Morgunblaðið - 06.01.1984, Síða 22
50
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1984
„ W\er\æ-r faefur&u kc-yrt um þaé,oj5 ]po!s
þur-Pí aí> lesa fyrir ^joKpró-P - J "
Fyrir alia muni taktu ’ann því það
stendur enn sem sagt var forðum:
Hláturinn lengir lífið.
HÖGNI HREKKVfSI
Tvær nýjar bækur
— og lífið í alheimi
Þorsteinn Guðjónsson skrifar:
„f tveimur bókum, sem út komu
rétt fyrir jólin, er vikið að þeim
fræðum, sem ég hef lengst gefið
mig við um ævina (og ýmsir aðr-
ir), en það er um samband lífsins
við stjörnurnar. Við, sem þessi
fræði stundum, segjum: „Úr því að
líf er á einni stjörnu, hlýtur það
einnig að vera á öðrum hnöttum.
Það er óhugsandi að allur heimur
sólna, jarðstjarna og vetrarbrauta
hafi skapazt til þess að vera ein
ördeyða." En þessa röksemda-
færslu ætla ég nú ekki að rekja
lengra, heldur eru það hinar nýút-
komnu bækúr, sem til umræðu
eru. En þær hafa báðar að geyma,
hvor með sínum hætti, nokkurs-
konar andmæli gegn áminnztum
fræðum.
Önnur bókin, Um heima og
geima, er eftir þann ágæta mann
Þór Jakobsson veðurfræðing, sem
mjög hefur leitazt við að vekja og
fræða almenna lesendur um vís-
indi, með stuttum og læsilegum
greinum. Hann segir m.a.:
„Helgi Pjeturss hélt því fram af
mikilli sannfæringu, að víða í al-
heimi leyndust vitsmunaverur, og
gætu þær haft áhrif á okkur
mennina ... Skoðanir hans voru
stórkostlegar tilgátur, sem ekki
verður hægt að sannprófa í bráð.“
Þetta er nú ekki svo afleitt, en
þó er við þetta að athuga, að verk
dr. Helga er, í grundvallaratrið-
um, alls ekki tilgátur, heldur að-
ferðir. Tilgátur koma þar fyrir —
á það dró þessi vísindamaður enga
dul — en undirstöðurnar eru
sannaðar, eins og stjórnarmaður í
Sálarrannsóknafélagi íslands og
áhugamaður um fyrirburðafræði
mun naumast geta verið i vafa
um. Væru þau fyrirbæri ósönn, þá
væri allt starf SRFÍ, og fyrir-
burðafræðinnar (parapsychology)
Dr. Helgi Pjeturss: „... verk dr.
Helga er, í grundvallaratridum, alls
ekki getgátur, heldur aðferðir."
yfirleitt, einskis virði frá upphafi.
— Hver efar, að hlutir eins og
hugsanaflutningur, fjarskyggni,
samskynjun eigi sér stundum
stað? Ég spurði einn af foringjum
andmælanna gegn þessum hlutum
hér á landi að því á málfundi,
hvort afstaða hans byggðist á
sannfæringu. „Ég útiloka ekki
neitt," sagði hann.
Það getur enginn vafi á því leik-
ið, að kenning Helga Pjeturss er
leið til að rannsaka slík fyrir-
brigði sérstaklega, og hin ýmsu
fyrirbæri trúarbragðasögu og
líffræði almennt. Og er ekki rétt
að rannsaka? Og Pétur Sigur-
geirsson biskup hefur nýlega sagt:
„Frjáls hugsun og einlæg leit að
raunveruleikanum og hinum
sönnu verðmætum er undirstaða
alls velfarnaðar."
Hin bókin, sem kemur við sögu,
er eftir dr. Matthías Jónasson,
fyrrum prófessor, og nefnist hún
„Eðli drauma”. Ég minnist fyrst á
lítið atriði. Dr. Matthías gerir þá
athugasemd þar sem hann skrifar
um Hermann Jónasson skóla-
stjóra á Hólum, að „hvergi minn-
ist hann á draumkenning dr.
Helga Pjeturss" — í skrifum sín-
um um Njáludrauminn og „Ketil
úr Mörk“. En þetta er af misskiln-
ingi sprottið hjá Matthíasi, því að
„Draumar" Hermanns komu út
1912, en Helgi byrjaði ekki að
skrifa samfellt um draumakenn-
ingu sína fyrr en um mitt ár 1914.
Það er líka misskilningur hjá M.J.,
að hugmynd Hermanns um sögu-
mann í draumi, eigi eitthvað skylt
við kenningu Helga Pjeturss um
draumgjafa. Sú kenning er vís-
indaleg, hvernig sem á hana er Iit-
ið, en hugmyndin um „góðan vin í
draumi" er reynsluhugmynd sem
fylgt hefur mannkyninu um aldir.
Hún er eitt af því sem skýra þarf,
en er ekki skýring sjálf.
Einnig vil ég benda á, að það er
ekki allskostar rétt hjá dr.
Matthíasi að „draumarnir skiptist
í tvær gerólíkar tegundir sam-
kvæmt uppruna sínum og eðli“
(hinir glöggu draumar og missýn-
ingadraumar). Það er einmitt hið
gagnstæða, að draumategundir
þessar renna saman á takmörkum,
eins og líka vænta mátti, eftir eðli
skýringarinnar.
Matthías Jónasson segir enn-
fremur: „Við mat á skýringu dr.
Helga ber að hafa það hugfast, að
hún er aðeins þáttur í miklu víð-
tækari heimsfræði hans um vits-
munaverur ...“ í alheimi. Þetta er
vissulega alveg rétt fram tekið hjá
Matthíasi, og sýnir, að hann er að
byrja að taka fyrstu skrefin á afar
langri leið. Ég óska honum góðrar
ferðar og heimkomu."
Hvenær er ljósatími götuljósa?
(.urthjorg Ólafía Gísladóllir skrif
K,-vri WlvaVandi
tilkynningar eru lesnar í útvarpi,
þar sem bílstjórar eru hvattir til
Sem dæmi vil ég nefna, að núna
haust kom þvílík þoka, að menn
Sjálfvirkir ljósnemar
stýra götulýsingunni
Ingi Ú. Magnússon, gatnamála-
stjóri, skrifar 4. janúar:
„í dálkum „Velvakanda" nýlega
er fyrirspurn frá Guðbjörgu
Ólafíu Gísladóttur um ljósatíma
götuljósa. Rafmagnsveita Reykja-
víkur sér um götulýsingu og lætur
í té eftirfarandi upplýsingar:
„Mestum hluta götulýsingarinn-
ar á orkuveitusvæði Rafmagns-
veitu Reykjavíkur er stýrt með
sjálfvirku fjarstýrikerfi frá ljós-
nema í bækistöð Rafmagnsveit-
unnar í Ármúla, en afganginum er
stýrt með sjálfstæðum ljósnem-
um.
Ljósneminn skynjar dagsbirt-
una og kveikir á götulýsingunni
þegar birtan fer niður fyrir ákveð-
in birtumörk, en slekkur aftur á
henni þegar birtan fer yfir þessi
mörk.
Dagsbirtan er mjög háð árstíma
og veðurfari, en þoka og skafrenn-
ingur hafa fremur lítil áhrif á
dagsbirtuna, þótt þau geti haft
mikil áhrif á skyggnið.
Rafmagnsveitan hefur orðið við
ósk lögreglunnar um að kveikja á
götulýsingunni utan venjulegs lýs-
ingartíma, þegar veðurfar hefur
gefið tilefni til.“
Virðingarfyllst.“