Morgunblaðið - 07.01.1984, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 07.01.1984, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1984 9 fikígDsÖ DuDÍÍl Umsjónarmaður Gísli Jónsson 225. þáttur Heimir Hannesson í Reykja- vík sendir mér athyglisvert bréf sem birtist hér á eftir óstytt að kalla: „Ég hef áður ritað þér nokkrar línur í sambandi við íslenzkt mál, tengt ferðamál- um og einkum leitað eftir hugmyndum um nafn á at- vinnugrein ferðamála, sem oft er kennd við „túrisma". Það getur varla gengið leng- ur, að vaxandi atvinnugrein, sem starfað hefur verið að í áratugi, eigi sér ekki nafn. Því rita ég þér á ný, að á ráðstefnu um ferðamál er nýlega var haldin í Borgarnesi, var þetta nokkuð til umræðu og sýndist sitt hverjum. Sumir vilja kalla atvinnugreinina ferðaþjón- ustu, aðrir ferðaiðnað og enn aðrir ferðarekstur. Ég hygg, að flestum líki hvað skást við orð- ið ferðaþjónusta, þó að það sé ekki almenn skoðun, og finnst mörgum, að slíkt heiti sé full- þröngt miðað við víðfeðmi at- vinnugreinarinnar. Ekki geng- ur að nota orðið ferðamál sem heiti á atvinnugrein, og ég hef oft fallið í þá gryfju að nota samsettu orðin „atvinnugrein ferðamála", sem er stirt og langt. Því er úr vöndu að ráða og góðra manna ráð þegin. Úr því að ég rita þér á annað borð er freistandi að minna á, að ekki verður hjá því komizt að viðurkenna, að í atvinnu- greininni verður vart veru- legra erlendra áhrifa í máln- otkun, og er það til lýta. Þegar gestir koma ekki á áætluðum tíma á hótel eða á flugvelli er rætt um „no show“, menn „cancellera" ferðum farkosta og einstaklingar hittast í „lobbyum“ og fara með „buss- um“ fram og aftur og steikin heitir á matseðlinum „Tí- bone“ og er ýmist framreidd „well done“, „mídium" eða „rer“. Þannig má því miður lengi telja. Kannski setur Ferðamála- ráð á fót málhreinsunarnefnd. Þar hafa menn þó töluvert haldið vöku sinni. Ráðið and- mælti á sínum tíma nafngift- inni Broadway á nýjum skemmtistað í Reykjavík og taldi það brjóta í bága við ís- lenzka málhefð og kynni að skapa slæmt fordæmi, þó að þau væru vissulega þegar kom- in. Ég geri ekki ráð fyrir, að t.d. Mývetningar myndu nokkru sinni sætta sig við Hollywood í þeirri ágætu sveit eða Svarfdælingar skemmta sér og snæða í Las Vegas á Dalvík. Þó er aldrei að vita, ef menn halda ekki vöku sinni. Skagstrendingar hafa nú kom- ið sér upp „Kántry“-veit- ingastað að hætti bandarískra Suðurríkjamanna þó að þar virðist fátt sameiginlegt. Og enn þeysast menn á milli Hollywood og Broadway í höf- uðborginni með gesti sína, inn- lenda sem erlenda og þeir síð- arnefndu brosa í laumi. Það er því miður í vaxandi mæli áberandi upp á síðkastið, að auglýsingastofur nota mál- leysur og götumál í einhvers konar áherzluskyni, hvetja menn til að fara til „Kjöben" og nýlega boðizt til að „fljúga viðskiptavinunum" hingað og þangað. Andstæður þess, sem að framan greinir, er virðingar- verð málkennd forráðamanna Hótels Sögu og Loftleiða þar sem íslenzk orð, sum í sögu- legu samhengi,.eru meginregl- an. Því miður hefur annað hót- elið nýlega vikið frá góðri nafnahefð með nýjum „Pub“. Ýmsum