Morgunblaðið - 07.01.1984, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1984
Vetur
konungur
kveður
dyra
Ægisbraut á Akranesi aö morgni fimmtudags. Hægra megin er Ægisbraut 9, þar sem Birgir Jónsson var meö skreiðarverkun. Brot úr hjöllunum liggja eins og
eldspýtur á götunni, myndin sýnir Ijóslega hvernig sjórinn hefur mölbrotið húsið. MorgunbiaAiA/Jón Gunniaucsnon.
TJÓNIÐ, sem varð af völd-
um óveðursins og flóðanna á
Akranesi og Suðurnesjum á
fimmtudagsmorguninn, hef-
ur enn ekki verið metið til
fulls. Ljóst er þó, að Akranes
og t.d. Sandgerði hafa orðið
fyrir miklum áföllum og
skemmdir þar á bátum og
öðrum mannvirkjum eru
gríðarlegar.
Björgunar- og hreinsun-
arstarf stendur enn yfir á
báðum stöðunum og verður
væntanlega ekki lokið alveg
á næstunni. Uppbyggingar-
starf hefst á næstu dögum.
Myndirnar hér á opnunni
voru teknar af Ijósmyndur-
um Morgunblaðsins í fyrra-
dag, þegar björgunarstarfið
stóð sem hæst.
Fyrrverandi bílaverkstæði og vélaleiga...
Vélaleiga Birgis:
Eyðilagðist á milli
klukkan sjö og níu
„I>AÐ var allt í stakasta lagi hér
um klukkan sjö í morgun, en
fram til klukkan níu eyðilagðist
þetta,“ sagði Birgir Hannesson,
eigandi Vélaleigu Birgis Hann-
essonar á Akranesi, en fyrirtæki
hans var nánast afmáð af yfir-
borði jarðar eftir sjóganginn í
fyrradag og lítið eftir annað en
brak á víð og dreif.
„Þetta hefur aldrei verið
svona rosalegt áður, en það
hefur oft flætt hér. Ég var hér
með um 130—140 fermetra hús,
sem er í rúst og fyrir utan hjá
mér var stálgrindaefni og
timbur úr fjórum minkabúum
og þetta fór allt. Einnig eyði-
lögðust tveir bílar,“ sagði Birg-
ir.
„Ég hef ekki hugmynd um
það hve mikið tjónið er, en ég
held að það skipti tugum millj-
óna króna, hérna megin göt-
unnar. Á þessu eru litlar trygg-
ingar, nema einhver viðlaga-
trygging, en ég veit ekki hvern-
ig fer með það. Það er óuppgert
mál,“ sagði Birgir Hannesson.
Birgir Hannesson
I
Björg og Lárus í Bræðraparti: Eins og að horfa út á rúmsjó.
MorKunblaðið/RAX.
Miklir skruðningar
þegar sjórinn
gekk yfir húsið
— segja hjónin í Bræðraparti,
Björg og Lárus
HJÓNIN Björg Hallvarðsdóttir og
Skúli Lárusson búa í Bræðraparti á
svokallaðri Breið, næst sjónum,
vestan við höfnina á Akranesi.
Þegar þau litu út á fimmtudags-
morgun var eins og að horfa út á
rúmsjó. Stórgrýti var umhvcrfis
húsið, þar sem tún var kvöldið áð-
ur, og ýmislegt lauslegt haföi henst
frá húsinu sjávarmegin upp á veg
noröan við húsið.
„Ég hélt að það væri að hrynja
snjór af húsinu um sjöleytið,
þegar við fórum á fætur,“ sagði
Björg í spjalli við blaðamann
Mbl. „Það reyndist þá vera allt
annað — nefnilega sjórinn að
skella á veggjunum og ganga yf-
ir húsið allt. Þessu fylgdu heil-
miklir skruðningar. Hrædd?"
Hún brosti breitt: „Nei, ekkert
voðalega!"
Skúli, sem orðinn er roskinn
maður, sagðist aldrei muna eftir
svo miklum flóðum á Akranesi.
„Það hefur einu sinni komið
álíka mikið flóð hér en þetta er
þó meira," sagði hann. „Ég fór
ekkert í vinnu í dag, því kjallar-
inn var fullur af sjó og ég hef
verið að dæla hér úr honum. Þar
erum við með frystikistu,
þvottavél og fleira, en ég held að
það hafi allt sloppið óskemmt.
Fegnastur er ég þó að húsið skuli
hafa sloppið eða öllu heldur
kjallarinn, því hann er hlaðinn,
og svo timburhús ofan á honum.
Ef hlaðningin fer eitthvað að
gefa sig, þá líst mér ekki á blik-
una, lagsmaður."