Morgunblaðið - 21.01.1984, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1984
Landbúnaður
Tekjur kjarnfóður-
sjóðs 111 milljónir
BÓKFÆRÐAK tekjur kjarnfóðursjóðs voru á síöastliðnu ári 111 millj-
ónir króna, þar af voru um 30 milljónir óinnheimtar um áramót, en
ársreikningur kjarnfóðursjóós var lagður fram á síðasta fundi Fram-
leiðsluráðs landbúnaðarins.
Helstu greiðslur úr sjóðnum á
árinu voru 40 milljónir til Áburð-
arverksmiðju ríkisins vegna
niðurgreiðslu á áburði, 34,5 millj-
ónir til mjólkurframleiðenda, 11,3
milljónir til bænda vegna vor-
harðinda og 11 milljónir vegna
uppgjörs innlagðra sauðfjáraf-
urða á árinu 1982. Að sögn Gunn-
ar Guðbjartssonar, framkvæmda-
stjóra Framleiðsluráðs, átti sjóð-
urinn lítið lausafé um áramót en
talsvert fé útistandandi.
Landbúnaður:
Útborgun mjólk-
ur til bænda
Á FUNDI Framleiðsluráðs land-
búnaðarins fyrir skömmu voru
samþykktar útborgunarreglur
fyrir mjólk á árinu 1984. Reglurn-
ar eru þær sömu og giltu á síðasta
ári. í mánuðunum janúar og
febrúar og september til desember
eiga mjólkursamlögin að greiða
mjólkurinnleggjendum 90% af
grundvallarverði mjólkur. í mars
og apríl eiga þau að greiða 85% en
75% yfir sumarmánuðina, maí til
ágúst.
Bæklingur mjólkurdagsnefndar:
„Góður dagur byrj-
ar að morgni“
NÝLEGA kom út á vegum Mjólkurdagsnefndar 16 síðna bæklingur um
morgunverð, léttan hádegisverð og nestispakka. Yfirskrift bæklingsins
er „Góður dagur byrjar að morgni“.
Fyrir utan margar fróðlegar ! mismunandi uppskriftir að hvers- .
upplýsingar um næringarþörf | dagsmorgunverði. Til hátíða-
fólks og ábendingar um hollan og j brigða um helgar er sérstök upp-
góðan mat, þá eru í bæklingnum 5 j skrift að helgarmorgunverði.
Samþykkir að greiða
2 milljónir til eggja-
dreifingarstöðvar
FRAMLEIÐSLURÁÐ landbúnaðarins ákvað á fundi sínum fyrir
skömmu aö mæla með því við landbúnaðarráðherra að Sambandi eggja-
framleiöenda verði greiddar 2 milljónir úr kjarnfóðurssjóði til bygg-
ingar fyrsta áfanga eggjadreifingarstöðvar Sambandsins samkvæmt
upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Gunnari Guðbjartssyni, framkvæmda-
stjóra Framleiðsluráðsins.
Sem kunnugt er klofnaði Sam-
band eggjaframleiðenda vegna
deilna um eggjadreifingarstöð-
ina, en það er hin nýja stjórn
Sambandsins sem sótti um að fá
greiðslu upp í þann styrk sem
Framleiðsluráðið hafði áður
samþykkt að veita til stofnunar
hennar. Stofnun eggjadreif-
ingarstöðvarinnar og fjárfram-
lög úr Kjarnfóðursjóði til henn-
ar eru nú í athugun í Landbún-
aðarráðuneytinu. í samþykkt
Framleiðsluráðs er bent á þann
möguleika að greiða 2 milljón-
irnar í formi láns til bráðabirgða
á meðan verið sé að athuga hvað
margir eggjaframleiðendur
standi að stofnun hennar.
í undirbúningi er að leggja
Landnám ríkisins niður
í landbúnaðarráðuneytinu hefur
að undanförnu verið unnið að undir-
búningi lagafrumvarps þess efnis að
Landnám ríkisins verði lagt niður og
verkefni þess falin öðrum aðilum,
aðallega landbúnaðarráðuneytinu.
