Morgunblaðið - 07.01.1984, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1984
Eldur f húsi í Borgarnesi:
Fjölskyldan slapp
út á náttfötunum
Borgamesi, 5. janúar.
„Þaö hefur vafalaust bjargað
okkur aó við fórum seint að sofa
vegna þess að hjá okkur var gestur
um kvöldið," sagði Hilmar Sigurðs-
son í samtali við Morgunblaöið, en
aðfaranótt sl. þriðjudags kom upp
eldur í íbúðarhúsið hans að Skúla-
götu 19 í Borgarnesi, þar sem hann
býr ásamt konu sinni, Þóru Þor-
geirsdóttur, og tveimur ungum börn-
um.
Hilmar lýsti því hvernig eldsins
varð vart þannig: „Þegar ég var að
Týnda góssið
fyrir austan:
Leituöu góssins
úr flugvél en
án árangurs
Eskifirði, 5. janúar.
EKKI virðast aðilar smyglmálsins
á mb. Þorra frá Fáskrúðsfirði hafa
lagt mikið upp úr því að leyna
smygltilrauninni er þeir komu í
land á Þorláksmessu, því að á
jóladag leigðu þeir sér tveggja
hreyfla flugvél til að leita að góss-
inu. Einnig munu þeir hafa leitað
fyrir sér um aðstoð hjá björgun-
arsveitinni á Fáskrúðsfirði. Þá
munu þeir hafa leitað varningsins
í bát og fjörur hafa þeir gengið.
Að sögn Bjarna Stefánssonar,
fulltrúa sýslumannsins í Suð-
ur-Múlasýslu, er rannsókn
málsins í gangi og mun fljótlega
verða send til ríkissaksóknara.
Ekki ber mönnum saman um
magn góssins, en líklega er um
að ræða 150 myndsnældur og
eina eða tvær tunnur af bjór.
Ævar
fara að sofa fannst mér ég heyra
einhver hljóð niðri í kjallara. Fór
ég niður og gekk um allt húsið án
þess að verða var við neitt þannig
að ég hélt að þetta væri einhver
vitleysa í mér og fór að sofa.
Nokkru seinna heyrðum við hljóð-
in ágerast, fórum að athuga þetta
nánar en þá gaus reykur á móti
okkur þegar við opnuðum svefn-
herbergisdyrnar. Gátum við ekk-
ert gert annað en að hlaupa út
með börnin á náttfötunum," sagði
Hilmar.
Húsið er tveggja hæða með
timburlofti á milli hæða, sem ein-
angrað er með sagi og í þessu lofti
kviknaði eldurinn, líklega út frá
rafmagni. Fjölskyldan vakti upp í
næsta húsi og hringdi á slökkvilið-
ið sem kom eftir stutta stund.
Gekk greiðlega að slökkva eldinn.
Skemmdir urðu á loftinu af völd-
um eldsins en auk þess skemmdist
húsið nokkuð af reyk og vatni og
það sem í því var. Er það óíbúð-
arhæft eins og er en fjölskyldan
býr hjá foreldrum Hilmars. Sagði
Hilmar að húsið hefði verið ágæt-
lega tryggt þannig að hann fengi
viðgerðina á því væntanlega borg-
aða.
HBJ
Hilmar Sigurðsson lýsir upp í loftið þar sem eldurinn kviknaði í íbúðarhúsi
hans, út frá rafmagni að talið er. MorgunblaAi«/HBj.
Sandgerðingar mótmæla ástandi í símamálum:
Oft er sambandslaust út úr
þorpinu klukkutímum saman
„ASTANDIÐ hefur langtímum verið
svo slæmt hér, að klukkustundum
saman dag eftir dag hefur ekki verið
hægt að ná símasambandi út úr
þorpinu. Það er vitaskuld mjög al-
varlegt, því það þarf ekki mikið að
bera út af til að nauðsynlegt sé að
geta hringt út af staðnum," sagði
Unnur Þorsteinsdóttir, símstjóri í
Sandgerði, í samtali við blaðamann
Mbl. um afleitt ástand í símamálum
þar í plássinu. Fréttaritari Morgun-
blaðsins í Sandgerði gerði þetta
ástand m.a. að umtalscfni í áramóta-
yfirliti sínu hér í blaðinu.
