Morgunblaðið - 07.03.1984, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 1984
49
sóknamanna eða umráðafé þeirra.
Þar ræður hæfni einstakra starfs-
manna oft mestu. Við verðum þess
vegna að leitast við að laða til
starfa á íslandi hina beztu menn,
sem völ er á, en á því kann að hafa
verið misbrestur. Oft getur líka
verið skynsamlegra að tryggja
tveimur mönnum góða rannsókna-
aðstöðu en tíu mönnum lélega.
Verkefnaval
Um verkefnaval í rannsóknum
verða menn seint á eitt sáttir.
Nokkrar ályktanir má þó draga af
höfuðreglunni að framan.
í fyrsta lagi eigum við ekki að
stunda rannsóknir á sviðum þar
sem óhugsandi er, að við getum
komið okkur upp jafngóðri að-
stöðu og mannafla og gerist við
sambærilegar rannsóknir annars
staðar.
f öðru lagi eigum við að gera
nytjarannsóknir í þágu atvinnu-
lífsins, þegar það er ódýrara eða
betra en erlend tækni.
í þriðja lagi er almennt talið
æskilegt að rannsaka í þeim grein-
um mannlegra fræða, er lúta að
íslenzkri menningararfleifð. Á
þessu sviði er líklegt, að við getum
náð betri árangri en útlendingar
af ástæðum, sem eru næsta aug-
ljósar.
í fjórða lagi er því oft haldið
fram, að við eigum að rannsaka
íslenzk náttúrufyrirbæri: Heiða-
gæsina, höfuðlag Þingeyinga o.þ.h.
Það er ofur eðlilegt, að við höfum
áhuga á slíku, en ég sé enga
ástæðu að ætla, að við náum nauð-
synlega betri árangri á þessu sviði
en útlendingar, ef þeir einbeita sér
að því á annað borð. í séríslenzk-
um rannsóknum held ég einmitt,
að æskilegt sé að leita samvinnu
utanlands, því að með því móti
kann að vera auðvelt að fá erlent
fé til rannsókna.
í fimmta lagi er sennilegt, að ná
megi góðum árangri við rannsókn-
ir á þeim fræðasviðum, sem eru
fjölmenn í landinu, t.d. greinar
eins og jarðfræði og læknisfræði.
í sjötta og síðasta lagi má búast
við frambærilegum árangri við
rannsóknir sem kosta lítið eða
ekkert annað en kaup þeirra, sem
að þeim vinna, og krefjast ekki að-
stoðarmanna eða tækja. Dæmi um
slíkar greinar eru guðfræði, heim-
speki og stærðfræði.
Ég hef nú nefnt ýmis fræðasvið,
sem við ættum að geta náð góðum
árangri á og höfum reyndar þegar
gert í sumum tilvikum. Ég tel hins
vegar, að ekki verði með neinni
skynsemi gert upp á milli rann-
sókna á ólíkum sviðum, t.d. jarð-
fræði og guðfræði. Þar ræðst val
manna af smekk og fordómum. Þó
ber að hafa í huga, að nýliðar í
rannsóknastarfi verða að fá að
spreyta sig. Helzt má verkefnaval
okkar ekki verða svo einstreng-
ingslegt, að við útilokum marga
frá því að koma hingað til lands að
loknu námi og vinna á sínu sviði.
Við ættum að halda okkur frá
þeim rannsóknum, sem eru í mik-
illi tízku 1 útlöndum á hverjum
tíma. í slíkum fögum getur verið
erfitt að fylgjast með, einkum
þégar tímaritakostur er lakur, og
enginn má við margnum. Okkur
henta betur seig og erfið rann-
sóknaverkefni, sem við getum gert
okkur vonir um að leysa með
hugviti og þrautseigju á löngum
tíma.
Niðurlag
Ekkert einfalt svar er til við
spurningunni í fyrirsögn þessarar
greinar. Það er engin ein tegund
rannsókna, sem augljóst er, að
stunda beri umfram aðrar. En hitt
er sýnt, að lífskjör hérlendis verða
tæpast bætt að marki nema með
rannsóknum í þágu atvinnulifsins
og slíkar rannsóknir verða að hafa
grunnrannsóknir að bakhjarli. Við
megum ekki vænta skjótfengins
árangurs af öllu rannsóknastarfi,
en það mun áður en yfir lýkur
skila þjóðinni margföldum arði og
efla menningu hennar.
