Morgunblaðið - 04.03.1984, Side 8

Morgunblaðið - 04.03.1984, Side 8
56 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MARS 1984 „I>að var fallegt framan á Boggu minni,“ sagði gamall maður fyrir mörgum árum, og um leið brá fyrir æskuglampa í augum er hann minntist konu sinnar ungrar. Konubarm- urinn, sá hluti líkamans sem greinilegast auðkennir konu frá karli, hefur löngum vakið athygli. Listamenn allra tíma, allt frá frumstæðustu menningarskeiðum, hafa feng- ist við að móta mannslíkamann og mála, konubarmurinn hefur þar ekki verið undanskilinn, um það vitna hin fjölmörgu listaverk. Hugmynd- ir manna um fegurð hafa verið breytilegar, hugmyndir manna um fegurð sköpulags er þar ekki undantekning. I>eim breytingum er auðvelt að fylgja með því að skoða höggmyndir og málverk liðinna alda. Meðal frum- stæðra þjóðflokka hafa menn löngum óttast ófrjó- semi í hvaða mynd sem er. Fyrr töldu menn samband á milli brjóstastærðar kvenna og ; frjósemi, fegurð (og öryggi) var því falin í stórum konubarmi. Til vitnis um þessa trú er lítið líkneski frá forsögulegum tíma, sem fannst árið 1908 í þorpinu Willendorf í Austurríki. Líknesk- inu var gefið nafnið Venus frá Willendorf og er nú geymt á safni í Vínarborg. Svipaðrar tilhneigingar hefur gætt meðal hottintotta í Suður- * Afrfku og í kvennabúrum Tyrkja fram á v’ okkar tíma. Á veggmyndum og líkneskj- um Egypta frá fornri tíð er barmur kvenna ekki stór, en líkneski frá menning- arskeiðinu á Krít, frá því 1220 f.Kr., sýna stærri brjóst. S * Styttan Venus frá Willendorf er aðeins II sm há og brjóstin mjög stór eins og sjá má. Styttan er nú geymd á safni í Vín- arborg, en hún fannst árið 1908. Hinir fornu Grikkir töldu kven- lega fegurð felast í dálítið þrýstn- um barmi, þar til sanninda eru margar höggmyndir og þeirra þekktust er Venus frá Milo (eða Melos). Styttan er úr marmara og á hana vantar handleggina, hún fannst árið 1920 (á eyjunni Melos) og er nú varðveitt í Louvre-safn- inu í París. Rómverjar dáðust að konum bústnum á barm og móðurlegum á vöxt til forna. Latneska orðið mamma þýðir brjóst, þar af er dregið það nafn, sem börn kalla mæður sínar á mörgum tungumál- um: mama, mamma, mammy, maman, svo eitthvað sé nefnt. En í margar aldir máluðu og meitluðu listamenn kvenlíkama með lítil brjóst, rétt eins og hjá ungmeyjum sem eru að byrja að taka út þroska. Það er einnig eftirtektarvert, að á þeim tíma, sem konur gengu um reyrðar í lífstykki hafa listamenn- irnir málað þær naktar sem í líf- stykkjunum væru, brjóstin ofar- lega á bringunni eins og þrýst upp af áðurnefndu nærfati. Þegar kemur fram á fjórtándu öld fer tískan að hafa áhrif á háls- mál kvenklæðnaðar og þar með hve mikið af barminum mátti sjást. Á endurreisnartímanum eru konur enn málaðar eins og smá- meyjar í vexti en á sextándu öld mála t.d. málararnir Palma Vecchio og Titian konur með þroskaðri líkamsvöxt. En á sautj- ándu öld komu fram á sjónarsvið- ið málarar, sem máluðu holdmikl- ar konur, má þar nefna Rubens og aðra málara af flæmska skólan- um. Það er þó ekki fyrr en í lok nítjándu aldar og byrjun þeirrar tuttugustu, að prýði þótti af stór- um barmi, en á þeim tíma gengu konur ’í lífstykkjum sem reyrð voru að líkamanum, afmynduðu líkamsvöxtinn um leið og brjóst- unum var þrýst fram og upp. En tímabil stórra brjósta stóð ekki lengi, strax þegar kom fram á þriðja áratug aldarinnar krafðist tíðarandi og tíska þess, að konur líktust helst drengjum í vexti og væru brjóstalausar með öllu. Til „Það var fallegt framan á Boggu.. Hugað að konubarminum Texti: Iiergljót Ingólfsdóttir að gera vöxtinn flatan voru notuð belti eða lífstykki innan klæða og snið kvenfatnaðar þess tíma gerði sitt til að brjóstin sæjust sem minnst. Þegar fram á fjórða áratuginn kemur voru brjóstin smám saman tekin í sátt, ef svo má að orði kom- ast, og voru fljótt sjáanlegir eins og litlir pokar í brjóstastað á tískumyndum þeirra