Morgunblaðið - 07.01.1984, Side 5

Morgunblaðið - 07.01.1984, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1984 Blaðamenn Tímans fá svar við skeyti sínu: Framsóknarflokkurinn mun annast rekstur blaðs- ins næstu þrjá mánuðina 5 „ÁSTÆÐAN fyrir því að við sendum þetta skeyti var sú, að þegar við fengum uppsagnarbréfin var okkur tjáð að nýr aðili mundi taka við rekstri Tímans frá fyrsta janúar, og að blaðstjórn Tímans bæri þar með ekki lengur ábyrgð á rekstri blaðsins. Við vorum í starfi hjá Framsóknarflokknum, og þaö er ekki hægt að ráðstafa okkur frá einu fyrirtæki til annars, þannig að samkvæmt okkar kjarasamning- um var okkur stætt á því að mæta ekki til vinnu annan janúar, heldur sitja heima á fullu kaupi þrjá til fjóra mánuöi, það er að segja uppsagnarfrestinn," sagði Agnes Bragadóttir, blaðamaður á Tíman- um, í samtali við Mbl., en sem kunnugt hefur verið, var öllum starfsmönnum Tímans, að ritstjóranum, Þórarni Þórarinssyni, und- anskildum, sagt upp störfum þann 30. desember, í tengslum við stofnun nýs hlutafélags, Nútímans, sem átti að taka við rekstri Tímans í ársbyrjun af Framsóknarflokknum. Hugað ad skemmdum í brú Ottós N. Þorlákssonar MorpiibUiií/Frióþjófur. Ottó N. Þorláksson: Skipið frá veiðum í nokkrar vikur Blaðamenn Tímans sendu þá öllum stjórnarmönnum í bráða- birgðastjórn nýja félagsins skeyti þess efnis að þeir væru reiðubúnir til að halda áfram störfum til 15. janúar, að því tilskildu að þá væri búið að semja um endurráðningar þeirra. Ef ekki, áskildu þeir sér rétt til að hætta störfum fyrir- varalaust. í gær barst þeim svar frá Framsóknarflokknum á þá lund, að flokkurinn muni halda áfram rekstri Tímans til 1. apríl, eða fram að þeim tíma að upp- sagnirnar tækju gildi. Agnes sagði að skeytið hefði verið sent til að tryggja rétt blaðamanna um leið og þeir hæfu störf hjá hinum nýja vinnuveit- anda, Nútímanum. Mbl. náði í gær tali af Hákoni Sigurgrímssyni, formanni blað- stjórnar Tímans og forsvarsmanni hins nýja hlutafélags, og innti hann eftir ástæðu þess að sú ákvörðun hefði verið tekin að Framsóknarflokkurinn héldi áfram rekstri Tímans næstu þrjá mánuði. Hákon sagði: „Það þótti rétt við nánari athug- un, þar sem ekki tókst að ljúka stofnun nýja félagsins um ára- mótin, að flokkurinn héldi form- lega áfram til fyrsta apríl. Sömu- leiðis vegna þeirrar gagnrýni sem komið hefur frá starfsmönnum, vildi flokkurinn taka af allan vafa um það að hann stæði við skuld- bindingar sínar við starfsmenn. Eftir sem áður verður stefnt að því að ganga frá endurráðningu sem allra fyrst. Við vonumst til að geta haldið stofnfund síðari hluta næstu viku og mjög fljótlega eftir að honum lýkur vænti ég þess að línur fari að skýrast." VERULEGAR skemmdir urðu á tog- aranum Ottó N. Þorlákssyni, skipi Bæjarútgerðar Reykjavíkur, er það fékk á sig brotsjó suðvestur af Reykjanesi síöastliðinn fimmtudag. Tjónið hefur enn ekki verið metið, en það mun vera verulegt, því meðal annars tognuðu burðarbitar í brú skipsins auk þess, sem miklar skemmdir urðu á tækjum í brú skipsins. Ljóst er að skipið verður frá veiðum í nokkrar vikur. „Okkur er enn ekki ljóst hve mikið tjón í krónum talið hefur orðið á skipinu, en það er ljóst að það er verulegt. Unnið hefur verið að því að taka öll tæki úr brúnni, sem hægt var og síðan hafa þau tæki sem eru um borð verið könn- uð. Þá hafa menn frá Stálvík kannað brúna og komið hefur í ljós að burðarbitar þar eru bognir. Þá er ljóst að skipið mun stöðvast í nokkrar vikur. Það er ekki til neitt, sem heitir bráðabirgðavið- gerð í þessu, brúin er það mikið skemmd, að skipið fær ekki leyfi til að halda út án fullnaðarvið- gerðar. Þessari stöðvun skipins fylgja talsverðir erfiðleikar. Ottó N. Þorláksson er aflahæsta skipið okkar og því bagalegt að missa það úr veiðunum þennan tíma,“ sagði Brynjólfur Bjarnason, fram- kvæmdastjóri BÚR, í samtali við Morgunblaðið. Brynjólfur var spurður að því hvort þetta þýddi ekki minna hrá- efni til vinnslu í landi og hvort því gætu fylgt uppsagnir. Sagði hann, að of fljótt væri að segja til um það. Öll skipin nema Ottó væru á veiðum, en