Morgunblaðið - 04.03.1984, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 04.03.1984, Qupperneq 32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MARS 1984 „I einu orði frábær" Davíð Oddsson, borgarstjóri „Þrælspennandi Davíð Scheving Thorsteinsson mikla aðsókn Thor Vilhjálmsson, skáld Tíminn ★★★★ Nýjasta kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Hrafninn flýgur, sem frumsýnd var á kvikmyndahátiö Listahátíöar kemur manni þægilega á óvart og í huga undirritaös er hún einfaldlega besta íslenska myndin sem gerö hefur veriö hérlendis og hjálpast þar flest aö, handrit, kvikmyndataka, sviösmynd og búningar, tón- list og leikur ... Þaö sem ööru fremur ber af í myndinni er tónlistin og kvikmyndatakan, tónlistin er aó grunni til rammislensk, maður kannast viö lög eins og .Ríðum, riöum . . . en þau eru færö í dulúólegan búning af Hans Erik Philip og fellur tón- listin eins vel og kostur er aö efniviö myndarinnar. Yflr kvikmyndatökunni er léttur „Bergmanstíir, Hrafn notar miklö af „nærmyndarskotum" og bygglr myndina mikiö upp þannig, eins og til dæmis í upphafsatriói myndarinnar og gefur þessi tækni myndinni mjög sérstakt yfirbragö og hefur á heildina litiö heppnast vonum framar ... Hvað leikinn varöar þá er Flosi hreint óborganlegur í hlutverki bragðarefsins Eiríks sem á sér þann draum æóst- an að hverfa frá „grjóthólman- um“ og aftur til Noregs. Hann er nokkurskonar víkingaút- gáfan af sukksömum róm- verskum keisara í útliti, bragöarefur hiö innra sem bregst slægöin þegar hann þarf hennar mest. Helgi Skúlason og Edda Björg- vinsdóttir gera hlutverkum sinum einnig mjög góö skil . .. Búnlngar og sviósmynd eru sérkapituli út af fyrir sig, hvorttveggja frábærlega vel leyst af hendi en myndin er aö mestu tekln í nágrenni Víkur í Mýrdal og spilar landslagiö og náttúrufeguröin þar stórt hlut- verk í henni. Friörik Indriöason Morgunblaöið Hrafn Gunnlaugsson hefur skapaö hér nýja Islendinga- sögu og tekist þaö vel. Hrafn- inn flýgur er tvímælalaust jafnbesta verk þessa ódeiga listamanns, sem ótrauöur framkvæmir þaö sem hann ætlar sér. Grunar mig aö þeir sem helst vildu sjá hann falla flatan á andlitió þurfi lengi aö biða . . . Hin sterka framvinda mynd- arinnar, trúveröugt, uppskáld- aö sögualdarumhverfi og mannlífiö, ásamt afburöaleik og kvikmyndatöku að ógleymdri bestu tæknivinnu (einkanl. hljóöupptöku) í ís- lenskri kvikmynd til þessa, gera Hrafninn flýgur aó einni athyglisveröustu kvikmynd, sem gerö hefur veriö um þessa tíma . .. Leikurinn er stórkostlegur, þar er hvergi veikan blett aö finna. Er hér, auk atvinnu- manna, marga aö finna úr leikhópi Hrafns. Helgi er ógnvekjandi. Þessi mikilúölegi leikari hálf- drottnar yfir myndinni, túlkun hans á þessum kuldalega og einræna haröjaxli er minnis- stæð. Framsögnin karlmann- leg og með eindæmum skýr og heillandi, aö venju . . . Hrafn Gunnlaugsson og fé- lagar hafa gert tímamótamynd í íslenskri kvlkmyndasögu og hef ég þá trú aö Hrafninn flýg- ur eigi eftir aö fljúga hærra og viöar en myndir okkar hafa áður gert . . . Sæbjörn Valdimarsson Til allrar hamingju held ég aö viö islendingar höfum nú loks áttaó okkur á aö þaö er ekki bara þorskurinn sem blívur, þannig markar mynd Hrafns Gunnlaugssonar Hrafn- inn flýgur timamót i atvinnu- sögu okkar, því þar er gullald- arbókmenntum okkar breytt i girnilega söluvöru sem sómir sér á kvikmyndaveisluboröi heimsins . . . Það veröur aö neyta allra bragöa viö aö koma þessari ágætu kvikmynd á heims- markaö því hér viö liggur ekki aóeins heiöur arfleifóar vorr- ar heldur lífsvon þess nýiðn- aðar sem getur breytt okkar hálfsiöaöa veiöimannaþjóöfé- lagi í siömenntaö nútímasam- félag. Ólafur M. Jóhannaason „Óskaplega vönduð mynd Þorkell Sigurbjörnsson tónskáld DV Sjaldan eöa aldrei hef ég gengið jafnsáttur út úr kvikmyndahúsi eftir aö hafa séö nýja íslenska kvikmynd eins og ég var eftir aö hafa séö kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Hrafninn flýgur. Þaö er í rauninni allt sem hjálpar til aö gera myndina aö einhverri eftirmlnnilegustu kvikmynd sem gerö hefur veriö hér á landi. Efniö er spennandi saga um blóö- þorsta, hefndir og tortryggni . . . I heild er Hrafninn flýgur einstaklega vel heppnuö kvikmynd um efni sem svo auöveldlega er hægt að klúöra og má segja aö Hrafninn flýgur sé listflug í íslenskri kvikmyndagerö. Hilmar Karlsson ... Þetta er ákaflega sannfærandi og heilsteypt verk, sem hefur upp á allt aö bjóöa sem maöur vlll finna í góöri aksjónsmynd. .. . Hrafn heldur manni hugföngnum viö efniö meö spennu, átökum og hraðri framvindu . .. Hrafninn flýgur var mikil manndómsraun fyrlr Hrafn Gunnlaugsson í fleiri en einum skilningi. Slík manndómsraun aö hann lét jafnvel aö þvi liggja aö þetta yröi sín síöasta mynd. En þegar maöur hefur staóist manndómsraun meö slíkum ágætum sem Hrafn gerir í þessari mynd, þá á þjóð hans þaö tilkall til hans aö hann láti hér ekki staðar numiö. Núna fyrst á hann aö vera aö byrja. Björn Vignir Sigurpálsaon sasaaaa i’is IiIbm ||

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.