Að sögn Jóns Helgasonar landbún-
aðarráðherra hafa tillögur þessa efn-
is verið kynntar stjórnarflokkunum
og verður frumvarps með þessum
breytingum lagt fyrir alþingi að lok-
inni umfjöllun þeirra.
Landbúnaðarráðherra sagði að
Landnám ríkisins hefði aðallega
verið stofnað til að skipta jörðum
og fjölga býlum, en nú væru
breyttir tíma, og um hríð hefði
slíkt ekki verið á dagskrá að í
mjög litlum mæli. Því þætti eðli-
legt að endurskoða starfsemina og
í ljósi breyttra tíma hefði niður-
staðan orðið sú að leggja stofnun-
I ina niður og skipta vérkefnum á
I milli annarra aðila. Aðallega væri
landbúnaðarráðuneytinu falin
þessi verkefni í samráði við stofn-
anir landbúnaðarins, svo sem
Framleiðsluráð. Sagði Jón að við
þetta ætti að verða sparnaður og
þó sérstaklega hagræðing við það
að fækka þeim aðilum sem um
þessi mál fjölluðu.
Útflutnings-
bótaréttur
bænda
áætlaður
456
milljónir
í ár
Á FUNDI Framleiðsluráðs landbún-
aðarins fyrir skömmu var lögð fram
áætlum um útflutningsbótarétt
bænda á yfirstandandi verðlagsári
sem lýkur 1. september. Heildar-
tekjur landbúnaðarins eru áætlaðar
4560 milljónir og veður útflutnings-
bótarétturinn samkvæmt því 456
milljónir, en hann er samkvæmt lög-
um 10% af heildarverðmæti land-
búnaðarafurða.
Gunnar Guðbjartsson fram-
kvæmdastjóri Framleiðsluráðs
sagði í samtali við Mbl. að þetta
væri fyrsta áætlun og gætu töl-
urnar breyst eitthvað. Sagði hann
að þessar 456 milljónir myndu
varla duga til nauðsynlegra út-
flutningsbóta en útfluntingsbóta-
þörfin væri þó engan veginn ljós
ennþá.
Ráðunauta-
fundur
RALA og
Búnaðar-
félagsins
DAGANA 6. til 10. febrúar næst-
komandi verður hinn árlegi ráðu-
nautafundur Búnaðarféiags íslands
og Rannsóknarstofnunar landbún-
aðarins haldinn í Bændahöllinni í
Reykjavík. Til fundarins er boðið
öllum ráðunautum landbúnaðarins,
tilrauna- og rannsóknarmönnum,
kennurum bændaskólanna og garð-
yrkjuskólans og ýmsum fleirum.
Helstu mál fundarins að þessu
sinni verða: Beitarrannsóknir,
innlent hráefni til fóðurgerðar,
heyverkun, töivunotkun og leið-
beiningarþjónustan, heimilisgarð-
rækt og að síðustu verður rætt um
framleiðslu- og sölumál.
Bænda-
orlofsvikur
í Reykjavík
ÁKVEÐIÐ hefur verið að efna í vet-
ur til tveggja orlofsvikna í Reykjavík
fyrir bændafólk, 6. til 12. mars og 3.
til 9. apríl. í frétt frá Upplýsingaþjón-
ustu landbúnaðarins segir að frá því
að þessar vetrarorlofsvikur hófust í
ársbyrjun 1981 hafi 8 orlofsvikur
verið haldnar, allar á Hótel Sögu.
Segir í fréttatilkynningunni að
aðsókn hafi verið þokkaleg og
aldrei hafi þurft að vísa fólki frá
vegna plássleysis. Þátttakendurn-
ir hafi undantekningarlaust haft
mikla ánægju af slíkri orlofsdvöl,
þeir hafi kynnst fólki úr öðrum
byggðarlögum og séð ýmislegt í
borginni sem þeir hafi ekki séð áð-
ur. Eru heimsóknir í afurðasölu-
félögin og ýmsar aðrar stofnanir
og fyrirtæki tengd landbúnaði sér-
staklega nefnd. Upplýsingar um
orlofsdvöl í Reykjavík eru veittar
hjá bændasamtökunum í Bænda-
höllinni.