Morgunblaðið - 21.01.1984, Síða 36

Morgunblaðið - 21.01.1984, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1984 Minning: Kjartan Júlíusson raftœknifræðingur Ka ddur 6. júlí 1950 Dáinn 12. janúar 1984 Við hjónin kveðjum í dag kæran vin. Við kynntumst Kjartani og eiginkonu hans, Gunnhildi, stuttu eftir að við fluttum til ísafjarðar árið 1976. Tókst með okkur og börnum okkar góður og náinn vinskapur. Á heimili þeirra, sem bæði var notalegt og aðlaðandi, var alltaf gaman að koma, enda hamingja þar ríkjandi. Margar ánægjustundir höfum við átt sam- an úti í náttúrunni og í skáta- starfi, sem okkur er ljúft að minn- ast. Átti Kjartan stóran þátt í gleði og galsa, sem þar ríkti og skipti þar mestu kátína hans og jákvætt hugarfar. Skarð er fyrir skildi í vinahópnum, en minningin um góðan dreng lifir í huga okkar. Við sendum þér, Gunnhildur mín, Katrínu, Helga Steinari og öðrum aðstandendum okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Bryndís og Guðmundur Kveðja frá skátasystrum. Tengjum fastara bræðralagsbogann, er bálið snarkar hér rökkrinu í. Finnum ylinn og lítum í logann og látum minningar vakna á ný. í skátaeldi býr kynngi og kraftur, kyrrð og ró en þó festa og þor. Okkur langar að lifa upp aftur liðin sumur og yndisleg vor. Þetta litla skátaljóð eftir hann Harald ólafsson, sem er okkur ís- firzku skátunum svo kært, hefur verið ofarlega í huga mér þessa dagana. Ég vissi, að tilurð þess og saga var á meðal þess efnis, er rifjað var upp á 50 ára afmælis- fundi rekkasveitar Einherja sunnudagskvöldið 8. janúar sl. Sá fundur varð sá síðasti, er Kjartan Júlíusson, félagsforingi Einherja, sat með þeim skátabræðrum sín- um. Örfáum dögum síðar var hann allur. Eftir erfiða sjúkdómsbaráttu hafði virzt, sem nú væri að rofa til, því að síðustu vikurnar var Kjartan svo hress og glaður. Öll vonuðum við, að erfiðleikunum væri lokið og framtíðin yrði bjart- ari, en það fór á annan veg. Kjartan Júlíusson varð ylfingur í Einherjum strax og hann hafði aldur til. Reyndar var hann orðinn Einherji miklu fyrr, fæddur og uppalinn í næsta húsi við Skáta- heimilið og næsti nágranni Jóns Þórðar ylfingaforingja. Nei, það fór ekki hjá því, að Kjartan og systkini hans fylgdust með frá byrjun og yrðu öll skátar. Áhugi Kjartans og dugnaður í skátastarfinu kom fljótt í ljós og hann tók þátt í því af lífi og sál. Eftir því sem hann eltist féllu í hlut hans ýmis ábyrgðarstörf, sem hann kappkostaði að inna vel af hendi. Hlé varð á starfi Kjartans hér á ísafirði, er hann stundaði nám, fyrst í Reykjavík, en síðan í Danmörku. Á þeim árum kynntist hann stúlkunni, sem varð lífsföru- nautur hans, Gunnhildi Elías- dóttur frá Akranesi. Að loknu námi, sneri Kjartan aftur heim til ísafjarðar og nú með fjölskyldu, því að þeim Gunnhildi hafði fæðzt sonurinn Helgi Steinarr, Katrín litla bætt- ist svo í hópinn fjórum árum síð- ar. Fljótlega eftir að Kjartan kom heim aftur, varð hann félagsfor- ingi Einherja. Þá kom í ljós, að þar sem og annars staðar stóð Gunnhildur við hlið hans í einu og öllu og studdi með ráðum og dáð. Hún var Akranessskáti fyrir, en gerðist Valkyrja hér á ísafirði og varð fljótt ein af hópnum. Fólki finnst það stundum skrýt- ið, að skátafélögin