Morgunblaðið - 01.02.1984, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 01.02.1984, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 1984 45 Guðni Guðmundsson rektor Menntaskólans í Reykjavík og Guðmundur Arnlaugsson fyrrv. rektor Menntaskólans við Hamrahlíð voru meðal framsögumanna. Guðmundur Magnússon rektor Háskóla íslands ræddi í framsöguerindi sínu um þann vanda, sem skólinn ætti nú við að etja vegna sívaxandi aðsóknar. Á myndinni grillir í Gunnlaug Ástgeirsson fundarstjóra. Halldór Guðjónsson kennslustjóri Háskólans reifaði í framsöguerindi sínu tvær hugmyndir um breytt skipulag Háskólans. Tvær hugmyndir um breytt skipulag Háskólans 1) Kétt væri að stvtta nám fram að stúdentsprófi um eitt ár og nemendur kæmu að jafnaði einu ári yngri til háskólanáms. 2) Rétt væri að skipuleggja háskólanám á þann veg, að tvö fyrstu árin væru sameiginleg með stórum hópum nemenda, sem nú er skipt smærra. Er Hjalti Kristgeirsson hafði lokið máli sínu fóru fram umræður. Var víða komið við og þykir rétt að gera þeim nokkur skil. Ingólfur Þorkelsson skólameistari Fjöl- brautaskólans í Kópavogi kvaddi sér hljóðs og varpaði fram þeirri spurningu, hvort ekki hefði verið lögð of rík áherzla á hagnýtt gildi menntunar og of lítil áherzla á þroskagildi hennar. Hann lauk máli sínu með þessum orðum: „Skólarnir eiga að senda frá sér hugsandi einstaklinga, og því má sérmenntunin ekki hefjast of snemma. ... Stúdentar þurfa fyrst og fremst að hafa trausta og breiða almenna menntun, er þeir koma í háskóla, sem eflir menn til sjálfstæðra vinnubragða og viðhorfa ... Er það ekki eitt brýnasta verkefnið í fram- haldsskólum í dag að treysta burðarstoðir almennrar menntunar og styrkja stöðu ís- lenzkrar tungu, bókmennta og sögu?“ Ingvar Ásmundsson skólastjóri Iðnskól- ans lagði orð í belg og sagði m.a.: „Það er kannski ríkari ástæða núna heldur en nokkru sinni fyrr að gera framhaldsskól- ann hnitmiðaðri. Ég hygg, að mestu máli skipti að kenna almennar undirstöðu- greinar á markvissari hátt. Þar á ég við móðurmálið, stærðfræði og a.m.k. eitt er- lent tungumál ... Ég held, að það sé líka nauðsynlegt að huga að því að fækka þeim greinum, sem hver nemandi hefur í takinu í senn, í því skyni að hann nái marktækum árangri." Skólakerfiö verði í sífelldri endurskoöun Kristján Bersi ólafsson skólameistari Flensborgarskóla í Hafnarfirði ræddi þau stakkaskipti, sem framhaldsskólakerfið hefur tekið á árunum eftir 1970 og sagði m.a.: „Það hafa komið upp nýir skólar, nýj- ar skólagerðir. Nýjar aðferðir við fræðslu og skipulag skóla hafa rutt sér til rúms, og ég held, að það sé engin leið að segja annað en að heildarárangurinn hafi verið já- kvæður. Þetta hefur leitt til þess, að menntun í landinu hefur aukizt. Það hafa fleiri Islendingar en áður lært meira en þeir hafa lært áður. Hitt er svo annað mál, að ýmislegt af því, sem gert hefur verið, kann að standa til bóta. Það er verið að þróa skipulag af ýmsu tagi og það stekkur vitanlega ekki alfullkomið fram í fyrsta skipti. Það er áríðandi, að haldið verði áfram að þróa það, finna ágallana og bæta úr þeim eftir því, sem tök eru á. Viðhorf manna breytast, mat manna, hvað sé mikilvægast breytist með tímanum, og það er nauðsynlegt, að skólakerfið fylgist með þessu öllu og sé í sífelldri endurskoðun." Hörður Lárusson deildarstjóri í mennta- málaráðuneytinu tók þá til máls. Hann sagði m.a.: „Eins og nú er háttað við lok grunnskóla, geta