Morgunblaðið - 21.01.1984, Page 17

Morgunblaðið - 21.01.1984, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1984 17 ÖRVEIRUFRÆÐI eftir dr. Ara K. Sæmundsen krabbamein Um 2. hluti f síðasta þætti fjallaði ég í stuttu máli um þá krabbameins- hvetjandi þætti í umhverfinu, sem flokkast undir ýmis efnasambönd. Hinir tveir flokkarnir voru geislar og veirur. Þrátt fyrir að þessir þrír flokkar séu í eðli sínu mjög ólíkir, þá verka þeir sennilega allir á svipaðan hátt við framköllun krabbameins. Margar tilgátur hafa verið settar fram til að út- skýra hvað gerist á sameindasviði ákveðinnar frumu, sem veldur því að hún umbreytist í illkynja krabbameinsfrumu. Aðeins tvær þessara tilgátna geta sameinað undir einn þátt þessa þrjá flokka krabbameinsvalda. Þau módel sem hafa hlotið meiri athygli en önnur eru 1) breytingar á erfða- efninu (genetic alteration) og 2) breytingar í starfsemi erfða- efnisins (genetic activation). þættir í umhverfi okkar geta vald- ið krabbameini, með því að trufla eðlilega starfsemi erfðavísa. Mis- munurinn á milli þessara módela liggur í því, að annað gerir ráð fyrir að krabbamein stafi frá óaft- urkræfum breytingum á erfðaefn- inu sjálfu, en hitt gerir það ekki. Breytingar á erfðaefninu Töluvert magn upplýsinga styðja þá hugmynd að frumorsak- ir krabbameins sé að finna í þeim breytingum, sem verða á erfðaefn- inu. Sýnt hefur verið fram á að flestir umhverfisþættir sem fram- kalla krabbamein, geta valdið breytingum á erfðaefninu (mynd 2). Sem dæmi má nefna að ýmsir krabbameinshvatar eru þekktir fyrir að valda stökkbreytingum. Þetta tvennt virðist oft fara sam- an hjá krabbameinshvötum, þ.e. hæfileikinn til að valda stökk- breytingu og hvatning krabba- meins. Ymsar tegundir geisla, t.d. útfjólubláir geislar og röntgen- geislar, geta valdið úrfellingum úr erfðaefninu. Slíkar breytingar gætu síðan verið undanfari ýmissa litningabrengla, sem orsaka krabbamein. Það er lóst að ákveð- in litningabrengl eru óhjákvæmi- legir fylgifiskar sumra krabba- meina, og oft það áberandi að auð- veldlega er hægt að greina þau í smásjá og í vissum tilvikum gegna þau mikilvægu hlutverki við greiningu ákveðinna krabbameina (mynd 2). Þessi fylgni á milli litn- ingabrengla og sumra krabba- meina, hefur óneitanlega hleypt stoðum undir tilgátuna um mik- ilvægi breytinga á erfðaefninu. Breytingar í starfsemi erfðaefnisins En þótt margar gerðir litn- ingabrengla séu áberandi í sumum tegundum krabbameins, þá er það ekki sönnun þess að krabbamein þurfi að fela í sér, að ákveðnar breytingar verði á erfðaefninu. Slíkar breytingar gætu auðveld- lega komið til eftir að krabba- meinsfruman hefur orðið til. Hér gæti því í vissum tilvikum verið um afleiðingu að ræða fremur en orsök. Eins og áður hefur verið vikið að í þessum greinaflokki, þá ganga Fyrri tilgátan gerir ráð fyrir að ákveðnar breytingar á erfðaefn- mu, DNA, séu undanfari krabba- meins. Þessar breytingar gætu falið í sér t.d. viðbót á erfðaefni (eins og þegar sumar veirur inn- lima erfðaefni sitt inn í erfðaefni hýsilfrumunnar), úrfellingu erfða- vísa, stökkbreytingar (punkt- breytingar) í erfðaefninu eða hreinlega litningabrengl (mynd 1). Slíkar breytingar gætu allar orsakað þá truflun í vaxtarstjórn- un, sem á sér stað við umbreyt- ingu. Hitt módelið gerir ekki ráð fyrir að neinar marktækar breyt- ingar verði á erfðaefninu, heldur að ruglingur verði á eðlilegri stjórnun ákveðinna erfðavísa. í stuttu máli, ótímabær tjáning (expression) eða bæling (repress- ion) ákveðinna erfðavísa, sem venjulega gegna mikilvægu hlut- verki í þroskun frumna og stjórn- un frumuvaxtar, getur leitt til umbreytingar. Bæði þessi módel eiga það sameiginlegt að þau geta útskýrt, hvernig mismunandi Mynd 2 Mynd 3 allar frumur í gegnum flókin þroskunarferli frá fósturskeiði og þar til fullskapaður einstaklingur myndast. Þessi þroskunarferli eru ólík að vissu marki, en ákvarða að lokum, hvað ákveðin fósturfruma verður, þ.e. eitilfruma, vöðva- fruma, taugafruma o.s.frv. Við þroskun eiga sér stað sífelldar breytingar á tjáningu erfðavísa, kveikt er á sumum en slökkt á öðr- um. Slíkar breytingar á tjáningu erfðavísa gætu líka verið undirrót ýmissa krabbameina (mynd 3). Það sem bendir til þess að breytingar í starfsemi erfðaefnis- ins geti verið frumorsök krabba- meins kemur m.a. frá rannsóknum á afturbata krabbameinsfrumna. í stuttu máli, sumar krabbameins- frumur geta breyst aftur í eðli- legar frumur við vissar aðstæður. Slíkt væri fremur ólíklegt, ef óaft- urkræfar breytingar á erfðaefninu hefðu verið orsök viðkomandi krabbameins. Sem dæmi má nefna, að sé kjarni numinn á brott úr okfrumu (þ.e. frjóvgað egg) frosks og kjarna úr krabba- meinsfrumu (úr froski) komið fyrir í hans stað, þá þroskast okfruman eðlilega og útkoman er, að því er virðist, alheilbrigð hala- karta. Þarna hefur orðið ákveðin breyting í umhverfi hins illkynja kjarna, sem veldur því að breyt- ingar verða á stjórnun erfðavísa innan kjarnans og hann byrjar að starfa eðlilega að nýju. Lokaorö Ekki er ósennilegt að bæði þessi módel geti skýrt tilkomu krabba- meins. Það er t.d. vel hugsanlegt, að sum krabbamein verði vegna breytinga á erfðaefninu, á meðan önnur stafi frá breytingum á starfsemi erfðaefnisins. Oft er erf- itt að greina hér á milli og ekki er ósennilegt að í sumum krabba- meinum haldist þessir tveir þættir í hendur (eins og bent var á í greinum um „erfðavísa krabba- meins", sem birtust hér í blaðinu 27. ágúst og 3. og 10. september á fyrra ári). Greinin er aö mestu endursogn á grein- inni „C'auses of cancer: gene alteration versus gene activation" eftir Dr. Steven B. Oppenheimer, American Laboratory 14 (11): 40—46, 1982. Reykjavíkurvegi 64, Hafnarfiröi, sími 54499 - á unglingahúsgögnum, hjónarúmum og svefnbekkjum HJÓNARÚM ii með dýnum, verð frá H*oOO LUX SÓFAR \/PrA fré» 9.400 Opiö um helgina

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.