Morgunblaðið - 21.01.1984, Side 12

Morgunblaðið - 21.01.1984, Side 12
I i 12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1984 Jaíhvægisleysi getur ver- ið mesta ógnun við friðinn — sagði Geir Hallgrímsson utanrík- isráðherra á Stokkhólmsráðstefnunni Hér fer á eftir ræöa Geirs Hallgrímssonar utanríkisráö- herra á setningarfundi Afvopnunarráðstefnu Evrópu í Stokkhólmi: Herra formaður, góöir áheyrendur. Fyrir hönd ríkisstjórnar ís- lands vil ég færa sænsku ríkis- stjórninni þákkir fyrir forstöðu þessarar ráðstefnu og mikla gestrisni. Aðdáun vekur hve vel er að skipulagi ráðstefnunnar staðið að öllu leyti. Okkur íslendingum er ekki síður en öðrum þjóðum mikið í mun að stuðla að og efla öryggi, gagnkvæmt traust og afvopnun í Evrópu. Forsenda þessa er, að lokasamþykkt Helsinki-ráð- stefnunnar og niðurstöður Mad- rid-fundarins séu í heiðri hafðar og við þær staðið í reynd af öli- um þátttökuríkjum. Hernaðar- legir þættir öryggismálanna eru þar að sjálfsögðu mikilvægir, en við megum ekki gleyma því, að mannréttindi eru nátengd og raunar óaðskiljanleg viðfangs- efnum þessarar ráðstefnu, ef ár- angur á að nást, svo að tryggt verði, að hvorki vald né hótun um valdbeitingu ráði í samskipt- um þjóða. Flest þátttökuríkjanna færðu dýrar fórnir mannslífa og óhugnanlegrar eyðileggingar í 2. heimsstyrjöldinni. Það er skilj- anlegt, að endurminningar um þær þjáningar ali á tortryggni. En slíkri tortryggni má eyða eða a.m.k. úr henni draga með tryggu alþjóðlegu eftirliti með vopnabúnaði, hreinskiptum um- ræðum, frjálsri upplýsingamiðl- un, opnum þjóðfélögum og lýð- ræðisskipulagi. Evrópa hefur öldum saman verið helzti vígvöllur heimsins, en þrátt fyrir allt hafa vopnuð átök og stríð síðustu fjögurra áratuga verið háð annars staðar. Þau stríð eru raunar óhugnan- lega mörg og alvarleg. Öllum er okkur ljóst, að ný hernaðarleg átök í Evrópu yrðu þó enn geig- vænlegri en þau, sem átt hafa sér stað hingað til, hvort sem tekst að koma í veg fyrir notkun kjarnorkuvopna eða ekki. Því skiptir sköpum, að ekki komi aftur til styrjaldar. ★ Undanfarin ár hafa samskipti Austurs og Vesturs farið versn- andi, en það er von okkar, að Afvopnunarráðstefna Evrópu, sem nú kemur saman, stuðli að bættum samskiptum þátttöku- ríkjanna. Með gagnkvæmum upplýsingum og tilkynningum um athafnir og hreyfingar her- liða, sameiginlegu eftirliti og könnunum og betra sambandi aðila á milli, ætti að vera unnt að koma í veg fyrir hótanir um hernaðaríhlutun og eyða mis- skilningi, sem gæti leitt til hættuástands, og draga úr hættu á skyndiárás í Evrópu. Viðræður okkar hér koma ekki í stað samninganna í Vínarborg um gagnkvæman samdrátt her- afla. Þær eru þeim til styrktar og við vonum, að Vínarviðræð- unum verði fljótlega haldið áfram jafnhliða þessum. Á þessari ráðstefnu taka ýmis ríki í fyrsta sinn beinan þátt í fjölþjóðaviðræðum um skipan hernaðarþátta í öryggismálum Evrópu. Öryggið er hins vegar ekki einungis hernaðarlegs eðlis. Enn verður að minna á, að það felst ekki síður í efnahagslegum, félagslegum, mannlegum og sál- fræðilegum aðstæðum, mann- réttindum í víðtækum skilningi. Það vekur hins vegar ekki bjartsýni um árangur þessarar ráðstefnu að ekkert hefur miðað sl. áratug að því er takmörkun vígbúnaðar varðar. Frá því SALT I-samningurinn um tak- mörkun langdrægra gereyðing- arvopna var gerður (1972), hafa engir mikilvægir samningar um það efni gengið í gildi. Sovétrík- in hafa jafnvel hætt þátttöku í viðræðunum í Genf um tak- mörkun meðaldrægra kjarna- flauga og óákveðið er, hvenær START-viðræðurnar um iang- dræg kjarnorkuvopn og samn- ingar í Vín um gagnkvæma fækkun í herliðum hefjast á ný. Annað Allsherjarþing Samein- uðu þjóðanna, sem fjallaði sér- staklega um afvopnunarmál, varð nær árangurslaust. Samn- ingarnir í afvopnunarnefnd Sameinuðu þjóðanna í Genf um algert bann við tilraunum með kjarnorkuvopn eru í sjálfheldu, en fjöldi tilrauna með