skuli vera tvö á ísafirði, drengja og stúlkna, en samstarfið er mikið og gott og stundum erfitt að greina á milli „hvurs er hvað“, enda oftast bara talað um „skátana", en ekki Ein- herja eða Valkyrjur. Slíkt sam- starf er þó ekki með öllu vanda- laust og veltur á miklu að sam- starfsvilji þeirra, sem í forystu eru, sé góður. í Kjartani áttum við Valkyrjurnar vísan traustan og góðan félaga og ótalmörg eru þau orðin sameiginlegu verkefnin og samverustundirnar. Eitt af verkefnum síðari ára, sem ég, er þetta skrifa, tók þátt í ásamt Kjartani, var 17. júní und- irbúningurinn fyrir tæpum tveim- ur árum. Hann var formaður nefndarinnar og var fitjað upp á ýmsum nýjungum, sem í fyrstu virtust óframkvæmanlegar, en Kjartan hafði ýmis ráð og allar hindranir voru yfirstignar. Hann lagði mikla áherzlu á, að allt væri vel skipulagt og færi vel fram, enda gekk allt að óskum sjálfan þjóðhátíðardaginn. Um nóttina, að afloknum hátíðahöldum, var svo farið um allt hátíðarsvæðið og rusl hreinsað í burtu, svo að ör- uggt væri, að vel væri skilið við bæinn okkar og gekk Kjartan fyrir í því sem öðru. Einn er sá liður í skátastarfinu, sem er okkur helgari en aðrir, en það eru helgistundirnar. Mér er minnisstætt, að á einni slíkri sam- eiginlegri stundu, féll það í hlut Kjartans að fara með lokaorðin. Hann las þá upp síðasta ávarp Baden-Powells, stofnanda skáta- hreyfingarinnar, en þar segir m.a. „Én hina raunverulegu ham- ingjuleið haldið þið, ef þið gerið aðra hamingjusama. Reynið að skilja svo við þennan heim, að hann sé einhverja vitund betri en hann var; og þegar dauðinn sækir ykkur heim, getið þið dáið ánægð- ir í þeirri trú, að þið hafið að minnsta kosti ekki eytt tíma ykk- ar í óþarfa, heldur lagt ykkur alla fram til að láta sem bezt af ykkur leiða. „Verið viðbúnir" á þennan hátt, að lifa hamingjusömu lífi og deyja ánægðir — haldið jafnan skátaheitið — engu síður á full- orðinsárum en í æsku — og megi guð styrkja ykkur til þess.“ í anda þessara orða lifði og starfaði Kjartan Júlíusson. Ég hefi þá trú, að á erfiðum stundum veiti bænir og góðar hugsanir vina þeim styrk, sem um sárt eiga að binda. Ég vona að ástvinir Kjartans finni það, að við erum mörg og víða stödd, sem er- um með hugann hjá þeim núna. Að leiðarlokum kveðjum við skátabróður okkar, Kjartan Júlí- usson, með trega og þakklæti. Eiginkonu hans, Gunnhildi, börnunum ungu, þeim Katrínu og Helga Steinari, Katrínu, móður Kjartans, systkinum hans og ást- vinum öllum, vottum við einlæga samúð. Minningin um góðan dreng lifir. Ksf. Valkyrjan, ísafirði. Auður H. Hagalín. I dag fer fram frá Isafjarðar- kirkju útför Kjartans Júlíussonar, raftæknifræðings, sem lézt í Sjúkrahúsi ísafjarðar 12. þ.m. Á rúmu ári hlaut hann tvívegis heilablæðingu, en náði sér ótrú- lega fljótt í bæði skiptin og hóf störf á nýjan leik, eins og ekkert hefði í skorizt. Allir vinir hans vonuðu því, að nú væri hættan lið- in hjá og framtíðin brosti við á ný, full glæstra vona. Hetjuleg bar- átta virtist hafa borið árangur. Þá baráttu háði heil fjölskylda, ung eiginkona, ástrík móðir og venzla- fólk með dæmafárri fórnfýsi og þreki. En ástúð, umhyggja og fórnir komu fyrir ekki. Glæstar vonir brugðust óvænt. Svo hrap- allega