Morgunblaðið - 21.01.1984, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1984
3
Lánskjaravísitalan
hækkar um 0,5%
SEÐLABANKINN hefur reiknað út
lánskjaravísitölu fyrir febrúarraánuð
og er hún 850 stig. Hækkunin frá
síöasta mánuði er 0,4728%, en
lánskjaravísitala fyrir janúarmánuö
var 846 stig.
Árshækkun lánskjaravísitöl-
unnar, ef hækkunin milli mánað-
anna janúar og febrúar er fram-
reiknuð næstu tólf mánuði, er
5,82%. Hækkun lánskjaravísitölu
sl. tólf mánuðu er 66,02%.
Dr. Jóhannes Nordal, seðla-
bankastjóri, sagði á fundi með
blaðamönnum, að hækkun láns-
kjaravísitölu milli mánaðanna
janúar og febrúar væri sú minnsta
milli mánaða frá því að útreikn-
ingur lánskjaravísitölu hófst.
Afurðalánin færð
til viðskiptabanka
og sparisjóðanna
í SAMRÆMI viö þaö ákvæöi stjóm-
arsáttmála ríkisstjórnarinnar, aö af-
urða- og rekstrarlánakerfið verði
endurskoðaö og þessi lán færö til
viðskiptabanka og sparisjóöa, hefur
að undanförnu veriö unnið aö undir-
búningi kerfisbreytingar í þá átt aö
draga úr miðlun þessara lána um
hendur Seölabankans. Sjálfvirk veit-
ing þessara lána í trausti á endur-
kaup Seðlabankans hafa verið hindr-
un í vegi ábyrgöar og aðhalds í þess-
ari lánastarfsemi og oft valdiö lána-
þenslu umfram þaö mótvægi, er felst
í innlánabindingunni, segir í greinar-
gerð Seðlabanka íslands um stööu
efnahagsmála um áramót og aögerðir
í peningamálum.
Um nýliðin áramót námu
bundnar innistæður í Seðlabank-
anum 5.183 m.kr., en endurkaup
4.915 m.kr. og skuldbreytingarlán
777 m.kr., alls 5.692 m.kr. eða rúm-
um 500 m.kr. umfram bindinguna.
Af endurkaupunum voru 3.239
m.kr. vegna útflutningsframleiðslu
og bundin gengi á SDR (sérstökum
dráttarréttindum), en 1.677 m.kr.
vegna framleiðslu fyrir innlendan
markað og ákvörðuð í krónum.
Áformað er, að endurkaup
afurðalána vegna framleiðslu fyrir
innlendan markað verði lögð niður
á næstunni. Á móti því verði bind-
ing innlána lækkuð. Tímabundin
miðlun milli þeirra innlánsstofn-
ana, sem losa fé við aðgerðina, og
hinna, sem taka á sig auknar byrð-
ar, mun fara fram fyrir milligöngu
Seðlabankans.
Kurr á meðal starfsfólks Tímans:
Fundur með nýjum yfir-
mönnum á mánudaginn
HINN nýi ritstjóri dagblaðsins Tím-
ans og nýráöinn framkvæmdastjóri
blaðsins munu halda fund með starfs-
fólki nk. mánudag, samkvæmt upplýs-
ingura sem Mbl. hefur aflað sér.
Nokkur kurr er meðal starfs-
manna blaðsins og hafa verið skipt-
ar skoðanir á meðal þeirra um það,
hvernig þeir eigi að bregðast við
uppsögn annars ritstjóra blaðsins,
Elíasar Snæland Jónssonar. Er
hluti starfsmanna þeirrar skoðun-
ar, samkvæmt heimildum blaðsins,
að réttast væri að hætta störfum á
blaðinu, enda hafi öllum verið sagt
upp, að Þórarni Þórarinssyni rit-
stjóra undanskildum. Ekki mun þó
hafa náðst samstaða um aðgerðir
enn og mun fundur hinna nýju yfir-
manna m.a. til þess ætlaður að
lægja öldurnar á blaðinu.
— Morgunblaðid/Ólafur K. Magnússon.
Undirritun stofnsamnings ísfilm hf. í gær. Vinstra megin viö borðið sitja Baldvin Tryggvason, stjórnarformaður
Almenna bókafélagsins, Höröur Einarsson, framkvæmdastjóri Frjálsrar Fjölmiölunar, Davíð Oddsson, borgar-
stjóri, Haraldur Sveinsson, framkvæmdastjóri Árvakurs, Kjartan P. Kjartansson, frá Sambandi íslenskra
samvinnufélaga og Indriöi G. Þorsteinsson f.h. ísfilm sf. Hægra megin við borðið innst er Erlendur Einarsson,
forstjóri Sambandsins, þá Sveinn R. Eyjólfsson, stjórnarformaður Frjálsrar fjölraiölunar, Björn Bjarnason frá
Árvakri, Brynjólfur frá Almenna bókafélaginu og Jón G. Tómasson, borgarlögmaður.
Stofnsamningur ís-
film hf. undirritaður
STÓRFYRIRTÆKI í fjölmiðlun,
ísfilm hf., var stofnað formlega I
gær með því aö sex aðilar undirrit-
uðu stofnsamning þar að lútandi í
fundaherbergi borgarráðs Reykja-
víkur. Þaö eru Reykjavíkurborg,
Almenna bókafélagiö hf., Árvakur
hf., Frjáls fjölmiðlun hf., Samband
íslenskra samvinnufélaga og ís-
film sf. Samningurinn var undirrit-
aður með fyrirvara um samþykki
stjórna félaganna og borgarstjórn-
ar Reykjavíkur.
