Morgunblaðið - 21.01.1984, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1984
31
lceland, sem áður hét Vikivaki, gerir það gott
víðar en í Svíþjóð
Fengu þrumugóða dóma
hjá Bandaríkjamönnum
Hwer man ekki eftir hljómsveit-
inni Vikivaki, sem stormaði hér
um landið fyrir nokkrum árum og
gerði það bara gott. Ef ég man rétt
var Vikivaki á þeim árum skipuð
þremur íslenskum bræðrum og
einum Svía. Þessu nafni, Vikivaki,
héldu þeir fram til ársins 1980 er
því var breytt í lceland.
Hljómsveitin lceland kom hingaö
til lands snemma í desember, en
koma sveitarinnar vakti ekki eins
mikla athygli eins og vonir stóöu
e.t.v. til. Mátti þar einkum og sér í
lagi kenna um klaufalegri „prómót-
irui urn Mduidieyn ..prumui- ’t
ekanbUslörre önABB A
m&ng* eU^ng ^ la^ UlMaUn|g
best&r sv fyr» ^^„tU P& 300 branschmanmsK ^ rap
, en göteborgare °ch í demonpro- , brinschen pratas det
,ltkSKtwr■“““
Ein úrklippa úr sænsku blöðun-
um.
eringu“. Til marks um þaö má
nefna, aö Járnsíöunni bárust úr-
klippur frá Svíþjóö eftir aö lceland
var farin af landi brott. Synd og
skömm, að ekki skyldi hafa veriö
betur staðið að heimsókninni þvi ef
marka má tveggja laga plötuna
meö laginu „Breakin’The lce“ er
lceland ágætasti flokkur.
Þaö eru þeir Hans, Björn, Jón og
Gunnar Magnússynir, sem skipa
lceland og af nokkrum úrklippum,
sem síöunni bárust, mátti ráöa, aö
fimmti meðlimurinn væri Svíinn
Anders Ohlsson. Hans var a.m.k.
getið í einni umfjöllun um tónleika
lceland. Hvort sú er orðin gömul
skal ekki sagt með vissu, en skv.
bréfstúf frá þeim bræörum er þó
ekki annað aö skilja en þeir séu
aöeins fjórir i sveitinni.
Hijómsveitin lceland, bræöurnir Hans, Jón, Björn og Gunnar Magnús-
synir.
Iceland hefur leikið mjög víöa um
Svíþjóö, einkum þó í miö- og suður-
hlutanum við góöan oröstir. Hefur
sveitin komiö viö sögu á flestum
þekktari dans- og tónleikastöðum á
þessum slóöum. Þá afrekaöi hljóm-
sveitin einu sinni aö „hita upp“ fyrir
Black Sabbath á tónleikum í Gauta-
borg.
Þótt til þessa hafi lceland einkum
getiö sér orö fyrir góöa tónlist í Sví-
þjóö og á íslandi á flokkurinn oröiö
nokkrum vinsældum aö fagna í
Japan og fór í tónleikaferö til
Bandaríkjanna eigi alls fyrir löngu.
Þar fékk hljómsveitin undantekn-
ingalaust góða dóma. Var hún á
snærum kunns umboðsmanns, sem
m.a. skapaöi sér nafn á sínum tíma
fyrir aö kynna bæöi Bítlana og Roll-
ing Stones fyrir Bandaríkja-
mönnum.
Iceland hefur oftsinnis komiö
fram í útvarpi og sjónvarpi í Svíþjóð
og á orðið stóran fylgismannahóp
þar í landi. Sagöi í einni úrklippunni,
sem Járnsíöunni barst, að víst væri,
aö áhangendurnir biðu spenntir eft-
ir næstu breiðskífu bræöranna fjög-
urra frá íslandi.
Kyndug katta-
vinasamkunda
Það var heldur óvenjuleg
samsetning áhorfenda, sem
var saman komin á Borginni á
fimmtudag. Rosknar konur (og
reyndar menn líka) og ungl-
ingar mynduðu þar fremur
sérkennilega blöndu meö
nokkrum af því aldursskeiði,
sem alla jafna sækir tónleika.