slær maðurinn með ljáinn. Kjartan Júlíusson var fæddur á ísafirði 6. júlí 1950, sonur hjón- anna Katrínar Arndal, hjúkrun- arkonu, og Júlíusar Th. Helgason- ar, rafvirkjameistara, sem lézt 11. maí sl, Var hann þriðja barn þeirra hjóna, eldri eru Helgi og Sigríður, en yngri Kristín og Har- aldur. Kjartan kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Gunnhildi Elías- dóttur frá Akranesi 29. des. 1973. Þau áttu tvö börn, Helga Steinar f. 25. júlí 1973 og Katrínu f. 11. marz 1977. Kjartan ólst upp með foreldrum sínum og systkinum hér á Isafirði. Strax að loknu gagnfræðaprófi hóf hann nám hjá föður sínum og lauk sveinsprófi í rafvirkjun um tvítugt. En hugur hans beindist fljótlega að meira námi á þessu sviði. Hann lauk fyrri hluta tæknináms hér á ísafirði, en síð- ari hlutanum í Reykjavík vorið 1973. Hélt hann þá strax til Dan- merkur og lauk prófi í raftækni frá tækniskólanum í Árósum haustið 1975. Kjartan var mikill Isfirðingur og var alla tíð ráðinn í því að vinna heimabyggð sinni að námi loknu, ef hún hefði not fyrir menntun hans og starfskrafta. Það var því engin tilviljun, að hann réðst til Rafmagnsveitna ríkisins með aðsetur á ísafirði t Eiginmaöur minn, MAGNÚS GUDMUNDSSON, Ásgarði 33, andaöist i Landspítalanum aöfaranótt 20. januar. Jaröarförin aug- lýst siöar. Fyrir hönd aöstandenda, Þórdís Arnadóttir. t Ástkær eiginmaöur minn og faöir okkar, HALLDÓR SIGURDUR BACKMAN, byggingarmeistari, Sóleyjargötu 7, Reykjavík, lést að morgni 20. janúar í Borgarspítalanum. Jóhanna Arnmundsdóttir Backman, Arnmundur S. Backman, Inga Jónína Backman, Ernst Jóhannes Backman, Edda Heiörún Backman. t Minningarathöfn um JÓHANNES SIGURDSSON, hreppstjóra, Hnúki, Dalasýslu, sem andaöist 17. janúar, fer fram í Fossvogskirkju miövikudaginn 25. janúar kl. 13.30. Jaröarförin auglýst síöar. .. . a 1 Vandamenn. t Alúöarþakkir fyrir samúö og vinsemd vegna fráfalls og jaröarfarar mannsins míns, HÖGNA HÖGNASONAR Iró Bjargi, Breióvíkurhreppi. Fyrir mina hönd og annarra vandamanna, Soffía Þorkelsdóttir. t Þökkum af alhug sýnda samúö og vinarhug viö fráfall eiginmanns míns, föður okkar, tengdafööur, afa og langafa, VILHJÁLMS ÞORSTEINSSONAR. Kristín M. Gísladóttir, Þorsteinn Vilhjálmsson, Sigrún Júlíusdóttir, Sigríöur Vilhjálmsdóttir, Jóhann Þórir Jónsson, Svanlaug Vilhjálmsdóttir, Halldór Eiríksson, barnabörn og barnabarnabarn. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur og afa, NJARÐAR JAKOBSSONAR, verkstjóra, Fagrabæ 18. Sérstakar þakkir sendum viö starfsfólki Loftorku hf. Guðmunda Halldórsdóttir, Þórdís Njaröardóttir, Hulda G. Óskarsdóttir, Jóhanna Á. Njaröardóttir, Þór Kristmundsson, Njöröur Njaróarson. strax að námi loknu. Starfaði hann síðan hjá rafmagnsveitunum þar til Orkubú Vestfjarða yfirtók starfsemi þeirra á Vestfjörðum í ársbyrjun 1978. Var starfsvett- vangur hans síðan hjá orkubúinu þar til yfir lauk, seinustu árin sem deildarstjóri tæknideildar. Æskuheimili Kjartans Júlíus- sonar var í Mjallargötu 6, í húsi afa síns og ömmu, Helga Þor- bergssonar vélsmiðs og Sigríðar Jónasdóttur, en þar bjuggu for- eldrar hans sín fyrstu hjúskapar- ár. Hann varð því strax í æsku mjög handgenginn Helga, afa sín- um, og var einstaklega kært með