Morgunblaðið - 01.02.1984, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 01.02.1984, Blaðsíða 20
52 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 1984 mmmn a í Komdu pérctftur'i rám'ú!" líka? Það er vissara að ég gefi yður stíf- krampasprautu, ef hann skyldi bíta! HÖGNI HREKKVÍSI Skip skáldsins — síðbúin athugasemd vegna ritfregnar Jóhanns Hjálm- arssonar í tilefni útgáfu Ritsafns Davíðs Stefánssonar Ljóðaunnandi skrifar: „I Morgunblaðinu föstudaginn 16. desember er greinarkorn eftir Jóhann Hjálmarsson skáld. Ber það yfirskriftina Hvar eru skipin? Er þar vakin athygli á Ritsafni Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi, sem nýlega er komið út hjá Helga- felli í sjö bindum, en væntanleg eru í viðbót tvö bindi með leikrit- um skáldsins. í upphafi greinar- innar fer Jóhann lofsamlegum orðum um fyrstu bók skáldsins, Svartar fjaðrir, og segir réttilega að hún hafi á sínum tíma vakið hrifningu lesenda og skýrir síðan með fáum en velvöldum orðum hvers vegna kvæði hins unga skálds heilluðu svo hugi ljóðaunn- enda sem raun varð á, þegar bókin kom út 1919. Síðar í greininni gef- ur höfundur í skyn, að Davíð hafi daprast flugið og þreytumerkja orðið vart á skáldskap hans, þó að hann (J.H.) viðurkenni að alltaf öðru hverju hafi skáldið sent frá sér ljóð, sem jöfnuðust á við bestu ljóðin í fyrstu bókinni. Orðrétt segir J.H. svo á einum stað í grein- inni: „Það sem háði Davíð aftur á móti var að hann komst snemma í andstöðu við strauma nýrra tíma og gat ekki aðiagað sig breyting- um. Hann, þjóðskáldið sjálft, hvarf í skugga yngri manna (leturbreyt- ing mín). Viðbrögðin voru stund- um beiskjublandin um of.“ Þessi tilvitnuðu ummæli virðast mér ekki réttmæt og raunar furðulegt að þau skuli koma frá skáldi og virtum ritdómara, sem ætti öðrum fremur að geta metið skáldskap Davíðs rétt. Engum mun hafa verið fjær skapi en Dav- íð Stefánssyni að eltast við ný tískufyrirbæri í bókenntunum sér til framdráttar, enda þurfti hann ekki á slíkri uppyngingu eða vin- sældaöflun að halda. Ungur sló hann nýjan tón í íslenskri ljóða- gerð og hlaut lof og viðurkenningu alþjóðar umfram flest önnur sam- tímaskáld. Þeirri skáldfrægð hélt hann alla ævi. Hann var dáður og viðurkenndur eins og hann var, ljóð hans voru á hvers manns vör- um og hverrar nýrrar ljóðabókar frá hans hendi var beðið með eft- irvæntingu. Skáldferill hans var langur, spannaði næstum hálfa öld, og margt breytist á skemmri tíma, jafnt í bókmenntum sem á öðrum sviðum. En Davíð var til æviloka trúr þeim ljóðstíl og þeirri bókmenntastefnu, sem hann ungur hóf á loft með svo miklum glæsibrag. Þjóðlegar hefðir og þau menningarverðmæti, sem Davíð vitnaði til í ræðu um Jónas Hall- grímsson 1945 og taldi listaskáld- inu góða til gildis, voru Davíð sjálfum runnin svo í merg og bein, að honum hefur áreiðanlega aldrei komið til hugar að líkja eftir út- lendum tískustefnum í bókmennt- um eða keppa við yngri skáld í þeim efnum. Hann þurfti einfald- lega ekki á slíkri samkeppni að halda. Lof lýðsins hefur hann lík- lega látið sér í léttu rúmi liggja samanber orð hans sjálfs í kvæð- inu Ég sigli í haust, en þar segir: „Ég bið ekki lýðinn um lof/eða lárviðarkrans." Sjálfsagt hefur skáldfrægðin glatt hann og örvað hann til dáða, en hún hefur áreið- anlega aldrei stigið honum til höf- uðs eða gert hann öfundsaman í garð annarra skálda. Auðvitað breyttist skáldskapur Davíðs nokkuð, einkum hvað snerti val yrkisefna, eftir því sem Ilavíð Stefánsson frá Fagraskógi. árin liðu. Æskufuninn dvínaði og þeir eldar, sem eitt sinn brunnu hvað heitast, fölskvuðust, en íhygli og djúpir vitsmunir