Morgunblaðið - 01.02.1984, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 01.02.1984, Blaðsíða 6
38 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 1984 AF INNLENDUM VETTVANGI HELGI BJARNASON paprika. Árið 1982 voru framleidd 600 tonn af tómötum (249 tonn 1976), 436 tonn af gúrkum (352 tonn 1976) og 60 tonn af papriku (11 tonn 1976). Ferskt grænmeti var fyrst flutt flugleiðis inn til landsins 1976, 100 tonn. Árið 1978 voru flutt inn 192 tonn, 1980 385 tonn og 530 tonn árið 1983. Neysla tómata er talin vera um 3 kg á mann en um 2,5 kg af gúrkum. Verslun með grænmeti Er breytinga þörí? Hverjir krefjast breytinga? Kröfur um breytingar koma fyrst og fremst frá neytend- um. Fulltrúar þeirra segja að nú- verandi fyrirkomulag á sölu grænmetis fullnægi kröfum neyt- enda ekki nægjanlega vel eins og þær eru orðnar í dag. Telja þeir að lækkun tolla á innflutt grænmeti og frjáls innflutningur og verslun muni stuðla að meira framboði, lægra verði og betri þjónustu. Fulltrúar heildverslunarinnar telja að núverandi fyrirkomulag Þrátt fyrir að svartasta skammdegið sé varla liðið og mikil snjóalög á jörð, standa nú „vorverkin" sem hæst hjá garðyrkjubændum landsins. Myndin var tekin á garðyrkjustöðinni Laugalandi í Borgarfirði fyrr í vikunni. Morgunbladið/HBj. Verslun með grænmeti hefur verið nokkuð til umræðu í framhaldi af almennum fundi sem nokkur félög neytenda auk Verslun- arráðs íslands boðuöu til fyrir skömmu. Á fundinum og í ályktun sem þar var samþykkt kom fram harðorð gagnrýni á núverandi sölu- fyrirkomulag grænmetis og úrbóta krafist, meðal annars að innflutning- ur og verslun með grænmeti verði gefin frjáls. Ýmsar spurningar hafa vaknað í framhaldi af þessu, meðal annars hvernig fyrirkomulagið er í dag og hvaða afleiðingar frjáls versl- un myndi hafa. Þessu er reynt að svara í eftirfarandi samantekt. Við samningu hennar var stuðst við sam- töl við ýmsa hagsmunaaðila, umræð- ur á ofangreindum fundi auk ýmissa tiltækra gagna. Grænmetisverslun hefur einkarétt til innflutnings amkvæmt núgildandi lögum um Framleiðsluráð landbún- aðarins o.fl. hefur ríkisstjórnin (landbúnaðarráðuneytið) einka- rétt á að flytja til landsins kart- öflur og nýtt grænmeti. Grænmet- isverslun landbúnaðarins, sem er fyrirtæki undir stjórn Fram- leiðsluráðs landbúnaðarins, ann- ast innflutninginn og heildsölu- dreifingu í umboði landbúnaðar- ráðuneytisins. Grænmetisverslun- in hefur aftur falið Sölufélagi garðyrkjumanna, sem er sam- vinnufélag garðyrkjubænda, að sjá um innflutning á þeim græn- metistegundum sem þar eru aðal- lega til sölu. Framleiðsluráð land- búnaðarins hefur samkvæmt lög- unum á hendi yfirumsjón sölu- mála matjurta- og gróðurhúsa- framleiðslu landsins. Framleiðsla innlendra kartöflu- og garðyrkju- bænda er að miklu leyti seld í gegnum Grænmetisverslunina, sem sér um sölu á kartöflufram- leiðslunni og meginhluta útirækt- aða grænmetisins, og Sölufélag garðyrkjumanna, sem sér um sölu gróðurhúsaframleiðslunnar og hluta útiræktaða grænmetisins. Þrátt fyrir að þessi fyrirtæki hafi einkarétt á heildsölu grænmetis samkvæmt lögum og samþykktum Framleiðsluráðs þá er talið aö um 30% af grænmetisframleiðslu landsmanna (kartöflur ekki með- taldar) sé seld utan fyrirtækj- anna, það er svoköliuð heimasala og sala einstakra framleiðenda beint til verslana. 