Þetta voru heldur ekki neinir
venjulegir tónleíkar. Katta-
vinafélagið var nefnilega með
hátíð.
Reyndar kom umsjónarmaö-.
ur Járnsíðunnar ansi seint á
tónleikana og ekki fyrr en Arn-
þrúður Karlsdóttir, kynnir
kvöldsins, tilkynnti að hlé yrði
gert á fiutningi um stund.
Unnur Jensdóttir og Guðni Þ.
Guðmundsson hófu dagskrána
eftir hlé. Unnur söng listavel og
Guöni lék undir á píanó og
geröi þaö einkar laglega. Leikur
Bergþóra Árnadóttir —
oft verið betri.
hans léttur og skemmtilega laus
í reipunum, ef manni leyfist aö
oröa þaö svo, á köflum. Lög á
borð viö Tennessee Waltz og
Summertime yljuöu eldri kyn-
slóðinni greinilega um hjarta-
rætur.
Bergþóra Árnadóttir sté
þvínæst á svið með pompi og
pragt og söng kattadúettinn
með Unni. Flutningurinn átti
ágætlega við á þessu kvöldi, en
ekki heföi einkunnin oröiö há ef
lærður tónlistarspekingur hefði
dæmt. Kattadúettinn hefur
oftast verið betur fluttur.
Aldrei aftur-hópurinn sló
botninn í samkunduna. Berg-
þóra var eitthvaö ólík sjálfri sér
þetta kvöldiö og getur sungið
miklu betur en þarna. Hins veg-
ar var Tryggvi Húbner hárbeitt-
ur á gítarnum og norski bassa-
leikarinn Geir Atli Johnsen,
sýndi skemmtileg tilþrif oft á
tíðum.
Hafi fyrri parturinn verið
eitthvaö í líkingu viö þaö sem
ég barði augum, hefur skemmt-
unin verið fremur rislág. Mæt-
ingin var heldur ekki upp á þaö
allra besta. Ég taldi aðeins 50
manns í salnum og var þá ein-
hver hluti listafólksins talinn
með.
Afmælis-
hátíó
80 ára afmælishátíö veröur haldin í Víkingasal Hótels
Loftleiöa laugardaginn 28. janúar. Hátíðin hefst kl.
19.00. Sameiginlegt boröhald. Skemmtiatriöi. Dans-
aö til kl. 2 e.m. Miöasala aö Ásvallagötu 1, 23. og 24.
jan. kl. 17—19. Ekki viö innganginn. Boröapantanir á
sama staö. Nefndin
Söngskglinn / Reykjavík
Vegna mikillar eftirspurnar efnir
Söngskólinn í Reykjavík
til kvöldnámskeiöa
„öldungadeildar"
Fyrstu námskeiöin standa í 3 mánuöi febrúar til apríl.
Umsóknarfrestur er til 27. janúar.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skól-
ans kl. 15—17.30 daglega, sími 27366.
Skólastjóri
fy'Notoður
Litroen
nœstbcsti
fíosbmmi!
x\. árg. km verö
Citroén CX 25 diesel 82 60 þús. 490 þús.
Citroén CX 2400 Pallas ’78 53 þús. 260 þús.
Citroén GSA X3 82 39 þús. 270 þús.
Citroén GSA Pallas ’82 28 þús. 265 þús.
Citroén GSA Pallas C-matic’82 40 þús. 280 þús.
Citroén GSA Pallas '82 40 þús. 260 þús.
Citroén GSA Pallas ’82 30 þús. 260 þús.
Citroén GS Pallas ’78 60 þús. 115 þús.
Opiö á morgun, laugardag, kl. 2—5
G/obus(
LAGMUH b
SIMI81555
Bladburðarfólk
óskast!
Austurbær »■» Þingholtsstræti
Ármúli 1 —11 Freyjugata 28—49.
Síðumúli Bergstaðastr. 1—57.