Morgunblaðið - 21.01.1984, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 21.01.1984, Qupperneq 27
I MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1984 í gegnum tíðina - Manstu lagið?: Vinsælustu dæg- urflugur síðustu ára og áratuga — á nýrri skemmtun í Broadway „í GEGNUM tíðina — Manstu lagið?“ er yfirskrift söngskemmt- unar, sem verið er að æfa í veit- ingahúsinu Broadway þessa dag- ana. Frumsýning verdur n.k. fostu- dag, 27. janúar. Þar munu leiða saman hesta sína margir af þekktustu dæg- urlagasöngvurum landsins und- anfarin ár og áratugi og flytja margar helstu dægurflugur lið- inna ára. Söngvararnir eru: Ragnar Bjarnason, Skafti Ólafs- son, Sigurður ólafsson, Ómar Ragnarsson, Erla Traustadóttir, Guðbergur Auðunsson, Sigurður Johnnie, Harald G. Haralds, Einar Júlíusson, Sverrir Guð- jónsson og Björgvin Halldórs- son, en það er einmitt hann, sem hefur skipulagt þessa skemmt- un. Síðar i vetur munu koma í heimsókn á stakar sýningar þau Jónas Jónasson, Ingibjörg Þor- bergs, Björn R. Einarsson, Stein- dór Hjörleifsson og fleiri. Út- setningar og hljómsveitarstjórn er í höndum Gunnars Þórðars- onar en söngkvartett, sem að- stoðar söngvarana með „úi og púi“, er skipaður þeim Þuríði Sigurðardóttur, Sverri Guð- jónssyni, Páli Þorsteinssyni og Björgvin Halldórssyni. Björgvin og Páll annast auk þess kynn- ingar. Þessi skemmtun fylgir í kjöl- far geysivinsælla skemmtana, sem boðið var upp á í Broadway í vetur og fyrravetur, þ.e. Rokk- hátíðinni og Bítlaæðinu. Handbók fiskvinnslunnar: Fyrsti kafli kominn út ÚT ER kominn fyrsti kafli Handbókar fiskvinnslunnar, sem er samin og gefin út á vegum Kannsóknastofnunar fisk- iðnaðarins og ritstýrt af dr. Jónasi Bjarnasyni. Vorið 1981 fól sjávarútvegsráðu- neytið stofnuninni að annast samn- ingu handbókar, sem að meginefni skyldi fjalla um gæðamat á fisk- afurðum til notkunar í útgerð og fiskiðnaði, til kennslu og við mats- og eftirlitsstörf. Hugmyndin er að þessi bók verði gefin út í köflum í lausblaðaformi, þannig að einfalt sé að bæta við og skipta út einstökum blöðum og köflum um einstaka þætti fiskvinnslu, en skort hefur samræm- ingu og heildaryfirsýn. Einnig er þessari handbók ætlað að styðjast við, svo sem kostur er, vísindalegar mælingar og niðurstöður rannsókna svo og við skilgreindar kröfur mark- aða fyrir íslenskar fiskafurðir. Þessi fyrsti kafli, sem hér birtist fjallar um saltfisk. Mjög miklum tíma hefur verið varið í söfnun gagna og umfjöllun um efni kaflans einkum hins nýstárlega matskerfis meðal saltfiskverkenda og samtaka þeirra. Hiklaust má segja að aldrei hafi þessi mikilvægi þáttur fisk- vinnslunnar verið tekinn jafn ítar- lega til meðferðar og er vitnað í fjöl- margar rannsóknaniðurstöður og skýrslur til stuðnings ályktununum og leiðbeiningum, sem settar eru fram. Vinna við næsta kafla Handbókar- innar um skreiðarverkun er komin vel á veg og undirbúningur að fersk- fiskaflanum er að hefjast. Handbók- in verður til sölu hjá Rannsókna- stofnun fiskiðnaðarins og útibúum hennar. (Krctutilkj'nning) HVÍTASUNNUKIRKJA Fíla- delfíu: Sunnudagaskóli kl. 10.30. Einnig sunnudagaskóli i Völvuf- elli 11 kl. 11. Safnaðar- guðsþjónusta kl. 14. Ræöu- maður Sam Daniel Glad. Almenn guðsþjónusta kl. 16.30. Ræö- umaður Einar J. Gíslason. Sam- skot vegna líknarmála í Póllandi. KFUM & KFUK, Amtmannsstíg 2B: Bænastund kl. 20. Samkoma kl. 20.30. Sr. Jónas Gíslason pré- dikar. Ræöuefni: Einn skal annan styrkja. Þáttur frá starfinu. Æsk- ulýöskór KFUM & KFUK syngur. Tekiö á móti gjöfum í launasjóö félaganna. DÓMKIRKJA KRISTS konungs Landakoti: Lágmessa kl. 8.30. Hámessa kl. 10.30. Lágmessa kl. 14. Alla rúmhelga daga er lág- messa kl. 18 nema á laugar- dögum, þá kl. 14. FELLAHELLIR: Kaþólsk messa kl. 11. KIRKJA Óháöa safnaóarins: Sunnudagaskóli kl. 11. Baldur Kristjánsson. HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu- dagaskóli kl. 14. Bæn kl. 20 og sameiginleg samkoma kl. 20.30 sem brigadier Óskar Jónsson stjórnar. Ræöu flytur dr. Sigur- björn Einarsson fyrrv. biskup. KAPELLA St. Jósefssystra í Garðabæ: Hámessa kl. 14. VÍÐISTADASÓKN: Barnasam- koma kl. 11 Sr. Siguröur Helgi Guðmundsson. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 10.30. Guös- þjónusta kl. 14. Sóknarprestur. FRÍKIRKJAN Hafnarf.: Sunnu- dagaskólinn kl. 10.30. Safnaöar- stjórn. KAPELLA St. Jósefsspítala: Messa kl. 10. KARMELKLAUSTUR: Hámessa kl. 8.30. Rúmhelga daga messa kl. 8. KÁLFATJARNARKIRKJA: Guös- þjónusta kl. 14. Sr. Bragi Frið- riksson. LÁGAFELLSSÓKN: Mesra á Lágafelli kl. 14. Prestur sr. Gunn- ar Kristjánsson. Sóknarnefnd. INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Barnaguösþjónusta kl. 11. Messa kl. 14. Altarisganga. Sr. Þorvaldur Karl Helgason. YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Vegna framkvæmda í kirkjunni veröur barnaguösþjónusta í Innri-Njarðvíkurkirkju kl. 11 og veröur rútuferö þangaö frá kirkj- unni kl. 10.45. Sr. Þorvaldur Karl Helgason. KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnu- dagaskóli kl. 11. Muniö skólabíl- inn. Guðsþjónusta kl. 14. Bæna- stund veröur i kirkjunni kl. 19.30 til og með 25. janúar í tilefni af alþjóðlegu bænavikunni. Sókn- arprestur. GRINDAVÍKURKIRKJA: Messa kl. 14. Sóknarprestur. KOTSTRANDARKIRKJA: Messa kl. 14. Sr. Tómas Guömundsson. HVERAGERÐISKIRKJA: Barna- messa kl. 11. Sr. Tómas Guö- mundsson. AKRANESKIRKJA: Barnasam- koma kl. 10.30. Messa kl. 14. Sr. Björn Jónsson. Ljósm. KEE Um síðustu helgi var bflasýning í Daihatsu-umboðinu, þar sem ný kynslód Daihatsu Charade-bifreiða var kynnt. Mikil aðsókn var að sýningunni og hefur nú verið ákveðið að hún verði aftur haldin í dag og á morgun. Opið verður milli klukkan 13 og 17. Veruleg fjölgun mála hjá Sakadómi Á ÁRINU 1983 voru kveðnir upp dómar í málum 642 manna við saka- dóm Reykjavíkur. Málin skiptast þannig eftir efni að 301 var ákærður fyrir brot gegn almennum hegn- ingarlögum, en 342 fyrir brot gegn sérrefsilöggjöfinni, einkum umferð- arlögum. Voru 23 sýknaðir en mál- um 15 var vísað frá dómi. Til sam- anburðar skal þess getið að árið 1982 gengu dómar í málum 519 sakborninga. Þá var málum 1.869 manna lok- ið með dómsátt á árinu, en 1.799 árið áður. Á árinu bárust dóminum 62 beiðnir um sviptingu lögræðis. Réttarbeiðnir, sem er ýmiss konar aðstoð við mál, sem rekin eru fyrir öðrum dómstólum voru 57. Beiðnir um dómsaðgerðir á rannsóknarstigi máls voru alls 81, þar af voru gæsluvarðhaldsbeiðnir 57 og beiðnir um húsleit 9. Gæslu- varðhaldsbeiðnir árið 1982 voru hins vegar 68, en húsleitarbeiðnir 14. Loks skal þess getið, að dómin- um bárust árið 1983 656 ákærur frá ríkissaksóknara, en 478 árið 1982, þannig að um 37,2% aukn- ingu milli ára er að ræða. FrétUUilkynning Þetta var hrikaleg verólækkun — skiptir tugum þúsunda — Þú borgar aðeins 119.000 kr. fyrir splunkunýjan Skoda og ekki nema helminginn út, við lánum þér afganginn. Láttu sjá þig — og þá meina ég strax JÖFUR HF Nybylavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.