Morgunblaðið - 21.01.1984, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 21.01.1984, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1984 29 Bíður barnið þitt enn? — eftir Örnu Jóns- dóttur og Margréti Pálu Ólafsdóttur Senn er kjörtímabil núverandi borgarstjórnarmeirihluta hálfnað og í tilefni af nýsamþykktri fjár- hagsáætlun Reykjavíkurborgar er við hæfi að skyggnast aftur í tím- ann. Hvernig hefur íhaldið sinnt börnum borgarinnar og foreldrum þeirra? Allir minnast þess, er vinstri meirihluti tók við völdum í höfuð- borginni árið 1978, eftir 50 ára valdatíð íhaldsins. Dagvistarmál sem og fleiri mál, voru í algjörum ólestri og má sem dæmi nefna að 37 dagvistarheimili voru til í borg- inni. Vinstri menn höfðu aðeins 4 ár til framkvæmda, en tókst þó að byggja 12 heimili auk þess að gera áætlun um uppbyggingu dagvist- arheimila, þannig að þörf yrði fullnægt innan 10 ára. Ekki tókst alfarið að fylgja þeirri áætlun eft- ir, en þó var þetta fyrsta stefnu- markandi aðgerðin í þágu dagvist- armála og eygðu menn loks næg og góð dagvistarheimili sem veru- leika. Þessa áætlun lagði vinstri meirihlutinn upp í hendurnar á íhaldinu snemma ársins 1982. Jafnhliða uppbyggingunni var einnig hugað að innra starfi heim- ilanna og má minna á svonefnda „innra starfsskýrslu", sem fól í sér miklar lagfæringar fyrir börn og starfsfólk. Blöndun aldurshópa komst á, foreldrasamstarf var stóraukið og í kjölfarið fylgdi lagasetning á Alþingi um gerð starfsáætlunar fyrir öll heimilin, sem kveður á um markmið og leið- ir í uppeldisstarfinu. Stefna Sjálfstæöis- flokksins? Fyrir síðustu borgarstjórnar- kosningar var mikið rætt um dag- vistarmál. Ef litið er á ummæli sjálfstæðismanna frá þeim tíma, er ekki sjáanlegt að þar tali sömu menn og nú sitja í valdastólum. „Stefna Sjálfstæðisflokksins er að byggja verulega upp, en hafa formið sveigjanlegt til að mæta breytilegum þörfum og hafa sem fjölbreyttasta valkosti," sagði Markús Örn Antonsson. Reyndar í viðtali við Fóstrublaðið fyrir kosningarnar. Þessi orð hafa vart heyrst við gerð fjárhagsáætlana eða ekki er það merkjanlegt af framkvæmdum ihaldsins. Síðan það tók við stjórnartaumum, hef- ur verið byrjað á 2 nýjum dagvist- arheimilum, þ.e. Hraunkoti og Hraunborg við Hraunberg í Breiðholtinu. Tvö ný heimili — á nær tveim árum. Hvílík frammi- staða. Með þessu áframhaldi fá borgarbúar 4 ný heimili á þessu kjörtímabili eða eitt á ári, meðan biðlistar lengjast og öngþveiti rík- ir í dagvistun reykvískra barna. Eitt skóladagheimili var stofnsett í húsnæði Breiðagerðisskólans og annað er væntanlegt innan Laug- arnesskólans þar sem fannst ónot- að húsnæði. Þannig má með góð- um vilja ætla að íhaldið taki í notkun 6 heimili eða helmingi færri en gerðist á síðasta kjör- tímabili? Hvert fara peningarnir? í fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir að 15 milljónir fari í upp- byggingu dagvistarheimila. Mun það fé fara til að halda áfram framkvæmdum við Hraunberg og til að byrja á þriggja deilda heim- ili við Rangársel. Vitaskuld var tillaga Alþýðubandalagsins um 27 milljónir felld, en þar var áætlað að byggja heimili í Árbæjarhverfi og við Eiðsgranda, þar eð dagvist- arskortur þar er hrikalegur. Sama viðhorf kemur fram í fjárlögum íslenska ríkisins, — fjárlögum hinna fullorðnu, sem ekki taka nokkurt tillit til barna. Framlag ríkisins til Reykjavík- urborgar árið 1984 mun verða 5,7 milljónir til uppbyggingar dag- vistarheimila. Á síðasta ári var það 6,7 milljónir, svo krónutalan hefur lækkað um eina milljón og raungildi peninganna um meira en helming. Hver verður framtíð þjóðar, sem býr á þennan hátt að börnum sínum? 