kann að þykja þetta vera langt mál um' smámuni. Ég tel það ekki vera, og ánægjulegt var að vera vitni að málkennd og máláhuga þeirrar fjölmennu ráðstefnu um ferðamál, sem að framan greinir." Nú kemst umsjónarmaður í mikinn vanda eins og stundum áður. Biður hann því lesendur liðsinnis. Aðeins örfá orð um efni bréfsins frá honum sjálf- um að sinni: Um túrisma hefur umsjón- armaður ekki betra orð en ferðaþjónustu. Stórum lakari þykja honum hin orðin sem nefnd voru. Það er ekki til- tökumál þótt ekki takist að ná öllum merkingartilbrigðum enska orðsins tourism. Það er oft býsna erfitt að finna orð sem samsvarar öðru nákvæm- lega og fyllilega að merkingu og blæ. Af eðli greinarinnar leiðir að inn í hana vilja slæðast er- lend orð. í stað no show er ein- falt að segja sést ekki eða birt- ist ekki, í stað cancellera aflýsa menn ferðum, hætta við þær, fella þær niður, stundum aðeins fresta þeim. Lobbý má heita móttaka, bus vagn eða bíll. Steikin með té-laga beini getur heitið tésteik eða tébeinsteik og þá ýmist mikið, miðlungs eða lítið steikt. En hér er þessu að- eins slegið fram að lítt gaum- gæfðu máli og tillögur um betra málfar sannarlega vel þegnar. Ég vona svo að mér verði ekki flogið eitt eða neitt, þótt ég ferðist með flugvél, og að sjálfsögðu sæmir okkur að láta íslenska staði heita íslenskum nöfnum. Lágmarkskrafa er að nöfnin séu rituð að íslenskum hætti. Ef við ætlum að taka upp enska orðið pub, verðum við að stafsetja það pöbb. Þetta gefur mér þá efni til að biðja yfirvöld umferðarmála um að hafa tvö p í orðinu stopp, þar sem stöðvunar- skylda er. Hitt er borið fram með löngu o-hljóði. Útlend- ingar vita hvað stopp þýðir. Þeir sem fylgjast vel með máli útvarps og sjónvarps, hafa nokkrir haft samband við mig og haft sitthvað við það að athuga. Dæmi 1: Þetta réð bagga- muninn. Samruni úr að ríða (af) baggamuninn og ráða úr- slitum. Dæmi 2: Eruð þið þá að gefa upp laupana? spyr fréttamað- urinn. Samruni úr að gefast upp og vera búinn að leggja upp laupana. Dæmi 3: í sjónvarpsfréttum 27. desember var þrástagast á „fyrirbyggjandi", rétt þegar umsjónarmaður var búinn að hæla fjölmiðlum fyrir að hafa fest orðin forvörn og forvarn- arstarf og: Dæmi 4: Viðmælandi frétta- manns segir: Það féllu niður hjá okkur fullt af flugum í dag. Menn sáu fyrir sér þetta stór- fellda flugnafall og undruðust í skammdeginu. P.s. í síðasta þætti féll niður sögnin að halda í einni máls- grein bréfsins frá Víkingi Guð- mundssyni: „Ég hef hneigingu til að halda að það sé,“ o.s.frv. átti það að vera. Til sölu Af sérstökum ástæöum er ein stærsta tískuverslun landsins til sölu, ef viöunandi verö fæst. Verslunin er í fullum rekstri í glæsilegu húsnæöi viö Laugaveg í Reykjavík. Fyrirtækiö hefur einkaumboö fyrir nokkur helstu vörumerkin í tískuheiminum í dag. Upplýsingar veittar á skrifstofunni, ekki í síma. Árni Guöjónsson, hæstaréttarlögmaöur, Garðastræti 17, Reykjavík. Hafnarfjörður Til sölu m.a.: Þrúövangur 6 herb. giæsilegt steinsteypt einbýlishús aö grunnfleti 143 fm auk 80 fm í kjaliara meö stóru vinnuherb., geymslum og 1 herb. Bílskúr fylgir. Gott útsýni. Falleg