Morgunblaðið - 20.01.1984, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1984 47
Heimilishorn
Bergljót Ingólfsdóttir
„BOLLAR“ ÚR
KRAMARHÚSDEIGI
100 gr. smjör
100 gr. flórsykur
10 gr. hveiti
2 eggjahvítur
Smjör og flórsykur þeytt vel saman,
hveitinu bætt í og síðast stífþeyttum
eggjahvítunum.
Um þaö bil tvær matskeiðar af deigi
eru ætlaöar í hverja köku, sem er smurt á
plötuna og haföar kringlóttar. Til aö hafa
kökurnar jafnar er hægt aö teikna mót
eftir undirskál á smjörpappír og smyrja
deiginu á hringina, bakað í ca. 5 mín. viö
200—225 °C. Kökurnar eru bestar ör-
þunnar. Þegar þær eru bakaöar eru þær
brettar upp, utan um glasbotn, ca. 5 sm
aö ummáli, og þrýst upp aö hliöunum. i
kökurnar er settur þeyttur rjómi og sulta
eöa jaröarber. Hægt er aö geyma kök-
urnar einhvern tíma í alveg þéttri krús,
þaö þarf aö fara varlega meö þær, þær
eiga aö vera stökkar en geta mýkst við
geymslu. Úr uppskriftinni veröa 12 kökur.
Deigið er einnig nothæft í venjuleg kram-
arhús.
GRÆNMETIS-SOÐSÚPA
(Bullion)
1 bolli smátt brytjaö sellerí, leggur og
blöö
1 bolli smátt brytjaö persille
1 bolli smátt brytjaöar gulrætur
1 bolli smátt brytjaöir tómatbitar
Grænmetið soðið i tæpum lítra af vatni
í 'h klst., eöa þar til allt er komiö í mauk,
súpan síuö til aö hún veröi glær (og þá
þarf aö merja grænmetiö svo sem mest
fari í gegn), persille stráö yfir um leið og
borið er fram. Hægt er aö frysta hluta af
skammtinum, ef vill.
KRAMARHÚS
MEÐ RJÓMA
2 stór egg
125 gr sykur
125 gr hveiti
100 gr hálfbráöið smjörlíki
Eggin eru hrærð vel meö sykrinum og
út í er bætt hálfbráönuöu smjörlíkinu og
hveitinu.
Deigiö smurt á plötu þunnt og i þrí-
hyrndar kökur, sem bakaöar eru í 4—5
mín. Vafðar upp í kramarhús á meöan
þær eru volgar. Úr þessum skammti eiga
aö veröa ca. 30 stk.
Kramarhúsin geymast vel í lokuöu
boxi.
í þau er settur þeyttur rjómi og jarðar-
berjasulta þegar þau eru borin fram.
ENN ER KERTATÍMI
Þó dálítiö sé fariö aö birta hjá okkur,
og mesta skammdegiö aö baki, eiga
kvöldin eftir aö veröa dimm enn um hríö.
Margir kveikja á kertum heima fyrir, þó
ekki sé hátíö, þegar fjölskyldan situr
saman á síðkvöldum.
Samkvæmt ráöleggingu fróöra manna
á kertið aö brenna hægar ef kveikurinn er
beygöur niður, þegar dálítiö hefur brunn-
iö af honum. Þaö er vel þess viröi aö
reyna þetta eitthvert kvöldiö.
HAUSTSÚPUR
Þaö er því miöur ekki langur tími árs-
ins, sem fáanlegt er allt besta grænmetiö
okkar og þeim tíma fer nú aö Ijúka. Ef aö
vanda lætur er blómkál á þrotum i versl-
unum, annaö veröur til eitthvaö lengur,
en þó hlýtur það aö vera fágætara nú,
vegna hins óhagstæöa sumars. Græn-
meti er því miöur dýr matur, og ekki er aö
efa, aö þaö fælir marga frá aö neyta þess
eins og nauösynlegt er. Grænmeti er gott
á alla vegu, hrátt, soðið, í gratin og súpur.
í þetta sinn veröa birtar súpuuppskriftir
úr blönduöu grænmeti.
GRÆNMETISSÚPA
Því fleiri tegundir, sem soönar eru
saman, því betra. Hvítkál, sellerí, blóm-
kál, púrrur og paprika fer vel saman,
fleiru má bæta viö. Grænmetiö er allt
brytjaö, blómkáliö þó tekið sundur í
greinar og soöiö í vatni, sem súputening-
um hefur veriö bætt i, kryddaö aö smekk.
Þegar súpan er borin fram er hægt að
strá brytjuöu persille eöa graslauk yfir.
Gott brauö boriö meö.
EF NAGLALAKKIÐ ER
ORÐIÐ OF ÞYKKT
Naglalakk vill oft þykkna um of, þegar
komiö er niöur í glasiö, og verður ill-
notanlegt. Þaö er óþarfi aö láta hálft glas
fara til spillis ef ekki er til naglalakks-
þynnir á heimilinu, i staöinn er glasinu
stungið í mjög heitt vatn og látiö standa í
10—15 mín.
HEKLAHF
BILASYNINC
UM HELCINA - í NÝJUM GLÆSILEGUM SÝNINGARSAL OKKAR
Laugardag frá kl. 10 - 5 — Sunnudag frá kl. 1 - 5
MITSUBISHI
1984
ÁRCERÐIRNAR
VOLKSWACEN
RANGE ROVER
TÍSKUSÝNING
Kl. 3 báða dagana
Módelsamtökin syna Uskuiatna
frá Pelsinum
Og Maríunum Klapparstig
Bjóðum sýningargestum upp á
SVALA-drykki frá Sól hf.
[hIheklahf
Laugavegi 170-172 Sími 21240
Komið og skodið glæsilega bíla í glæsilegu umhverfi