slík vopn á sér stað. Fjölmargar tillögur samþykktar á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna um tak- mörkun vígbúnaðar og afvopnun koma fyrir ekki, meðan sam- komulag næst ekki um alþjóð- legt eftirlit. Notkun kjarnorku í geimnum skapar hættu á geisla- virkni á sjó og landi. Þessar staðreyndir vekja ótta, þótt ég telji ekki með mikla fjölgun kjarnaodda og flauga af full- komnustu gerð og markvísi. En þó að hörmulega lítill eða enginn árangur hafi náðst sl. áratug að því er takmörkun vígbúnaðar varðar, megum við ekki láta hugfallast. Þvert á móti verðum við að einsetja okkur að ná verulegum árangri á þessari ráðstefnu. í þessu skyni hafa öll 16 þátttökuríki Át- lantshafsbandalagsins undirbúið vandaðar tillögur, sem ættu að efla gagnkvæmt traust meðal allra þátttökuríkja Stokkhólms- T*m ráðstefnunnar. Þessar tillögur ganga á sínu sviði lengra en Helsinki-yfirlýsingin og ættu að gera meira gagn en óljósar yfir- lýsingar eða samþykktir, sem oft eru endurtekningar á skuldbind- ingum, sem þjóðirnar hafa þegar gengist undir, ýmist í stofnskrá Sameinuðu þjóðanna eða með aðild að öðrum alþjóðasam- þykktum. Skipti á áreiðanlegum upplýsingum hernaðarlegs og al- menns eðlis, er varða gagn- kvæmt öryggi, geta stuðlað að frekari takmörkun vopnabúnað- ar, auðveldað framfarir í af- vopnunarmálum, dregið úr ör- yggisleysi, deilum og tortryggni, sem valda spennu í Evrópu. Samkvæmt samhljóða ákvörð- un Madrid-fundarins munum við ræða á ráðstefnu þessari um þá hættu, sem nú steðjar að öryggi í Evrópu og semja um aðgerðir til að efla traust, aðgerðir, sem eru pólitískt bindandi, hafa hernaðarlega þýðingu og eru háðar eftirliti. Þessi þrjú skil- yrði eru þýðingarmikil. Höfuð- máli skiptir, að komið verði á raunhæfu eftirliti, svo hægt verði að ganga úr skugga um, að staðið sé við gefin loforð. Jafnvægisteysi í Evrópu, hvort sem um er að ræða venjulegan vopnabúnað eða kjarnorku- vopnabúnað, getur verið mesta ógnun við friðinn. Traust byggist nú ekki sízt á því öryggi, sem valdajafnvægi og virðing fyrir sjálfsákvörðunarrétti ríkja veit- ir. Unga kynslóðin í þátttökuríkj- unum verður einnig að læra af mistökum þeim, er lýðræðisríkin áttu þátt í, þegar þau leyfðu Hitler að ná hernaðarlegum yf- irburðum, sem leiddu til heims- styrjaldarinnar síðari. Við meg- um heldur ekki gleyma reynsi- unni af heimsstyrjöldinni fyrri, þegar Evrópuríkin fóru I stríð, ekki sízt vegna skorts á gagn- kvæmu trausti, þrátt fyrir að talið var að hernaðarlegt jafn- vægi ríkti. ★ Hernám Afganistan og ákvörð un Sovétríkjanna að hætta þátt- töku í Genfarviðræðunum um takmörkun meðaldrægra kjarna flauga í Evrópu, spilla alvarlega fyrir frekari viðleitni til tak- mörkunar vígbúnaðar og afvopn- unar og geta komið í veg fyrir árangur af þessari ráðstefnu. Áherzlu ber því að leggja á, að hefja aftur varanlegar viðræður Austurs og Vesturs og því frem- ur, sem þær liggja nú niðri að öðru leyti en á þessari ráðstefnu. Norður-Atlantshafsbandalag- ið fór fram á viðræður um tak- mörkun meðaldrægra kjarna- flauga í Evrópu í desember 1979, eins og kunnugt er, til þess að koma á hernaðarjafnvægi í Evr- ópu með sem minnstum vopna- búnaði. Tilefnið var endurnýjun kjarnavopna Sovétmanna og staðsetning SS-20-kjarnaflauga þeirra í Evrópu. Hún hófst 1977 og hefur verið haldið áfram síð- an, og ógna flaugarnar nú Vest- ur-Evrópu. Það er miður, að Sovétmenn slitu Genfarviðræðunum. Að okkar mati geta hvorki tíma- bundnir yfirburðir á hernaðar- sviðinu né óhóflegt vígbúnaðar- kapphlaup stuðlað að því öryggi og stöðugleika, sem öllum Evr- ópuríkjum er svo nauðsynlegt. Við bjuggumst einnig við því, að START-viðræður Banda- ríkjamanna og Sovétmanna mundu geta tryggt jafnvægi iangdrægra kjarnavopna og dregið úr tölu þeirra. Það er því í þágu allra þjóða, að START-við- ræðurnar hefjist á ný og skili árangri. Markmið okkar er að sjálf- sögðu að afnema öll kjarnorku- vopn