ræktuö endalóö. Álfaskeiö 4ra—5 herb. mjög falleg íbúð á 1. hæð í fjölbýlishúsi. Bílskúrs- sökkull. Víöihvammur Hf. 4ra—5 herb. íbúö 120 fm á 3. hæð (efstu hæð) í fjölbýlishúsi. Bílskúr. Vönduö ibúö. Mikiö út- sýni. Álfaskeið 3ja herb. íbúð á 1. hæð í fjölbýl- ishúsi. Bílskúr. Ný eldhúsinn- rétting. Sérþvottahús. Laus fljótlega. Sléttahraun 2ja herb. vönduö endaibúö á 2. hæð í fjölbýlishúsi. Álfaskeiö 4ra herb. falleg endaíbúö, 112 fm, á næstefstu hæð, í fjölbýlis- húsi. Bílskúr. Suöurbraut 3ja herb. falleg endaíbúö 96 fm á jaröhæö í fjölbýlishúsi. Parket á gólfum. Álfaskeiö 2ja herb. góö íbúö á 1. hæö í fjölbýlishúsi. Hamarsbraut 5 herb. járnvariö timburhús á mjög góöum útsýnisstaö. Brattakinn 2ja herb. kjallaraibúö í góöu ástandi. Verö kr. 800 þús. Vesturbraut 2ja herb. íbúö á jaröhæö í timburhúsi. Mikið endurnýjuð. Verð kr. 900 þús. Ekkert áhvíl- andi. Laus strax. Einiberg Setbergslandi 5 herb. glæsilegt steinsteypt einbýlishús á einni hæö um 143 fm auk 53 fm bilskúrs. Selst fullfrágengiö aö utan meö frá- genginni lóö. Til afh. maí—júní nk. Álfaberg og Hnotuberg Setbergslandi 5 herb. falleg parhús 153 fm með innbyggöum bílskúrum. Seljast fullfrágengin aö utan. Til afh. eftir samkomulagi. Opiö í dag kl. 1—4 FASTEIGNASALA Árna Gunnlaugssonar Austurgötu 10 — S: 50764 VALGEIR KRISTINSSON, HOL. 29555 2ja herb. Lokastígur Mjög góö 60 fm íbúö á 1. hæð í steinhúsi. Allt mikiö endurnýj- að. Verö 1230 þús. Laugarnesvegur Góð 70 fm íbúð í tvíbýli. Stór garður. Verö 1100 þús. Skipti möguleg á 3ja herb. i sama hverfi. Hraunbær Stór 2ja herb. á 1. hæð. Verö 1250 þús. 3ja herb. Dúfnahólar Mjög glæsileg 90 fm íbúö á 6. hæö í lyftublokk. Þvottahús á hæðinni. Verð 1450—1500 þús. Vesturberg Góð 90 fm íbúö á jaröhæö i skemmtilegri blokk. Verö 1400 þús. 4ra herb. íbúöir Kvisthagi Mjög góö 125 fm sérhæö í þri- býli. Nýr bílskúr. Skipti möguleg á minni íbúö. Sörlaskjól Hæð og ris samt. 190 fm. 35 fm bílskúr. Æskileg skipti á íbúö í lyftublokk á svipuðum slóöum. Seljabraut Mjög góð 4ra herb. 110 fm íbúð ásamt bílskýli. Fæst í skiptum fyrir góða 2ja herb. íbúð á höfuðborgarsvæðinu. Háaleitisbraut Stór og mjög góö 5 herb. íbúö á 4. hæö. Æskileg skipti á 3ja herb. ibúö neðar í blokk i sama hverfi. Einbýlishús Fljótasel Eitt glæsilegasta raöhús borg- arinnar. Hús á 3 hæöum ásamt bílskúr. Gæti hugsanlega veriö 2 íbúöir. Stuðlasel Glæsilegt einbýlishús 330 fm á 2 hæöum. Skipti möguleg á stærra húsi. Lindargata Snoturt 115 fm timburhús, mikið endurnýjað. Skipti mögu- leg á 3ja herb. íbúö í Reykjavík. Eignanaust Skipholti 5. Sími 29555 og 29558. 29555 3ja-4ra herb. íbúð óskast — Mjög góð útborgun — Viö auglýsum eftir 3ja—4ra herb. íbúö á höfuö- borgarsvæðinu. Mjög góö útborgun í boöi. 29555 ewnanaust^; Shipholti 5 - 105 R»yk|»vik - Simar 2*SSS ?9SS1 29555 2ja herb. íbúð óskast — Staðgreiðsla — Höfum veriö beönir aö útvega fyrir mjög fjársterkan kaupanda 2ja herb. íbúö á höfuðborgarsvæöinu. Allt aö því staögreiösla í boöi fyrir rétta eign. OQRRR EIGNANAUST^ mmm Skiphoin S - 10S Reykiavik - Simar 29555 29558

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.