Morgunblaðið - 21.01.1984, Side 13

Morgunblaðið - 21.01.1984, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1984 13 VIARKVISS SKYNDIHJALP VIÐ MEÐVITUNDARLAUSA Athugið hvort hinn slas- aði er meðvitundarlaus tahö við hann ytið við honum Athugið hvort hinn með- vitundarlausi andar með þvi að hlusta eftir andar- draettmum eða leggia aðra hóndma á br|óst- kassann og fmna hvort hendurnar hreyfast fyrir áhrif andardráttarins öndunarvegurmn er opnaður meö þvi að taka annarri hendi um enmð og hinni um hokuna Hökunm er slðan ytt fram og hofuöiö sveigt eins langt aftur og unnt er Við það lyftist tungan fram og ondunarvegur- mn opnast Hlustið siðan með eyrað fast við nef og munn hins meövitundar- lausa_________________ ef hann fer að anda | Ef hann andar ,ekki ennpá beitið blástursaðferðinm Reykjavíkurdeild Rauða krossins: Námskeið í skyndihjálp REYKJAVÍKURDEILD Rauöa krossins stendur nú fyrir námskeiði í skyndihjálp og hefst það þann 24. janúar. Námskeiðið verður haldið í húsnæði RKÍ að Öldugötu 4 og lýkur því með verkefni sem hægt er að fá metið í fjölbrautaskólum og iðnskólum. Á námskeiðinu verður farið í skyndihjálp við ýmiskonar slys og óhöpp. Auk þess verður blástursaðferðin kennd og farið í markvissa skyndihjálp á slysstað og sýndar myndir þar að lútandi. Ólögleg leiga á „The Day After**: „Vil ekki tjá mig um þáo“ — segir framkvæmdastjóri Videosýnar „ÉG GET aðeins sagt það, að mynd- in The Day After er ekki til útleigu hér og veröur ekki leigð hér út,“ sagöi Stefán Kjartansson, fram- kvæmdastjóri myndbandaleigunnar Videósýn, í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær. Stefán var þá einnig spurður hvort myndin hefði áður verið leigð út í Videósýn, og svaraði hann þá: „Ég vil ekki tjá mig um það, annað get ég ekki um þetta mál sagt.“ Tilefni fyrirspurnarinnar var það, að kvikmyndin The Day After hefur að undanförnu verið leigð út og sýnd ólöglega í kapalkerfum í borginni og Arni Samúelsson í Bíóhöllinni — sem keypt hefur sýningarrétt á myndinni — sagði í samtali við Morgunblaðið að Videósýn hefði leigt myndina út. Sinfóníutónleikar Tónlist Jón Ásgeirsson Efnisskrá: Penderecki, Dies irae. Schumann, Sinfónía nr. 1. Einsöngvarar: Marianne Mellnás, Sigurður Björnsson, Sven Anders Benktsson. Lesari: Baldvin Halldórsson. Stjórnandi: Guðmundur Emilsson. Það í raun ofureðiilegt að þýsk og pólsk tónskáld ieiti svara við merkingu þeirra atburða seinni heimsstyrjaldarinnar, er sett hafa óafmáaniegan svartan blett á síðari sögu mannsins. Það sem gefur þessum atburðum óhugn- anlega dýpt, er tilgangsleysi þeirra og hversu átrúnaður á einhver tilbúin markmið getur gert manninn að mikilli ófreskju. Enginn kann svar við þessum gjörðum og allir eru í raun sekir. Það verður því skylda hvers og eins að eiga hlutdeild í friðþægingunni, því aðeins verður um bætt að fyrir- gefning fáist, sem enginn hefur þó vald til að veita. Þannig verð- ur krossfestingin tákngildi rang- lætis og mannlegrar grimmdar en um leið skapandi afl til nýs og betra manngildis, yfirbótar, sem Guðmundur Emilsson er eina færa leiðin til fyrirgefn- ingar. Þetta er í raun og veru inntak textans er tónskáldið valdi sér til gerðar Dies irae. Baldvin Halldórsson las textann og var lestur hans nær því áhrifameiri en flutningur verks- ins. Tónverkið er byggt upp sem stemmningar, sem eiga að vera óháðar fastri hljóðfallsskipan, eins sílíðandi tímans. Svo virðist sem stjórnandi hafi valið þá leið að færa verkið aftur til fastrar taktskipunar að nokkru leyti og þá til að auðvelda sér og flytj- endum framfærslu flutning verksins. Hvað sem þessu líður var flutningur þess á köflum mjög áhrifamikill, þó kórinn hefði mátt vera mun hljómmeiri. Einsöngvarar sungu sitt skipu- lega, en að undanteknum Sigurði Sigurður Björnsson Björnssyni án alls ákallandi ákafa, sem verkið er þrungið af. Verkið er í senn ákall og ásök- un, miskunnarlaust í fyrirgefn- ingu sinni og hefðu þessir þættir mátt vera málaðir sterkari lit- um. Tónleikunum lauk svo með fallegum lofsöng til vorsins, í heimi þar sem höfundurinn vill eiga sér draum fegurðar og góð- semdar. í heild voru þetta góðir tón- leikar og nokkur sigur fyrir Guð- mund Emilsson sem stjórnanda, þarna stýrði hann sínu liði og stjórnaði. Það má deila um túlk- un á báðum verkunum, t.d. um hraðaskipan í sinfóníu Schu- manns. Hröðu kaflarnir voru sumir allt of hægir og nægir þar að nefna „skersóið", sem heitir að eigi að vera „molto vivace". HEKLAHF BILASYNING UM HELCINA - íNYJUM GLÆSILEGUM SYNINCARSAL OKKAR Laugardag frá kl. 10 - 5 — Sunnudag frá kl. 1 - 5 1984 ÁRGERÐIRNAR MITSUBISHI — VOLKSWAGEN RANGE ROVER TlSKXJ SYNING Kl 3 báða dagana Módelsamtökin sýna tískufatnað frá Pelsinum og Maríunum Klapparst.g^ Bjóðum sýningargestum upp á SVALA-drykki frá Sól hf. [hIheklahf |£__gjLaugavegi170-172 Sími 21240 Komid og skoðið giæsiiega bíia íglæsilegu umhverfi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.