70% tollur ollar á grænmeti eru frá 0—70% eftir tegundum. Tollur á kartöflum er 4%, 50% á lauk og 70% á öðrum helstu grænmetistegundum. Menn eru ekki sammála um hvort tollurinn sé verndartollur fyrir innlenda framleiðslu eða hvort hann sitji eftir sem arfur frá liðnum tíma sem tekjuöflun ríkissjóðs. Til sam- anburðar má geta þess að enginn tollur er lagður á helstu tegundir innfluttra ávaxta, svo sem epli, appelsínur og banana. Var tollur af þessum ávaxtategundum felld- ur niður í apríl 1975 í þeim til- gangi að lækka mikilvægar mat- vörur á móti skerðingu verðbóta á laun. Grænmetisneysla hefur stóraukist Eðiilegt er að skipta garð- ávöxtum í tvo meginflokka: Kartöflur og annað útiræktað grænmeti annars vegar og grænmeti ræktað í gróðurhúsum hins vegar. I fyrrnefnda flokknum eru gríðarlegar sveiflur í ræktun innanlands vegna ótryggra vaxt- arskilyrða hér á landi og er inn- flutningurinn því einnig mjög misjafn á milli ára. Hlutfall inn- flutnings á kartöflum til dæmis hefur á síðustu árum verið frá því að vera nánast enginn (1980) og farið upp í það að flytja þurfi meginhlua allra neyslukartaflna inn til landsins (1983). Neysla kartaflna er talin vera nálægt 50 kg á mann að meðaltali og er það minna en í flestum nágrannalönd- um okkar. Hefur neyslan hér farið minnkandi hin síðari ár á sama hátt og í nágrannalöndunum. Notkun og framleiðsla á ýmsu öðru útiræktuðu grænmeti hefur hins vegar farið vaxandi hin síðari ár. Sveiflur eru þar einnig tals- verðar og misjafnt hvað flutt er inn af því. Svo dæmi sé tekið þá eru seld hér rúm 1 þúsund tonn af hvítkáli á ári sem samsvarar með- al notkun um 4,5 kg. á mann. Árið 1982 voru flutt inn rúm 800 tonn af hvítkáli. Framleiðsla á grænmeti og ávöxtum í gróðurhúsum hefur far- ið hraðvaxandi á síðustu árum og hefur átt verulegan þátt í þeim breyttu neysluvenjum sem orðið hafa. Anna garðyrkjubændur þeirri eftirspurn sem nú er yfir hásumarið en vegna hnattstöðu landsíns geta þeir aldrei vænst þess að anna eftirspurn allt árið og er innflutningur því nauðsyn- legur. Helstu framleiðslutegund- irnar eru tómatar, gúrkur og sé skerðing á atvinnufrelsi. Þá koma hollustusjónarmið mjög við sögu. Fulltrúar neytenda segja að hátt verð og forneskjulegt fyrir- komulag á innflutningsverslun- inni standi í veginum fyrir að eðli- legum óskum neytenda um fjöl- breytt og heilsusamlegt fæði sé að þessu leyti fullnægt. Þá er sagt að þrátt fyrir að neysla grænmetis hafi stóraukist á síðustu árum sé hún ennþá allof lítil miðað við nágrannaþjóðirnar. Til breytinga þarf atbeina Alþingis lmennur fundur um verslun með grænmeti sem haldinn var fyrr í mánuðinum skoraði á stjórnvöld að gefa verslun með nýtt grænmeti frjálsa og heimila innflutning á þeim tímum sem innlend gæðaframleiðsla annar ekki eftirspurn. Breyting í þessa veru verður ekki gerð öðruvísi en með lagabreytingu, þó landbúnað- arráðuneytið og Framleiðsluráð hafi ákveðna möguleika til rýmk- unar innan ramma núgildandi laga. Verslunarráð hefur til dæm- is óskað eftir því við landbúnað- arráðuneytið að fleiri aðilum en Grænmetisversluninni verði heimilað að flytja inn grænmeti en ráðuneytið synjaði þeirri ósk. Frumvörp hafa verið flutt á Al- þingi á undanförnum þingum sem eru mjög í sama dúr og ofangreind