Morgunblaðið - 04.03.1984, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.03.1984, Blaðsíða 12
60 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MARS 1984 ASeyðisfirði, þar sem ég ólst upp, var bolludagurinn jafnan kallaður flengingardagur. Börnin í bænum fögnuðu honum mjög. Þau söfnuðust saman kl. 6 að morgni með bolluvendi, sem alltaf voru heimatilbúnir. Síðan var farið fylktu liði í þau hús, sem vitað var að væru opin. Húsráð- endur vissu hvers þeir áttu von, opnuðu húsin, fóru aftur upp í og biðu gestanna. Stúlkur flengdu karlmenn en drengir konur. Mæður fóru yfirleitt á fætur með börnum sínum og hjálpuðu þeim að ferðbúast, en ekki minnist ég þess að þau hafi verið í sérstökum búningum. Síðan skriðu mæðurnar aftur undir sæng. Börnin ruddust inn í húsin, slógu ofan á sængina með bolluvendinum og sögðu „bolla, bolla". Þau áttu að fá jafnmargar bollur og höggin urðu. Síðari hluta dagsins um kaffileytið var svo gengið í sömu hús og bollurnar sóttar. Sums staðar var börnunum búin veisla. Einn kaupmaður gaf okkur alltaf sælgæti. Þegar heim var komið var mikið rætt um hver hefði borðað flestar bollur. Mér er minnisstætt eitt sinn að við systkinin vorum eitthvað sein að komast af stað að einn kunningi foreldra minna hringdi í þau og sagði: „Ætlarðu ekki að fara að senda börnin af stað, ég er orðinn leiður á að liggja í rúminu." Líklega hefur þessi siður borist til Seyðisfjarðar með Norðmönnum. Þessi skemmtun lagðist niður á stríðsárunum enda varla ráðlegt að senda börn ein út í myrkrið við þær aðstæður. Hér koma þrjár uppskriftir af bolludagsbollum. Að- ferðin við nr. I og II er hin sama, en sú þriðja er svolítið frábrugðin. Aðferð við bollur I og II: 1. Hitið vökvann í 37°C. Þið getið fundið hitastigið með því að stinga litlafingri ofan í hann. Ef hvorki finnst hiti né kuldi er hann mátulega heitur. 2. Setjið vökvann í hrærivélarskál, myljið gerið út í ef þið notið pressuger, en stráið yfir, ef þið notið þurr- ger. Látið bíða í 5 mínútur. 3. Skerið mjúkt smjörlíkið í bita og hrærið út í ásamt eggjum. 4. Blandið saman þurrefnum og bætið út í. Hrærið þar til deigið er samfellt, þykkt og glansandi. Það þarf að vera það þykkt að það aflagist ekki, þegar það er sett á bökunarplötuna. Bætið hveiti í ef með þarf. 5. Mótið bollur með tveimur skeiðum og setjið á smurða bökunarplötu. 6. Leggið plastþynnu yfir bollurnar og látið lyfta sér á volgum stað í 15—20 mínútur. Þá ættu þær að hafa stækkað um helming. 7. Hitið bakaraofninn í 225°C og bakið bollurnar í miðj- um ofninum í 10—15 mínútur. Bollur I (rjómabollur) 25 stk. 400 gr. hveiti 200 gr. mjúkt smjörlíki 2 egg 2 msk. sykur 100 gr. pressuger eða 2 pakkar þurrger 3 dl volgt vatn Þegar bollurnar eru bakaðar, eru þær kældar örlítið og skornar í sundur með brauðsög. Sem fylling í bollurnar er notuð sulta, ís eða búðingur úr pökkum og þeyttur rjómi. Ofan á bollurnar er sett brætt súkkulaði eða flórsyk- ur og kakó hrært út með heitu vatni eða flórsykur sem sigtaður er yfir. Bollur II (rúsínubollur) 25 stk. 300 gr. hveiti 50 gr. heilhveiti 50 gr. hveitiklíð xk dós kotasæla 2 tsk. púðursykur V* tsk. kardimommuduft eða -dropar 'A tsk. negull 1 dl. súrmjólk 2'h dl maltöl 75 gr. pressuger eða 1 Vz pk. þurrger 150 gr. mjúkt smjörlíki 1 dl. rúsínur súkkat ef ykkur sýnist svo 1 msk. sesamfræ til að strá ofan á Bollur III (steiktar úr feiti) 30—35 stk. 500 gr. hveiti 60 gr. brætt smjörlíki 60 gr. sykur Vz tsk. salt 2 egg 50 gr. pressuger eða 1 pakki þurrger 2 dl volg mjólk rabarbarasulta 1 pk. palmín (plöntufeiti) 1. Hitið mjólkina í 37°C. Hrærið eggin og pressugerið út í. Ef þið notið þurrger er því stráð yfir og látið bíða í 5 mínútur. 2. Blandið saman þurrefnum og hrærið út í vökvann með sleif. Hnoðið ekkert. 3. Setjið volgt vatn í eldhúsvaskinn, 30°C, setjið skálina í vatnið. Látið lyfta sér þar til deigið hefur stækkað um helming. 4. Fletjið út með kökukerfli 1 sm þykkt, skerið síðan í ferninga 5 sm á kant. Setjið Vz tsk. af sultu á hvern ferning. Brjótið saman horn í horn. Reynið að loka bollunum vel og hafa þær vel kringlóttar. 5. Hitið feitina og steikið bollurnar í 4—5 mínútur. 6. Sigtið flórsykur yfir bollurnar. Hraðlestrar- námskeið • Vissir þú, að þú getur margfald- að lestrarhraða þinn á nám- skeiði Hraðlestrarskólans? • Vissir þú, að vegna lítils lestr- arhraða ná margir nemendur í framhaldsskólum aldrei tilætl- uðum og verðskulduðum náms- árangri? • Vissir þú. að þeir sem vinna hratt og skipulega ná mun betri árangri í námi og vinnu en aðr- ir? • Vissir þú, að þú lærir ekki ein- ungis að auka lestrarhraða þinn á námskeiði Hraðlestrarskól- ans heldur lærir þú einnig námstækni? • Taktu nú hlutina fiistum tökum og skelltu þér á næsta hrað- lcstrarnámskeið sem hefst 13. mars nk. • Skráning í kvöld og næstu kvöld kl. 20.00—22.00 í síma 16258. Leiðbeinandi Olafur H. Johnson, viðskiptafræðingur. Hraðlestrarskólinn JUtogtsiiMftfeft MetsöluNad á hvcrjwn degi! Gram Tæpper Teflonhúö Afrafmagnaö Poliamid Ullarteppi Greiösluskilmálar Stuttur afgr.tími Komið og skoöiö VARERMCTA T#y . uram V Tæpper Teppaverzlun Friörik Bertelsen h.f., Síðumúla 23, R. Sími: 86266. SENDUM GEGN PÓSTKRÖFU VALHÚSGÖGN ÁRMÚLA 4. SÍMI 82275. Stflhrein og ódýr sófasett Áklæði í 5 litum. Verö kr. 14.100. Kjör sem allir ráða viö. ___ _________

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.