Unnur Þorsteinsdóttir sagði að
„Ákaflega ánægju-
legar undirtektir“
— segja Umba-menn um sýningar á Skilaboðum til Söndru
„VIÐ erum ákaflega ánægð með und-
irtektir fólks,“ sögðu aðstandendur
Kvikmyndafélagsins l.'mha í samtali
við Morgunblaðið í gær, en sýningar
á hinni nýju íslensku kvikmynd Skila-
boð til Söndru, eftir samnefndri
skáldsögu Jökuls Jakobssonar,
standa nú yfir í Háskólabíói, auk
þess sem myndin er sýnd nú um helg-
ina í Keflavík og á Bolungarvík. „Við
reyndum að hafa ofurlítið sumar í
þessari bíómynd, og þótt lítið hafi
verið af sól í sumar þá er eins og það
hafi tekist að koma sól inní þessa
mynd, enda átti hún fyrst og fremst
að gleðja fólk. Við látum aðrar mynd-
ir um blóðslettur, hasar og bílalcik.
Við lögðum meira upp úr húmor,
mannlegum samskiptum — agnarlít-
illi hugsun um okkur hér og nú.“
Aðalhlutverk myndarinnar, rit-
höfundinn Jónas, leikur Bessi
Bjarnason og ráðskonu hans
Sondru leikur Ásdís Thoroddsen,
en fjöldi annarra leikara kemur
fram í myndinni.
Nokkrir biógesta í Háskólabíói
voru inntir álits á myndinni Skila-
boð til Söndru.
Edda Björgvinsdóttir, leikari:
„Mér fannst þetta alveg sérstak-
lega falleg mynd og skemmtileg.
Ekki síst eru samræðurnar kímnar
og launfyndnar. Bessi Bjarnason,
uppáhaldsleikarinn minn, er yndis-
legur og fer alveg á kostum í aðal-
hlutverkinu. Svo heyrðist hvert
einasta orð í myndinni, og það er
óvenjulegt í íslenskum myndum."
Jón Þórarinsson, tónskáld:
„Skilaboð til Söndru finnst mér
reyndar að ætti frekar að heita
Skilaboð frá Söndru. Kjarni mynd-
arinnar er eiginlega skilaboð til
okkar miðaldra manna og eldri,
sem hneigjast til að halda að það
eitt skipti máli sem við höfum fyrir
stafni. Vitanlega megum við ekki
láta slík skilaboð trufla okkur!
Ég er líka stoltur af því að sú
elskulega kvenþjóð sem hefur skap-
að þetta listaverk skuli hafa verið
alin upp á Lista- og skemmtideild
sjónvarpsins meðan ég var þar.“
lllugi Jökulsson, blaðamaður:
„Mér fannst þetta hin besta
mynd. Hún fer rólega af stað, en
þegar þeir Morthensbræður birtast
á tjaldinu fer nú aldeilis að æsast
leikurinn. Elías Mar fannst mér
frábær í hlutverki John Stewart
Taylor, og leikarar í myndinni
standa sig með prýði."
Lögreglan undir forystu Birnu Þórðardóttur lætur til skarar skríða gegn
„gestum" Jónasar rithöfundar (Bessi Bjarnason), Þorlákur Kristinsson í
hlutverki nafna síns tekinn fastur.
ekki væri einasta oftlega illmögu-
legt að ná sambandi innan Sand-
gerðis, heldur væri einnig iðulega
nær ógerlegt að ná sambandi út úr
þorpinu, eins og hún lýsti hér að
framan. „Þetta ágerist náttúrlega
eftir því sem notendurnir verða
fleiri," sagði hún. „Mér er sagt að
þessu valdi tæknilegir annmarkar
á kerfinu hér en nú stendur það
víst til bóta, því þessa dagana er
verið að setja upp í Keflavík nýja
talnarafeindastöð, sem á að taka
við m.a. Garðinum. Þá ætti álagið
hjá okkur að minnka að sama
skapi, að mér skilst.“
Undirskriftalistar hafa að und-
anförnu gengið um Sandgerði þar
sem mótmælt er lélegu símasam-
bandi innanbæjar og utan. Sveit-
arstjórnin hefur og nýverið álykt-
að um málið og mun, skv. upplýs-
ingum Morgunblaðsins, þess vera
að vænta á næstu dögum, að yfir-
völd póst og símamála fái listana
og áskoranir íbúa og sveitar-
stjórnar í hendur. Blm. tókst ekki
í gær að ná tali af sveitarstjóra
eða oddvita vegna þessa máls.
Fundur ASÍ
og VSÍ tíð-
indalítill
Alþýðusamband íslands og Vinnu-
veitendasamband íslands áttu með
sér fund um kjaramál í gær og var
annar fundur ákveðinn mánudaginn
16. janúar.
Samkvæmt upplýsingum Magn-
úsar Gunnarssonar framkvæmda-
stjóra Vinnuveitendasambands ís-
lands var fundurinn tíðindalítill.
