Morgunblaðið - 04.03.1984, Blaðsíða 16
64
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MARS 1984
Allt á fullu hjá Útvarp „Stress“.
Afrakstur einnar lotu í leirmunagerð hjá yngri nemendunum.
„Krakkarnir afar jákvæð, áhugasöm og vinna vel á þemavikunni í Grunnskóla Þorlákshafnar'
Torfi Jónsson skólastjóri Myndlista-
skólans við skólaborð í Þorlákshöfn.
Þeir draga ekki styttri stráin í skólastarfinu í Þorlákshöfn.
Það sannaðist þegar árleg þemavika skólans var framkvæmd
eina viku febrúarmánaðar. Oft er gripið til fjölþætts starfs
utan hefðbundins skólastarfs í skólum landsins, en grunn-
skólinn í Þorlákshöfn sneri sér að löngu stráunum og má
segja að skólanum hafi verið breytt í eitt allsherjar verkstæði
þar sem nemendur unnu af miklu kappi bæði sjálfstætt og í
samvinnu við kennara að hinum ólíkustu verkefnum, sem þó
voru tengd viðfangsefni þessa vetrar, listinni. Þetta er þriðja
árið í grunnskóla Þorlákshafnar sem starfsvika er fram-
kvæmd á þennan hátt eða þemavika og er það nú orðinn
fastur liður í starfi skólans og er með eindæmum vinsælt
meðal nemenda að sögn Bjarna Eiríks Sigurðssonar skóla-
stjóra. Morgunblaðið fylgdist með starfi nemenda og kenn-
ara og gesta sem sóttu skólann heim frá öðrum byggðarlög-
um.
spennandi að takast á við þetta
verkefni og segja má að þetta sé
eins og liður í æfingakennslunni
sem við höfum einmitt verið í um
þessar mundir.
Það verður forvitnilegt að sjá
árangurinn, svo mikið er víst að
krakkarnir eru afar jákvæðir,
áhugasamir og vinna vel. Ef vel
tekst til, mætti vel hugsa sér
framhald á svona samvinnu milli
skólanna."
„Skemmtilegt og árang-
ursríkt skólastarf
í senn“
Björg Ólínudóttir og Gunnar
Randversson, nemendur Tónlist-
arskólans, töldu að fyrirkomulagið
á starfi þemavikunnar hlyti að
vera kærkomið fyrir nemendur
skólans og kennara einnig, enda
sýndu krakkarnir feiknamikinn
áhuga. Hins vegar töldu þau að
það stæði skólanum nokkuð fyrir
þrifum hve þröngt væri um starf-
semi skólans, jafnvel kennt á
göngum, en full ástæða væri til
þess að óska nemendum og kenn-
urum skólans til hamingju með
þemavikuna í von um áframhald á
slíku starfi. „Það er gaman að sjá
að skólastarfið getur verið svona
skemmtilegt og árangursríkt í
senn,“ sögðu þau.
Fjölþætt samvinna
gesta og heimamanna
Fyrsta dag vikunnar kom 27
manna hópur frá Myndlista- og
handíðaskólanum í heimsókn, fólk
úr öllum deildum skólans og þess-
ir góðu gestir unnu með nemend-
um grunnskólans daglangt, fólk úr
myndlistardeild vann að vegg-
skreytingum með nemendum í
skólanum, félagsheimilinu og á
fleiri stöðum, fólk úr auglýsinga-
deild vann með nemendum við
dagblaðið Snáp og skólablaðið Ell-
iða, fólk úr textildeild vann að
skreytingum á leiktjöldum, fólk úr
leir- og myndmótun kenndi dúk-
ristur, grímugerð fyrir yngsu
börnin úr pappamassa og fyrir
eldri börnin úr gipsi.
Annan dag þemavikunnar kom
35 manna hópur frá Flataskóla í
Garðabæ í heimsókn, barnakór
skólans ásamt tveimur kennurum.
Sá dagur var einn allsherjar tón-
listardagur eins og gefur að skilja.
Á dagskrá var samsöngur, hreyf-
ing og málun eftir tónlist, ýmsir
söngleikir og í hádegi var hádegis-
verður í boði Þorlákshafnar en
nemendur í matargerðarlist sáu
um matseld.
Alla vikuna störfuðu fastir hóp-
ar við ákveðin verkefni. Út-
varpsstöð um kapal var rekin inn-
an skólans, en hvorki Ríkisútvarp-
ið né Póstur og sími eiga nú senda
sem allir skólar ættu að geta feng-
ið leigða í sérstök verkefni sem
þessi. Útvarpið hófst kl. 8 með
morgunbæn, en síðan voru ýmist
fréttir eða tónlist á dagskránni.
Dagblaðið Snápur kom út á
hverjum degi og var stærsta blað-
ið alls 10 síður. Þá vann sérstakur
hópur við skólablaðið Elliða, en sá
Skólakór grunnskólans í Þorlákshöfn ásamt söngstjóranum, Hilmari Erni
Agnarssyni. Leiktjöldin á bak við voru unnin af „textílhópnum“.
Það er ekki setið auðum höndum á starfsviku grunnskóla Þorlákshafnar.
nám, 9 ára settu upp Síðasta
blómið í söngleik og 8 ára og 7 ára
tóku hliðstæð verkefni fyrir, m.a.
söngleikinn Bene.
„Mjög ánægjuleg til-
raun í fyrsta sinn“
„Hér er um mjög ánægjulega
tilraun að ræða sem verið er að
gera í fyrsta sinn,“ sagði Edda
Oskarsdóttir yfirkennari kennara-
deildar Myndlista- og handíða-
skólans um ferð þeirra til Þorláks-
hafnar. „Kennaradeildin og nem-
endur úr flestum deildum MHÍ
vinna með nemendum grunnskól-
ans í Þorlákshöfn að allskonar
myndgerð, leirvinnu, textil, grafik,
grímugerð og veggmálun. Tíminn
er því miður mjög stuttur, aðeins
einn dagur og yngstu nemendurn-
ir eru aðeins hálfan daginn, svo
það er mjög takmarkað sem hægt
er að gera, en segja má að hálfnað
sé verk þá hafið er og áhuginn er
mikill.
f fæstum skólum utan Stór-
Reykjavíkursvæðisins eru sér-
menntaðir myndmenntakennarar
og ef til vill getur svona dagur
orðið eftirminnilegur í hugum
nemenda og breytt hugmyndum
þeirra og glöggvað skilning á
myndlist.
Nemendur í MHÍ tóku þessari
hugmynd afar vel og fannst
hópur byggði starf sitt á frjóum
hugmyndum úr samstarfinu með
auglýsingadeild Myndlista- og
handíðaskólans. Myndlistarhópur
starfaði alla vikuna og sérstakur
smíðahópur sem m.a. smíðaði
skórekka, blómaker, hillur og
fleira fyrir skólann. Ljósmynda-
hópur starfaði, einn hópur var í
matargerðarlist og sá m.a. um
fæði fyrir gesti auk þess að reka
verslun með Svala, ostabakka,
kjötrétti og pylsur. Þá sinntu 10
ára nemendur verkefninu land-
Bladamcnn Snáps voni ávallt nálæg-
ir þegar eitthvað var á seyði.
Þeir draga ekki styttri
stráin í Þorlákshöfn