Morgunblaðið - 21.01.1984, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 21.01.1984, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1984 „Þessi Jri |Ut CD r manni í ói ibi or inr „Ég hefði mikinn áhuga á að spreyta mig í kvikmynd- um, en enn sem komið er hefur enginn boðið mér hlutverk," sagði Mick Jagg- er, söngvari Rolling Stones, í viðtali viö vikuritið Wom- an. „Þá hef ég ekki síöur hug á að reyna fyrir mér við leíkstjórn og er sjálfur að bauka við að gera kvik- mynd. Kannski leik ég aðal- hlutverkið þar sjálfur.“ Jagger bætti því viö, aö nú orö- iö væru flest meiriháttar kvik- myndahlutverk samin meö ein- hvern ákveöinn leikara í huga, — segir Mick Jagger, sem er ekki á þeim buxunum að leggja hljóðnemann til hliðar þannig aö lítiö þýddi aö reyna aö komast aö, jafnvel þótt um fræga menn væri aö ræöa (engin nöfn nefnd). „Ég er löngu hættur aö lifa fyrir rokkiö eins og ég geröi hér á ár- um áöur. Enginn endist til slíks þegar komiö er á fuiloröinsár. Þaö er aöeins á meöan maöur er ungur, aö slíkur hugsunarháttur ríkir. Þegar ég var oröinn þrítug- ur, jafnvel strax á 26. aldursári, var ég hættur aö hugsa þannig, aö heimurinn snerist um rokkiö.“ Þrátt fyrir þessi ummæli sagöi Jagger, aö ekki mætti líta þannig á aö hann væri oröinn leiöur á tónlistinni. Fjarri því. Til staöfest- ingar bætti hann því viö, aö svo gæti vel fariö, aö Rolling Stones myndu efna til annarrar yfir- griþsmikillar tónleikaferöar á þessu ári. „Þessi fiðringur er manni í blóö borinn. Ég er vel á mig kominn líkamlega og víst er, aö á meöan svo er sé ég enga ástæöu til aö leggja hljóönemann til hliöar.“ Mick Jagger — aldrei hressari. John Lennon og Yoko Ono. Myndin tekin í ágúst 1980. Dagbók Lennons, sem stolið var, enn ókomin í leitirnar: „Þetta eru ótínd- ir grafarræningj- ar nútímans" — segir talsmaður Yoko Ono, sem lætur engar bilbug á sér finna í góðgerðarstarfseminni Þótt nú sé liöiö á fjórða ár frá því John Lennon var skotinn til bana, nánar tiltekiö var það 8. desember 1980, hefur enn ekkert spurst til dagbókar hans, sem stoliö var þegar brotist var inn í íbúö hans og Yoko Ono skömmu eftir moröið. Morðinginn, Mark David Chapman, situr í fangelsi og afplánar 20 ára fangelsi. Reyndar er þessi dagbók Lennons, sem stoliö var, ekki sú eina sem horfiö hefur úr fórum hans. Fyrrum aöstoöarmaöur hans, Fred Seaman, var á sinum tíma sekur fundinn um aö hafa stolið dagbókum Lennons frá árunum 1975 til 1979. Þær hafa aldrei komiö fram, en Seaman var dæmdur fyrir stuldinn. Honum var þó sleppt úr haldi eftir aö hann haföi heitiö því aö nota aldrei neitt úr bókunum sér til framdráttar. Lennon hélt mjög nákvæmar dagbækur og sat oft lengi viö skriftir. Hver þaö var, sem stal dagbókinni fyrir áriö 1980, veit enginn fyrir víst. Að sögn talsmanns Yoko Ono hefur enn ekkert komið fram, sem varpaö getur Ijósi á stuldinn. Hins vegar sagöi hann, aö hann teldi sjálfur aö þrír menn ættu sök á stuldinum. Hann neitaöi aö gefa upp nöfn þeirra né segja hvers vegna hann taldi þá ábyrga. „Dagbækurnar eru ekki þaö einasta sem hvarf úr íbúöinni,“ sagöi hann í samtali viö AP-fréttastofuna. „Fleiri munum var stolið og ég er sann- færöur um aö þar eiga í hlut menn, sem þekktu vel til á heimilinu. En þaö eru ekki bara þessir menn, sem ætla sér aö hagnast á dauða Lennons. Menn, sem voru misjafnlega kunnugir honum, gefa út bækur um hann í gríö og erg. Þetta eru ekkert annaö en ótíndir grafarræningjar nútímans." Hörð orö atarna, en Ono lætur samt engan bilbug á sér finna í góögeröarstarfseminni. Þótt ýmsu hafi verið stolið úr íbúöinni er enn heilmikið eftir. í næsta mánuöi ætlar sú japanska aö efna til uppboðs á munum úr heimilinu, sem metnir eru á 2 milljónir dollara (56 millj. ísl. króna). Andvirði sölunnar rennur til liknarmála. Efnt til námskeiðs í hljóðversfræðum Hljóöveriö Mjöt, sem er til húsa aö Klapparstíg 28 (sími 23037), hefur ákveöið aö brydda upp á þeirri nýjung að efna til nám- skeiða, þar sem mönnum eru kynnt grundvallaratriöi í hljóö- versvinnu. Samkvæmt upplýsingablaöi, sem Járnsíöunni hefur borist, skiptist námskeiöiö niöur í eftir- talda þætti: 1. Undirbúningsvinna. Leiöbein- andi Magnús Þór Sigmundsson (3 tímar). 2. Uppbygging hljóövers og grunntækja þess. Leiöbeinandi Kristján E. Gíslason. 