samhliða annarri gagn- kvæmri afvopnun undir tryggu eftirliti. ★ Öll ríki eiga órjúfanlegan rétt til sjálfsvarnar, ein sér eða með öðrum ríkjum, til að vernda sjálfstæði sitt í samræmi við ákvæði sáttmála hinna Samein- uðu þjóða. Öll þátttökuríkin hafa gert nauðsynlegar ráðstaf- anir í þeim efnum. Mörg þeirra eru aðilar að varnarbandalögum, en einnig eru meðal þátttöku- ríkja allmörg hlutlaus og óháð ríki. Flest aðildarríki bandalag- anna verja árlega miklum fjár- munum til varnar- og hermála, en athyglisvert er, að óháðu og hlutlausu ríkin verja engu síður verulegum og jafnvel hærri hluta þjóðartekna til varnar- mála en önnur sambærileg ríki. Hlutleysi án varna veitir því ekki öryggi að mati hlutlausra ríkja sjálfra og segir það sína sögu. Grundvöllur utanríkisstefnu íslands og stefnunnar í örygg- ismálum byggist á aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu og varnarsamningnum við Banda- ríkin. Framlag Bandaríkjanna til varna íslands er auk þess snar þáttur í öryggi Vestur- Evröpu. ★ f dag þarfnast Evrópa og heimsbyggð öll alhliða afvopn- unar á gagnkvæmisgrundvelli. Við þurfum að semja um nýjar yfirgripsmiklar ráðstafanir til að efla traust og öryggi, sem ná frá Úralfjöllum að Átlantshafi ásamt aðliggjandi hafsvæðum og loftrými. Það er ekki ætlun mín að telja upp slíkar aðgerðir í ein- staka atriðum, en ég vil vekja sérstaka athygli á aðgerum, er varða flota og vígbúnað á hinum aðliggjandi hafsvæðum. Við íslendingar sem eyþjóð, er byggir afkomu sína að miklu leyti á lífríki sjávar, sérstaklega fiskveiðum, höfum skiljanlega mjög miklar áhyggjur vegna vaxandi vígbúnaðar í hafinu. Kjarnorkubúnar vígvélar fara um hafið og ekki þarf nema slys á sjó til þess að efnahagsafkomu okkar og annarra verði stefnt í voða, svo ekki sé minnst á tjón, sem hlytist af hernaðarátökum á hafi engu síður en á landi. Á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna hefur ísland því gerst meðflytjandi, ásamt Finnlandi, Austurríki, Júgóslavíu og gest- gjafalandinu, Svíþjóð, að álykt- un um könnun flotastyrks og vígbúnaðar á hafinu. Einn megin tilgangur þessarar athugunar er að við getum gert nauðsynlegar ráðstafanir til að efla gagn- kvæmt traust á þessu sviði. Herra formaður. Stokkhólmsráðstefnan fjallar um framtíð Evrópu. Hér verða teknar mikilvægar ákvarðanir, sem vonandi verður fylgt vel fram. ísland mun taka þátt í störfum ráðstefnunnar af heil- um hug og við skulum öll vona, að raunhæfur árangur náist, svo að menn megi njóta friðar og frelsis. Hugmyndasamkeppni um hag ræðingu hjá hinu opinbera ÁKVEÐIÐ hefur verið að efna til hugimndasamkeppni um hagræð- ingu, sem ætlað er að snerti rekst- ur eða þjónustu ríkis eða sveitarfé- laga við almenning eða aðra hags- munaaðila. Þetta kom fram á blað- amannafundi sem haldinn var á vegum samstarfsnefndar um ha- græðingu í opinberum rekstri, en nefndina skipa fulltrúar ríkis og sveitarfélaga. Þá hefur verð gefinn út kynn- ingarbæklingur um skipulag ha- græðingarstarfs hjá ríki og sveitarfélögum. í bæklingnum eru leiðbeiningar um hvernig standa skuli að hagræðingarst- arfi og er þar og lagt til að mynd- aðir verði starfshópar í stofnun- um, sem geri tillögur um ha- græðingu og bætta þjónustu. Hugmyndasamkeppni um ha- græðingu hefst 1. febrúar og lýk- ur 31. maí nk. Er samkeppnin öll- um opin og veitt verða þrenn verðlaun, 10 þúsund krónur, 7.500 krónur og 5 þúsund krónur. Á fundinum kom m.a. fram að það væri nauðsynlegt hinu opinbera að hagræða og fylgja eftir kröfum breyttra tíma. Tekið var fram að hugmyndum um ha- græðingu væri ekki beint gegn atvinnuöryggi, heldur væri að því miðað að nýta fjármagn og mannafla sem best. Var á fund- inum drepið á ýmsar ábendingar sem fram hefðu komið um ha- græðingu og m.a. nefnt breyt- ingar á umboðsmannakerfi skattstjóra, orlofskerfið, lyfja- dreifingu, starfsemi banka og fleira.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.