Morgunblaðið - 21.01.1984, Síða 26

Morgunblaðið - 21.01.1984, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1984 Neytendasam- tökin gefa út Heimilisbókhald Neytendasamtökin hafa nú gefið út Heimilisbókhald, þar sem hægt er að skrá tekjur og útgjöld heimilisins. í Heimilisbókhaldinu er ein blaðsíða fyrir hvern mánuð ársins og blaðsíðunum skipt í dálka til að sundurliða tekju- og gjaldaliði heimilisins. Auk þess eru upplýs- ingar um starfsemi samtakanna, tilgang þeirra og þá þjónustu sem í boði er. Heimilisbókhaldið er til sölu í bókaverslunum, hjá samtökunum, sem hafa pósthólf 1096 í Reykja- vík og víðar. Skilaboð til Söndru: Á 11.000 manns hafa séð myndina VEL á ellefta þúsund manns hafa nú séð íslenzku kvikmynd- ina „Skilaboð til Söndru“. Myndin var fyrst sýnd í Há- skólabíói og hófust sýningar þar 19. desember siðastliðinn, en nú er hún sýnd á öllum sýn- ingum í Regnboganum og á tveimur stöðum úti á landi. Fombókaverslunin Bókin f nýtt húsnæði: Erum með þús- undir bókatitla Ljósm.: Kristján Einarsson. Snær Jóhannesson og Gunnar Valdimarsson í hinum nýju húsakynnum fornbókaverslunarinnar Bókarinnar á Laugavegi 1. Rætt við Gunnar Valdimars- son og Snæ Jóhannesson Fornbókaverslunin Bók- in, sem starfað hefur óslitið síðan árið 1962, var opnuð í gær í nýju húsnæði á Laugavegi 1 í Reykjavík. Blaðamaður bankaði uppá hjá þeim Snæ Jóhannessyni og Gunnari Valdimarssyni, þar sem þeir voru að leggja síðustu hönd á innréttingar og útstillingar í versluninni. „Já, við höfum verið í nokkuð örum flutningum undanfarið," sagði Gunnar, „en nú vonumst við til að vera komnir í framtíð- arhúsnæði í þessu gamla og virðulega húsi. Bókin var stofn- uð árið 1962, og hefur verið á fimm stöðum síðan, en ætli við staðnæmumst ekki eitthvað hér! Við erum hér með allar mögulegar bækur, eldri bækur og notaðar bækur, mörg þúsund titla. Hér er unnt að finna allar mögulegar bækur, sögulegan fróðleik og sagnfræði, blöð og tímarit, barna- og unglinga- bækur, skáldrit, ljóðabækur og allt þar á milli. — Við kaupum ekki inn hvaða bækur sem er og heldur ekki af hverjum sem er, en með réttu getum við þó sagt að við kaupum allar tegundir bóka. Þá gerum við einnig tals- vert af því að meta bækur fyrir fólk, til dæmis úr dánarbúum, sem við svo tökum oft til sölu hér.“ — Og viðskiptavinirnir, eru þetta fastir „kúnnar" eða alltaf ný og ný andlit? „Bæði og. Við eigum marga fasta viðskiptamenn og svo kemur hingað inn fjöldi fólks í leit að ýmiss konar bókum, og einnig skiptum við nokkuð við bókasöfn, ekki síst yngri söfnin, sem eru að byggja upp góð bókasöfn. — Hér er eins og í öðrum fornbókaverslunum hægt að gera mjög góð kaup, því verð bóka fer lækkandi fyrst í stað, þótt margar bækur hækki að sönnu aftur í verði. Það, sem einkum gerir það að verkum að bók hækkar í verði er, að hún sé uppseld í nokkur ár, en eftir- spurn eftir henni haldist nokk- uð jafnt og þétt. Útlit bóka í slíkum tilvikum skiptir alltaf minna máli en innihaldið. — Það er hins vegar hlutur, sem fólk hugsar oft ekki út í. Við fréttum til dæmis sorglega oft af því að fólk er að fara með bækur á ruslahauga vegna þess að það telur þær verðlausar, en síðan er reynt að selja aðrar, sem ef til vill eru verðlitlar eða illseljanlegar. Islendingar eru hins vegar yfirleitt vel að sér um bækur og af mínu starfi hér finnst mér ég geta fullyrt að við berum titilinn bókaþjóð með rentu," sagði Gunnar. — Hver er dýrasta bókin hér, þegar þið nú opnið, Snær? „Það er fyrsta útgáfa af Sturlungu, sem út kom í Kaup- mannahöfn árið 1817 í tveimur bindum. Ýmislegt annað er svo einnig fémætt hér, til dæmis Felsenborgarsögur frá 1854 — sem frægar urðu meðal annars í sögu Laxness af Ljósvíkingnum — einnig erum við með mann- talið frá 1703 hér, og margt fleira, sem trúlega þykir for- vitnilegt. Meðal bóka er svo fs- lenzkur kirkjuréttur eftir Jón Pétursson háyfirréttardómara, sem trúlega er samin hér í þessu húsi, sem Jón bjó lengi í.