3. Notkun hljóönema. Leiöbein- andi Jón Gústafsson (3 tímar). 4. Upptökur rafhljóöfæra, gítars og bassa. Leiöbeinandi Magn- ús Guömundsson (1 tími). 5 Trommuupptökur. Ýmsir leiö- beinendur. (2 tímar). 6. Elektróník, hljóögervlar og trommuheilar. Leiöbeinandi Jón Gústafsson (2 tímar). 7. Söngur. Leiöbeinandi Magnús Guömunsson (1 tími). 8. Upptaka á eigin efni. Leiöbein- andi Kristján E. Gíslason (17 tímar). Námskeiöiö er einkum hugsaö fyrir hljómsveitir, en þó geta ein- staklingar sótt þaö. Verö er kr. 4.000,- fyrir hljómsveit, en kr. 1.000,- fyrir einstakling og miöast viö 10 stúdíótíma. John Sykes, nýi maðurinn í Whitesnake. Eiríkur ekki Ríkharður Þau mistök urðu á Járnsíöunni um daginn, aö Eiríkur Örn Pálsson, trompetleikari, var sagöur heita Ríkharöur Örn þegar fjallaö var um tónleika „útlendingahersveitarinnar" á Boi*ginni rétt fyrir áramót. Umsjón- armaður Járnsíðunnar biöst velvirö- ingar á þessum mistökum. Sykes til liðs við Whitesnake Gátan um eftirmann Mick Moody í Whitesnake viröist nú vera um þaö bil aö ráðast. Eins og Járnsíöan skýröi frá á sínum tíma reyndu meira en 300 gítarleikarar, frægir jafnt sem ófrægir, aö komast aö hjá White- snake eftir aö Moody sagöi skilið viö sveitina. Þar gilti gamla góöa reglan um marga kallaöa en aö- eins einn útvalinn. Eftir því sem Járnsíöan kemst næst kemur það í hlut John Sykes, fyrrum gitarleikara í Thin Lizzy aö halda merki Moodys á lofti. Sykes þessi hefur vakiö mikla athygli á undanförnum árum og veriö hælt á hvert reipi, sem einum af færustu yngri gítarleikurum Breta. Af Moody er þaö aö frétta á hinn bóginn, að hann er ekkert á þeim buxunum aö leggja gítarinn á hill- una. Áreiöanlegar heimildir segja hann hafa í bígerö aö stofna nýja hljómsveit með vorinu. 8. janúar ★ ... aö Elvis heitinn Presley heföi oröiö 49 ára gamall heföi hann lifaö? Tvíburabróöir hans lést viö fæöingu. ★ ... aö Shirley Bassey fædd- ist þennan dag fyrir 47 árum? *... aö Jerry Garcia úr Grateful Dead varö 41 árs þennan dag? ★ ... aö þennan dag varö Robbie Kreiger úr Doors 38 ára? ★ ... aö stórstirniö, aö þvi er viröist ódauölega, David Bowie (skírnarnafn David Jon- es) hélt upp á 37 ára afmæliö þennan sama dag? ★ ... aö breiöskífan „Layla“ meö Derek And The Dominoes (Eric Clapton og Co.) kom út þennan dag fyrir réttum 13 ár- um? 9. janúar ★ ... aö söngkonan heims- kunna, Joan Baez, hélt upp á 42. afmælisdaginn sinn þenn- an dag? ★ ... þrjú ár voru frá því þeir Jerry Dammers og Terry Hall- ur Specials sálugu voru dæmdir í 400 punda sekt hvor fyrir ósæmilega hegöun og málfar á tónleikum í Cam- bridge nokkrum mánuðum áö- ur? 10. janúar ★ ... aö rokkarinn Ronnie Hawkins, sem geröi garöinn frægan á sjötta áratugnum, varö 49 ára þennan dag? ★ ... aö Jim Croce (sem reyndar lést fyrir áratug) fæddist þennan dag áriö 1943 i Filadelfíu? ★ ... aö rokkarinn síungi, Rod Stewart, átti 39 ára afmæli þennan dag? (Svona í leiöinni, svakalega eru þessir rokkarar allir orönir gamlir.) ★ .. . aö 26 ár voru liðin frá því plata Presleys, Jailhouse Rock, átti aö koma út i Bret- landi? Fresta varð útkomu plötunnar um viku, þar sem pressufyrirtækiö haföi ekki un- dan viö aö pressa upp í pant- anir, sem voru upp á nærri 350.000 eintök. ★ ... að átta ár voru liöin frá því blúsarinn kunni Howlin’- Wolf (Chester Burnette) lést? 11. janúar ★ ... aö sjö ár voru líöin frá því Rollingurinn Keith Rich- ards var dreginn fyrir dóm- stóla, ákæröur fyrir aö hafa neytt og haft í fórum sínum bæöi LSD og kókaín? 12. janúar ★ ... aö Long John Baldry varö 42 ára þennan dag? ★ ... aö söngkonan kunna, Maggie Bell, átti 39 ára afmæli þennan sama dag? ★ ... aö Arlo Guthrie (sonur Woodie Guthrie) hélt upp á 37. afmælisdaginn sinn? ★ ... aö flokkur trommarans Ginger Baker (fyrrum Cream- ara), Air Force, efndi til fyrstu tónleika sinn fyrir 13 árum? 13. janúar *■. ■ aö Suggs, söngvari Madness, varö 23 ára þennan dag? ★ ... aö 11 ár voru liðin frá þvi Eric Clapton sté á sviö eftir langt hlé og skemmti tónleika- gestum i Rainbow-tónleika- höllinni í Lundúnum? Upptök- ur af tónleikunum voru síðar gefnar út á plötu. ★ .. . aö fjögur ár voru liöin frá því Johnny Hathaway stytti sér aldur?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.