 271.000 Munið: MAZDA qengisski 10 10 83 — bestur í endursölu undanfarin 10 ár. BÍLABORG HF Smiöshöföa 23 sími 812 99

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.