nemendur ekki fallið á því stigi. Nemendur þurfa aðeins að ljúka grunnskólanum, og meiri kröfur eru ekki til þeirra gerðar. Mikill meirihluti nem- enda fer í framhaldsskóla. Þetta fyrir- komulag hefur leitt til þess, að nemendum hefur fjölgað verulega í framhaldsskólum. Ég lít þannig á, að þessi staðreynd sé eitt stærsta vandamálið, sem framhaldsskól- inn stendur frammi fyrir. Þetta þýðir náttúrlega, að nemendahópurinn er miklu fjölbreytilegri en áður var. Hann gerir miklu meiri kröfur til kennaranna og skólastarfsins. Þessi vandi flyzt svo áfram upp í gegnum framhaldsskólann og upp á háskólastigið." Hörður kvaðst halda, að þeir, sem stóðu að mótun og uppbyggingu fjölbrautakerfisins hefðu verið tiltölulega bjartsýnir á, að þar væri fundin lausn til þess m.a. að mæta þessum vanda. „Ég er ekki í nokkrum vafa um, að þetta kerfi er vel til þess fallið að mæta vandanum. Hins vegar virðist mér fullmikið hafa verið gert af því á undanförnum árum að slá því föstu, að þeir, sem kæmu inn í fjölbrauta- skóla, skyldu Ijúka stúdentsprófi. Þarna vantar gleggri skilgreiningu á hinum skemmri námsbrautum framhaldsskóla- stigsins, þar sem réttindi nemendanna væru skilgreind. Á þessum styttri náms- brautum yrði nám, sem nýttist nemendum í atvinnulífinu." Síðar á ráðstefnunni, þeg- ar rædd var spurningin um það, hvers kon- ar háskóla fundarmenn væru að tala um, sagði Hörður m.a., að í framhaldsskóla- frumvarpinu væri gert ráð fyrir margs konar námi á háskólastigi og ætlunin hlyti að vera sú, að ýmiss konar starfsnám, sem stundað hefur verið í framhaldsskóla, yrði stundað í sérskólum á háskólastigi, en ekki væri ástæða til að dengja því námi öllu inn í Háskóla íslands. 50% háskólastúdenta hætta eftir 1. námsár Að matarhléi loknu tók Guðmundur Magnússon háskólarektor til máls. „A árunum 1977—1982 tvöfaldast tala þeirra stúdenta, sem hefja nám við Há- skóla íslands ár hvert (úr 940 nemendum í 1832). Alls eru þetta tæp átta þúsund stúd- enta, sem hefja nám í skólanum á þessu sex ára tímabili. Sé hverjum innritunar- árgangi fylgt eftir, kemur í ljós, að um helmingur innritaðra stúdenta í hverjum árgangi hættir námi, en um helmingur hefur ýmist brautskráðst eða er enn í námi. Tvö síðustu árin er þetta hlutfall eðlilega hagstæðara, þar sem búast má við, að nokkur hluti eigi enn eftir að falla brott. Það má því segja, að af tæplega átta þúsund stúdentum, sem byrjað hafa hjá okkur á þessum árum, hafi tæplega fjögur þúsund hætt námi. Hlutfall þeirra, er hætta eftir 1. námsár, hefur farið vaxandi (33% árið 1977-1978, en 50% árið 1982—1983), en á móti þeirri aukningu kemur svo, að fleiri þeirra en áður koma aftur og tekst þá að halda áfram námi. Hlutfall þeirra nemenda, sem innritast, fara ekki í próf og hætta síðan alveg hefur heldur farið vaxandi (22% árið 1977-1978, en 27% árið 1982-1983).“ Háskólarektor fjallaði nánar um þróun mála síðustu árin og sagði m.a. um mis- mun milli kynja: „Ef brottfallshlutföll fyrir konur annars vegar og karla hins vegar eru borin saman kemur í ljós, að mismunur milli kynja er ekki verulegur þessi ár, nema innritunarárið 1978—1979. Það ár er hlutfall brottfallinna kvenna um 14% hærra en sama hlutfall hjá körlum. Hin árin er munurinn 2—4% konum í óhag.