Morgunblaðið - 21.01.1984, Side 21

Morgunblaðið - 21.01.1984, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1984 21 Sjálfstæðisflokksins í Suður- landskjördæmi. Páll Scheving varð eins og aðrir að yfirgefa Eyjarnar meðan á gos- inu stóð árið 1973 en fluttist þang- að aftur strax og fært þótti og gerðist þá fastur starfsmaður Sjálfstæðisflokksins og sá um fjármál hans og einnig flokksblað- sins Fylkis, sem hann sá um út- gáfu á þó ekki væri hann skráður ritstjóri. Annaðist hann bæði þessi störf með mikilli prýði, að flokksforystan þurfti aldrei að hafa nokkrar áhyggjur af fjár- málahlið starfsins en áður voru blankheit krónískur sjúkdómur flokksins í Eyjum, eins og senni- lega flestra annarra stjórnmála- flokka í landinu. Gegndi hann þessu starfi til síðustu áramóta og standa sjálfstæðismenn í Eyjum í mikilli þakkarskuld við hann fyrir þessi störf hans. Páll Scheving hefur alla tíð ver- ið mikill félagshyggjumaður og tekið virkan þátt í margvíslegum félagasamtökum í heimabyggð sinni. Var meðal annars kjörinn fyrsti formaður í Vélstjórafélagi Vestmannaeyja enda gegndi hann vélstjórastörfum á sínum tíma, fyrst hjá Rafveitu Vestmannaeyja og síðar hjá ísfélaginu og á eigin báti. Virkur félagi hefur Páll Scheving verið í félaginu Akoges í Eyjum um langt árabil og efast ég ekki um að félagarnir muni minn- ast hans á veglegan hátt við þessi merku tímamót á æviferli hans. Viljum við hjónin árna afmælis- barninu allra heilla og þakka því langt og traust samstarf á undan- förnum áratugum. Guðlaugur Gíslason Vinur minn og nágranni um árabil er áttatíu ára í dag. Hann fæddist 21. janúar árið 1904 á Steinstöðum fyrir ofan hraun á Heimaey, Vestmannaeyjum. En þar bjuggu foreldrar hans, Krist- olína Bergsteinsdóttir frá Fitja- mýri undir Eyjafjöllum og Sveinn Pálsson Scheving, síðar yfirlög- regluþjónn í Eyjum. Hann var Skaftfellingur, fæddur að Görðum í Mýrdal. Kristolína fæddi manni sínum Sveini sjö börn. Þrjú þeirra létust í æsku, en þau er upp komust voru Guðjón málarameistari, Anna húsmóðir, Páll og yngstur var Sig- urður verslunarmaður. Allt kunn- ir borgarar og manndómsfólk. Eru þau öll farin yfir móðuna miklu, nema Páll. Persónulega man ég foreldra Páls mjög vel. Kristolína á Hjalla og Guðný á Arnarhóli voru miklar vinkonur með dag- legri umgengni um fjölda ára. Aldrei féll skuggi á milli heimil- anna. Sveinn gegndi ábyrgðar- starfi á vegum réttvísinnar. Hann var samviskusamur embættis- maður, kirkjukær og kirkjuræk- inn og lét þau mál sig miklu varða. Kristolína var elskuleg og blíð kona, er laðaði alla að sér. Fékk ég sem barn og drengur að reyna það. Páll ólst upp að hætti annarra drengja í Eyjum, við fisk og fugla- veiðar. Brátt kom í ljós að hann var afbragð annarra drengja, frár og fimur, áræðinn og kappsamur. Lét hann ekki allt sér fyrir brjósti brenna. Djarfur og framsækinn. Hann var einn af stofnendum knattspyrnufélagsins Týs 21. maí 1921. Þá þegar aðeins 17 ára var hann kosinn fyrsti ritari félagsins. Páll hafði lifandi áhuga á íþrótt- um og hefir enn. íslandsmethafi var hann í langstökki, með 