Morgunblaðið - 01.02.1984, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 01.02.1984, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 1984 41 GETA EKKI ALLIR FUNDIÐ EITTHVAD SEM ER AHUGAVERT Áhugasvið fólks eru mjög mismunandi en fjölbreytni tímarita Frjáls framtaks er svo mikil að hver og einn ætti að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Sérritin hafa að geyma margþátta upplýsingar sem hafa ekki aðeins að geyma fróðleik um líðandi stund heldur er gripið til þeirra aftur og aftur. Með því að kaupa þau og lesa fylgist fólk með á sinu sviði. BÍLLINN - bílablað Viö birtum ekki mynd af forsiðu bilablaðsins BILLINN þar sem blaðiö hefur enn ekki komið út. Það er gefið út í samvinnu við FÍB og kemur í kjölfar ÖKU-ÞÓRS sem gefinn var út um árabil. Ekki er aöeins um nafn- breytingu að ræða heldur verið fjölbreytni blaðsins aukin og reynt að tryggja að allt bílaáhugafólk fái þar lestrar-og fræðsluefni og fréttir við sitt hæfi. Kemur út sexsinnum á ári. SJÁVARFRÉTTIR Alhliða sérrit um sjávarútvegsmál og fiskvinnslu. Kemur út sex sinnum á ári. Flytur alhliða frétta- skýringar, ýmis konar fræðsluefni og upplýsingar um tækninýjungar í sjávarútvegi. Fréttir bæði inn- lendar og erlendar. Kynnir viðhorf fólksins sem starfar við þessa atvinnugrein. IÐNAÐARBLAÐIÐ Sérrit er flytur efni sem er áhugavert ekki aðeins fyrir iðnrekendur, iönaðarmenn og iðnverkafólk heldur einnig alla er áhuga hafa á að fylgjast með atvinnugreininni. Fjallað er um málefni islensks iðnaðar á breiðum vettvangi, kynntar erlendar sem innlendar tækninýjungar og fréttir af málefn- um iðnaðarins. Kemur út sex sinnum á ári. FRJÁLS VERSLUN Eitt elsta íslenska sérritið en samt síungt og fylg- ist náið með því sem er að gerast i íslensku við- skiptalifi og flytur einnig erlendar sem innlendar fréttir og upplýsingar um viðskipti og stjórnun. Blað sem tekið hefur stakkaskiptum og er ómiss- andi öllum þeim sem vel vilja fylgjast með á sviði viðskipta og verslunar. Kemur út átta sinnum á ári. íþróttablaðið .,Á eftír að bæta vtö mig’’ - i»y:r U'«t*s«n I «•*<•» Svörtu 8>dflaugarnar Jj ,,Erum i frarnför’’ ..Golfmót ársins’’ JófaskráBf Jólamatur Dansa þyrnirósum ÍÞRÓTTABLAÐIÐ Málgagn íþróttasambands íslands. Lifandi blað sem flytur skemmtilegar greinar og viðtöl við iþróttafólk og íþróttaforystumenn, fréttir úr íþróttastarfinu og skyggnist þak við tjöldin á ann- an hátt en gert er í hinum „hefðbundnu" íþrótta- fréttum. Blað sem er i takt við mikinn og vaxandi iþróttaáhuga ungra sem eldri. Kemur út sex sinn- um á ári. ABC Barnablaðið sem gefið er út i samvinnu við skáta- hreyfinguna. í blaðinu er að finna skemmtiefni og fræðsluefni við hæfi ungra lesenda en þeir eldri geta einnig haft ómælda ánægju af blaðinu. Þroskandi leikirog verðlaunaþrautir, sögur, viðtöl og myndasögur. Blað sem ekkert heimili þar sem börn eru ætti að vera án. Kemur út sex sinnum á ári. NÝTT LÍF — tískublað Tímarit sem aftur hefur náð forystu á íslenskum timaritamarkaði og er mest selda islenska tima- ritið. Líflegt blað sem flytur í senn afþreýingarefni og fræðsluefni. Blaðiö er einkar vandað, litprent- að að hluta og hvert blað er i raun og veru litil bók sem vert er að lesa og geyma. Kemur út sex sinn- um á ári. FRJÁLST FRAMTAK hf. Útgáfa tímarita og bóka, auglýsingagerð og ráðgjöf. Ármúla 18-105 Reykjavík - fsland - Sími 82300

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.