3 milljónir ónotaöar Niðurskurður á fjármagni til uppbyggingar bæði hjá ríki og borg, 10 ára áætlunin um að full- nægja þörf að engu orðin. Þetta ætti að vera nægileg afrekaskrá fyrir hvaða meirihluta sem er. En sú var ekki reyndin. Á árinu 1983 var fjárveiting til uppbyggingar ekki fullnýtt, þannig að um ára- mót var afgangi, sem nam 3 millj- ónum króna „skilað" til borgar- sjóðs. Geri aðrir betur. Hins vegar er óvíst að foreldrar, sem beðið hafa mánuðum — og árum — saman með börnin sín á biðlista, kunni borgaryfirvöldum þakkir fyrir þennan sparnað. Að auki er rétt að benda á að þessi upphæð mun á engan hátt koma dagvist- arkerfinu til góða á næsta ári, svo hér var sparað fyrir borgarsjóð á kostnað barnanna. Arna Jónsdóttir Gæsluvöllum fækkar Á síðustu tveimur árum voru 5 gæsluvellir lagðir niður, án þess að nokkuð kæmi í staðinn. Vita- skuld ber borgaryfirvöldum að sjá til þess að allur rekstur fylgi þjóð- félagsþróun og aðsókn að gæslu- völlunum hefur stórminnkað af mörgum ástæðum. Því hefði verið eðlilegt að koma á fót leikskólum á þessum völlum, svo dæmi sé tek- ið, en það gerði vinstri meirihlut- inn á sínum tíma. Hins vegar er það ófyrirgefanlegt að minnka þá þjónustu sem þó er fyrir hendi, 5 gæsluvellir eru horfnir og ekki þótti ástæða til að bjóða upp á neitt í staðinn. Jafnframt eru þeir fjármunir horfnir, sem áður fóru í rekstur þessara valla. Ekki hafa þeir kom- ið til góða fyrir þá gæsluvelli, sem eftir eru, svo mikið er víst. Ekki hafa þeir heldur komið til góða fyrir t.d. innra starf dagvistar- heimilanna eða til að auka upp- byggingu — sem hefði verið besti kosturinn. Þessa fjármuni hefði Margrét Pála Ólafsdóttir þurft að „eyrnamerkja" og tryggja að þeir kæmu börnum til góða á einn eða annan veg. Svikin loforö? „Stefna Sjálfstæðisflokksins er að byggja verulega upp ... hafa sem fjölbreytilegasta valkosti". Það hefur nákvæmlega ekkert ver- ið gert til að auka valkosti for- eldra. Loforð um uppbyggingu hafa verið svikin, svo dagvistar- heimilin þjóna enn nær eingöngu forgangshópum, önnur börn geta valið um dagmömmu — eða lykil um hálsinn. Var það þetta, sem kjósendur kusu fyrir sig og börn sín. Arna Jónsdóttir er íóstra, fulltriii Alþýðubandalags í barnaverndar- nefnd Rerkjavíkur og var í fram- boði til borgarstjórnar fyrir þann flokk 1982. Margrét l’ála Ólafsdóttir er for- stöðumaður í Steinahlíð. Yar í framboði til Alþingis fyrir Alþýðu- bandalagið 1983. Vil kaupa frímerki islenzk á pappir/einnig á bréfa- úrklippum. Staögreiösla. Tllboö sendist H. Andersen. Stærevej 45, 2 2400 Köbenhavn N.V. Oanmark. □ Gimli 59841237 = 1. St. St:. 59841214 1X bjóriusta i á \mj VERÐBREFAMARKAÐUR HUSI VERSLUNARINNAR SIMI 687770 Simatímar kl. 10—12 og 3—5. KAUP OG SALA VEGSKULDABRÉFA FERÐAFELAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR 11798 og 19533. Dagsferðir sunnud. 22. janúar: 1. Kl. 13. Skíöagönguferð á Mosfellsheiöi. 2. Kl. 13. Kjalarnesfjörur/ Esju- hlíöar. Verö kr. 200. Brottför frá Umferöarmlöstöö- inni, austanmegin. Frítt f. börn i fylgd fulloröinna. Komiö vel búin þa veröur feröin til ánægju. Feröafélag Islands. Krossinn Samkoma í kvöld, kl. 20.30, aö Álfhólsvegi 32, Kópavogi. Allir velkomnir. Heimatrúboðið Hverfisgötu 90 Almenn samkoma á morgun sunnudag kl. 20.30. Allir vel- komnir. Elím, Grettisgötu 62, Reykjavík A morgun, sunnudag, veröur sunnudagaskóli kl. 11.00 og al- menn samkoma kl. 17.00. Veriö velkomin. UTIVISTARFERÐIR Sunnudagsferðir 22. jan. Kl. 10.30: Gullfoss í klakabönd- um. Eftir frostakaflann aö und- anförnu er fossinn í stórkostleg- um klakaböndum. Geysissvæöiö skoöaö o.fl. Verö 500 kr. Kl. 13.00: Fjöruferö á stór- straumsfjöru: Kiöafellsá — Saurbær á Kjalarnesi. Fjölbreytt og falleg fjara. Fræöst um þör- unga, skeljar og önnur fjörudýr. Brottför í feröirnar frá bensin- sölu BSÍ ( í Árbæ viö Shellst.). Frítt f. börn. Tilvaldar fjölskyldu- feröir. Simsvari: 14606. Sjáumst. Utivist Tilkynning frá Skíða- félagi Reykjavíkur Toyota-skiöagöngumót félags- ins fer fram á Kjarvalstúni nk. sunnudag. 