Morgunblaðið - 06.01.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.01.1984, Blaðsíða 2
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1984 1. Skápa- og litasystemið „Scala real“ eftir bræðurna Tanzi hefur ótöluleg til- brígói eins og myndin sýnir. Fyrirtsskið er Mark. 2. Memphis, fyrirtnki sem lesendur Morgunblaðsins eiga m.a. eftir að kynnast nánar, hefur að baki sár hóp hönnuða frá ýmsum löndum. Þessi stóll, „Bel Air“ eftir Peter Shire, hefur þegar náð mikilli fraegð. Peter Shire ku drekka mikið af te eins og aðrir landar hans og elska tepotta, — kannski kemur það fram í hönnuninni. 3. -4. „Lampone" heitir borðið, hannað af Sottsass og Co., framleiöandi Casa Nova. Borðplatan er úr harðviði en eftir mikla vinnu og tilraunir varð niður- staðan sú að fæturnir yrðu svartmálað- ar járnsúlur. „Ribes og Mirtillo" eru tveir hæginda- stólar hannaðir af Sottsass til að nota með borðinu „Lampone". Þeir hafa málaðan járnramma með mjúkum sæt- um og örmum. Framleiðandi Casa Nova. 5. Það vakti athygli að Castelli, þetta sterka fyrirtæki, kynnti aðeins einn hlut á þessari „Fieru“, hægindastólinn „Penelope", hannaður af Charles Pol- lock. Hann er ekki pressaður út heldur ofinn úr stálvír, og dregur nafn sitt af grisku vefkonunni, frægastri allra vef- ara. Hann er allur úr stáli nema plast þar sem handleggir hvíla, á baki og á sæti. 6. Kartekk-fyrirtækið sárhæfir sig í plastvörum og notar gjarnan þróuð- ustu aðferðir. Hár eru tvö borö hönnuð af Önnu Castelli Ferrieri, sem má taka í sundur eða setja saman á örfáum mínútum án skrúfa eða annarra málmhluta. Plata ferfætta borðsins er unnin með sárstakri plastþrykksaö- ferð, í fyrsta skipti sem slíkt 80x80 stykki er mótað í heilu lagi: boröin eru látt en það sterk að fullvaxin mann- eskja getur staöið uppá því miöju. Hönnunin er einföld en litirnir djarfir og nútímalegir, tjá mismun í efni, s.s. polyuretín í borðplötu, polypropylen í fótum. 7. Þekkta fyrirtækið Knoll International Italia kynnti m.a. stóla og sófa sem þeir kalla Eastside og Westside Col- lection eftir Sottsass og Co. Eastside Collection hámóderne stóll og sófi sem hefur yfir sár klassíska ró en fjör og karakter sem gleymist ekki auð- veldlega. 8. Westside Collection: Þessir kúnst- ugu stólar hafa skemmtilega sterka persónuleika, eiginlega eins og elsku- legar frænkur sem bjóða manni ekki aöeins sæti heldur labba líka á móti manni til að heilsa. 9. „Erianto“-hillukerfi má raða upp lá- rátt eða lóðrátt og gæti leyst margs konar vanda á heimili eöa skrifstofu, fæst í eikarspón og með hvít- eða svartlakkaðri áferð. Hönnuður Annig Sarian, framleiðandi Tisettanta. 10. Aðalsmerki „Crossings" eftir Sott- sass og Co. er áferðin og efnismeð- ferð. Krómaður sívalur stálkantur ligg- ur meðfram borðkantinum án þess að styðja við hann — þaö lítur fyrst og fremst vel út — en stálfæturnir eru málaðir með epoxy-málingu. Framleið- andi er Bieffeplast. 11. „Creek“ á heima hvar sem er, inni eða úti. Hann er úr stálramma en málmsætin og bakiö eru „afrúnnuð" til þægindaauka. Framleiðandi Bieffe- plast, hönnuöur Sottsass og Co. „Lodge" er úr ferhyrndum álprófílum, málaöur með epoxylakki, sæti, bak og armar bólstraðir. Framleiðandi er Bieffeplast, hönnuður Sottsass og Co. 12. Borðið „Attic“ einnig eftir Sottsass og Co. hefur að meginuppistööu fer- hyrnda stálprófíla sem minna á skýja- kljúfa, byggðir i kross, þannig skapast straumlínulag. Botn og borðplata eru úr marmara. Framleiðandi Bieffeplast. 13. „Taxi“ er fyrst og fremst sófi sem getur verið það sem maður „fílar“ þá og þá stundina, það má sitja í honum, leika sár í honum, halla sár, sofa í hon- um. Hann er hvorki of harður ná of mjúkur, efni og frágangur er mjög vandaö og allt gegnumunnið. Hönnuð- ur er Decurso í samvinnu við eitt þekktasta fyrirtæki ítala, BBB Bona- cina. 14. BAB Italia kynntu sína útgáfu af nýjum einföldum svefnsófa, „Pigro“, sem notar hjólaútbúnað til að auðvelda breytt fyrirkomulag. Hönnuðir Carlo Bimbi og Nilo Gioacchini. 15. Hönnuður „Sebastopol" er Michele De Lucche, ein enn úr Memphis-hópi. Hún hafði upprunalega í huga tusk- anskar kirkjur og grjótmynstur á veggjunum. Boröið er sterkt og varö á lokastigi samsett úr þremur tegundum af marmara. 16. Þessir dekkstólar bera með sár svo ákveðna persónu að þeir eru jafnlif- andi hvort sem situr í þeim manneskja eða þeir eru tómir. Þeir eru úr nælon- segli á málmramma. Hönnuöur er Toffoloni ásamt fyrirtækinu Malobbia.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.