Morgunblaðið - 07.01.1984, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1984
39
Einar íþrótta-
maóur ársins
EINAR Vilhjálmsson spjótkastari sem á síöastliðnu keppnis-
tímabili skipaöi sér á bekk meðal fremstu spjótkastara heims-
ins, var í gærdag útnefndur íþróttamaöur ársins 1983, af sam-
tökum íþróttafréttamanna. í hófi sem fram fór aó Hótel Loft-
leiöum í gær, afhenti Hermann Gunnarsson Einari hinn glæsi-
lega farandgrip og sagöi þá meöal annars í ræöu sinni:
Einar Vilhjálmsson hlaut sam-
tals 60 atkvæöi af 60 mögulegum,
sem er glæsilegur árangur. Einar
Vilhjálmsson er fæddur 1. júní áriö
1960 og er því 23 ára gamall. Ein-
ari hefur snemma runniö blóöið til
skyldunnar um aö standa sig vel í
íþróttum, honum kippir í kynið, og
máltækiö víöfræga á vel viö:
„Sjaldan fellur epliö langt frá eik-
inni“. Þaö er kunnara en frá þurfi
aö segja, aö Einar er sonur Vil-
hjálms Einarssonar, þess mikla af-
reksmanns hér á árum áöur, sem
meöal annars varö annar í þrí-
stökki á Olympíuleikunum í Mel-
bourne áriö 1956. Skömmu eftir
fæöingu Einars áriö 1960 fagnaöi
faöir hans þessum stæöilega,
rauöbirkna víkingi meö því aö
veröa fimmti á Olympíuleikunum í
Róm.
Einar byrjaöi aö sjálfsögöu
snemma aö iöka flestar greinar
íþrótta, reyndar eins og bræöur
hans hafa gert meö góöum
árangri. Hann bjó lengi meö for-
eldrum sínum í Borgarfiröi og hef-
ur haldið tryggö viö ungmenna-
samband Borgarfjaröar frá þeim
tíma. Einar tók fyrst þátt í frjálsum
íþróttum áriö 1976 og kom þá
mest sjálfum sér á óvart, þegar
hann kastaöi kvennaspjóti 57,36
metra og sigraöi í sveinaflokki. Ári
síöar fleygir Einar svo karlaspjóti í
fyrsta skipti og þaö svífur 57,92
metra. 1978 sigrar Einar í spjót-
kasti í landskeppni viö Dani, bætti
drengjametiö, kastaöi 67,36
metra. 1978 veröa litlar framfarir
hjá honum í spjótkasti, hann vas-
ast í ýmsum greinum íþrótta, er
meira og minna aö leita aö sjálfum
sér og hvert hann stefni.
Það ár veröur hann íslands-
meistari í körfubolta meö Fram,
leikur handknattleik meö KR og
unglingalandsliöinu og kastar
spjóti 68,82 metra. Uppgjöriö kom
síöari hluta árs, þegar þessi geö-
felldi íþróttamaöur, tekur af skariö,
velur spjótkast sem aðalgrein og
markiö er sett hátt. Áriö eftir,
1980, lætur árangurinn ekki á sér
standa, afrakstur vel skipulagöra
æfinga kemur i Ijós, islandsmet er
sett í Svíþjóö, spjótiö flýgur 76,76
metra. 1981 kastar Einar spjótinu
81,22 metra og fer um haustiö til
Bandaríkjanna til læknanáms og
þrotlausra íþróttaæfinga. Áriö
1982 á Einar viö meiösl aö stríöa,
en ósérhlífni hans og keppnisskap
héldu honum ekki frá keppni, þeg-
ur heiöur islands var í veöi í lands-
keppni og hann tryggöi sigur í
spjótkasti, þótt þaö leyndist eng-
um, aö þar kastaði hánn fremur af
vilja en mætti.