Ákveðið var að viðræðuaðilar
héldu áfram athugunum sínum á
stöðu efnahagsmála, en Magnús
sagði að erfið staða í sjávarútveg-
inum hefði óumflýjanlega áhrif á
þróun kjaramála í landinu.
Magnús sagði það vera ljóst að
það væru miklir erfiðleikar fram-
undan bæði hjá fyrirtækjum og
einstaklingum og það fyndist eng-
in fljótvirk eða auðveld lausn á
þeim vanda, en þeir væru ekkert á
því að gefast upp þrátt fyrir það.
Óveðursskemmdir á sím-
stöðinni á Akurtröðum:
Ekkert síma-
samband í tvo
sólarhringa
EKKERT símasamband var við
Grundarfjörð, Ólafsvík og Hellis-
sand frá klukkan þrjú eftir hádegi
sl. miövikudag til rúmlega fimm í
gær, en í vonskuveðrinu á miðviku-
daginn skemmdist loftnet á símstöð-
inni á Akurtröðum í Eyrarsveit, þeg-
ar hlíföarskjöldur losnaði frá og olli
skemmdum á fæðihorni og sleit
rafmagnslínu.
Stefán Þór Sigurðsson, símvirki
hjá mælistofu Landssímans, sagði
í samtali við Mbl., að skemmdirn-
ar hefðu ekki verið miklar og við-
gerð hefði gengið greiðlega, en
hinsvegar komust viðgerðarmenn
ekki á staðinn fyrr en eftir hádegi
í gær vegna ófærðar.
Helgi Kristjánsson, fréttaritari
Mbl. á Ólafsvík, sagði að hægt
hefði verið að moka á fimmtudag-
inn, en þá var ágætt veður. „Hins
vegar er aðeins mokað tvisvar í
viku, á þriðjudögum og föstudög-
um, og því höfðu vegagerðarmenn
á Snæfellsnesi ekki heimild til að
hreyfa sig á fimmtudaginn," sagði
Helgi.
Byrjað var að moka í gærmorg-
un og. var von á fyrsta áætlunar-
bílnum til Ólafsvíkur eftir að
ófærðin skall á um hálfníuleytið í
gærkvöldi.
Athugasemd
í BLAÐINU í gær var sagt að
„Willi Wear“-fatnaður væri ekki
fáanlegur hér á landi. Þetta er
ekki rétt. Verslunin Plaza á
Laugavegi hefur haft hann á
boðstólum sl. þrjú ár.
Færð á þjóðvegum lagast
„FÆRT ER fyrir Hvalfjörð í Borgar-
fjörð og stórum bílum og jeppum er
fært frá Borgarfirði um Heydal í
Búöardal," sagði Hjörleifur Ólafs-
son, vegaeftirlitsmaður er rætt var
við hann í gær.
„Vegurinn um Svínadal er fær
stórum bílum og jeppum, en Gils-
fjörður er ófær. Vegir á Snæfells-
nesi hafa verið mokaðir og verða
færir í kvöld, aðrir en vegirnir um
Fróðárheiði og Kerlingaskarð.
Fært er frá Patreksfirði suður á
Barðaströnd, út á flugvöll og norð-
ur á Bíldudal. Frá Flateyri er fært
að Núpi í Dýrafirði, en ófært fyrir
Dýrafjörð. Frá ísafirði er fært til
Bolungarvíkur og Súðavíkur. Það
voru einkum snjóflóð sem lokuðu
veginum í Óshlíðinni.
I dag tókst að opna veginn úr
Borgarfirði norður í land tij Akur-
eyrar og einnig um Strandir til
Hólmavíkur. Mokað var til Siglu-
fjarðar, en þar var snjókoma og
talin hætta á að vegurinn lokaðist
fljótlega á ný.
Vegurinn til Ólafsfjarðar var
opnaður í dag. Frá Akureyri er svo
fært til Húsavíkur um Víkurskarð
og einnig var vegurinn til Greni-
víkur ruddur. Sömuleiðis er fært
frá Húsavík í Mývatnssveit. Fært
er jeppum og stórum bílum austur
um Tjörnes til Raufarhafnar, en
ófært á hálsinum sunnan Rauf-
arhafnar.
Greiðfært er frá Reykjavík um
Þrengslin en Hellisheiði er lokuð.
Víðast er greiðfært á vegum á
Suðurlandi, en þó er þungfært
víða í uppsveitum Árnessýslu. í
dag var vegurinn með Suður-
ströndinni austur á Austfirði
ruddur og austanlands er fært um
Fagradal og Oddsskarð. Sæmileg
færð er á vegum í nágrenni Eg-
ilsstaða. Vegirnir um Fjarðarheiði
og Vatnsskarð eystra eru ófærir."