Tilgangur hins nýja félags er
kvikmyndagerð, hvers konar
myndbandagerð, þ.á m. gerð
auglýsingamynda á myndbönd-
um, sem og ýmis önnur þjón-
ustustarfsemi á sviði fjölmiðlun-
ar, eins og segir í stofnsamn-
ingnum.
Málið var rætt á fundi borg-
arráðs Reykjavíkur í gær og þar
lagði Sigurjón Pétursson, full-
trúi Alþýðubandalagsins, fram
tillögu um að stofnun félagsins
með þátttöku borgarinnar yrði
frestað þar til frekari umræða
hefði farið fram. Sú tillaga var
felld.
Morgunblaðinu tókst ekki í
gær að ná tali af Sigurjóni Pét-
urssyni, flutningsmanni frestun-
artillögunnar, en Guðrún
Ágústsdóttir, borgarfulltrúi Al-
þýðubandalagsins, sagði í sam-
tali við blm. Morgunblaðsins að
tvennt væri einkum sérkennilegt
við aðild borgarinnar að ísfilm
hf. „í fyrsta lagi leyndin, sem
borgarstjóri vildi að hvíldi yfir
gerð samningsins og svo þáttur
borgarinnar almennt; hvers
vegna Reykjavíkurborg þarf að
aðstoða svo öflug fyrirtæki, sem
þarna eiga hlut að máli, við að
stofnsetja fyrirtækið er ofar
mínum skilningi," sagði hún.
„Þetta verður að ræða á opin-
berum vettvangi í borgarstjórn
og fá skýr svör við spurningum
um þetta. Á næsta fundi borgar-
stjórnar, sem verður 2. febrúar
næstkomandi, verður þetta mál
örugglega tekið upp,“ sagði Guð-
rún Ágústsdóttir.
Ekki tókst að ná í Davíð
Oddsson, borgarstjóra, í gær til
að leita umsagnar hans um aðild
borgarinnar að ísfilm hf.
tSu 3»tt. I ■ Jpð hatuh-
I’WestxrfmyA WtÆkm-OSl
á/tóáþf „^.iaóharo*:)
RiMtlíi
EXPRESSm
* ..... _ *vk**"**9._-• _ -yC-.
• HIIMI.IAIÚV „ttJVN! VKI rsri i
ALLA III .MIAIt
I STAN §Ki\ IKÍ
Djurr&nnvr j
iiwr hrltt
rurtdvn
pmtrstrrnr
ifI JCrfiNÍ
e»
| >’ji»rs<« n lw»l«s
j — incd cn itnik
j <sii«iartlr« mrlocl
£m\£~sx
Sænska blaðið Expressen:
Allir hundar í Rvík drepnir
Hampiðjan:
Gunnar Svavarsson
ráðinn forstjóri
„ALLIR hundar ( borginni skulu
deyja,“ segir í aðalfyrirsögn á forsíðu
sænska dagblaðsins Expressen, sem
út kom í gær, og er sagt í blaðinu að
dýravinir um allan heim mótmæli
þessum aðgeröum.
Á forsíðunni er einnig mynd af
atburði þeim sem varð i Reykjavík
fyrir nokkru, þegar hundur var
skotinn eftir að hafa bitið fólk. í
myndatexta, þar sem vísað er til
myndarinnar, segir, að allir þeir
hundar sem náist séu skotnir af
lögreglunni, eins og hundurinn á
myndinni.
Auk umfjöllunar á forsíðu, er
heilli síðu inni í blaðinu eytt í frá-
sögn af ástandinu f hundamálum í
borginni. Kemur þar m.a. fram að
atburðir þeir, sem að framan var
vitnað til, gerist hvern dag í
Reykjavík.
Þó Reykvíkingar kannist senni-
lega ekki við aö hér sé allt í hers
höndum vegna hundamála, þá er
fróðlegt að sjá hvern veg um þessi
mál er skrifað í þessu blaði.
GUNNAR Svavarsson, viöskipta-
fræðingur, hefur verið ráöinn for-
stjóri Hampiöjunnar í staö Magn-
úsar Gústafssonar, sem ráöinn hef-
ur verið forstjóri Coldwater Sea-
food Co., dótturfyrirtækis Sölumiö-
stöövar hraöfrystihúsanna. Gunnar
mun taka viö starfinu í aprílmán-
uöi.
Gunnar er fæddur 6. nóvember
1951 og er því 32 ára. Hann lauk
prófi í viðskiptafræði frá Háskóla
Islands 1975 og hóf þá þegar störf
hjá Hampiðjunni. Hann var síðan
ráðinn fjármálastjóri fyrirtækis-
ins frá 1978 og hefur gegnt því
síðan.
„Ég lít björtum augum á fram-
tíðina og hlakka til að takast á við
þetta erfiða verkefni, en það verð-
ur eflaust erfitt að feta í fótspor
Magnúsar, sem hefur staðið sig
mjög vel,“ sagði Gunnar í samtali
við Mbl.
Aðspurður sagði Gunnar að ekki
væri að vænta mikilla breytinga á
stefnu fyrirtækisins með hans
ráðningu. „Ég hef að sjálfsögðu
mótazt mikið af samstarfinu við
Magnús þessi ár.“
Hjá Hampiðjunni starfa að
meðaltali um 200 starfsmenn, en
Gunnar Svavarsson, forstjóri Hamp-
iöjunnar.
fyrirtækið framleiðir að stærstum
hluta fyrir innanlandsmarkað. Að
sögn Gunnars fóru um 15% fram-
leiðslu fyrirtækisins á erlendan
markað á síðasta ári.
Gunnar Svavarsson er giftur
Ólöfu Þorleifsdóttur og eiga þau
tvö börn.