Morgunblaðið - 07.01.1984, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1984
13
tónlistarlífinu
Margrét Heinreksdóttir
Ég spurði, hvernig þau mætu
sjálf gildi og hlutverk þess starfs
sem Kammersveitin hefði unnið
um árin og vildu þau einkum til-
taka tvo þætti, annarsvegar að
halda uppi reglulegum hljómleik-
um með flutningi stærri kammer-
verka, sem ekki hefði verið fyrir
hendi áður; hinsvegar það gagn,
sem hljóðfæraleikararnir hefðu
sjálfir haft af því að leika kamm-
ertónlist reglulega. Flestir félag-
anna höfðu leikið með Sinfóníu-
hljómsveit íslands en ekki mikið
af kammermúsík fyrr en Kamm-
ersveit Reykjavíkur tók til starfa.
„Það er afar þroskandi fyrir
hljóðfæraleikara að æfa og spila
saman, án stjórnanda, þurfa að
hlusta hver á annan og hver með
öðrum og við teljum að það hafi
skilað sér í bættum leik hljóð-
færaleikaranna í Sinfóníu-
hljómsveitinni sjálfri."
Þeir hljóðfæraleikarar og
söngvarar, sem fram hafa komið
með Kammersveitinni á þessum
áratug eru svo margir orðnir, að
nær því myndu fylla Áskirkju, þar
sem tónleikararnir á morgun
verða haldnir. í þessum stóra hópi
er mikið af ungu fólki, einkum frá
starfinu á síðustu árum. „Við höf-
um opnað sveitina æ meira með
árunum, sagði Rut, enda var ætl-
unin sú í upphafi að hún endur-
nýjaðist stöðugt, þegar hún hefði
haslað sér völl og starfið fengið
fastar skorður, og við vonum, að
svo verði áfram."
Alls hefur Kammersveit
Reykjavíkur flutt um 140 tónverk
þennan áratug, að meðaltali 14 á
ári, dágott framlag í frístundum
er óhætt að segja. Á verkefnalist-
anum kennir margra grasa en
mest virðist þar áberandi tónlist
frá barokskeiðinu og 20. aldar
tónlist, þar á meðal frumflutning-
ur nýrra verka, sem samin hafa
verið fyrir sveitina. Tónleikar
hafa jafnan verið þrisvar til fjór-
um sinnum á vetri og fjórum sinn-
um hefur sveitin leikið erlendis.
Með henni hafa leikið hinir merk-
ustu tónlistarmenn, innlendir og
erlendir, og mætti kannski af
þeim nefna þá Vladimir Ashken-
azy og feðgana Ib og Vilhelm
Lansky Otto — og allir að sjálf-
sögðu án endurgjalds.
Þegar fjórmenningarnir voru
inntir eftir því, hvernig verkefni
væru valin, kom fram, að ekki
hefðu alltaf allir verið sammála í
þeim efnum, — „en allur slíkur
ágreiningur hefur alltaf leystst
fljótt og vel,“ sögðu þau og bættu
við, að það hefði verið skemmti-
legt verkefni að koma sér saman
um viðfangsefnin hverju sinni. „Sé
ágreiningur er einfaldlega leyst úr
honum með atkvæðagreiðslu."
Starfsskipan og stjórnun sveit-
arinnar sögðu þau jafnan hafa
verið lausa í reipum. Þó hefur hún
þriggja manna stjórn — hana
skipa nú Rut Ingólfsdóttir, for-
maður, Sesselja Halldórsdóttir og
Auður Ingvadóttir, og þriggja
manna verkefnavalsnefnd leggur
sínar tillögur fyrir sveitina, en
nefndina skipa nú auk Rutar þau
Helga Ingólfsdóttir og Páll P.
Pálsson.
Og hvernig kemur svo þessi
stóri hópur sér saman um túlkun
viðfangsefnanna? Jú það sögðu
þau að væri einn ánægjulegasti
þáttur starfsins. „Þar sem við ráð-
um okkur algerlega sjálf og spil-
um yfirleitt án stjórnanda verðum
við að leita túlkunarleiðanna í
sameiningu, prófa okkur áfram
þar til við sættumst á hvaða
stefna skuli tekin og um það verða
oft harðar rökræður. Þetta tekur
sinn tíma en er mjög þroskandi.
Stundum höfum við fengið menn
til að leiðbeina okkur um eitt og
annað, sérstaklega hafa þeir gert
það Páll P. Pálsson og Paul Zuk-
ofsky og við vildum gjarnan hafa
meiri fjárráð til að geta fengið
leiðbeinendur oftar, innlenda og
erlenda."
Á tónleikunum á sunnudag
verður, sem fyrr sagði, flutt tón-
verkið Árstíðirnar eftir Vivaldi,
— eitt af fyrstu prógramtónverk-
um eða hermitónverkum fyrir
hljómsveit sem þekkt eru. Verkið
er samið við fjórar sonnettur, sem
taldar eru eftir Vivaldi sjálfan, og
þær hefur Þorsteinn Gylfason
þýtt í tilefni þessara tónleika.
Fjórir fiðluleikarar skipta með
sér einleikshlutverkum í þáttun-
um fjórum; þeir eru Helga Hauks-
dóttir í Vorinu, Unnur María Ing-
ólfsdóttir f Sumrinu, Þórhallur
Birgisson í Haustinu og Rut Ing-
ólfsdóttir í Vetrinum.
