Morgunblaðið - 21.01.1984, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1984
47
„World Cup“
Danir og
Rússar
í úrslitum
ÞAÐ VERÐA Danir og Rússar
sem koma til með aö leika til úr-
slita í „World Cup“ handknatt-
leikskeppninni í Svíþjóð. Rússar
unnu sinn riðil með miklum yfir-
burðum og er liö þeirra óhemju
sterkt. Þeir skoruðu 80 mörk (
þremur leikjum, en fengu á sig
60. Danir komu mjög á óvart með
góðri frammistöðu sinni í mótinu.
Þeir töpuðu aö vísu fyrir Júgó-
slavíu í síöasta leik sínum í riðl-
unum með einu marki, 21—22.
• Mogens Jeppesen markvöröur
danska landsliðsins í handknatt-
leik.
Lokastaðan
þessi:
A-riðill
Sovétríkin
Svíþjóð
Pólland
V.-Þýskaland
B-riöill
Danmörk
Júgóslavía
A.-Þýskaland
Spánn
í riölunum var
3 3 0 0 80—60 6
3 2 0 1 72—75 4
3 1 0 2 69—73 2
3 0 0 3 54—67 0
3 2 0 1 66—61 4
3 0 2 0 63—62 4
3 0 2 1 66—69 2
3 0 2 1 62—65 2
Þýsk op spönsk
lið a eftir
Kristjáni Arasyni
Erlend lið hafa áhuga á Kristjáni
Arasyni stórskyttu úr FH.
V-ÞÝSKA handknattleiksliöiö
Hofweier hefur sýnt mikinn
áhuga á því aö fá Kristján Arason
til liðs við sig. Þá mun spánska
liðið Balamano Grannollers líka
hafa sett sig í samband við Krist-
ján og boöið honum samning.
Kristján Arason staðfesti þetta í
spjalli viö Mbl. í gær. En hann
sagði jafnframt að það væri alveg
öruggt aö hann færi ekki til erlends
félagsliðs fyrr en eftir næstu
heimsmeistarakeppni í handknatt-
leik. „Ég mun Ijúka námi mínu í
viðskiptafræði viö Háskóla íslands
fyrst, þaö hefur forgang. En þegar
því er lokiö þá mun ég setja stefn-
una á útlönd og vonandi fæ ég þá
eitthvert gott tilboð," sagöi Krist-
ján.
— ÞR
Verður gervigras-
völlurinn tilbúinn
í lok ágústmánaðar?
ÍÞRÓTTARÁÐ Reykjavíkurborgar
skoöar nú þessa dagana tilboð
þau sem bárust í gervigrasvöllinn
í Laugardal. Alls bárust tilboö frá
18 fyrirtækjum. Sum fyrirtækin
sendu inn fleiri en eina gerð af
gervigrasi þannig að nú er verið
að skoða um 20 tegundir. Verð-
tilboðin voru frá 6 til 21 milljón
króna.
Að sögn Júlúsar Hafstein for-
manns íþróttaráðs Reykjavikur þá
er mjög verulegur gæöamunur á
hinum ýmsu tegundum. Nú er ver-
iö aö athuga tæknihlið málsins, en
Júlíus sagöi aö aö öllu óbreyttu þá
yröi reynt að leggja gervigrasiö á
völlinn í ágústmánuöi og í lok ág-
úst á aö vera hægt að leika á vell-
inum.
— ÞR.
Knattspyrnusérfræðingar ánægðir
með hugmyndina um knattspyrnuskólann:
„Bestu fréttir
síóan 1966“
Frá Bob Honnesty, tréttamanni Morgunblaðaina i Engtandi.
• Ragnheiður Ólafsdóttir náöi
góðum árangri á síðasta keppn-
istímabili. Hún æfir núna ( Band-
aríkjunum.
Frjálsíþróttasamband fslands I
hefur úthlutaö fjórum frjáls-
íþróttamönnum æfingastyrki að '
íslandsmót
yngri flokka
í blaki
Undirbúningur Blaksam-
bands íslands vegna fs-
landsmóts yngri flokka fer
senn í gang og væntir sam-
bandið þátttöku sem flestra
félaga og flokka.
Þátttökutilkynningar þurfa
aö berast skrifstofu sam-
bandsins fyrir 20. jan. nk. Þau
félög sem ekki hafa fengiö
umsóknareyöublaö sent er
bent á aö hafa samband við
skrifstofu BLÍ.
• Þorvaldur Jónsson bætti ís-
landsmetiö í 110 m grindahlaupi
á síðasta ári. Þorvaldur hefur ver-
iö í mikilli framför.
upphæð 20 þúsund krónur hverj-
um. Þaö var Ólympíunefnd ís-
lands sem veitti sambandinu fjár-
hæö í þessu skyni, 90 þúsund
krónur, og er þv( eftir að úthluta
10 þúsund krónum.
Ákvað stjórn FRÍ á síðasta
fundi sínum að veita styrkina
þeim Þorvaldi Þórssyni grinda-
hlaupara, Siguröi T. Sigurðssyni
stangarstökkvara, Siguröi Ein-
arssyni spjótkastara og Ragn-
heiði Ólafsdóttur millilengda-
hlaupara.
Æfingastyrkir hafa áöur verið
veittir sex frjálsíþróttamönnum,
sem líklegastir þykja til að veröa
valdir til þátttöku í Ólympíuleik-
unum. Þau fjögur sem nú hlutu
styrki eru talin standa næst sex-
menningunum aö afreksgetu, og
sýndu öll fjögur framfarir á síð-
asta keppnistímabili.
