Morgunblaðið - 04.03.1984, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MARS 1984
„I einu orði
frábær"
Davíð Oddsson, borgarstjóri
„Þrælspennandi
Davíð Scheving Thorsteinsson
mikla aðsókn
Thor Vilhjálmsson, skáld
Tíminn ★★★★
Nýjasta kvikmynd Hrafns
Gunnlaugssonar, Hrafninn
flýgur, sem frumsýnd var á
kvikmyndahátiö Listahátíöar
kemur manni þægilega á
óvart og í huga undirritaös er
hún einfaldlega besta íslenska
myndin sem gerö hefur veriö
hérlendis og hjálpast þar flest
aö, handrit, kvikmyndataka,
sviösmynd og búningar, tón-
list og leikur ...
Þaö sem ööru fremur ber af
í myndinni er tónlistin og
kvikmyndatakan, tónlistin er
aó grunni til rammislensk,
maður kannast viö lög eins og
.Ríðum, riöum . . . en þau eru
færö í dulúólegan búning af
Hans Erik Philip og fellur tón-
listin eins vel og kostur er aö
efniviö myndarinnar. Yflr
kvikmyndatökunni er léttur
„Bergmanstíir, Hrafn notar
miklö af „nærmyndarskotum"
og bygglr myndina mikiö upp
þannig, eins og til dæmis í
upphafsatriói myndarinnar og
gefur þessi tækni myndinni
mjög sérstakt yfirbragö og
hefur á heildina litiö heppnast
vonum framar ...
Hvað leikinn varöar þá er
Flosi hreint óborganlegur í
hlutverki bragðarefsins Eiríks
sem á sér þann draum æóst-
an að hverfa frá „grjóthólman-
um“ og aftur til Noregs. Hann
er nokkurskonar víkingaút-
gáfan af sukksömum róm-
verskum keisara í útliti,
bragöarefur hiö innra sem
bregst slægöin þegar hann
þarf hennar mest. Helgi
Skúlason og Edda Björg-
vinsdóttir gera hlutverkum
sinum einnig mjög góö skil . ..
Búnlngar og sviósmynd eru
sérkapituli út af fyrir sig,
hvorttveggja frábærlega vel
leyst af hendi en myndin er aö
mestu tekln í nágrenni Víkur í
Mýrdal og spilar landslagiö og
náttúrufeguröin þar stórt hlut-
verk í henni.
Friörik Indriöason
Morgunblaöið
Hrafn Gunnlaugsson hefur
skapaö hér nýja Islendinga-
sögu og tekist þaö vel. Hrafn-
inn flýgur er tvímælalaust
jafnbesta verk þessa ódeiga
listamanns, sem ótrauöur
framkvæmir þaö sem hann
ætlar sér. Grunar mig aö þeir
sem helst vildu sjá hann falla
flatan á andlitió þurfi lengi aö
biða . . .
Hin sterka framvinda mynd-
arinnar, trúveröugt, uppskáld-
aö sögualdarumhverfi og
mannlífiö, ásamt afburöaleik
og kvikmyndatöku að
ógleymdri bestu tæknivinnu
(einkanl. hljóöupptöku) í ís-
lenskri kvikmynd til þessa,
gera Hrafninn flýgur aó einni
athyglisveröustu kvikmynd,
sem gerö hefur veriö um
þessa tíma . ..
Leikurinn er stórkostlegur,
þar er hvergi veikan blett aö
finna. Er hér, auk atvinnu-
manna, marga aö finna úr
leikhópi Hrafns.
Helgi er ógnvekjandi. Þessi
mikilúölegi leikari hálf-
drottnar yfir myndinni, túlkun
hans á þessum kuldalega og
einræna haröjaxli er minnis-
stæð. Framsögnin karlmann-
leg og með eindæmum skýr
og heillandi, aö venju . . .
Hrafn Gunnlaugsson og fé-
lagar hafa gert tímamótamynd
í íslenskri kvlkmyndasögu og
hef ég þá trú aö Hrafninn flýg-
ur eigi eftir aö fljúga hærra og
viöar en myndir okkar hafa
áður gert . . .
Sæbjörn Valdimarsson
Til allrar hamingju held ég
aö viö islendingar höfum nú
loks áttaó okkur á aö þaö er
ekki bara þorskurinn sem
blívur, þannig markar mynd
Hrafns Gunnlaugssonar Hrafn-
inn flýgur timamót i atvinnu-
sögu okkar, því þar er gullald-
arbókmenntum okkar breytt i
girnilega söluvöru sem sómir
sér á kvikmyndaveisluboröi
heimsins . . .
Það veröur aö neyta allra
bragöa viö aö koma þessari
ágætu kvikmynd á heims-
markaö því hér viö liggur ekki
aóeins heiöur arfleifóar vorr-
ar heldur lífsvon þess nýiðn-
aðar sem getur breytt okkar
hálfsiöaöa veiöimannaþjóöfé-
lagi í siömenntaö nútímasam-
félag.
Ólafur M. Jóhannaason
„Óskaplega vönduð mynd
Þorkell Sigurbjörnsson tónskáld
DV
Sjaldan eöa aldrei hef ég gengið jafnsáttur út úr kvikmyndahúsi eftir
aö hafa séö nýja íslenska kvikmynd eins og ég var eftir aö hafa séö
kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Hrafninn flýgur. Þaö er í rauninni allt
sem hjálpar til aö gera myndina aö einhverri eftirmlnnilegustu kvikmynd
sem gerö hefur veriö hér á landi. Efniö er spennandi saga um blóö-
þorsta, hefndir og tortryggni . . .
I heild er Hrafninn flýgur einstaklega vel heppnuö kvikmynd um efni
sem svo auöveldlega er hægt að klúöra og má segja aö Hrafninn flýgur
sé listflug í íslenskri kvikmyndagerö.
Hilmar Karlsson
... Þetta er ákaflega sannfærandi og heilsteypt verk, sem hefur upp
á allt aö bjóöa sem maöur vlll finna í góöri aksjónsmynd.
.. . Hrafn heldur manni hugföngnum viö efniö meö spennu, átökum
og hraðri framvindu . ..
Hrafninn flýgur var mikil manndómsraun fyrlr Hrafn Gunnlaugsson í
fleiri en einum skilningi. Slík manndómsraun aö hann lét jafnvel aö þvi
liggja aö þetta yröi sín síöasta mynd.
En þegar maöur hefur staóist manndómsraun meö slíkum ágætum
sem Hrafn gerir í þessari mynd, þá á þjóð hans þaö tilkall til hans aö
hann láti hér ekki staðar numiö.
Núna fyrst á hann aö vera aö byrja.
Björn Vignir Sigurpálsaon
sasaaaa
i’is
IiIbm ||