22. janúar kl. 14.00. Þátttökutilkynning á mótstaö fyrir kl. 13.00 sama dag. Kennt í karlaflokki (10 km) og kvenna- flokki (5 km). Verölaunaafhend- ing á mótstaö aö lokinni keppni. Stjórn Skíöafélags Reykjavikur Félag kaþólskra leikmanna heldur fund í safnaöarheimilinu Hávallagötu 16 mánudaginn 23. nk. kl. 20.30. Sýnd veröur vídeómynd um heimsókn páfans til Póllands i sumar. Stjórn FKL. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Bænavika Kristinna trúfélaga. Samkoma kl. 20.30. Ræöumað- ur séra Halldór Gröndal Sam- skot til innanlandstrúboös. Aðalfundur Karlakórs Reykjavíkur fyrir árið 1983 veröur haldinn laugardag- inn 28. janúar 1984 kl. 14.00 i félagsheimili Kópavogs. Dag- skrá: 1. Venjuleg aöalfundar- störf. 2. Lagabreytingar. Stjórnin raöauglýsingar radauglýsingar raöauglýsingar Akurnesingar Fundur um bæjarmálefni veröur haldinn í SjálfstaBöishúslnu sunnu- daginn 22. janúar kl. 10.30. Bæjarfulltrúar Sjálfstæöisflokksins mæta á fundinn. Sjálfstædlsfélögin á Akranesl. Selfoss Sjálfstæöisfélagiö Óöinn á Selfossi, heldur almennan félagsfund, þriöjudaginn 24. janúar, kl. 20.30, aö Tryggvagötu 8. Selfossi. Bæjar- fulltrúar Sjálfstæöisflokksins flytja framsöguerlndi um fjárhagsáætlun Selfossbæjar 1984 og svara siöan fyrirspurnum. Sjálfstæöisfólk er hvatt til aö fjölmenna. Stjórnin. Hafnarfjörður — Hafnarfjörður Fundarboö Aöalfundur fulltrúaráðs Sjálfstæöisfólaganna i Hafnarfiröi veröur haldinn i Sjálfstæöishúsinu þriöjudaginn 24. janúar nk. kl. 20 30. Dagskrá: Skýrsla formanns. Reikningur fulltrúaráðsins. Reikningar hússjóös. Skýrslur formanna sjálfstæðisfélaganna. Kosningar formanns, varaformanns, ritara og formanna nefnda. Viöhald Sjálfstæöishússins. Önnur mál. Vinsamlegast mætiö stundvíslega. Kópavogur — Kópavogur SPILAKVÖLD Okkar vinsælu spilakvöld halda áfram þriöjudaginn 24. janúar kl. 21. stundvislega i Sjálfstæöishúsinu Hamraborg 1. Góö kvöld og heildarverölaun. Kaffiveitingar. Mætum öll. Stjórn Sjálfstæóisfélags Kópavogs. Akranes — Almennur stjórnmála fundur veröur haldinn í Sjálfstæöishúsinu mánudag- inn 23. janúar kl. 20.30. Fundarefni: 1. Þorsteinn Pálsson formaöur Sjálfstæöis- flokksins og Valdimar Indriöason alþing- ismaöur ræða stjórnmálaviöhorfiö. 2. Umræöur og fyrirspurnir. Allir velkomnir. Fulltrúaráó Sjálfstæóis- félaganna á Akranesi. Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi veröur haldinn fimmtudaginn 26. janúar nk. kl. 20.30 í Sjálfstæöishúsinu aö Hamraborg 1, 3. hæö, Kópavogi. Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. Ræöa. Geir Hallgrímsson, utanríklsráö- herra — öryggis- og varnarmát. Frjálsar umræöur. Stjórn fulltrúaráósins. Vestmannaeyjar Aöalfundur Sjálfstæöisfélags Vestmannaeyja veröur haldinn laugar- daginn 21. janúar nk. kl. 16.00 i Hallarlundi. Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Þorsteinn Pálsson formaöur Sjálfstæöis- flokksins ræöir um stjórnmálaviöhorfiö. 3. Önnur mál. Þingmenn Sjálfstæöisflokksins í kjördæminu mæta á fundinn. Stjórnln.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.