Morgunblaðið - 21.01.1984, Síða 9

Morgunblaðið - 21.01.1984, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1984 9 Umsjónarmaður Gísli Jónsson 227. þáttur Aldrei fór það svo, að ekki fengi ég Pálsbréf mér til hressingar fyrir jólin. Reglu- semin á mínum bæ er hins vegar ekki meiri en slík, að ég veit ekki hvar í röðinni þetta bréf Páls (til mín) er. Það gæti verið 12., 13. eða svo. Eins og vant er, hefur Páll Helgason tínt til mörg dæmi úr lesmáli nokkurra blaða. Fara dæmi þess hér á eftir með athuga- semdum og leturbreytingum umsjónarmanns. 1. „Eftir að við náðum þeim úr Holunum þurfti að fikra þeim fet fyrir fet, annan hrút- inn í einu, haftaða á löppun- um.“ Fyrir utan fallaruglinginn er hér auðkennd orðmyndin haftaður. Það virðist harla óþarft nýyrði í stað heftur. Þó ekki sé alveg sambærilegt, minnir þetta á vísu þá hina ágætu sem Steingrímur í Nesi orti, þegar hann heyrði í út- varpinu sjaldyrðið skefli í stað skafls. Þá orti hann: Stundar af öllu efli útvarpið málvöndun. Breytir það skafli í skefli, skatnar fá um það grun, að fréttahraflið sé hrefli, holan í kviðinn nefli. Gengur nú flest af gefli, góð ertu nýsköpun! 2. Samþykkt eða samþykkt ekki: .....og alls ekki að þeir hlypu til og samþykktu þann búnað sem virðist hafa verið samþykktur á stundinni án nokkurra tilrauna." 3. Skilji nú hver sem getur: „Félag áhugamanna um þarfir sjúkra barna eru þverfagleg samtök heilbrigðisstétta." 4. Hvernig beygist vörður? Að sögn Frímanns Sigurðsson- ar yfirfangavörðs.“ Orðið vörð- ur er í sama beygingaflokki og hjörtur, köttur, örn og björn. Enda þótt eignarfall eins og vörðs komi fyrir af slíkum orð- um, einkum þeim þeirra sem gerð hafa verið að mannanöfn- um, þykir rétt að halda hinum gömlu eignarfallsmyndum og segja varðar, hjartar, kattar, arnar og bjarnar, sbr. Varðar- ferð, hjartardýr, kattarskinn, Arnarflug og bjarnarfeldur. 5. Hvernig stigbreytist illur? „ ... ég vissi ekki til þess að ég væri viðskotaillri fyrir hádegi en eftir hádegi." Ég legg til að við stigbreyt- um illur, verri, verstur, svo sem verið hefur. Ef nauðsyn- legt þykir að stigbreyta illur reglulega, væri illari hóti nær en illri. 6. Er til lýsingarorðið hundr- aðshlutur? „En í hann renna ákveðnir hundraðshlutar tekj- ur.“ Hér hefur væntanlega átt að standa: En I hann renna ákveðnir hundraðshlutar tekna. 7. Myrkt eða ómyrkt. „Páll Björgvinsson, þjálfari Þróttar, var myrkur í máli í garð stjórn- ar HSÍ þegar blm. ... ræddi stuttlega við hann eftir leik Þróttar og FH á sunnudaginn. „Þetta íslandsmót er hrein og bein della, það er ekki nema von að nokkur maður komi á leikina þegar þeir eru ekki auglýstir."" Umsjónarmanni skilst á þessu að Páll Björgvinsson hafi verið ómyrkur í máli og talið litla von til þess að fólk sækti leiki sem ekki væru auglýstir. 8. í staglstflssafnið: a) „Tók Reykjavíkurborg mestan þátt bæjarfélaga á landinu þátt í vandamáli Eyjamanna." b) „Helmut Pantenberg hót- elaeigandi Hotel Petrisberg." c) „ ... og hækkun á skipta- verði um 45% líkt og hjá land- verkafólki í landi." d) „Thor Thors-sjóðurinn veitti á síð- asta ári 22 þúsund dollara í styrki til íslenskra náms- manna í Bandaríkjunum á síð- asta ári.“ e) „Ég hef farið í 6 eða 7 ferðir erlendis til að dæma landsleiki erlendis." 