ályktun. Menn úr Sjálfstæðis- flokki, Alþýðuflokki og Bandalagi jafnaðarmanna hafa verið flutn- ingsmenn að þessum frumvörpum en þau hafa ekki orðið útrædd. Nýjast er frumvarp fjögurra þing- manna úr Alþýðuflokki og Banda- lagi jafnaðarmanna sem flutt var á yfirstandandi þingi. Það frum- varp gerir meðal annars ráð fyrir að innflutningur kartaflna og grænmetis verði gefinn frjáls á þeim tímum sem innlend fram- leiðsla annar ekki eftirspurn og einkaréttur ríkisstjórnarinnar, sem í raun hafi verið einkaréttur Grænmetisverslunar landbúnað- arins, falli niður. Gert er ráð fyrir að viðskiptaráðuneytið stýri inn- flutningnum. Frumvarpið gerir einnig ráð fyrir að heimilt verði að viðurkenna aðra aðila en Sölufé- lag garðyrkjumanna til að annast heildsölu á innlendri matjurta- og ylræktarframleiðslu. Segir í greinargerð með frumvarpinu að sú breyting leiði af því að fleiri innflutningsaðilar muni væntan- lega koma sér upp aðstöðu til geymslu og dreifingar er hag- kvæmt kunni að vera að nýta til dreifingar á innlendri framleiðslu einnig. Þá er einnig rétt að geta þess að fulltrúar stjórnarflokk- anna vinna nú að undirbúningi endurskoðunar Framleiðsluráðs- laganna í samræmi við stjórnar- sáttmála núverandi ríkisstjórnar og hefur varaformaður Sjálfstæð- isflokksins lýst því yfir að breyt- ingar sem hér er rætt um verði teknar til afgreiðslu við þá endur- skoðun. Til að afnema tolla á inn- flutt grænmeti og rekstrar- og framleiðsluvörur garðyrkju- bænda, sem sami fundur krafðist, þarf einnig lagabreytingu. Lögin um tollflokkun, tollskrá o.fl. frá árinu 1976 eru nú í endurskoðun og er stefnt að því að leggja frum- varp þar um fram á þessu ári. Koma kröfur um niðurfellingu tolla á grænmeti væntanlega til álita við þá endurskoðun. Hver yrðu áhrifin? Ekki eru menn sammála um hvaða áhrif breytingar í þessa átt muni hafa. Þeir sem slíku eru fylgjandi telja að neysla grænmetis muni stóraukast. Talið er að þeir heildsalar sem nú flytja inn nýja ávexti, um það bil 10 að tölu, hæfu innflutning á græn- meti. Þeir þyrftu að keppa um hylli neytenda og beittu til þess auglýsingum og annarri kynning- arstarfsemi. Samkeppnin hvetti þá til hagstæðra innkaupa og fjöl- breytts framboðs. Þá er talið að frjáls innflutningur skapi sam- anburð eða óbeina samkeppni við garðyrkjubændur sem hvetti þá til aukinnar hagkvæmni og jafnvel verðlækkunar. Segja þeir sem eru fylgjandi breytingum að þeir sem nú flytji inn ávexti séu í viðskipt- um erlendis við aðila sem jafn- framt selja grænmeti, flutnings- aðferðir séu svipaðar og dreifing falli að þeirra dreifingarkerfi þar sem um sömu kaupendur sé að ræða. Gætu þessir heildsalar því bætt grænmetisinnflutningnum við sig án verulegs kostnaðarauka. Telja menn að við þetta stækki markaðurinn að mun og nefna í því sambandi innflutning og neyslu ávaxta sem sagt er að sé svipuð hér og í nágrannalöndun- um. Sem dæmi hefur verið nefnt að miðað við neyslu nágranna- þjóðanna ætti að vera markaður hér á landi fyrir 20—25 þúsund tonn af kartöflum á ári í stað 12—14 þúsund tonna undanfarin ár og 10—12 þúsund tonn af öðru grænmeti í stað 4—5 þúsund tonna sem hér eru seld á ári. Framkvæmdina hugsa þessir menn sér þannig að innflutningur yrði algerlega frjáls utan fram-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.