Morgunblaðið - 06.01.1984, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1984
37
Heimilishorn
Bergljót Ingólfsdóttir
Húfa fyrir veturinn
Þaö eru sjálfsagt ekki allir búnir aö koma sér upp góöri húfu fyrir
veturinn. í staöinn fyrir hinar hefðbundnu prjónahúfur er hér birt mynd af
saumaöri húfu, ásamt smá leiðbeiningum. Sniöiö samanstendur af
kringlóttu stykki og ööru löngu, ásamt stykkjum til aö hlífa eyrunum og
binda húfuna undir kverk. Kringlótta stykkið er 20 sm. í ummál og
lengjan 65 sm. löng og 16 sm. breið. Byrjaö er á aö sauma lengjuna
saman og kollurinn síöan saumaöur viö á röngunni. Hliöarstykkin eru
höfö 12 sm. breiö og þaö löng aö hnýta megl þau saman. Ef húfan er
fóöruö er fallegt aö velja einhvern lit, sem fer vel viö húfulitinn, þaö sæist
þá á lausu endunum þegar bundið er. Sjálfsagt er aö hafa húfuna úr
góöu ullarefni, þaö er ef til vill eitthvað nothæft til í húsinu, ónotuö flík ef
ekki vill betur til. Ef notaö er prjónles þarf ef til vill aó setja stíft efni í
kollinn, svo hann beri sig betur.
Aö sjálfsögöu þarf aö bera stykkin við höfuðstærö, þar getur veriö
mismunur eins og allir vita, og betra aó gera þaö áöur en saumað er og
gengiö frá.
V*nuu\
:/ W V; / Jt\ m 'yF=^' 4>\_ j _
■; yy
t ^ V*
Fatnaður Willi Smith, Willi Wear.
Sýnishorn af því sem viöskiptavinum var boöiö upp á fyrir veturinn.
Willi Smith, bandarískur fatahönnuður
Þaö er algengara aö hafa orö
á þekktum evrópskum hönnuö-
um, ekki síst frönskum, heldur en
bandarískum. Þarlendir tísku-
hönnuöir eru þó margir og vel-
þekktir.
Einn þeirra, sem vakiö hefur
athygli síöustu árin, er Willi
Smith, og hefur hann aðallega
þarfir yngri kvenna í huga, þegar
hann er aö hanna fatnaö sinn.
Sagt er, aö hann feröist víöa um
Bandaríkin, til aö kynna sér frá
fyrstu hendi, hvaö það er, sem
konur vilja á hverjum tíma. Hann
kveóst hafa komist aö því, aö
konur hafi alltaf minni og minni
tíma til aö leita sér aó heppi-
legum flíkum og haldi sig gjarnan
viö ákveðinn hönnuö, ef þær
hafa verið svo heppnar aö finna
sniö, sem þeim likar. Ennfremur
telur hann, aö fleiri og fleiri konur
kjósi föt, sem þjónaö geta mörg-
um hlutverkum, ef svo má aö
oröi komast, þ.e. flíkur sem geta
gengið viö ýmis tækifæri.
Á meöfylgjandi myndum sjást
nokkrar teikninga Willi Smith og
má greinilega sjá, aö tekiö er mið
af því sjónarmiði aö hægt sé aö
víxla flíkunum, blússurnar geta
gengiö viö pils og buxur o.s.frv.
Meö þessum teikningum fylgdi
sú umsögn hönnuöar, aö þessi
fatnaóur væri til uppfyllingar hjá
þeim konum, sem ættu sígildar
peysur og jakka, sem væri svo
hægt aö nota meö þessu.
Fatnaöur Willi Smith eða „Willi
Wear“, eins og vörumerkiö heitir,
er fáanlegur í verslunum um öll
Bandaríkin og hver veit nema
þau eigi eftir aö veröa fáanleg
hér.
Vesti og legg-
hlífar
í sama lit
Margar ungar stúlkur eru mjög iðnar við að prjóna,
það er líka til mikið af fallegu garni í verslunum, hér í
höfuöborginni aö minnsta kosti.
Því miður er ekki hægt að birta uppskriftir af flíkunum
með, en garniö, sem þetta er prjónað úr, er mohair,
grófasta gerðin. Vestin eru auöveld viðfangs, litir eru
(standandi stúlkur) hárautt til vinstri og blátt til hægri,
fremst fallegur gulur litur.
Rauöa vestið er meö því, sem kallað er tvöfalt perlu-
prjón, það bláa með sléttprjóni og það gula með venju-
legu perluprjóni. Legghlífarnar eru með venjulegu sniði,
þ.e. slétt og brugöiö til skiptis og er haft þröngt stroff
neðst við ökklann.
Kotasæla
W
a
dagskrá
Ekki eru allir jafn hrifnir af
kotasælu, þykir hún bragölitil,
en úr því má bæta meö ýmsu
móti t.d. meö ávöxtum, berjum
eða bragöefnum. Nú er komin
á markaö kotasæla meö anan-
askurli, hún er aöeins dýrari en
sú venjulega (kr. 20,85) en í
þeirri öskju, sem keypt var á
þessu heimili, var ananas lítt
merkjanlegur, hvort tilviljun
hefur ráðiö því, eöa sparnaöur
framleiöenda, skal ósagt látiö.
Kotasæla er ekki ódýr matur,
því miöur, og trúlegt að fólk
hugsi sig um tvisvar áöur en
keypt er mikiö magn og þá til
aö gera tilraunir meö. Kota-
sæla er mettandi, hitaeininga-
snauö, fitusnauö en rík af
eggjahvítu.
Klattar úr kotasælu.
Klattar úr
kotasælu
150 gr. kotasaela,
1 egg,
1 rifið epli,
2 matsk. þurrmjólkurduft,
örlitiö af sykri,
möndludropar.
Öllu blandaö saman, deigiö
sett með skeiö á pönnu, steikt
beggja megin og látið kólna
undir hjálmi svo mýkt haldist.
Reynt að hafa klattana jafn
stóra því tveir og tveir eru lagö-
ir saman og kotasæla sett á
milli, sykri stráö á ef vill.
Epli og kotasæla á brauö.
Epli og kotasæla
á brauð
Á hverja brauösneiö (gróft
brauö) eru settar tvær epla-
sneiöar, kanil stráö yfir, þá sett
kotasæla og ostsneiö efst.
Bakaö í ofni þar til osturinn
bráönar.
Appelsínusalat
meö kotasælu
Appelsínur skornar í þunnar
sneiöar, lagöar í skál, sykri
stráö yfir og efst eru settar
nokkrar matskeiöar af kota-
sælu. Haft meö kjöti eða fiski.
Kotasælusalat
2 selleristiikar,
1 epli.
300 gr. kotasæla,
4 matsk. rjómi eöa hrein jógúrt,
persille.
Grænmeti og ávöxtur skoriö
í smábita og blandaö saman
við kotasælu, bragöbætt meö
salati ef þurfa þykir. Salatið
gott með skinku og kjúklingi en
einnig sem sjálfstæöur réttur.