9. Kauðaháttur af ýmsu tagi: a) „... er að norðlenskar byggðir hafa aldrei náð veru- legum árangri við að ná bú- setujafnvægi við höfuðborgar- svæðið." b) „Það er hinsvegar óumdeilanlegt, að verðlag á föstu verðlagi hefur fallið um helming." c) „Sagði Niels það ljóst af baráttu þeirra við kerfið að það væri ljóst að sumir væru jafnari en aðrir." d) „Af framanrituðu er ljóst að vandað hefur verið eftir föng- um að undirbúningi þessa máls.“ e) „Lysthafendur leggi inn umsóknir um menntun og fyrri störf ásamt kaupkröfu til blaðsins." í þessari síðustu klausu ætl- ar umsækjandi að afla sér menntunar og fyrri starfa og gera síðan kaupkröfu á hendur blaðinu sem auglýsinguna birtir! 10. Fallaruglingur: a) „Dropar hafa lengi undrast hvað sumir menn geta komið í verk.“ Aðrir koma einhverju í verk. b) „Gott hefði verið að geta leitað rétt- ar síns til hins háa Alþingis, en þaðan er varla mikið að vænta.“ Aðrir vænta sér mikils af einhverju. c) „Lögreglan í Reykjavík hefur enn ekki tek- ist að hafa upp á manninum sem stundar þennan leik.“ Lög- reglunni tekst það kannski ein- hvern tíma. d) „Það er full- djúpt í árina tekið að segja að hér sé ..." Menn taka djúpt í árinni = með árinni, þegar þeir fullyrða mikið. Líkingin er tekin frá knálegum róðri. 11. Fátt eða margt. „Það er varla fátt sem hefur komið mér á óvart." Varla fátt er trú- lega margt, og má mikið vera ef maðurinn hefur ekki verið að guma af því að fátt, en ekki margt, hafi komið sér á óvart, eða að honum óvörum. 12. Að lokum var þess getið að keppendur hefðu „sigrað sitt hvorn leikinn", þegar það hefur trúlega gerst að kepp- endur hafi unnið sinn leikinn hvor. Páll Helgason var orðinn mæddur á öllu þessu lesmáli og kvað: Blaðamælgin bilar ró og bugar lestrargaman. Hastur þar og hyggja sljó höndum taka saman. Umsjónarmaður þekkir ís- lenska blaðamenn illa ef þeir geta ekki svarað fyrir sig með léttri stöku. P.s. í síðasta þætti fór skipting milli lína, svo og leturbreyt- ingar, nokkuð úrskeiðis, og er beðist velvirðingar á því. P.p.s. Mig langar til að þakka ráðuneytisstjóra heilbrigðis- mála og ritara síðasta Reykja- víkurbréfs blaðsins fyrir þátt þeirra í því að festa í málinu orðin forvörn og forvarnarstarf. Sérhæð - Selvogsgrunnur Vorum aö fá í einkasölu 5 herb. íbúö ca. 140—150 fm á 1. hæö (miöhæö) í þríbýlishúsi viö Selvogs- grunn. íbúöin skiptist í 3 svefnherb., 2 stofur, eldhús, baöherb. og gestasnyrtingu. Tvennar svalir og inn- byggður bílskúr. ibúöin er nánast laus nú þegar. Söluverö kr. 3 millj. Fasteignasalan Hátún, Nóatúni 17, 8. 21870—20998. Hilmar Valdimarsson heimasími 71725. Parhús með bflskúr Hef í einkasölu nýlegt vandaö parhús á Háaleitis- svæöinu. Húsið er á tveimur hæöum alls 214 fm, 7 til 8 herbergja. Svalir, tvíbýlisaöstaöa. Bílskúr 28 fm. Til greina kemur aö taka minni fasteign uppí sölu- verðið. Teikningar til sýnis á skrifstofunni. usava .. Helgi Ólafsson, FLÓKAGÖTU 1 löggiitur fasteignasali, SÍMI 24647 kvöldsími: 21155. meginþorra þjóðarinnar daglega! Auglýsinga- síminn er2 2480 Sverrir Kristjánsson Hús Verslunarinnar 6. hœö. Sðium. Guðm. DaAi Agúltsa. 