hefði að vísu gengið brösulega. Það væri ekki búið að kortleggja þetta enn, en unnið væri að því. Það væru meiri líkur á því að minni vinna yrði, þegar aflaskip hyrfi frá veiðum. Leiðrétting ÞAU mistök urðu í frétt Morgun- blaðsins um ísbjörninn hf. í Reykjavík í gær, að rangt var far- ið með föðurnafn forstjóra fyrir- tækisins, Ingvars Vilhjálmssonar. Var hann sagður Hjálmarsson. Morgunblaðið leiðréttir hér með þessi mistök og biður Ingvar Vilhjálmsson velvirðingar á þeim. Fullorðin hjón í hrakn- ingum á Þrengslavegi iNirlákshörn, 6. janúar. Hjónin Valdimar Kristinsson, 62 ára leigubílstjóri, og Guðbjörg Óskarsdóttir, 63 ára, hringdu í fréttaritara Morgunblaðsins á Þorlákshöfn og höfðu fremur rauna- lcga ferðasögu að segja, sem þau langaði að koma á framfæri. Fer hún hér á eftir. „Við hjónin lögðum af stað frá Reykjavík til Þorlákshafnar um hálf tólfleytið að kvöldi annars janúar," sagði Guðbjörg. „Við ókum á sínum bílnum hvort og maðurinn á undan. Veðrið versn- aði er á leið og hafði Hellisheiði lokast þannig að allir bílar urðu að aka Þrengslin. Eftir eins og hálfs tíma akstur vorum við komin efst í Skóghlíðarbrekku (Þrengsla- brekku). Þar ókum við fram á hjón með tvö stálpuð börn í biluðum bíl. Þau voru á leið til Selfoss. Á bíl eiginmanns míns hafði eitt hjólið frosið fast og bað hann mig að bíða á meðan hann losaði það. Er það hafði tekist mjakaðist hann af stað niður brekkuna. í þann mund kom maðurinn á Sel- Hjálpsemi borgar sig ekki alltaf fossbílnum og biður mig að taka sig í tog. Ég treysti mér alls ekki til þess því að þurrkurnar á bíl mínum höfðu frosið fastar og vissi ég ekki hve langt ég kæmist í svo slæmu veðri. En það var sama hvað ég sagði, hann hnýtti á milli bílanna og skipaði mér að aka af stað. Ég hafði boðið þeim að koma inn í minn bil, en ekki var við það komandi fyrst í stað. Ég reyndi síðan að draga bílinn, en það gekk ekkert þar sem færðin var hin versta. Þegar ljóst var að þetta tækist ekki komu kona og börn mannsins yfir í minn bíl. Eg var þá orðin mjög þreytt, þurrkurnar frosnar og miðstöðin biluð, en samt ætlaði ég að reyna að komast áfram. Á meðan hafði maðurinn minn ekið niður brekkuna og beið þar, en er honum fannst biðin orðin of löng gekk hann af stað í átt til okkar upp brekkuna á móti belj- andi stormi, snjókomu og í glæra hálku. Þegar við vorum að leggja af stað birtist hann í bylnum illa á sig kominn. Ég aðstoðaði hann við að komast inn í bílinn og dúðaði hann í teppi. í því birtist lögregl- an, en maðurinn minn er leigubíl- stjóri og hefur talstöð í bíl sínum sem hann notaði til að kalla á hjálp fyrir Selfossbílinn. Birtist þá eigandi Selfossbílsins og ræðir við lögregluna. Síðan fara þeir að binda Selfossbílinn aftan í lög- reglubílinn. Að því loknu kallar hann í börnin og konuna, sem fara í lögreglubílinn. Ég mjakaðist af stað niður brekkuna, varð að hafa opinn glugga til að getað séð út. Þegar niður er komið vitum við ekki fyrr til en lögreglan ekur framhjá og hverfur með Selfossbílinn í togi. Sjáum við ekkert meira af þeim. en berjumst áfram og komumst á endanum heim til Þorlákshafnar klukkan sjö um morgunin. Var þá ástandið þannig að maðurinn minn var stokkbólginn, með blöðr- ur á höndunum sem voru hálf tilfinningalausar. Blár og bólginn í augum og með miklar kvalir. Ástandið var það slæmt að heimilislæknir okkar sendi hann á spítala til frekari rannsóknar. Hann er nú kominn heim aftur og er við sæmilega heilsu, en má ekk- ert vinna eða nota hendurnar. Það sem okkur finnst furðulegast er það hvers vegna lögreglan athug- aði ekki hvort við þyrftum aðstoð og svo að eigandi Selfossbílsins, sem við ókum fram á og aðstoðuð- um, lét ekki lögregluna vita um ástand okkar. Við erum eldri hjón og þetta ferðalag tók okkur sjö og hálfan tíma. Okkur þykir undar- legt að vera skilin þarna eftir í brjáluðu veðri um hánótt svona á okkur komin, rétt eins og við vær- um ekki til,“ sagði Guðbjörg Óskarsdóttir. J.H.S. Opið kl. Opið kl. Vörumarkaðurinn hf. 1 EÐISTORG111 Vorumarkaðurinnhf. ARþ iULA 1a

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.