Morgunblaðið - 04.03.1984, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 04.03.1984, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MARS 1984 71 Ragnheiður Steindórsdóttir og Egill Ólafsson í hlutverkum Söru Brown og Sk* Masterson. LjÓ8m MbL KEE. Þjóðleikhúsið: Harry hross og Louie lifrar- vör í „Gæjum og píum“ UM ÞESSAR mundir standa yfir í Þjóðleikhúsinu æfingar á banda- ríska söngleiknum „Guys and Dolls“, sem fengið hefur heitið „Gsjar og píur“ á íslenzku. Söng- leikurinn er byggður á sögu Damon Runyons. Leikstjórar eru tveir, þeir Benedikt Árnason og Kenn Oldfield frá Bretlandi, sem einnig sér um dansa. „Þetta er sterkt, kómískt, dramatískt leikrit, og með fyrstu söngleikjum sem fyrirmynd sögu- persónanna er fólk úr daglega líf- inu,“ sagði Benedikt Árnason, er við ræddum við hann á æfingu söngleiksins nú fyrir skömmu. Hljómsveitarstjóri er Terry Davies, sem einnig stjórnaði hljómsveitinni á sýningu á þessu verki í breska þjóðleikhúsinu í fyrra. Leikmynd er eftir Sigurjón Jóhannsson, en Una Collins gerir búningana. Tónlist og söngtextar eru eftir Frank Loesser. Sagan gerist um 1950 og fjallar á dramatískan hátt um líf manna í undirheimum stórborga Banda- ríkjanna, en það var eitt helsta viðfangsefni Damon Runyons. Handritið er skrifað af Jo Swerl- ing og Abe Burrows. Undirleikari á píanó er Agnes Lðwe, en hún raddþjálfar einnig leikendur og leiðbeinir þeim. Flosi ólafsson þýddi söngleikinn og hann leikur ennfremur eitt af aðalhlutverkun- um. Meðal annarra leikenda eru: Ragnhildur Steindórsdóttir, Egill ólafsson, Bessi Bjarnason, Sigurð- ur Sigurjónsson og Sigríður Þor- valdsdóttir. Alls taka tæplega 40 leikarar þátt í sýningunni. Allar persónurnar hafa eitthvert upp- nefni og koma fram mörg skrítin nöfn eins og t.d. Angí Tuddi, Næslí-Næslí Johnson, Harry hross, Louie lifrarvör og mörg fleiri. I söngleiknum eru tekin fyrir þrjú megin viðfangsefni: Róman- tísk ástarsaga, kómísk ástarsaga og saga þrjótanna, sem eru fléttuð saman í eina heild. Frumsýning er fyrirhuguð þann 6. apríl næstkomandi. Unnið af Bryndísi Jóhannes- dóttur í 9. bekk í Breiðholtsskóla og Döllu Jóhannsdóttur í 9. bekk í gagnfræðaskólanum í Mosfells- sveit, en þær voru í starfskynn- ingu á Morgunblaðinu. Bankastjórinn bragðar á hrognunum Vilhjálmur Bjarnason, útibússtjóri Útvegsbanka íslands í Vestmannaeyjum, lét sér vel líka bragðið af loðnuhrognunum, en vinnsla þeirra hófst sl. þriðjudag. Vísir menn austur í Japan telja hrognin einstakt fjörefnafóður og um leið hið mesta lostæti. Úr sparibauk Fyrsti vidskiptavinur Alþýðubankans á Akureyri, Birkir Björnsson, leggur inn 9 hundruð krónur úr sparibauk sínum. í bankabók Nýtt útibú Alþýðubank- ans var opnað fyrir skömmu á Akureyri, það fyrsta utan Reykjavíkur. Fyrsti viðskiptavinur bank- ans var mættur strax klukkan fimmtán mínútur yfir níu eða á opnunartíma, og reyndist það vera ungur sveinn, Birkir Björnsson, 9 ára gamall, sem kom með liðlega níu hundruð krónur úr sparibauknum sínum, og óskaði eftir að fá að opna sparisjóðsbók. Var honum vel fagnað af starfsfólki, sem jafnframt tilkynnti að bankinn myndi færa honum að gjöf tíu þúsund krónur, sem lagöar yrðu þegar inn á bók hans. Ólympíutertan kom greinilega skemmtilega á óvart. „Olympíu- rjómaterta" NANNA Leifsdóttir frá Akureyri, tók þátt í Ólympíuleikunum í Sarajevo á dögunum eins og marg- oft hefur komið fram. í stórsvigs- keppninni varð hún fyrir því óhappi að missa annan stafinn. En öllu má slá upp í grín og um síð- ustu helgi buðu nokkrar konur í Goðabyggðinni á Akureyri, þar sem Nanna býr ásamt foreldrum sínum, Nönnu í kaffiboð og þar var að sjálfsögðu boðið upp á „Ólympíurjómatertu" með brekku og öllu tilheyrandi og í brekkunn var skíðakona, sem búin var ai missa annan stafinn! „ólympíu tertan" var mikið leyndarmál al veg þar til bragða átti á henni o| var þundið fyrir augu Nönnu með an hún var leidd að tertunni. Ein: og sjá má kom „ólympíutertan' skemmtilega á óvart. Bundið fyrir augun á Nönnu á með- an tertan er borin fram.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.