7*214. Lögm. Hafsteinn Baldvinsson hrl. SKOÐUM OG VERÐMETUM Símatími frá 13—16 2JA HERB. ÍBÚÐIR MÁVAHLÍÐ Ca. 70 tm íbúö í kjallara (jarö- haeö). Nýtt gler og nýjar innr. Sérinng. Verö 1300—1350 þús. KRÍUHLÓAR 65 fm íbúð á 4. hæö. Góö sam- eign. Frystihólf og geymsla í kjallara. Verö 1300 þús. ASPARFELL Ca. 60 fm íbúö á 3. hæö. Góö íbúð. Verö 1300 þús. 4RA HERB. ÍBÚÐIR NJÖRVASUND - SÉRH. Ca. 100 fm efri hæð i tvíbýlis- húsi. Tvöf. verksm.gl. Danfoss. Sérinng. HÓFGERÐI — KÓP. Ca. 90 fm efri hæð í tvíbýli ásamt bílskúr. Verö 1800 þús. SUÐURVANGUR HF. Ca. 117 fm falleg íbúð á 2. hæö, 4ra—5 herb. Suöursvalir. Verö 1900—1950 þús. MEIST AR AVELLIR Ca. 115 fm góð íbúð á 4. hæð. Mjög rúmgóö herb. Stofur, eldhús og baö. Góð eign á góðum staö. Verö 2 millj. SELJABRAUT Ca. 110 fm íbúö á 3. hæö ásamt bílskýli. Falleg íbúö. Góðar innr. Verð 1900—1950 þús. RAÐHÚS MELSEL Um 260 fm raöhus á tveim hæöum ásamt 90 fm kjallara. Húsiö er ekki fullkláraö en vel íbúöarhæft. Vönduö eldhúsinnr. Bílskúrssökklar komnir. KAMBASEL Ca. 180 fm raöhús, 40 fm óinn- réttaö ris. Húsiö er ekki fullklár- aö. Skipti á 4ra—5 herb. íbúö í Breiðholti koma til greina. ÓSKUM EFTIR 5—6 HERB. íbúö með 4 svefnherb. í Hólahverfi. Fleiri staöir koma til greina. Bílskúr æskilegur, þó ekki skilyröi. ATH.: NÝTT SÍMANÚMER 68-77-68 SIMAR 21150-21370 S0LUSTJ LARUS Þ VALDIMARS L0GM J0H Þ0ROARS0N H0L Til sölu og sýnis auk annarra eigna: Nýlegt steinhús í Smáíbúðahverfi Ein hæö um 140 fm auk bílskúrs um 31 fm. Góö innrétting, ræktuð lóö. Vinsæll staöur. Nýlegt steinhús í Seljahverfi Húsiö er 2 hæöir og ris. Á 1. hæö er aukaíbúö og innbyggöur bílskúr. Skipti möguleg á minna einbýlishúsi. Teikning á skrifst. 2ja herb. íbúðir viö: Kleppsveg, 1. hæö um 65 fm, suöur svalir. Danfoss kerfi, góð sameign. Digranesvegur Kóp., jaröhæö um 70 fm, ný úrvalsibúð. Laus strax. Fífusel, jaröhæö um 55 fm. Nýleg og góð, fullgerö sameign. Skammt frá Landapítalanum, 2. hæö um 60 fm. Mikiö endurnýjuö. 3ja herb. íbúöir viö: Hraunbæ, á 3. hæö um 100 fm, ágæt suóur íbúö. Engihjalli Kóp., 6. hæð um 90 fm í háhýsi, stór. Glæsilegt útsýni. Sörlaskjól, í kj. um 80 fm góö samþ. nokkuö endurbætt. Dalbrekku Kóp., neöri hæö um 80 fm í tvibýli, sér inng., góö sameign. Næstum skuldlaus. Verö 1,3 millj. 4ra herb. íbúðir viö: Vesturberg, 3. hæö 100 fm í enda, fullgeró sameign. Drápuhlið, neöri hæö um 110 fm, ný eldhúsinnrétting, sér hiti, sér inng. Bílskúrsréttur, trjágaröur. Möabarö Hafn., efri hæö um 117 fm í þríbýli. Sér hiti, nýlegt gler. Bílskúr um 32 fm fylgir. Barónsstigur, 2. hæð 110 fm. Sér hiti, nýleg eldhúsinnrétting. Sólrík íbúó. næstum skuldlaus. Góðar 5 og 6 herb. íbúðir viö: Dunhaga, Fellsmúla, Æsufell, Leifsgötu, Miöbraul, Skarphéöinsgötu. Vinsamlegast leitiö nánari upplýsinga. Viö Vesturberg eða Suðurhóla óskast rúmgóö 4ra herb. íbúö. Viö Hvassaleiti, Stóragerði nágrenni óskast til kaups, 5—6 herb. ibúöarhæö eöa góö blokkaríbúö. Skipti möguleg á einbýlishúsi vió Heiöargeröi. Ódýr íbúö til sölu viö Álfhólsveg i Kópavogi 2ja herb. i kjallara um 55 fm. Sér hitaveita. Gott sturtubað. Stórir gluggar, geymsla fylgir. Laus fljótlega. Ekki samþ. Verö aöeins kr. 700 þús., útb. aöeins kr. 500 þús. Ódýr íbúö inni viö Sæviðarsund nánar tiltekiö um 75 fm kjallaraíbúó 2ja herb. Ekki samþ. Tilboð óskast í íbúöina. Eínbýlishús óskast í Garöabæ fyrir fjársterkan kaupanda. Skipti möguleg á nýlegu steinhúsi í Smá- íbúðahverfi. Á 1. hæö í vesturborginni óskast til kaups. rúmgóð 2)a herb. íbúö eöa 3ja herb. íbúð. Skipti möguleg á 4ra herb. úrvals suöur íbúð á Högunum. Opiö í dag laugardag kl. 1—5. Lokaö á morgun sunnudag. ALMENNA FASTEIGNASALAH LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.