Morgunblaðið - 21.01.1984, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 21.01.1984, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1984 15 Sjóðagjöld landbúnaðarins: Innheimt gjöld tvö- og þrefölduðust Mjólkurframleiðslan jókst nokkuö á sl. ári. Mjólkurframleiðslan 1983: 1,77% aukning á innveginni mjólk NOKKUR aukning varö í innveginni mjólk hjá mjólkursamlögunum á síö- asta ári miöaö viö árið á undan, eða um 1,77% samkvæmt bráðabirgðaskýrsl- um. Tóku samlögin á móti um 106,4 milljónum lítra á árinu. í desember síöastliönum varö aukningin 2,19% miöaö við desember 1982. Tóku samlögin á móti 7,7 milljónum lítra í mánuöinum. í desember varð verulegur sam- dráttur í mjólkurinnleggi á Aust- urlandi og hjá mjólkursamlaginu á Húsavík. Hjá Mjólkursamlagi KEA á Akureyri varð 3,4% aukn- ing mjólkur miðað við desember 1982. Aukningin hjá Mjólkurbúi Flóamanna á Selfossi reyndist 5,9% miðað við desember 1982. MBF tók við 38,3 milljónum lítra á árinu 1983 sem er 0,23% minni mjólk en á árinu 1982. í frétta- bréfi Upplýsingaþjónustu land- búnaðarins segir að verulegrar svartsýni hafi gætt hjá mörgum bændum á Suðurlandi síðastliðið haust og þeir talið að samdráttur yrði í mjólkurframleiðslunni, því mjólkurframleiðsla umfram það sem nú er leiðir líklega til ein- hverrar skerðingar á útborgunar- verði til bænda umfram það sem verið hefur. Það er því full ástæða til að vara bændur við frekari aukningu í mjólkurframleiðslu," segir í frétt Upplýsingaþjónustu landbúnaðarins. MIKIL aukning varð á innheimtu sjóöagjalda landbúnaðarins á síö- asta ári, samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Gunnari Guö- bjartssyni, framkvæmdastjóra Framleiösluráðs landbúnaöarins. Innheimta gjalda til Stofnlánadeild- ar landbúnaðarins tvöfaldaðist og innheimta búnaöarmálasóösgjalda þrefaldaöist frá árinu á undan. Á árinu 1983 innheimtust 92,3 milljónir af gjöldum til Stofnlána- deildar sem er 101,5% aukning frá árinu á undan. Til Stofnlánadeild- arinnar gengur í fyrsta lagi 1% af heildsöluverði landbúnaðarafurða sem dregst af kaupi bóndans og í öðru lagi 2% neytenda- og jöfnun- argjald sem leggst ofan á heild- söluverðið og greiðist af neytend- um. Svo kallað búnaðarmálasjóðs- gjald, sem er 1,1% af heildsölu- verði landbúnaðarafurða og er dregið af kaupi bændanna, inn- heimtist fyrir 32,3 milljónir á ár- inu 1983 sem er 201,7% aukning frá árinu á undan. Bjargráðasjóð- ur fær 55% af búnaðarmálasjóðs- gjaldinu, en því sem eftir er skipta búnaðarsamböndin og Stéttar- samband bænda með sér. Hlutföll- in hér að ofan miðast við hinar hefðbundnu landbúnaðarafurðir en sjóðagjöldin eru lægra hlutfall af sumum afurðum hinna svoköll- uðu aukabúgreina. Gunnar Guð- bjartsson, framkvæmdastjóri Framleiðsluráðs landbúnaðarins sagði að þessi mikla hækkun á innheimtum sjóðagjöldum á síð- asta ári stafaði aðallega af laga- breytingu sem gerð var árið 1982, en kom til framkvæmda á árinu 1983, þar sem ársfjórðungsleg inn- heimta gjaldanna er tekin upp en áður voru gjöldin innheimt einu sinni á ári, eftir á. Því hafi sjóða- gjöld vegna ársins 1982 verið inn- BÚNAÐARÞING 1984 verður sett 20. febrúar næstkomandi kl. 10 í Búnaðarþingssalnum í Bænda- höllinni í Reykjavík. Við setn- ingarathöfnina mun formaður Búnaðarfélags íslands, Ásgeir Bjarnason, flytja yfirlitsræðu og heimt á árinu 1983, svo og stór hluti gjaldanna vegna 1983. Þá" sagði Gunnar einnig að meiri vinna hefði verið lögð í innheimt- una á árinu en oft áður og hefði það orðið til þess að þau skiluðu sér betur. Jón Helgason, landbúnaðarráð- herra flytja ávarp. Að sögn Jónas- ar Jónssonar búnaðarmálastjóra er búist við að þingið standi yfir í um tvær vikur eins og undanfarin ár. Framleiðsluráð landbúnaðarins: Mjólkursamlögin gæti hófs í fjárfestingum A SÍÐASTA fundi Framleiösluráös landbúnaöarins var samþykkt til- laga um að senda öllum mjólkur- samlögum landsins bréf með ósk um aö þau vandi mjög allar fjár- festingaráætlanir sínar og gæti hófs í fjárfestingum á næstunni. Að sögn Gunnars Guðbjarts- sonar, framkvæmdastjóra Framleiðsluráðsins, er þessi samþykkt gerð vegna stórauk- innar þarfar sem orðið hefur á verðmiðlun mjólkur, en hún væri meðal annars tilkomin' vegna fjárfestinga hjá samlögunum. Sagði hann að Framleiðsluráði þætti þess vegna þörf á að fylgj- ast betur með þessum hlutum. Búnaðarþing verður sett 20. febrúar á Honda bílum árg. ’83 Var Nú aöeins Lækkun kr. Civic 3h beinsk. 267.900 246.100 21.800 Civic 3h sjálfsk. 303.200 282.200 21.000 Civic 3h beinsk. 325.000 uppseldur Civic Sedan 4h beinsk. 322.100 296.300 25.800 Civic Sedan 4h sjálfsk. 330.800 uppseldur Quintet 5h beinsk. 370.000 uppseldur Accord 3h beinsk. 389.000 uppseldur Accord Sedan 4h beinsk. Accord Sedan 408.900 358.200 50.700 4h beinsk. EXS Accord Sedan 448.400 386.200 62.200 4h sjálfsk. EXS Prelude 2h beinsk. 465.700 uppseldur 5 gíra EXS Prelude 2h beinsk. 461.800 436.400 25.400 5 gíra EXS, PS/V 472.800 446.900 25.900 Allt verð miðað við bankagengi Yen: 0,1233 tollgengi Yen: 0,1233. Verö án ryövarnar og skráningar. /4ccord Góöir greiösluskilmálar Opið 1—5 í dag HONDA Á ÍSLAND Vatnagörðum 24 Símar 38772 — 39460 — 82081

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.