Morgunblaðið - 21.01.1984, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 21.01.1984, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JANtJAR 1984 Um leiá 05 kuann zr bóinr\, Faréu pó, strcz* rr\ei5 g/asi'é yfir ci borb númer piu." Kæra fröken, við höfum kosid þig stúlkuna sem við viljum vera með á svona kóralrin! Nei takk. Ég ætla að bíða þar til bfll stoppar sem ekki-reykingar- maður ekur; HÖGNI HREKKVÍSI Kommúnistaríkin: Hvernig væri ástandið ef stjórnvöld leyfðu þeim að fara sem vildu? Húsmóðir skrifar: „Ég varð glöð, þegar hægt var að fá aftur „1984“. Sú bók er eins og „Valdið og þjóðin" eftir Arnór Hannibalsson; maður kemst ekki hjá því að trúa hverju orði sem í þeim stendur. Hér hjá söguþjóðinni er þetta nauðsynlegt, því svo mikil er innrætingin og að- dáunin á kúgun kommúnism- ans hjá kennurum okkar, að þjóðin er fyrir löngu orðin að gjalti gagnvart öðrum lýð- ræðisþjóðum. Heldur þótti mér það nöt- urlegt við minningu George Orwells, að útvarpið gæti enga fengið til að minnast hans, nema stokkfreðna marx-Ienín-stalínista. Dag- inn eftir bætti útvarpið svo enn um betur. Þegar verið var að lýsa byltingunni á Spáni var vitnað í Orwell og bara sagt frá því, þegar hann fyrst kemur til Barcelona. Þá finnst honum töluvert til um það að allir þúast og ganga í verkamannafötum. Frásögn- in átti að vekja samúð okkar með svokölluðum lýðræðis- öflum á Spáni. Orwell hefur skálda best lýst andúð sinni og hræðslu við þau öfl, hvar sem þau birtast og endurtekur allt í „Animal Farm“ og ekki síst í „1984“. Þegar Orwell fer svo að kynnast hlutunum, í bók- inni sem vitnað var í, og sér hvernig þessir sem stjórnuðu og þóttust vera að bjarga þeim fátæku, úðuðu í sjálfa sig matnum og hentu svo leifunum, þó að úti fyrir stæðu þeir hungruðu. Það er ekki út í bláinn að Orwell lætur þessi orð standa yfir „Sigurgarðinum", þar sem Winston í „1984“ vinnur: Stríð er friður, frelsi er ánauð, fáfræði máttur. Hvar fær maður betri lýs- „Það er ekki út í bláinn að Orwell lætur þessi orð standa yfir „Sigurgarðinum" þar sem Winston í „1984“ vinnur: Stríð er friður, frelsi er ánauð, fá- fræði er máttur. Hvar fær maður betri lýsingu á komm- únískri söguskoðun?“ ingu á kommúnískri sögu- skoðun? Ég fékk „1984“ strax árið 1949, þegar hún kom út í Kaupmannahöfn og þá var hægt að bera allt saman við það sem maður frétti frá Rússlandi. Aldrei er þetta gleggra en núna þegar þessi helstefna kvelur almenning á Kúbu, í Angóla, Eþíópíu, Mosambique, Suður-Víetnam og svo öllum járntjaldslönd- um sem kommúnistar af- hentu Stalín, með sult Pól- lands og herforingjastjórn- ina þar í fararbroddi. George Orwell í bókinni er sagt frá því þegar flokkurinn lét börnin, frá sjö ára aldri, koma og segja frá öllu sem gerðist á heimilum þeirra, með þeim árangri að hvert barn hafði misst í það minnsta annað foreldrið áður en það varð 12 ára. Ég sagði þá við ungan son minn að hann hefði ekki verið álitinn efnilegur í Eyjaálfu þar sem allt væri lifandi í kringum hann. Þá sýndi drengurinn mér rússn- eskt frímerki, hvar á var mynd af 16 ára unglingi sem í byrjun byltingarinnar hafði sagt frá fundi sem faðir hans hélt á heimili sínu með helstu mönnum sveitarinnar. Allir voru þeir drepnir og drengurinn komst á frímerki eins og Jón Sigurðsson. Bók Orwells „1984“ lýstir ævi- kjörum sem enginn vill búa við. Frá kommúnistaríkjun- um vilja allir fara og hvernig væri ástandið ef stjórnvöld leyfðu öllum að fara sem vildu? Hvenær gerir einhver kommúnisti manni það til geðs að flytja alfarinn til Rússlands?" Fyrirhugað að leggja niður Sléttu- veginn vestan Kringlumýrarbrautar og veröur þá hægt að bæta hér um « Ingi Ú. Magnússon, gatna- málastjóri, skrifar 17. jan.: „í dálkum „Velvakanda" nýlega var fyrirspurn frá Gísla Jónssyni, prófessor, varðandi hönnun tengingar Bústaðavegar við Kringlumýr- arbraut. Tenging þessi upp- fyllir ekki ýtrustu kröfur sem gerðar eru til slíkra mann- virkja, þar sem nálægð gatna- móta Sléttuvegar hindra það. Þess ber þó að gæta að um lítinn hraðamun á þessum tveim brautum er að ræða, eða 10 km, sé löglega ekið. Þetta er ekki sambærilegt við innkomu á hraðbraut, þar sem hraðamunurinn er marg- falt meiri. Hæðarmunur tengingarinn- ar yfir Kringlumýrarbraut hefir í för með sér að góð yfir- sýn er yfir umferð eftir Kringlumýrarbraut. Fyrirhugað er að leggja niður Sléttuveginn vestan Kringlumýrarbrautar og verð- ur þá hægt að bæta hér um. Virðingarfyllst."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.