þeim og áhugamálin þau sömu, þó að aldursmunur væri mikill. Þeir þekktu hvorugur það sem nú er nefnt kynslóðabil. Þar ríkti gagn- kvæmt trúnaðartraust og einlæg vinátta. Þykist ég vita með nokk- urri vissu, að í þann ættlegg hafi Kjartan sótt áhuga sinn á verk- tækni, en þar hefir verið hver völ- undurinn öðrum fremri, eins og alkunna er. Helgi Þorbergsson hafði alla tíð mikinn áhuga á stangveiði. Sonarsonur hans var ekki orðinn hár í lofti þegar hann fór að taka hann með sér í veiði- ferðir og kenna honum handtökin. Veit ég, að það var mikið áfall fyrir Kjartan, þá aðeins 14 ára gamlan, þegar afi hans varð bráð- kvaddur í einni slíkri ferð, en þeir voru þá við veiðar í ísafjarðará ásamt Jónasi, frænda hans. Þegar Kjartan var á 10. ári fluttust foreldrar hans í nýbyggt hús við Engjaveg. Vorum við nágrannar upp frá því, þar til hann stofnaði sitt eigið heimili. Nágrönnum hans duldist ekki, að í kringum hann var aldrei nein lognmolla, þar var alltaf eitthvað að gerast, enda reyndist hann snemma dugmikill og úrræðagóð- ur. Það var því engin tilviljun, að ungir og tápmiklir strákar sóttust eftir að vera í návist hans og varð honum vel til vina. Með árunum skapaðist milli okkar trúnaðar- traust, sem ég held að báðir hafi kunnað að meta. Eins og flestir ungir drengir á ísafirði gerðist Kjartan skáti í æsku og starfaði í öllum sveitum Skátafélagsins Einherja. Hann var tvímælalaust vel til foringja fallinn. Meðfæddir forystuhæfi- leikar og glaðværð gerðu það að verkum, að honum gekk einstak- lega vel að fá aðra til að vinna með sér. I kringum hann var ávallt lífsgleði æskunnar, skapgerð hans var létt og lifandi. Meðan hann dvaldi fjarri átthögunum gat hann ekki starfað með Einherjum, en strax og hann kom heim frá námi tók hann þráðinn upp á ný og hóf störf með sínum gömlu fé- lögum. Árið 1976 var hann kosinn félagsforingi Einherja og gegndi hann því starfi til dauðadags. Jafnhliða var hann sveitarforingi hjálparsveitar skáta og mikill áhugamaður um uppbyggingu hennar. Kjartan Júlíusson var í einkalífi sínu lánsamur maður. Fjölskyldu sinni og skátastarfinu á Isafirði fórnaði hann flestum stundum er afgangs voru erilsömu starfi. Eig- inkona hans, Gunnhildur Elías- dóttir, var honum samhent í einu og öllu, áhugamálin voru sam- tvinnuð og hugðarefnin hin sömu. Hún stóð því ávallt við hlið hans, studdi hann í starfi og þegar mest á reyndi í erfiðum sjúkdómslegum sýndi hún þá hetjulund og kær- leika, er manni hennar hefir vafa- laust verið mestur styrkur að í baráttu sinni við miskunnarlaus örlög, sem ekki urðu umflúin. Það er erfitt að sætta sig við fráfall ungs manns eins og Kjartans Júlí- ussonar, sem er rétt að byrja sitt lífsstarf. Með lífi sínu varpaði hann mörgum hlýjum og björtum sólargeislum á þá vegarspotta, sem fjöldi ísfirzkra æskumanna og ýmsir, sem eldri eru, áttu með honum. Þess vegna engar harma- tölur, þrátt fyrir allt, aðeins þakk- ir fyrir ánægjulega samfylgd, sem ekki gleymist og enginn vildi hafa án verið. Hugur okkar fylgir hon- um í áttina til strandarinnar ókunnu, þangað, sem við förum öll, þegar kallið kemur. Ég og mínir samhryggjumst eiginkonu hans og móður, sem

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.