“ — Já, þetta hús á sér langa sögu? „Húsið Laugavegur 1 mun vera reist árið 1848. Sá sem reisti það var Gustav Christian Joachim Ahrens, trésmiður frá Mecklenburg. Hann fékk borg- araréttindi í Reykjavík 1854, en var þá búinn að vera hér í bæ um nokkurt skeið. Ahrens reisti m.a. mylluna við Bankastræti 1846 og rak hana einnig um nokkurt skeið. Hann reisti líka nokkur hús í bænum, m.a. Lækjargötu 4, er enn stendur. Hann var kvæntur íslenskri konu og áttu þau allmörg börn. Ahrens lést í Reykjavík 1860. Svo er að sjá að Ahrens hafi byggt húsið á lóð er hann fékk leigða hjá stiftamtmanni, en stiftamtmaður hafði afnot af landi Arnarhóls. Árið 1850 seldi Ahrens húsið August Thomsen, sem seldi það aftur, líklega sama ár, Jóni Péturssyni. Jón Pétursson (f. 1812, d. 1896) var dómari í landsyfirrétti frá 1850 og háyfirdómari frá 1877—1889. Hann var tvíkvæntur og barnmargur og miklar ættir frá honum komnar. Hann sat á Al- þingi 1855 og aftur 1859—86 og var bæjarfulltrúi í Reykjavík 1856-61 og 1863-71. Hann fékkst einnig við ritstörf oe út- gáfu tímarita. Jón og fjölsn.>iua hans bjuggu í húsinu Laugavegi 1 í hálfa öld, en árið 1903 seldi Sturla Jónsson, kaupmaður, sonur Jóns, húsið. Þá eignaðist Valdemar Ottesen það, hann mun hafa rekið verslun í hús- inu. Valdemar varð gjaldþrota og húsið var selt 1904 Magnúsi Guðmundssyni. Magnús seldi árið 1914 hluta af lóðinni Jóni Þorlákssyni, sem reisti á þeim lóðarparti húsið Bankastræti 11. Tveimur árum síðar seldi Magnús húsið Laugaveg 1 þremur mönnum, þeim Guð- mundi Ásbjörnssyni, Sigurbirni Þorkelssyni og Hjálmari Þorsteinssyni. Þeir Guðmundur og Hjálmar höfðu þá rekið hús- gagnaverkstæði þar um tíma, en árið 1915 hófu þeir rekstur verslunarinnar Vísis í hluta hússins, ásamt Sigurbirni. Sig- urbjörn rak verslunina Vísi í húsinu í fjölda ára, og er sú verslun þar enn þó hún hafi skipt um eigendur. Því er ekki að neita að okkur fellur strax vel að starfa í þessu gamla og góða húsi,“ sagði Snær að lok- um. - AH DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.00. Sr. Agnes Sigurðardóttir mess- ar, Dómkórinn syngur, organ- leikari Marteinn H. Friðriksson. Messa kl. 2.00. Vænzt er þátt- töku fermingarbarna og foreldra þeirra. Foreldrar flytja bænir og ritningartexta. Sr. Þórir Steph- ensen. Laugardagur: Barnasam- koma að Hallveigarstööum kl. 10.30. Sr. Agnes Siguröardóttir. ÁRBÆ JARPREST AK ALL: Barnasamkoma í safnaöarheim- ili Árbæjarsóknar kl. 10.30. Guösþjónusta í safnaðarheimili kl. 2.00. Organleikari Jón Mýr- dal. Væntanleg fermingarbörn lesa ritningartexta í messunni. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11.00. Guðsþjónusta kl. 2.00. Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson. BREIDHOLTSPRESTAKALL: Laugardagur: Barnaguösþjón- usta kl. 11.00. Sunnudagur: Messa kl. 14.00 í Breiöholts- skóla. Sr. Lárus Halldórsson. BÚST AÐAKIRK JA: Barna- samkoma kl. 11.00. Sr. Sólveig Lára Guömundsdóttir. Guös- þjónusta kl. 2.00. Barnagæzla. Organleikari Guðni Þ. Guö- mundsson. Félagsstarf aldraöra miövikudagseftirmiödag. Æsku- lýösfélagsfundur miövikudag kl. 20.00. Yngri deild æskulýösfé- lagsins fimmtudag kl. 16.30. Sr. Ólafur Skúlason. DIGRANESPRESTAKALL: Laugardagur: Barnasamkoma í safnaðarheimilinu viö Bjarnhóla- stíg kl. 11.00. Sunnudagur: Guösþjónusta í Kópavogskirkju kl. 11.00. Sr. Þorbergur Krist- jánsson. ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa kl. 10.00. Sr. Lárus Halldórsson. FELLA- OG HÓLAPRESTA- KALL: Laugardagur: Barnasam- koma í Hólabrekkuskóla kl. 2.00. Sunnudagur: Barnasam- koma í Fellaskóla kl. 11.00. Guösþjónusta í Menningarmiö- stöðinni viö Gerðuberg kl. 2.00. Sr. Hreinn Hjartarson. FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Laug- ardagur 21. janúar: Ferm- ingartími í kirkjunni kl. 14.00. Sunnudagur 22. janúar: Guðs- þjónusta kl. 14.00. Ræöuefni: Hann endurnýjar trú okkar. Söngstjóri og organisti Pavel Smid. Fermingarbörn og for- eldrar þeirra hvattir til aö koma. Sunnudaginn 22. janúar kl. 19.00, þorrafagnaöur Fríkirkju- safnaðarins í Oddfellowhúsinu í Vonarstræti. Sr. Gunnar Björns- son. GRENSÁSKIRKJA: Barnasam- koma kl. 11.00. Guösþjónusta meö altarisgöngu kl. 14.00. Al- menn samkoma nk. fimmtu- dagskvöld kl. 20.30. Organleik- ari Árni Arinbjarnarson. Sr. Hall- dór S. Gröndal. HALLGRÍMSKIRKJA: Barna- samkoma kl. 11.00. Börnin komi í kirkjuna og taki þátt i upphafi messunnar. Sr. Karl Sigur- björnsson. Kvöldmessa meö alt- arisgöngu kl. 5.00. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Þriðjudagur 24. janúar, fyrirbænaguösþjónusta kl. 10.30, beðiö fyrir sjúkum. Miövikudagur 25. jan., Nátt- söngur kl. 22.00. Fimmtud. 26. jan. opiö hús fyrir aldraöa kl. 14.30. LANDSPÍT ALINN: Messa kl. 10.00. Sr. Ragnar Fjalar Lárus- son. HÁTEIGSKIRKJA: Laugardag- ur: Barnaguösþjónusta kl. 11.00. Sunnudagur: Messa kl. 2.00. Sr. Arngrímur Jónsson. KÁRSNESPRESTAKALL: Laug- ardagur: Barnasamkoma í safn- aöarheimilinu Borgum kl. 11.00. Sunnudagur: Guösþjónusta í Kópavogskirkju kl. 2.00. Mánu- dagur: Biblíulestur á vegum fræösludeildar safnaöarins í Borgum kl. 20.30. Miövikudag- ur: Fundur meö foreldrum ferm- ingarbarna í Borgum kl. 20.30. Sr. Árni Pálsson. LANGHOLTSKIRKJA: Óska- stund barnanna kl. 11.00. Söng- ur — sögur — leikir. Sögumaö- ur Siguröur Sigurgeirsson. Guðsþjónusta kl. 2.00. Organ- leikari Jón Stefánsson, prestur Siguröur Haukur Guöjónsson. Vekjum athygli eldri sóknarbúa á því aö óski þeir aöstoðar viö aö sækja guðsþjónustur í Lang- holtskirkju, þá láti þeir vita í síma 35750 milli kl. 10.30 og 11.00 á sunnudögum. Sóknar- nefndin. LAUGARNESKIRKJA: Barna- messa kl. 11.00. Guðsþjónusta kl. 2.00. Bænaguðsþjónusta þriðjudag 24. jan. kl. 18.00. Föstudagur 27. jan. kl. 14.30 síödegiskaffi. Sr. Ingólfur Guö- mundsson. NESKIRKJA: Laugardagur: Samverustund aldraðra kl. 15. Guðspjall dagsins: Matt. 8.: Jesús gekk niður af fjallinu. Sveinn Torfi Sveinsson, verk- fræðingur, segir frá ferö um Thailand í máli og myndum. Sr. Óskar Ólason. Barnasamkoma á sunnudaginn kl. 11. Messa kl. 14. Sr. Frank M. Halldórsson. Mánu- dagskvöld kl. 20: Æskulýösfé- lagsfundur. Miövikudag: Fyrir- bænamessa kl. 18.20. Sr. Frank M. Halldórsson. SELJASÓKN: Barnaguósþjón- usta í Ölduselsskóla kl. 10.30. Barnaguðsþjónusta í íþróttahúsi Seljaskóla kl. 10.30. Guösþjón- usta í Ölduselsskóla kl. 14.00. Fundur í æskulýósfélaginu Tindaseli 3 þriðjudaginn 24. janúar kl. 20.00. Sagt veröur trá starfi Hjálparstofnunar kirkjunn- ar. Fyrirbænasamvera 27. janúar í Tindaseli 3, kl. 20.30. Sóknar- prestur. SELTJARNARNESSÓKN: Guðs- þjónusta kl. 11.00 í sal Tónlist- arskólans. Sr. Guömundur Óskar Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.