Veturinn 1982—83, þegar Einar
haföi náö sér aö fullu, var haldiö
áfram viö þrotlausar æfingar, hver
mínúta var skipulögö, tæknin bætt
á visindalegan hátt og markið sett
hærra, frábær og skapfastur
íþróttamaöur var kominn á fulla
ferö. Einar varö bandarískur há-
skólameistari sl. vetur, kastaöi
89,98 metra og i Vancouver sigraöi
hann alla bestu spjótkastara Kan-
ada, kastaöi 89,18 metra. Há-
punktur sumarsins hjá Einari var
keppni úrvalsliös Noröurlanda og
Bandaríkjanna í Stokkhólmi,
keppni sem beðiö var meö mikilli
eftirvæntingu. Einar var hetja
Norðurlanda í þessari keppni,
hann sigraöi í spjótkasti, setti
glæsilegt íslandsmet, kastaöi
90,66 metra og var fjórum metrum
á undan heimsmethafanum Tom
Petranoff.
Einar náöi sér ekki á strik, í eina
skiptiö á árinu, á sjálfu heims-
meistaramótinu í Finnlandi, kast-
aöi 81,72 og vantaöi aöeins tólf
sentimetra til aö komast í úrslita-
keppnina. Ég veit meö vissu, aö
Einar reynir ekki aö afsaka eitt eöa
neitt frá Helsinki, þaö er ekki hans
vani, heldur bítur hann á jaxlinn,
eins og alltaf áöur og stefnir aö
góöum árangri á næstu Olympíu-
leikum.
Ég hef veriö svo lánsamur aö
geta fylgst meö og kynnst Einari á
síöustu árum, sannari íþróttamann
og heilbrigöari félaga hefi ég ekki
þekkt. Einar er reglumaöur á
áfengi og tóbak, fullkomin fyrir-
mynd æskufólks á öllum sviöum,
hreinlyndur, heiöarlegur, ákveöinn
og jákvæöur og vinnur markvisst
aö öllu sem hann tekur sór fyrir
hendur. Þetta er ekki oröagjálfur á
stund sem þessari, heldur stór orö
og sönn sem sæma þessum unga
og sanna afreksmanni. Einar, viö
erum stolt af afrekum þínum,
framkomu og árangri og þú hefur
veriö þjóö þinni til sóma jafnt inn-
an vallar sem utan. Þaö er mér
sérstakur heiöur, aö fá tækifæri til
aö afhenda þér þennan veglega
verölaunagrip og sæmdarheitiö
iþróttamaöur ársins 1983 áttu
sannarlega skiliö.
MorgunbUðM/FrMMÓtur.
• Samtals hlutu 26 (þróttamann og konur atkvæöi í kosningunni um íþróttamann ársins 1983. Þrír frjáls-
íþróttamenn voru á meöal 10 efstu, þrír knattspyrnumenn, júdómaöur, sundmaður, fimleikakona og hand-
knattleiksmaöur. Hár til hliöar má sjá hverjir fengu stig. En ó myndinni hér að ofan eru frá vinstri: Steinunn
Guönadóttir, kona Atla Eövaldssonar, Siguröur Lárusson, knattspyrnumaöur ÍA, Kristín Gísladóttir, fim-
leikakona úr Gerplu, Bjarni Friöriksson, júdómaöur, Einar Vilhjálmsson, frjálsíþróttamaöur, meö hinn
glæsilega farandgrip, og unnusta Kristjáns Arasonar handknattleiksmanns.
Stjarnan sigraði KR
STJARNAN sigraði KR í 1. deild-
inni í handbolta ( gærkvöldí 22:18
í íþróttahúsinu Digranesi ( Kópa-
vogi. Staóan í hálfleik var 10:10.
Leikurinn var hnífjafn mestallan
tímann; þaö var ekki fyrr en tíu
mín. voru til leiksloka að Stjörn-
unni tókst aö skríöa fram úr og
tryggja sér sigur.
Hannes Leifsson var marka-
hæstur Stjörnumanna meö 9
mörk, Magnús Teitsson skoraöi 5,
Gunnlaugur Jónsson og Eyjólfur
Bragason 3 hvor og Björgvin Elí-
asson og Bjarni Bessason 1 hvor.
Guömundur Albertsson og Jak-
ob Jónsson skoruöu 6 mörk hvor
fyrir KR, Jóhannes Stefánsson 3,
'Friörik Þorbjörnsson 2 og Gunnar
Gíslason, sem lék sinn fyrsta leik
fyrir liöiö eftir aö hann kom frá
Vestur-Þýskalandi, skoraöi eitt
mark.
