Morgunblaðið - 06.01.1984, Side 7

Morgunblaðið - 06.01.1984, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1984 35 NAM loon, haföi veriö sá fyrsti, sem val- inn var til samstarfs í tilraununum varöandi talnaminni. Þótt þeir starfsmenn sálfræðideildarinnar, sem viö tilraunirnar unnu, hafi í fyrstu úrskurðaö, aö Steve Faloon heföi einungis minni og greind í meöallagi, miöaö viö háskólastúd- enta, tókst honum samt aö auka og styrkja minnisgáfu sína frá sjö tölum upp í áttatíu og tvær tölur á um þaö bil þrjúhundruö prófunar- timum — eina klukkustund á dag, ýmist þrjá eöa flmm daga vikunn- ar. Þetta tókst honum meö því aö fella tölurnar aö mestu leyti inn í tímana fyrir ýmsar greinar lang- hlaups. „Viö tókum aö mæla svo ótrú- legar niöurstööur," segir William G. Chase, sálfræöiprófessor, en hann hefur meö höndum yfirstjórn tilrauna þessara, „aö viö vildum komast aö raun um, hvort viö gæ- tum náö fram annarri hliöstæöu." í þessu skyni varö aö finna annan einstakling, sem aö því er virtist byggi yfir hæfileikum rétt í meöal- lagi og hægt væri aö kenna minn- istækni Faloons. „Viö vildum geta útilokaö þann möguleika, aö Steve Faloon byggi yfir einstæöri sér- gáfu, og vildum fá staöfest, aö þetta væri hæfileiki, sem byggöist á þjálfun," segir Chase prófessor til skýringar. Þær framfarir, sem Donatelli hefur tekiö, hafa verið allt aö því eins stórkostlegar og framfarirnar voru hjá Faloon (en hann dó áriö 1981 af krónískum blóösjúkdómi). „Viö veröum varir viö stööugar framfarir hjá Donatelli," segir Willi- am Chase prófessor. „Smátt og smátt er hann aö veröa fljótari og áreiöanlegri. Viö erum eiginlega farnir aö velta því fyrir okkur, hvort þarna séu nokkur takmörk." Sjálfur er Donatelli hinn bratt- asti. Þaö hámark, sem hann hefur hingaö til náö, áttatíu og fimm töl- ur, er nokkru betri árangur en Steve Faloon náöi, en þaö voru áttatíu og tvær tölur. „Ég held, aö ég fari bráöum aö ráöa viö eitt- hundraö tölur," segir Donatelli. „Þaö sem kemur í Ijós viö þetta,“ segir Chase prófessor, „er, aö menn geta meö markvissri þjálfun aukiö og styrkt hæfileika sína eins og minniö upp aö mörk- um, sem aldrei hafa náöst fyrr, jafnvel ekki af hálfu þeirra, sem hingaö til hafa veriö nafntogaöir snillingar aö andlegu atgervi. Ég álít, aö þeir Dario og Arthur skeri sig á engan hátt úr öllum fjöldan- um, nema aö því er varöar vilja- festu þeirra viö aö verja verulegum tíma til æfinga. Þetta krefst ekki neinnar einstæörar minnisgáfu né heldur nokkurra þeirra hæfileika, sem ekki fyrirfinnast hjá flestum mönnum. I þessu felst ekkert þaö, sem ekki er hægt aö læra.“ Á tímum, þegar menn geta keypt sér hræódýrar reiknitölvur í næstu ritfangabúö, mætti þaö svo sem viröast álíka vitlegt að fara aö þjálfa sig í aö reikna sexstafa tölu í ööru veldi í huganum eins og aö fara hjólandi frá New York til Washington, í staðinn fyrir aö skjótast þessa leiö meö þotu. Þaö er líka erfitt aö sjá, hvaö Dario Donatelli mun hafa fjárhagslega upp úr krafsinu fyrir sitt fjögurra ára puö viö aö æfa minniö, nema þá landssíminn fari aö taka upp áttatíustafa númer. Þaö sem í fyrstu kann aö viröast einungis sérvizkuleg og innantóm heilaleikfimi, er í reynd harla mik- ilsverður þáttur þess sem segja veröur aö jaöri viö byltingu á hinu heldur staönaöa sviöi sálfræöinnar — bylting, sem meöal annars er þegar tekin aö afsanna áöur viö- tekiö álit sálfræöinga á takmörk- um andlegs atgervis manna. Að ná til topps Þar sem ég hef sem blaðamaður sérstaklega helgaö mig skrifum um viöskiptamál, hef ég tíöum reynt aö leita á náöir sálfræöinnar til þess aö fá skiliö þann mikla mun, sem er á frammistööu manna í starfi: Hvernig á því stendur, aö vissir einstaklingar eru færir um aö klífa þrítugan hamarinn til topps hjá stórfyrirtækjum á meöan aörir, oft á tíöum alveg eins snjallir ef ekki jafnvel snjallari, sitja