6,37 og bætti þá fyrra met hins frækna manns Garðars Gíslasonar um 17 sm. Sérgrein Páls var þó hástökk. Æfði hann og þjálfaði sig í að vera láréttur yfir slánni, aðferð sem er í gildi um allan heim í dag. Með þessu náði hann að stökkva hærra en allir menn á íslandi í sinni samtíð og var fyrir ofan gild met á þeirri tíð. íþróttaforustunni á fastalandinu féllu ekki í geð frami og dugnaður Eyjapeyjans. Viður- kenndu þeir ekki afrek hans, þar sem hann hoppaði ekki lóðréttur yfir slána, heldur láréttur. Það hefir stundum verið skrítið í kýr- hausnum þeim. Félagar Páls í ÍBV hafa kynnst einhverju líku. Páll er nú heiðursfélagi í Tý. Páll aflaði sér menntunar á mörgum sviðum, varð rafvirkja- meistari og sömuleiðis í pípulögn- um. Einnig aflaði hann sér vél- stjórnarmenntunar og var próf- dómari minn við 1. stig vélstjóra- prófs í janúar 1941. Að miklum verðleikum, þá var honum falin yfirverkstjórn við síldarverk- smiðjuna á Djúpuvík. 1926 réðst hann til ísfélags Vestmannaeyja, elsta vélfrystihúss á Islandi, og starfaði þar um sjö ára bil. I meira en 30 ár var hann við Lifr- arsamlag Vestmannaeyja, fyrst sem vélstjóri og eftir andlát Pét- urs heitins Andersen frá Sól- bakka, þá varð Páll verksmiðju- stjóri. Snyrtimennska og reglu- semi fylgdu alls staðar í fótspor Páls. Fyrirtæki hans skiluðu arði til uppbyggingar og'hagsbóta fyrir vinnandi menn. 29. nóv. 1939 er Páll einn af stofnendum Vél- stjórafélags Vestmannaeyja og fyrsti formaður félagsins. Það hlaut að bera að því að ennþá meiri ábyrgð hlæðist á Pál og var þó ærin fyrir. Um 12 ára skeið var hann fyrst varabæjarfulltrúi fyrir sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Vestmannaeyja. Síðar lengst af aðalfulltrúi og sat þá í bæjarráði Eyjanna. Páll var réttsýnn og hélt alltaf á lofti rétti smælingjans. Því varð hann vinsæll og átti sinn stóra þátt í uppgangi Eyjanna á þeim árum. Að eigin ósk dró Páll sig í hlé, sótti að honum erfiður sjúkdómur, sem gerði honum óhægt um vik. Með Guðs hjálp og góðra lækna komst hann yfir þann þröskuldinn og náði undraverðum og gleðilegum bata. Hér hefir aðeins verið stiklað á stóru, sleppt öllum nefndarstörf- um og starfsemi fyrir sjálfstæð- ismenn. Þess skal þó getið að um árabil stundaði Páll útgerð og átti þá vb. „Fylki", sem var flaggskip Eyjaflotans á þeirri tíð. Guðjón Tómasson var kapteinn þar um borð og Páll vélstjóri. Páll lenti í kreppunni miklu og verðhruninu eftir 1930. Þeir á Fylki voru í toppi með afla. í því hruni urðu þeir verst úti er mest öfluðu. Páll varð þá að bíta í mjög súrt epli. Það beygði hann en braut ekki. Þá var Páll kvæntur Jónheiði Steingrímsdóttur frá Akureyri, mikilli mannkostakonu, sem stóð órofa með manni sínum alla tíð. Þau giftust 28. nóvember árið 1929. Stóð hjónaband þeirra um 45 ára skeið. Jónheiður andaðist á jóladag árið 1974. Jónheiður fæddi manni sínum þrjú börn. Þau eru Helga Rósa, Sigurgeir og Margrét. Barnabörnin eru nú 12 og barna- barnabörn eru 6. Öll hlutu þau systkinin frá Hjalla gott uppeldi og gott atlæti. Jónheiður var mjög háttvís í allri