Morgunblaðið - 07.01.1984, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1984
Ljósm. Mbl. KÖE.
Islenska óperan frumsýnir
Rakarann í Sevilla á morgun
RAKARINN í Sevilla, ópera eftir
Gioacchino Rossini, verður frum-
sýnd í íslensku óperunni á morg-
un, sunnudag.
í tilkynningu frá óperunni
segir að Rakarinn í Sevilla sé
gamanópera í tveimur þáttum,
sem gerist í Sevilla á Spáni
snemma á 19. öld. „Sagan segir
frá ungum greifa, sem reynir
að ná ástum yngismeyjarinnar
Rósínu," segir orðrétt í tilkynn-
ingunni. „En hann á þar við
annan vonbiðil að etja, það er
verndara stúlkunnar. Greifinn
ungi bregður sér því í mörg
gervi og beitir ýmsum brögð-
um, og nýtur til þess dyggilegr-
ar aðstoðar rakarans og þús-
undþjalasmiðsins Fígaró.
Texta óperunnar skrifaði
Cesare Sterbini eftir leikriti
Frakkans Baumarchais, en
hann skrifaði bæði Rakarann í
Sevilla (1775) og Brúðkaup Fíg-
arós (1784), sem Mozart gerði
frægt. Rakarinn og Fígaró eru
einn og sami maður: Bragðaref-
ur og þúsundþjalasmiður í Sev-
illa í Andalúsíu. Að líkindum
hefur enginn rakari — raun-
verulegur eða ímyndaður orðið
frægari en Fígaró, hvorki fyrr
né síðar."
f tilkynningunni segir enn-
fremur: „Gioacchino Rossini
fæddist árið 1792 í smáborginni
Pesaro á ítaliu og svo beint inn
í heim óperunnar, þ’ví að móðir
hans var óperusöngkona en fað-
ir hans horn- og trompetleik-
ari. Hann stundaði tónlistar-
nám í Bologna, en námið var
losaralegt, hann lauk aldrei
námi formlega því Rossini
kunni alla tíð að meta lysti-
semdir þessa heims og eyddi
miklum tíma í að skemmta sér.
Þegar Rossini var 28 ára að
aldri, hafði hann samið 30 óper-
ur og var jafnvel farinn að
hugsa um að setjast í helgan
stein fyrir þrítugt. Svo varð þó
ekki, hann átti eftir að gista
helstu tónlistarborgir Evrópu
utan ftaliu, svo sem Vínarborg,
Lundúnir og París, Rossini lést
í París árið 1868.“
Kristinn Sigmundsson og
Sigríður Ella Magnúsdóttir
syngja aðalhlutverkin og komu
þau sérstaklega til landsins til
að taka þátt í þessari sýningu.
Einnig eru í stórum hlutverk-
um Júlíus Vífill Ingvarsson,
Kristinn Hallsson, Jón Sigur-
björnsson, Elísabet F. Eiríks-
dóttir og Guðmundur Jónsson.
Marc Tardue er hljómsveit-
arstjóri, en leikstjóri er Franc-
esca Zambello, sem er fastráðin
við San Francisco-óperuna og
hefur leikstýrt óperum víða um
heim. Aðstoðarleikstjóri er
Kristín S. Kristjánsdóttir og
um leikmynd, lýsingu og bún-
inga sjá þau Michael Deegan
Sarah Conly.
_______________________23^
Færeysku lista-
sýningunni lýkur
á þriðjudag
FÆREYSKA listsýningin sem nú er
í Norræna húsinu lýkur þriðjudag-
inn 10. janúar.
Fyrirhugað var að sýningunni
lyki sunnud. 8. jan. en nú hefur
verið ákveðið að sýningin standi
til þriðjudagsins 10. janúar, og er
sýningin opin kl. 14—19.
Hér er um að ræða stærstu far-
andsýningu á færeyskri list. 16
færeyskir listamenn eiga verk á
sýningunni þ.á m. Sámal Joensen
Mikiens (d. 1979) og Ruth Smith
(d. 1958)
Það er Norræna listamiðstöðin
á Sveaborg í Finnlandi, sem stend-
ur að þessari sýningu. Mjög vegleg
sýningarskrá hefur verið gefin út í
tilefni sýningarinnar, og er hún
fyrsta almenna kynningin á fær-
eyskri myndlist sem út hefur kom-
ið.
Fyrirlestur um
danskan tilrauna-
menntaskóla
Sunnudaginn 8. janúar nk. held-
ur Merete Biorn fyrirlestur um til-
raunamenntaskóla danska ríkis-
ins í Herlev, Herlev Statsskole.
f erindi sínu mun Merete Biorn
segja frá reynslu sinni í kennslu
við þennan skóla og fjalla um þær
athyglisverðu kennslufræðilegu
tilraunir, sem þar fara fram.
Fyrirlesturinn verður haldinn í
Norræna húsinu sunnudaginn 8.
janúar kl. 16.00 og er öllum opinn.
í fullum gangí
Barnapeysa áður 499.- nú 299.-
Ungbarnasmekkbuxur 259.- 159.-
Telpnaskór 499.- 299.-
Dömukápa 1.989.- 1.589.-
Dömuprjonavesti 589.- 389.-
Buxur úr vetrarbómull 789.- 589.-
Herraulpur 1.489.- 989.-
Herraskyrtur 499.- 299.-
Herrabuxur 599.- 399.-
Herraskór 789.- 589.-
Sokkaskór 159.- 99.95.-
Baðhandklæði 100x150 cm 299.- 229.-
Baðhandklæði 67x130 cm 189.- 129.-
Gler olíulampar 115.- 69.95.-
Eldhúsrúllur Serla 43.55.- 35.-
W.C. pappír Serla 21.40.- 17.-
Sími póstverslunar er 91-30980 S3 , E
TTániTATTP Reykiavík
IIAvJÍVAU i Akureyri