Morgunblaðið - 07.01.1984, Blaðsíða 31
fólk í
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1984
31
Glistrup
um fangelsið:
Eins og
í helvíti
+ Ég hata fangelsið. Vistin í fangelsinu
hefur verið ein martröð frá fyrsta degi.
Frelsisskerðing er hreinasta helvíti og
enn verri nú á tímum kosningabaráttu.
Þetta voru orð danska stjórnmála-
mannsins Mogens Glistrup er hann fékk
þriggja daga leyfi til að fara út fyrir
fangelsismúra og taka þátt í undirbún-
ingi baráttunnar vegna kosninganna í
Danmörku á þriðjudag.
Glistrup var dæmdur í fyrra til fang-
elsisvistar fyrir gróf skattsvik. Sagðist
hann reyna að nota tímann sem mest og
leikur m.a. badminton sem nemur 10
klukkustundum á viku. Af þeim sökum
hefur hann losnað við 22 kíló frá því
hann var settur inn.
Glistrup sagðist þéna í fangelsinu
147,60 krónur danskar á viku, en það er
snöggtum minna en þegar hann var upp
á sitt bezta.
+ Glistrup notaði tímann utan
fangelsismúranna til að tala máli
Framfaraflokksins vegna kosn-
inganna í Danmörku á þriðjudag.
Fær nýtt
eyra
+ ítalski táningurinn Giorgio Bulgari
Callissoni sem rænt var á dögunum og
missti annað eyrað í vistinni hjá mann-
ræningjunum fær bót meina sinna á
næstunni, því lýtalæknir í Kaliforníu hef-
ur boðist til að búa til nýtt eyra úr eigin
brjóski Giorgios. Hefur Giorgio góðar
vonir um að aðgerðin takist svo vel að
ekki verði séð að hann er með gervieyra.
Fyrir 14 árum hefði þetta fólk hafnað í fangelsi fyrir gleraugnaburð, þar sem slíkt var bannað í tíð fyrrum
soldáns. En nú ráða þau ríkjum, þar sem Qaboos prins steypti foður sínum 1970 og hefur hann í millitíðinni
komið flestum málum til nútímalegri vegar f Oman.
Steypti föðurnum til að geta borið gleraugu
ALLT til ársins 1970 var frekar hljótt um
soldánsríkið Oman, þar sem flest var fremur
fornfálegt, enda stjórnaði soldáninn með
mikilli hörku, en hann var mjög íhaldssamur
og móti öllum nýjungum.
Með skírskotan til trúarinnar bannaði
hann þegnunum t.d. að reykja vindlinga eða
bera gleraugu. Árið 1970 þótti Qaboos prins,
syni soldánsins, hins vegar nóg komið af
forneskjuháttunum og steypti föður sínum af
stóli.
Að lokinni hallarbyltingu hófst prinsinn,
sem þá var 29 ára, handa og hefur velmegun
og framþróun í ríki hans verið með þeim
hætti síðan að þróunarsérfræðingar Samein-
uðu þjóðanna segja hvergi hafa jafn vel til
tekist.
Ofí nú geta allir sjóndaprir Omanir borið
gleraugu og ætti engum að vera hætt, þar
sem leiðtoginn sjálfur og kona hans eru þar
fremst í flokki, eins og meðfylgjandi mynd
ber með sér.
GÆTI
í umhleypingasamri vetrarveðráttunni
okkar gildir það að vera við öllu búin.
Keðjurnar geta oft skipt sköpum.
* Fólksbíla- og jeppakeðjur ásamt
þverböndum og öðrum viðgerðar-
hlutum eru jafnan fyrirliggjandi.
Aukum öryggi í umferðinni!