1‘órdur Jónsson er edlisfræöingur
og vinnur í Kaunvísindastofnun
Hiskólans.
Hjólunum var
öllum stolið
ÖKUMAÐUR amerískrar fólks-
bifreiðar varð að skilja eftir bil-
aða bifreið sína á þjóðveginum til
Grindavíkur fyrir skömmu. Hon-
um brá í brún þegar hann hugðist
sækja eign sína daginn eftir —
einu hjóli hafði verið stolið. Hann
varð því að snúa aftur og útvega
sér nýtt hjól undir bílinn. Þegar
hann kom að kvöldi var búið að
stela öllum hjólunum og ekki nóg
með það — útvarp, segulband og
hátölarar höfði verið tekin og
stýrishjólið.
Skammt frá var önnur bifreið,
sem skilin hafði verið eftir. Þrem-
ur hjólum hafði verið stolið undan
henni.
Morgunblaðið/Guðfinnur.
Grípiö tækifærið!
Þér getiö sparaö hundruð — jafnvel þúsundir króna á stærstu gólfteppaútsölu á íslandi. Alvöru afsláttur á bestu og
vinsælustu gólfteppunum á markaönum í dag. Þeir spara sem leggja leiö sína í Teppaland næstu daga. Kjörorö okkar er.
- Gæðateppi á góðu verði
— eins og þessi dæmi sanna:
Nr. 5 — Á stiga og skrifstofur
Frábærlega slitsterk — lykkjuofin
nylon-teppi — afrafmögnuð 600
gr./fm. af 100% polymid. Þessi
henta allsstaðar — sérstaklega i mikla
„trafik". Pr. fm. 519.
-449
Nr. 6 — Luxus á stofur og hol
Silkimjúk kanadísk-ensk og sænsk
teppi með hárri og lágri áferð.
800—1300 gr./fm. 100% heat set poly-
mid. Margir fallegir litir. Pr. fm. 799.
20%—50% afsláttur
Vinsamlegast takið með ykkur málin af gólffletinum —
það flýtir afgreiðslu.
GÓÐIR
GREIÐSLUSKILMÁLAR!!!
Nr. 4 — Á stofu og hol
í 4 metra breiöum rúllum, fallega lát-
laus Berber-teppi úr 100% ull, lykkju-
ofin. 700 gr./fm. af garni. Litur: beige
m/brúnum yrjum. Pr. fm. 499.
«429
Nr. 1 — Dallas-, Berber-teppi
Parktísk og slitsterk teppi á hverskon-
ar herbergi, 650 gr./fm — 100% poly-
mid í ca. 400 cm breiöum rúllum. Litur:
beige/brúnt. Pr. fm. 399.
Nr. 7 — Flókateppi á bílinn
— bátinn og 7777
Frábær, sígild, endingargóö flóka-
teppi á alla fleti, fáanleg á svampbotni
og án svampbotns.
Tilboösverö:
Teppaafgangar — stór og lítil stykki — bútar!!!
Nr. 8 — Kókosteppi
A pr. fm. 469. Nll 399.
B pr. fm. 699. Nu 599.
Nr.9
— Vinyltilboð
(dúkur + korkur) 139.
m/pappabotni pr. fm
m/svampbotni pr. fm. 199.
m/stungnum botni pr. fm. 299.
2,9 mm korkflísar pr. fm. 639.
3,3 mm korkflísar pr. fm. 739.
4,0 mm náttur kork pr. fm. 389.
4,0 mm náttur lakkaö
kork pr. fm. 519.
loltaland-M.
bær fóstra fyrir yngri kynslóöina með-
an foreldrarnir skoöa úrvalið.
Viö önnumst líka máltöku,
sníöslu og lögn fyrir þá sem þess
óska eftir nánara samkomulagi.
Nr. 2 — Á svefnherbergiö
Einstaklega mjúk og hlýleg rýjateppi
— 100% danaklon meö 800 gr./fm af
garni. Breidd ca. 400 cm, sterkur
botn. Litur teppis: beige, pr. fm. 539.
Nr. 3 — Á forstofuna
i 400 cm breidd — snögg lykkjuofin
nylonteppi — yrjótt og hentug á
ganga og forstofur. Litir: beige, brúnt,
rautt, blátt. Pr. fm. 299.
Storkostlegt urval af mottum, dreglum, renningum og stökum
teppum með góðum afslætti meðan utsalan stendur.