“ Guðmundur Magnússon vék síðan að mismuni milli deilda innan háskólans og sagði m.a.: „Samanburður milli deilda háskólans á brottfalli nemenda er af ýms- um ástæðum hæpinn, einkum vegna þess að líklegt má telja, að þeir nemendahópar, sem innritast í deildirnar, séu innbyrðis mismunandi. Sem almenna niðurstöðu má segja, að hlutfall nemenda, sem hætta, sé að jafnaði þessi ár lægst í guðfræðideild og læknadeild, en hæst í heimspekideild og félagsvísindadeild. Aðrar deildir fylgja „nokkuð" meðaltali brottfallinna. Ef hins vegar hlutfallsleg þróun brottfalls innan hverrar deildar er skoðuð, þá má segja, að sú þróun sé með ólíkum hætti eftir deild- um: hlutur brottfallinna hefur t.d. minnk- að í guðfræðideild, heimspekideild og fé- lagsvísindadeild, en heldur aukizt í lækna- deild." Háskólarektor bar í lok ræðu sinnar saman brottfallshlutföll hvers árgangs úr einstökum framhaldsskólum og sagði það vera almenna niðurstöðu, að stúdentar úr hinum nýju fjölbrautaskólum kæmu held- ur verr út en stúdentar úr hefðbundnum menntaskólum og Verzlunarskóla íslands. „Það ber þó að hafa í huga, að fyrrnefndu stúdentarnir eru einungis um 800 af tæp- lega 8.000 stúdentum. Brottfall fyrri ára, þ.e. 1973—1977, virðist svipað og 1978—1982. Fleiri falla nú frá í byrjun en áður. Hins vegar koma fleiri nú aftur. Ekki hefur unnizt tími til að kanna, hvað verður um nemendur, sem hætta alveg námi, og hvernig þeim nýtist sú menntun, sem þeir hafa þá aflað sér.“ Hugmyndir um breytt háskólahald Halldór Guðjónsson kennslustjóri Há- skóla Islands tók til máls á eftir háskóla- rektor. Halldór reifaði tvær hugmyndir um breytingar á háskólahaldi hérlendis. Önnur var sú, að rétt væri að stytta nám fram að stúdentsprófi um eitt ár og nem- endur kæmu því að jafnaði einu ári yngri til háskólanáms en nú tíðkast. Hin hug- myndin var sú, að rétt væri að skipuleggja háskólanám á þann veg, að tvö fyrstu árin væru sameiginleg með stórum hópum nemenda, sem nú væri skipt smærra. Hali- dór kvað megintilefni þess, að hann kynnti ráðstefnugestum þessar hugmyndir það, að hér kæmu stúdentar yfirleitt einu ári eldri í háskóla, en tíðkaðist erlendis, en fátt benti til að þeir hefðu forskot, fram yfir erlenda stúdenta. Þá væri nám í fram- haldsskólum svo margvíslegt, að samræm- ingar væri þörf síðar. I þriðja lagi kvað Halldór of marga háskólastúdenta hverfa frá námi, án þess að þeir hefðu lært nokk- uð, sem kæmi þeim til góða. I fjórða lagi gæfi skipulag háskólanáms hér litla mögu- leika á að mæta þörfum stúdentaárganga, sem enn færu vaxandi í hlutfalli við fæð- ingarárganga og teygðu sig neðar og neðar eftir stiga hæfileika. „Ég tel, að unnt væri að þjappa námi í grunn- og framhalds- skóla svo saman, að nemendur komi með sömu þekkingu einu ári yngri í Háskól- ann,“ sagði Halldór. „Þá er ekki nóg lagt á nemendur á milli 8 og 12 ára aldurs og í öðrum og þriðja bekk framhaldsskóla. Skólaárið yrði þá e.t.v. lengt lítillega, en nú þegar er orðið mjög erfitt fyrir nem- endur að fá atvinnu í skólaleyfum, sem bendir til þess, að þeir hafi tíma til frek- ara náms. Við megum ekki gleyma því, að skólarnir gegna m.a. því hlutverki að geyma mannafla, halda jafnvægi á vinnu- markaði. Menn líta gjarnan á skólann sem geymslustað fyrir fólk. Það er óþolandi fyrir skólann, þar sem hann á að gera nemendum gott.“ Halldór kvað ljóst, að aðsókn ykist að framhalds- og háskólum alls staðar í heiminum. Þetta gerðist, hvort sem stjórn- völd eða skólayfirvöld væru hlynnt því eða ekki. „Þetta eru óskir fólksins, og í lýðræð- islöndum hlýtur að verða látið undan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.