umgengni, góðhjört- uð og hæfileikamikil. Um fjölda ára helgaði hún Leikfélaginu I Eyjum krafta sína og var burðar- ATHYGLl skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hlið- stætt með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu til- efni, að frumort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. ás í þeirri starfsemi. Hjónaband þeirra var mjög gott. Dáði Páll konu sína alla tíð og taldi hana eitt af sínum stærstu lífslánum. Nú við hækkandi sólargang rennur Páll inn í nýjan áratug. Beinn í baki, röskur og léttur, með óskerta sálarkrafta. Það er ósk mín að Eyjarnar fái notið Páls um mörg ókomin ár. Hann setur svip á umhverfi sitt hvar sem er. Páll verður ekki að heiman í dag. Hann verður í Akoges-húsinu og tekur þar á móti gestum sínum. Akoges hefir gert hann að heið- ursfélaga og einnig Vélstjórafélag Vestmannaeyja, svo og Týr eins og áður er getið. Góði vinur, lifðu heill um ókom- in ár. Sá Drottinn, er foreldrar þínir fólu þig í umsjá og hendur, blessi þig um tíma og eilífð. Einar J. Gíslason frá Arnarhóli Lækkun matvöruvísitölu: Eina raunverulega lækkunin í 15 ár Á SÍÐUSTXJ fimmtán árum hefur það aðeins gerst fjórum sinnum, að matvöruvísitala hafi haft lækkandi áhrif á framfærsluvísitöluna. Það gerðist nú síðast frá desember 1983 til janúar í ár, en þá lækkaði matvöruvísitala úr 407,61 stigi í 406,80 stig, skv. upplýsingum, sem Mbl. fékk hjá Vilhjálmi Ólafssyni á Hagstofu fslands. Matvöruvísitala er hluti framfærsluvísitölu. „Þetta gerðist reyndar líka milli mánaðanna ágúst og september á síðasta ári,“ sagði Vilhjálmur, „en þá lækkaði matvöruvísitala úr 379 stigum í 375. Ástæða þess var hinsvegar auknar niðurgreiðslur, kjötútsalan, sem svo var nefnd. Þegar ég lít yfir skrár allt frá ár- inu 1968, þá hefur þetta tvisvar gerst áður — 1971 varð örlítil lækkun frá maí til ágúst og 1974 varð veruleg lækkun frá maí til ágúst. f bæði skiptin voru auknar niðurgreiðslur aðalástæðan, ef ég man rétt,“ sagði Vilhjálmur. Hann sagði að síðasta lækkun hafi ekki stafað af niðurgreiðslum. Mest hefði munað um verðlækkun á nýjum ávöxtum, sykri og svín- akjöti. Aðrar vörutegundir hefðu ýmist hækkað eða lækkað örlítið, það hefði jafnað sig út um núllið. SUMIR VERSLA DÝRT - AÐRIR VERSLA HJÁ OKKUR Gæði.nr.l orramatur Blandaður súrmatur \$£Lsli (Lundabaggi- Sviðasulta- Hrútspungar- Bringur-Lifrapylsa og blóðmör Súrt AÐEINS 2ja lítra fata Nettó innihald ca. 1.3 kg. :.oc hvalsrengi Blandaður súrmatur 2*a telata rrx7_svisr í bakka J Lifrapylsa — Bloðmor) Netto innihald ca. 1.1 kg. __— 00 pr.kg. Fatan Þorrabakki c.a. 550g 95“ r r DAG NlS^ð (þC^AMAToiTítela að smakka ^ Aá Pr ks- _______ _ Hreinsuð svið Nýreykt hangilærí Í62 .80 Pr ke- Ný sviðasulta Soðið Hangikjöt' sneiðuni 385.00 Prk§ Hákarl_ ~-g —;------- Marineruð sík Nautahakk l.fl. 165-°°p^____Síldarrúllur Kindahakk 95 00 prke Kryddsíld Egg AÐEINS 89-00 i'r ks- Harðfiskur__ Kjúklingar s stk., pok. 125 00 pr kg hangikjör TILBORÐSVERÐ Á ÝSU OG STEINBÍTI OPIÐ TIL KL 4 e.h. AUSTURSTRÆT117 STARMÝRI 2

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.