— ágás.
„ÞETTA er þaö besta sem gerst
hefur í enskum knattspyrnuheimi
síðan við unnum heimsmeistara-
keppnina 1966,“ sagöi Don Howe,
framkvæmdastjóri Arsenal, og
aöstoóarmaöur Bobby Robson,
einvalds enska landsliösins, um
hugmynd enska knattspyrnu-
sambandsins og General Motors
um aö koma á fót knattspyrnu-
skóla, en við sögöum frá sam-
ningi þessarra tveggja aðila í
gær.
• Bobby Robson, landsliðsein
valdur Englands.
Bobby Robson var einnig yfir sig
hrifinn af þessari hugmynd, sagöi
hana sniöuga og umræddur skóli
kæmi örugglega til með aö skila
góöum knattspyrnumönnum.
Körfuknattleikur
EINN leikur verður í úrvalsdeild-
inni í körfubolta í dag: Haukar og
Valur leika í íþróttahúsinu í Hafn-
arfirði. Leikurinn hefst kl. 14.
Enska landsliöiö hefur ekki náö
góöum árangri á undanförnum ár-
um — og hugmyndin er aö ala upp
í þessum skóla, sem opnaöur
veröur í september á þessu ári,
framtíðarlandsliðsmenn Englands;
— í landsliöinu sem skipaö er
drengjum 16 ára og yngri og alveg
upp í karlalandsliöiö.
Þegar hefur forráöamönnum
enska knattspyrnusambandsins
veriö bent á 300 drengi af deildar-
liðum og fleiri aöilum — en þeir
veröa allir látnir þreyta próf og að-
eins 25 fá inngöngu í skólann í
haust. Þaö eru drengir á aldrinum
14 til 15 ára sem veröa í þessum
skóla. Skólar sem þessi eru til í
Frakklandi og hafa gefiö góöa
raun.
Öðlingamót
hjá TBR
Meistaramót TBR í Öölinga- og
Æðstaflokki veröur haldiö í húsi
TBR sunnudaginn 22. janúar nk.
Hefst keppnin kl. 14.00. Keppt
veröur í öllum greinum kvenna
og karla í badminton, ef næg
þátttaka fæst.
Keppnisrétt í Öölingaflokki hafa
allir þeir sem náö hafa 40 ára aldri
á mótsdegi, og keppnisrétt í
Æðstaflokki hafa allir sem náö
hafa 50 ára aldri.
Mótsgjald er kr. 250 í einliöaleik
og kr. 200 í tvíl./tvenndarleik.
Þátttökutilkynningar skulu ber-
ast til TBR í síöasta lagi fimmtu-
daginn 19. jan. nk.
Frjálsíþróttamenn
fá æfingastyrk
Körfu-
knatt-
leikur
NOKKURT hló er nú á
keppninni ( úrvalsdeild í
körfuknattleik. Næsti leikur
fer ekki fram fyrr en 27.
Snúar en þá leika UMFN og
I í Njarðvík. Um næstu
helgi fer hinsvegar fram
keppni í yngri flokkunum í
körfuknattleik. Úrslit ( síð-
ustu leikjunum í úrvalsdeild-
inni urðu þessi:
Keflavfk — Haukar 55—59
KR — Njarövík 70—87
(R — Valur
Staðan
Njarðvík
KR
Haukar
Valur
Keflavik
ÍR
12
12
12
12
12
12
93—86
3 965:894 18
5 851:839 14
5 855:862 14
7 985:935 10
7 785:877 10
9 913:947 6
Stigahæstir:
Valur Ingimundarson, Njarðv. 331
Pálmar Sigurðsson, Haukum 283
Kristjén Ágústsson, Val 238
Þorsteinn Bjarnason, Keflav. 204
Jón Kr. Gislason, Keflavík 196
Torfi Magnússon, Val 190
Hreinn Þorkelsson, ÍR 184
Gunnar Þorvarðarson, Njarðv. 180
Jðn Sigurðsson, KR 175
Jðn Steingrimsson, Val 175
1. deild kvenna;
KR — Njarðvík
24—36
ÍR
is
Haukar
Njarðvík
Snasfell
KR
11 9 2 532:424 18
11 8 3 498:429 16
10 6 4 456:322 12
11 5 6 375:443 10
9 2 7 275:355 4
10 1 9 325:448 2
Fyrirtækja-
keppni í
badminton
Fyrirtækjakeppni Bad-
mintonsambands íslands ter
fram sunnudaginn 29. janúar
í húsi Tennis- og Badmin-
tonfélags Reykjavíkur (TBR)
við Áifheima og hefst kl.
13.30.
Aöeins er spilaöur tvíliöa-
leikur og er gert ráö fyrir aö
a.m.k. annar keppandinn sé
frá viðkomandi fyrirtæki eöa
stofnun. Ekki mega tveir
meistaraflokksmenn spila
saman nema annar þeirra sé
yfir 40 ára og sé annar aöilinn
kona, veröur hún aö vera
neðar en í ööru sæti á styrk-
leikalista BSÍ. Er þetta gert til
aö jafna getu liöanna.
Hvert liö sem tapar fyrsta
leik er sett í „heiðursflokk“ og
fær þar annað tækifæri.
Fyrirtæki og stofnanir
og/eöa fulltrúar þeirra,- sem
áhuga hafa á þátttöku, eru
beðnir um aö skrá sig sem
fyrst.