endan- lega fastfjötraöir á neöstu syllun- um. Aö vera fær um aö komast alveg upp á toppinn tryggir heldur ekki, aö velgengni í starfi fylgi í kjölfariö. Af hverju kemur þaö svo oft fyrir, aö einum forstjóranum tekst aö breyta fyrirtæki sínu í hreinustu peningakvörn, á meðan annar forstjóri í sömu iðngrein við sömu ytri efnahagsskilyröi stýrir sínu fyrirtæki beint fram af barmi gjaldþrotsins? Hvernig stendur á því, aö sumir einstaklingar skuli standa sig svo miklu betur en aör- ir, sem aö því er viröist hafa jafn- mikla hæfileika til aö bera? Eöa þá tíl að oröa þetta sem almennast: Hvaöa grundvallarþættir eru þaö, sem skilja aö velgengni og ófarn- aö? n, Þaö sem skrifaö hefur verið um velgengni er aö mínu áiiti ekki beinlínis neinn stórisannleikur. Annars vegar rekst maöur á skrif- finna, sem setja saman bækur um sjálfshjálp til velgengni, en þessi tegund bóka virðist njóta vin- sælda, sem standa í beinu hlutfalli viö útbreiðslu atvinnuleysisins. Slíkar bækur fullvissa lesendurna um, aö velgengnin sé afar einfalt mál: Hún geti falliö hverjum sem er i skaut. Gott dæmi um slíkan sam- setning er metsölubók eftir Helen Gurley Brown „Aö öðlast allt: Ást, velgengni, kynlifssælu, fémuni', en þar er því haldið fram, að þótt maöur sé hin mesta rola — ekki álitlegur til stórræöanna, ekki fríö- ur, sé ekki meö sérlega háan gáfnastuöul, almennilega mennt- un, ekki kominn af „góöu fólki" eöa hafi önnur þess háttar forskot til aö bera — geti maöur samt sem áöur „rolast" alla leiö til topps. Og hvernig á maöur svo aö komast þangaö? Samkvæmt slíkum bók- um er þaö yfirleitt spurning um jafnaugljósa en margræöa eigin- ieika og „atorku, þrautseigju og þor“, ásamt því aö betrumbæta sig stórlega á sviöum eins og í klæöa- buröi, mataræöi, áfengisnotkun, málfari og ástarfari, en allt eru þetta svo ofur auöveld sviö aö sögn. Ýmsir hinna áhrifamestu aðila meöal félagsfræöinga eru aftur á móti algjörlega á öndveröum meiöi í skoöunum sínum í þessum efn- um, en aö þeirra áiiti tekst flestum alls ekki aö klífa tindinn. Þessi skoöun kemur hvaö skýrast í Ijós i bókinni „Hver kemst ðfram? — þaettir, sem ráöa úrslitum um efnahagslega velgengni í Amer- íku.“ Er þetta afar yfirgripsmikiö yfirlit, sem út kom áriö 1979, unniö af Christopher Jencks, félagsfræö- ingi viö Harvard-háskóla, í sam- vinnu viö hóp þekktustu banda- rísku starfsbræöra hans. Aö áliti Jencks er unnt aö leita skýringa á tekjum og framtíöarstarfssviöi hvers einstaklings einmitt i þeim sömu þáttum, sem Helen Gurley Brown telur svo harla léttvæga. I góöri menntun, hárri greindarvísi- tölu og í öörum þáttum vitsmuna- lífsins, sem greinilega eru meö- fæddir, í ýmsum þáttum í persónu- leika fólks og það, sem þýö- ingarmest er af öllu, í því umhverfi, sem maöur sé sprottinn úr, en þar á Jencks viö tekjur foreldra, menntunarstig þeirra, kynstofn og þjóöerni. Einn af veigameiri þáttunum er, að áliti Jencks, hrein og skær heppni eða þaö aö vera á réttum staö á réttum tíma. Einn af gagn- rýnendunum, sem fjallaöi um bók- ina, komst svo aö orði: „Hve mikiö einhver einstaklingur veit, hvaö hann er fær um aö gera, hve mikið, sem hann kann aö leggja á sig, þaö skiptir allt saman tæpast máli.“ Sá sem einu sinni er félags- leg roia, veröur alltaf rola. Alheimurinn hið innra Enda þótt ég vildi gjarnan geta fallizt á þá tröllatrú, sem fram kemur í sjálfshjálparbókunum varðandi alla möguleika á frekari mannlegri fuilkomnun, þá viröist höfundunum ekki einungis hætta til aö segja máliö fram í sem allra einföldustum dráttum, heldur fjalla þeir um þaö í heild á afar einhliöa hátt. Sá lesandi, sem leitar aö vis- indalegri röksemdafærslu, fær venjulega lítiö annað aö moöa úr en drjúgan slatta af dæmum um feril höfundarins sjálfs eins og hjá Helen Gurley Brown. Þótt þær at- huganir, sem forlagatrúarmenn á borö viö Jencks hafa staöiö aö, byggist