Leikur þessi var afar þýö-
ingarmikill fyrir liöin í keppninni um
aö komast í efri úrslitakeppnina og
veröur þessi sigur Stjörnunni að
öllum líkindum mjög dýrmætur.
- SH
• Rauöbirkni víkingurinn, Einar Vilhjálmsson, sker fyrsta tertubitann.
Langt undir heimsmetinu
Suöur-afríska stúlkan Zola
Budd var langt undir heimsmet-
inu í 5.000 metra hlaupi á frjáls-
íþróttamóti í Stellenbosch (
S-Afríku í fyrrakvöld. Hljóp hún á
15:01,83 mínútum, en gildandi
heimsmet bandarísku stúlkunnar
Mary Decker er 15:08,26 mínútur,
sett 1982.
Zola Budd fær ekki þetta afrek
sitt viðurkennt sem heimsmet
þar sem Suóur-Afríka hefur veriö
meinuó innganga í Alþjóðafrjáls-
íþróttasambandiö vegna kyn-
þáttastefnu stjórnvalda.
Hvaó sem þv( Köur er afrek
Budd frábært, því hún er aöeins
17 ára gömul og hljóp berfætt vió
óhagstæðar aöstæöur, í suöaust-
an strekkingi.
Suöur-Afríkumenn hafa jafnan
átt framúrskarandi frjálsíþrótta-
menn, eiga ( dag spjótkastara
sem kastar vel yfir 90 metra, góöa
millilengdahlaupara, kringlukast-
ara og einn allra besti milli-
lengdahlaupari heims í dag, Syd-
ney Maree, er fæddur og uppal-
inn í S-Afríku, en geröist nýverió
bandarískur ríkisborgari.
- ágás.
íþróttamaður
ársins 1983
Samtals hlutu 26 íþróttamenn atkvæöi í kosningunni aö þessu
sinni. Flest var hægt aó fá 60 atkvasöi.
1. Einar Vilhjálmsson, UMSB Frjálsar fþróttir 60 atkv.
2. Ásgeir Sigurvínsson, Stuttgart, Knattspyrna 42 atkv.
3. Atli Eövaldsson, F. DUsseldorf Knattspyrna 34 atkv.
4. Bjarni Frióriksson, Ármanni Júdó 31 atkv.
5. Sigurður Lárusson, ÍA Knattspyrna 26 atkv.
6. Þórdís Gisladóttir, ÍR Frjálsar (þróttir 17 atkv.
7.—8. Krístján Hreinsson, UMSE Frjálsar iþróttir 13
7.—8. Eðvarö Þ. Eövarösson, Njarövfk Sund 13
9.—10. Kristín Gfsladóttir, Gerplu Fimleikar 11
9.—10. Kristján Araaon, FH______________Handknattleikur 11
Alfreö Gíslason KR Handknattleikur 8 atkv.
Siguröur Jónsson, Akranesi Knattspyrna 7 atkv.
Nanna Leifsdóttir, Akureyri Skíði 7 atkv.
Þorvaldur Þórsson, ÍR Frjálsar íþróttir 6 atkv.
Tryggvi Helgason, HSK Sund 6 atkv.
Ingi Björn Albertsson, Val Knattspyrna 6 aktv.
Bryndfs Hólm, ÍR Frjálsar fþróttir 6 atkv.
Guömundur Guðmundsson, Víkingi Handknattleikur 5 aktv.
Bryndis Ólafsdóttir, Þór Sund 5 atkv.
Oddur Sigurösson, KR Frjálsar fþróttir 3 atkv.
Einar Ólafsson, isafirói Skföi 3 atkv.
Kristján Ágústsson, Val Körfuknattleikur 3 atkv.
Kristfn Magnúsdóttír, TBR Badminton 3 atkv.
Vésteinn Hafsteinsson, HSK Frjálsar íþróttir 2 atkv.
Þráinn Hafsteinsson, A frjálsar íþrftlr 1 atkv.
Baidur Borgþórsson, KR Lyftingar 1 atkv.