Morgunblaðið - 19.10.1983, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1983
33
Jafiivægiskaupmátturinn
- eftir dr. Vilhjálm
Egilsson
Atvinnutekjur urðu 94,5% af
hreinum þjóðartekjum á árinu
1982. Atvinnutekjurnar mæla
launagreiðslur og tekjur af
hverskonar atvinnu launþega.
Ennfremur laun og launaígildi
eigenda í atvinnurekstri. Þetta
hlutfall atvinnutekna af hreinum
þjóðartekjum (sem sýnt er á mynd
1) var á bilinu 81,5%—83,6% á ár-
unum 1974—1980, en hækkaði upp
í 88,6% á árinu 1981, áður en met-
ið var slegið svo um munaði á síð-
asta ári. í ár má reikna með að
hlutfallið verði um 85%, eða ívið
hærra en á árunum 1974—1980.
Séu atvinnutekjur eigenda tekn-
ar frá, fást tölur sem mæla hlut-
deild launa launþega í þjóðartekj-
um. Sú hlutdeild er að sjálfsögðu
alltaf lægri en fyrir atvinnutekj-
urnar í heild.
Aukinn hlutur launa
fjárniagnadur með
erlendum lántökum
Á undanförnum árum hefur
hlutur launa í hreinum þjóðar-
tekjum vaxið, og er sú þróun mjög
svipuð og fyrir atvinnutekjurnar
eftir að eigendalaunum hefur ver-
ið bætt við. Aukinn hlut launa í
hreinum þjóðartekjum er því ekki
hægt að skýra með því að atvinnu-
rekendum hafi fækkað hlutfalls-
lega meðan launþegum hafi hlut-
fallslega fjölgað.
Aukinn hlut launa í hreinum
þjóðartekjum er heldur ekki hægt
að skýra með því að konur hafi í
auknum mæli farið út á vinnu-
markaðinn né með því að vinnu-
tími hafi lengst. Þegar konur fara
að vinna utan heimilis aukast
þjóðartekjurnar (eins og mælum
þær) og sama gildir þegar vinnu-
tími lengist. Laun og þjóðartekjur
hækka að öðru óbreyttu hlutfalis-
lega jafn mikið þegar fleiri vinna
eða þegar meira er unnið.
Þjóðartekjur eru ekki fyrirfram
gefin stærð. Við verðum að vinna
fyrir þeim. Ef við vinnum minna
t.d. með því að taka okkur lengra
orlof, þá minnka þjóðartekjur.
Vaxtagreiðslurnar
lækka tekjurnar
Almennt séð, þá ráða ýmsar
efnahagslegar forsendur þvi,
hversu hlutur atvinnutekna í
hreinum þjóðartekjum er mikill.
Mikilvægastar af þessum forsend-
um eru framleiðni bæði vinnuafls-
ins og fjármagnsins.
Óhætt er að álykta að engar
efnahagslegar forsendur réttlættu
hækkun á hlut atvinnutekna í
hreinum þjóðartekjum úr 82,7% á
árinu 1980 í 94,5% á árinu 1982.
Viðskiptahallinn á árunum 1981
og 1982 staðfestir það álit og eins
hitt að nú um áramótin verða er-
lendar skuldir okkar 60% af þjóð-
arframleiðslunni. Milljarða van-
„Meginverkefni á
næsta ári veröur að
finna þann kaupmátt
sem er samfara halla-
lausum untanríkisvið-
skiptum og fullri at-
vinnu.
Þessi jafnvægis-
kaupmáttur er í öllum
aðalatriðum matsatriði
en ekki samningsatriði.
Hann byggist á verð-
mætasköpuninni.u
skil fyrirtækja í sjávarútvegi
segja líka sina sögu.
Þyngri vaxtabyrði af erlendum
lánum lækkar hreinar þjóðartekj-
ur og það er athyglisvert að vaxta-
greiðslur til útlanda námu 9,5% af
hreinum þjóðartekjum á árinu
1982, en sambærilegt hlutfall á ár-
inu 1980 var 5,3%. Þessi staðreynd
skýrir að nokkru leyti hækkandi
hlutdeild atvinnutekna í hreinum
þjóðartekjum en meginatriðið er
það að kaupmátturinn hefur ein-
faldlega verið of hár og við höfum
með þessum háa kaupmætti hald-
ið atvinnunni uppi með erlendum
lántökum. Án skuldasöfnunar er-
lendis hefði þessi mikli kaupmátt-
ur aldrei staðist nema með miklu
atvinnuleysi. Við stóðum svo
frammi fyrir því að geta ekki
lengur safnað skuldum erlendis og
þá er Ijóst að kaupmátturinn varð
Atvinnutekjur í hlutfalli af hreinum þjóðartekjum
Heimildir: Þjððhagsstofnun og VSÍ
77,0 74,0 78,3 76,7 81,5 83,3 81,8 83,6 83,1 83.6 82,7 88.6 94,5 85,0
70 71 72 73 74 75 76 77 78 79 80 81 82 83 áætl.
Dr. Vilhjálmur Egilsson
að lækka ef atvinnan átti að hald-
ast.
Jafnvægiskaupmátturinn
Meginverkefni á næsta ári verð-
ur að finna þann kaupmátt sem er
samfara hallalausum utanríkis-
viðskiptum og fullri atvinnu. Þessi
jafnvægiskaupmáttur er í öllum
aðalatriðum matsatriði en ekki
samningsatriði. Hann bygggist á
verðmætasköpuninni. Með skyn-
samlegum kjarasamningum og
árangursríkri efnahagsstefnu er
unnt að leggja grundvöll að auk-
inni verðmætasköpun og hærri
jafnvægiskaupmætti í framtíð-
inni.
Vegna þess að við getum ekki
haldið skuldasöfnuninni erlendis
áfram liggur það f hlutarins eðli
að ekki er unnt að semja um hærri
kaupmátt en jafnvægiskaupmátt-
inn nema með því að fórna
markmiðinu um viðunandi at-
vinnu.
Markmiðið að eyða ekki um efni
fram á næsta ári sníður okkur
stakk með kaupmáttinn, eigi at-
vinnan jafnframt að haldast.
Launahækkanir skipta hér
sáralitlu máli. Ef þjóðarbúið
stendur ekki undir kaupmættinum
sem launahækanir ávisa á, þá fell-
ur gengið og kaupmátturinn
minnkar aftur í verðbólgunni.
Dr. Vilhjilmur Egilsson er hng-
íræóingur Vinnureitendasam-
bands íslands.
Bladburðarfólk
óskast!
Austurbær
Laugavegur frá 101 — 171
,upplausntil
abyrgðar
Á RÉTTRI LEIÐ
Þorlákshöfn og nágrenni
Almennur stjórnmálafundur veröur haldinn í Fólagsheimilínu miövikudag-
inn 19. október kl. 20.30. Sverrir Hermannsson iðnaöarráðherra ræðir störf
og stefnu ríkisstjórnarinnar. Þingmenn flokksins í kjördæminu mæta á
fundinn. Allir velkomnir.
Sjálfstæöisflokkurinn.
Við minnum á
gíróreikning Hjálparstofnunar kirkjunnar
nr. 20005-0.
-
Bunaðarbanki Islands.