á víötækum rannsóknum, viröast flestar uppgefnar tölur samt samanstanda af tölfræöilegu innbyröis hlutfalli á milli jafn marg- ræöra, óskyldra og yfirborös- kenndra þátta í hagskýrslum og þaö hve mörgum árum hafi verið variö til menntunar annars vegar og svo launin hins vegar. Ég er ekki nægilega vel aö mér um hag- skýrslur til þess aö fara út í rök- ræöur um þetta innbyröishlutfall, en ég hef skrifað nógu mikiö um þaö sem er aö gerast í viöskiptalíf- inu til þess aö vita, aö til eru fjöl- margar undantekningar, kann fjöl- margar sögur af „rolum", sem hafa átt mikilli velgengni aö fagna í viöskiptalífinu — satt aö segja svo mörg tilvik, aö hin innbyröis hlut- föll forlagatrúarmannanna viröast ekki koma aö beinlínis miklum not- um viö aö útskýra sérstæö tilfelli. í mínum augum er miklu meira variö í sumar af þeim rannsóknum, sem geröar hafa veriö á sviöi vits- munasálfræöinnar, en um þessa grein sálfræöinnar hefur enn sem komiö er lítiö veriö birt á prenti. Markmið hennar er hvorki meira né minna en aö öölast skilning á hinum flóknasta tæknibúnaöi í al- heiminum, mannsheilanum. Eins og Morton Hunt kemst aö oröi í hinni hrífandi bók sinni, „Alheim- urinn hiö innra“, hefur vitsmuna- sálfræöin, þaö er aö segja sálfræöi hugsanaferilsins, „á örfáum árum gert fleiri uppgötvanir um þaö, hvernig viö mannlegar verur hugs- um, en viö höfum áöur komizt á snoöir um á öllum (jeim tíma, sem menn hafa verið til á jöröu hér.“ Allt frá fyrstu árum þessarar aldar hefur langmest boriö á hin- um heldur andstæöu greinum inn- an sálfræöinnar, þ.e. grundvallar- aðferöum Freuds og hegöunarsál- fræöinni. í hinni fyrrnefndu grein sálfræöinnar er reynt aö útskýra hegðun með djúpum og langvar- andi greiningar-prófunum á sálar- lífi viökomandi en hins vegar litiö á hugsanaferilinn aö mestu leyti sem afsprengi hins ómeövitaöa. Hin síöarnefnda grein innan sálfræöinnar, þ.e. hegöunarsál- fræöin, notar flókin prófunar- mynstur og Skinner-kassa í staö legubekksins hjá Freudsinnum, en aö áliti hegöunarsálfræöinga er greinanlegt hegöunarmynstur ein- asti gildi mælikvaröinn fyrir vís- indalegar athuganir, og líta þeir gjarnan á hugsanastarfsemina ein- ungis sem skilyrta svörun viö hvata eöa áreiti frá umhverfinu. Hin nýja kynslóö vitsmunasál- fræöinga leitast viö að gjalda var- hug viö jafn víötækum kenningum í sambandi viö hegöun. Samt sem áöur færa þeir sér aö miklu leyti í nyt viötekna rannsóknatækni, sem hegðunarsálfræðin beitir til þess aö reyna aö brjóta til mergjar þær tegundir sálrænna tengsla, sem Freudsinnar beina einkum athygli sinni aó. Með aöferöum, sem aldrei heföi veriö unnt aö beita, fyrr en meö tilkomu hinnar háþróuöu, fjölhæfu tölvutækni, eru vitsmunasál- fræðingar nú á dögum aö reyna aö gera líkön, sem sýna eiga ná- kvæmlega á hvern hátt manns- heilinn lærir, safnar þekkingar- foröa og vinnur úr upplýsingum. Meðal helztu viöfangsefna vits- munasálfræöinnar nú á dögum eru geövirkni og sérhæfing. Sé litiö á Carnegie-Mellon-háskóla sem eins konar „vermireit" eins og einn sálfræöingurinn kemst aö oröi, varöandi rannsóknír á þessu sviöi, þá er hann þó aöeins einn af mörg- um háskólum og vísindastofn- unum, sem leggur áherzlu á aö greina á milli sérfræðingsins og byrjandans, á milli frábærrar fram- mistööu og undirmáls-frammi- stööu. í gangi eru athuganir á jafn ólíkum sérkunnáttumönnum og skákmönnum, verzlunarmönnum, tónlistarmönnum, lögfræöingum, efnaverkfræöingum, hjartasér- fræöingum og jafnvel á fótbolta- unnendum og leigubílstjórum. Enginn heldur því fram, að þeg- ar sé búiö aö finna eöa sé jafnvel í þann veginn aö finna eitthvert alls- herjar lykilorö, alhliöa líkan af vel- gengni, sem gæfi viöhlítandi skýr- ingu á því, hvers vegna meöal- menninu A fellur allt í skaut en meöalmenninu B ekkert,________ SJÁ NÆSTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.