tíma. Að- dáun á stjórum brjóstum óx síðan og náði hámarki eftir síðari heimsstyrjöldina. Ýmsar þekktar og minnisstæðar kvikmyndastjörnur áttu ekki síst frama sinn í kvikmyndum því að þakka, að þær voru barmstórar og því taldar ímynd kynþokka og kvenlegrar fegurðar. Svo að einhverjar þeirra séu nefndar, rétt til upprifjunar, eru nöfn nokkurra birt hér, brjósta- málið fylgir, enda virðist það hafa verið hluti af persónulegum upp- lýsingum um konurnar og jafnan getið: Lana Turner Betty Grable Rita Hayworth Ava Gardner Gina Lollobrigida Jane Russel Marylyn Monroe Sophia Loren Jane Mansfield Engir smábarmar að segja! Brjóstamál 87% sm 89 sm 91% sm 91% sm 94 sm rúml. 95 sm 96% sm 99 sm 104 sm það er óhætt Síðustu áratugir Atferlisfræðingar rannsaka margt það, sem okkur mönnunum viðkemur, eins og kunnugt er. Það er ekki að efa, að einhvern tíma verður tekið til gaumgæfiiegrar athugunar hvað hefur orðið þess valdandi, að konur hafa fundið sig knúnar til að stunda sjálfspynd- ingar og beinlínis misþyrma lík- amanum, til þess eins að geta tal- ist gjaldgengar samkvæmt tísku- lögmálum. Við nútímakonurnar getum litið fram hjá lífstykkjum, gjörðum og púðum og litið okkur nær í tíma. Það er ekki langt síðan að allar konur, burt séð frá sköpulagi, tróðu sér í támjóa skó til að tolla í tískunni! En það er svo aftur af brjósta- málum að segja, að eftir að heim- urinn hafði dáð hinn stóra barm allan fimmta og fram á sjötta ára- tuginn var blaðinu allt í einu alveg snúið við. Fljótlega eftir 1960 komst breska sýningarstúlkan Twiggy á forsíður allra glæsi- og tískublaða. Twiggy var á tánings- aldri og eins og tálguð spýta í vexti, það vildu nú allir líta út eins og hún. Hárið var jafnframt klippt stutt og stúlkur litu nú nán- ast út eins og drengir eina ferðina enn. Kvikmyndaleikkonan Audrey Hepburn, sem ekki er ólík Twiggy í vexti, naut mikilla vinsælda á brjóstahaldarana, hvort þeir komu fram á sjónarsviðið eftir heimsstyrjöldina síðari (þegar all- ar vildu vera sem brjóstastærstar) eða fyrr, er ekki vitað. Tími slíkra púða er sjálfsagt liðinn, þ.e. notað- ir til fegurðarauka, en í staðinn hafa verið framleiddir brjósta- haldarar með vattstungnum skál- um til að hressa ögn upp á það sem fyrir er. Flestu er misskipt í þessum „A Foolish Virgin“, mynd eftir Martin Schongauer (15. öld). Háls- málið hefur verið mjög flegið á þess- um tíma, eins og sjá má. Mynd af málverki eftir Boucher frá miðri 18. öld. Á málverkum Rubens á 17. öld eru konurnar holdmeiri en áður tíðkaðist. Brjóstin eru þó mjög ofarlega á bringunni, eins og þeim sé ýtt upp með lífstykki. sama tíma og þótti ímynd kven- legs yndisþokka. í Bandaríkjunum tóku herskáar kvenréttindakonur að brenna brjóstahöld sín opinberlega á sjöunda áratugnum, sjálfsagt svona rétt til að leggja á það áherslu að þær stæðu jafnfætis karlmönnum á öllum sviðum, og þyrftu því ekki á slíkum sérhönn- uðum undirflíkum að halda. Það er ekki í fyrsta sinn, sem kven- fatnaður og kvenréttindabarátta tengjast, þó það verði ekki rakið hér nánar. Sá siður, sem ungar íslenskar stúlkur og konur tóku upp á tíma- bili, að leggja brjóstahaldara sína til hliðar og vera berbrjósta undir peysu eða blússu, gæti verið angi af sömu grein. Vaxtarlag breytist ekki í takt við tískustrauma eins og alkunna er, en stundum er hægt að dylja eða bæta um með klæðnaði. Það hefur því á ýmsu gengið með barm konunnar eins og annað. Til að sýnast brjóstastærri tróðu konur kiútum og tuskum inn á sig fyrr á árum. Síðar var svo farið að fram- leiða púða til að setja innan í Gömul auglýsing fyrir lífstykki frá því um aldamót. Breti nokkur líkti konum við skipsstafn á þessum tíma. heimi, og eins er það með brjósta- stærðina, sumar hafa fengið of lít- il, aðrar of stór. Við því fyrr- nefnda munu vera framkvæmdar aðgerðir erlendis þar sem „sili- kon“-kvoðu er komið fyrir í pokum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.