Ég þykist vita, að þeir, sem sótt
hafa tónleika Kammersveitar
Reykjavíkur síðustu tiu árin taki
undir þakkir mínar og afmælis-
kveðjur til hennar svo og ósk um,
að við megum hennar enn lengi
njóta.
þar hafa falsanirnar haldið áfram
eins og sjá má af þeim einkenni-
legu leiðréttingum sem sendar
hafa verið þeim, sem hafa aflað
sér sovésku alfræðiorðabókarinn-
ar sem út kom á dögum Stalíns
heitins.
Sú mynd sem dregin var upp af
hinum nýju valdhöfum af ástand-
inu fyrir byltingu er ærið svört,
almennt ólæsi, fangelsanir og
fangabúðavist, niðurkoðnun lista
og bókmennta, hungur og hins
vegar óhófslíf valdastéttanna.
Þessi mynd stangast mjög á við
raunveruleika þessa horfna sam-
félags. Það var unnið að því að
útrýma ólæsi og var það langt
komið löngu fyrir byltingu, bók-
menntir og málaralist átti sitt
blómaskeið í Rússlandi Nikulásar
II og eftir byltinguna fór svo að
stór hópur skálda var fangelsaður
og sömuleiðis var séð fyrir þeim
sem ekki „gerðu þær góðu mynd-
ir“, sem valdamenn kröfðust að
gerðar væru. Sjálfsmorðið varð
lausn sumra bestu skáldanna eða
þeir vesluðust upp í fangabúðum
eða flúðu land. Bókmenntir og
listir koðnuðu niður eftir bylting-
una þótt valdhafar reyndu að
hlynna að þeim „bókmenntaverka-
lýð“ og „listmálaraverkalýð" sem
gerðu „góðu myndirnar". Kyril
fjallar nokkuð um iðnvæðinguna,
sem var í örri þróun á þessu tíma-
bili og varðandi landbúnað þá var
meira kom ræktað í Rússlandi
zarsins rétt fyrir fyrra stríð en
ræktað var um miðja þessa öld,
Rússland brauðfæddi sig, með
þeim fremur frumstæðu landbún-
aðarverkfærum og ræktunarmáta
á þessu tímabili og flutti talsvert
af korni út, að auki.
Birtur er bókalisti um heimildir
höfundar í lok ritgerðarinnar.
Loðnuskipin eru nú sem óðast að búa sig til veiða að loknu jólafríi. Hér eru það skipverjar á Jóni Finnssyni RE, sem
eru að taka nótina um borð. Morgunblaftíð/Ói.K.M.
900 kr. fyrir loðnulestina
— Verðið miðast við 8% fitu og 16% fitufrítt þurrefni
YFIRNEFND Verðlagsráðs sjávar-
útvegsins hefur ákveðið lágmarks-
verð á loðnu veiddri til bræðslu frá
2. janúar til vertíðarloka. Verðið er
900 krónur fyrir hverja lest og mið-
ast við 8% fituinnihald og 16% fitu-
frítt þurrefni. Verðið er uppsegjan-
legt frá 1. febrúar. Verðið var sam-
þykkt með atkvæðum seljenda og
oddamanns gegn atkvæðum kaup-
enda.
Á haustvertíðinni var lág-
marksverð 1.330 krónur fyrir lest-
ina og miðaðist þá við 16% fitu-
innihald og 15% þurrefnisinni-
hald. Þá breyttist verðið um 72
krónur til hækkunar eða lækkun-
ar fyrir hvert 1%, sem fituinni-
hald breyttist frá viðmiðun, og 85
krónur fyrir 1% breytingar á
þurrefnisinnihaldi. Nú breytist
verðið um 77 krónur til hækkunar
eða lækkunar fyrir hvert 1% fitu-
innihalds og 82 fyrir þurrefnis-
innihald. Stafa þær breytingar af
því að frá því verð var ákveðið í
haust hefur verð á lýsi heldur
hækkað en verð á mjöli lækkað.
Fituinnihald og fitufrítt þurr-
efnismagn hvers loðnufarms skal
ákvarðað af Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins eftir sýnum, sem
tekin skulu sameiginlega af full-
trúa veiðiskips og fulltrúa verk-
smiðju í samráði við Rannsókna-
stofnun fiskiðnaðarins. Verðið er
miðað við loðnuna komna í lönd-
unartæki verksmiðju. Lágmarks-
verð á úrgangsloðnu til bræðslu
frá frystihúsum skal vera 97 krón-
um lægra fyrir hverja lest en að
ofan greinir og ákvarðast á sama
hátt fyrir hvern farm samkvæmt
sýnum teknum úr veiðiskipi.
NÝJUNG Á ÍSLANDI
KENNSLA í LÍKAMSRÆKT Á NÁMSKEIÐI
Námskeið fyrír konur — Kennsla
1KrS®
mataraeði o.fl. Megináherzla logð a bnost,
lendar og mitti.
I Leiöbeinendur: Ómar Sigurðsson og
Hratnhildur Valbjörnsdóttir. Kenntverðura
mánudögum, miðvikudogum og fostudog
frá kl. 2—10.
Wamskeidid heíQ# o -
r Nofwn eingöngu h!n 9; Jan*
' amsræktartæki9 Wedpfrabæru weider-|,k-
Weider-handlóð.
Sígild og notagildið
endalaust.
„oóda'1
,tWe
,„nds"'s
ökkla- og armaþynging-
ar. Vinsælt og fjölhæft
æfingatæki.
' Dana, kraftganga, laik-
flmi.