settu æ meira mark á ljóð hans en áður. Mörg bestu ljóð hans frá síðari hluta ævinnar standa æskuljóðum hans ekki að baki, eins og Jóhann Hjálmarsson bendir réttilega á í grein sinni. Kvæði eins og Askur- inn, Skógarhind, Við Hreindýravatn, Sorg, Segið það móður minni, Hús- móðir og mörg fleiri munu áreið- anlega verða langlíf í bókmennt- um okkar. Sú fullyrðing Jóhanns Hjálmarssonar, að Davíð hafi horfið í skugga yngri manna er vægast sagt furðuleg. Fróðlegt væri að vita hverjir þeir ungu Afreksmenn í eiturlyfjaútþurrkuninni: Hugsið fyrst — framkvæmið síðan x' VÁ ! - bAPER 5TOK 06 FEITtlR WJSKÖTTOrz! ' Inga skrifar: „Sem ekkert sérlega heimskur maður ætla ég að senda þjóðinni nokkrar línur. Ég hef heyrt að nú eigi að vinna afrek meðal okkar; það á að má eiturlyfjanotkun brott. Sumum þykir gott að vinna afrek en þeim, eins og öðrum, er hollt að hugsa áður en framkvæmt er að ég tali ekki um þegar gjörðirnar snerta fleiri en þá sjálfa. Hvers vegna segi ég það? Vegna þess að reynsla mín og annarra hefur kennt mér að ekki séu aðferðirnar sem klisjað er á sem fíkniefnalausnir, vænlegar til árangurs. Ekki einu sinni sú sem kölluð er „Stóraukin fyrir- byggjandi fræðsla í skólum lands- ins og samræmd upplýsingaherferð í fjölmiðlum". Mig langar að benda afreks- mönnum á eftirfarandi til íhugun- ar: — Frá því að ég var smávaxinn maður í barnaskóla hefur verið hamrað í mig, hversu hrikalega hættulegar sígarettureykingar eru. Mér var stillt upp frammi fyrir sýningartjaldi og sýnd teikni- myndahrollvekja um eitrið og alls- kyns áróðursleiðir hafa verið farn- ar til að sýna mér fram á afleið- ingar ósómans. Reykingum fylgja víst ónýt líffæri, mæða, krabba- mein, svefnsýki á morgnana og ég veit ekki hvað og hvað. En viti menn, þrátt fyrir alla uppfræðsl- una og hótanirnar um færri og sársaukafyllri lífdaga, reyki ég í það minnsta einn pakka af eitrinu á dag og hef fyrir víst að ekki sé ég eini stórreykingamaðurinn á Is- landi. — Nýlega átti ég tal við gutta sem sniffar (ekkert einsdæmi). Eitthvað var hann að tala um að hætta þessari vitleysu og halda sig við brennivínið. Hvað þýðir það? Það þýðir að snúa sér yfir í sjálfs- flóttaleið sem ekki aðeins er viður- kennd, heldur stunduð mikið af fyrirmyndum guttans áðurnefnda. Annað og síður merkilegt er að drengur þessi var að fræða mig á skaðlegum áhrifum sniffefna á heilastarfsemina ... sniffarinn sjálfur... Ef ég tryði því að fræðsla kæmi í veg fyrir fíkniefnaneyslu hefði ég eflaust talið sjálfri mér trú um að drengurinn væri að plata mig. En eins og ég sagði áðan er ég ekkert sérlega heimskur maður og veit því að fræðsla um eiturlyf kennir drengnum ekki að öðlast tilgang með lífinu og horfa björtum augum til framtíðarinnar. Hún kennir honum ekki að eiga góð samskipti við aðra menn. Tilvonandi afreksmönnum í eit- urlyfjaútþurrkuninni segi ég því þetta: Fræðsla og upplýsingar eru ekki slæmar en langi ykkur til að vinna að varanlegri lausn fyrir eitur- lyfjaneytendur, notið þá krafta ykkar til að kenna þeim að eiga góð samskipti. Byrjið þar og þið munuð sjá að þessir menn missa smám saman áhugann á því að svæfa sig. Manni sem öðlast varanlegan til- gang og kann að eiga góð sam- skipti, þykir vænt um þann raun- veruleika sem hann byggir upp og kærir sig ekki um að flýja frá hon- um. Sá sem íhugar af viti gerir sér grein fyrir því að þjóðfélag okkar er í dag bæði úrelt og siólaust. Hvað skyldi þá sá kallast, sem kýs að sníða svokallaða „ólánsmenn" að siðlausu kerfi? ... Svari sá sem veit. Hugsum fyrst, framkvæmum síðan. Kveðja, Inga.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.