Morgunblaðið - 08.03.1984, Page 1
48 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
STOFNAÐ 1913
56. tbl. 71. árg._____________________________________FIMMTUDAGUR 8. MARZ 1984_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Beirúl, 7. mars. AP.
HAFEZ Assad, forseti Svrlands,
kvaðst í dag mundu gera allt, sem í
hans valdi stendur, til að koma á friði
í Líbanon eftir níu ára ófrið í landinu.
ísraeiar ætla ekki að flytja herlið sitt
á brott frá Suður-Líbanon í bráð og
bera við öryggisástæðum.
Beirút-útvarpið hafði það í dag
eftir Hafez Assad, forseta Sýr-
lands, að hann myndi gera allt, sem
hann gæti, til að koma á friði í
Líbanon og kvað hann nóg komið af
mannvígum í landinu. Saudi-
Arabar hafa haft náið samband við
Assad að undanförnu og í dag
reyndu fulltrúar þeirra að koma á
vopnahléi milli stríðandi fylkinga í
Líbanon en það er nauðsynleg for-
senda fyrir einhverjum árangri af
viðræðunum um þjóðarsátt, sem
hefjast í Sviss í næstu viku.
Berri, leiðtogi shíta, og Jumblatt,
leiðtogi drúsa, munu standa saman
að tillögum í viðræðunum og er í
þeim gert ráð fyrir, að auk núver-
andi þings verði kosið til öldunga-
deildar, sem skipuð verði að jöfnu
fulltrúum sex helstu trúflokkanna í
landinu, þriggja kristinna og
þriggja múhameðstrúar. Forsetinn
verði síðan kosinn af sameinuðu
þingi til þriggja ára. Gemayel, for-
seti, mun einnig vera tilbúinn með
sínar tillögur og vill í þeim færa
valdið út til héraða og sveitar-
stjórna og að allir hafi jafnan rétt
í kosningum og í stöðuveitingum
hjá ríki og her.
Moshe Levy, hershöfðingi og for-
seti ísraelska herráðsins, sagði í
dag, að ísraelar myndu ekki flytja
herlið sitt á brott frá Suður-Líban-
on á næstunni vegna öryggis-
ástæðna. Sagði ísraelska útvarpið
frá þessu og hafði eftir honum að
loknum fundi í utanríkis- og örygg-
ismálanefnd þingsins.
Sænskir hermenn með alvæpni fylgjast jafnvel með farþegum í strætisvögn-
um.
Flugræningi yfirbugadur
Alsírbúi, sem stundaði nám í Vestur-Berlín, rændi í gær franskri
farþegaflugvél, sem var á leið frá Frankfurt til Parísar. Neyddi hann
flugmennina til að lenda í Genf I Sviss en þaðan vildi hann, að farið
yrði til Líbýu. Eftir samningaviðræður við svissneska embættismenn
leyfði hann sjö farþegum að fara frá borði og einnig, að fólkinu yrði
fluttur matur. Það önnuðust dulbúnir lögreglumenn og tókst þeim að
yfirbuga manninn fyrirhafnarlítið. Hann hafði sagst vera með
sprengju í handtösku en í ljós kom að í henni var aðeins einn hnífur.
Maðurinn er nú í vörslu svissnesku lögreglunnar.
Kafbátaleitin við Karlskrona mánaðargömul:
Ástandið eins og
á styrjaldartímum
Stokkhólmi, 7. mars. Frá Olle Kkström, fréttaritara Mbl.
Sprengjuhleðslur voru sprengdar í
nótt í sjónum við Karlskrona og skot-
írakar fara fram
á fiind Arabaríkia
Nikósín, 7. mars. AP.
ÍKAKAK kröfðust í dag sérstaks
fundar utanríkisráðherra Arabaríkj-
anna til að ræða styrjöldina við írani.
Víða var barist í dag og höfðu hvorir
tveggja betur að eigin sögn. frakar
segjast hafa fellt 50.000 íranska her-
menn frá 22. febrúar sl.
Tarek Aziz, utanríkisráðherra ír-
aks, fór í dag fram á það við Chadli
Klibi, aðalritara Arababandalags-
ins, að efnt yrði til sérstaks fundar
utanríkisráðherra Arabaríkjanna
til að ræða „þá alvarlegu hættu,
sem öllum Arabaríkjunum stafar af
vaxandi yfirgangs- og árásarstefnu
írana“. Klibi er nú í Bagdað og kom
þangað eftir viðræður við ráða-
menn í olíuríkjunum við Persaflóa.
Mega menn þar ekki til þess hugsa,
að Iranir beri hærri hlut I styrjöld-
inni.
Að sögn íraka gerðu fallbyssu-
þyrlur þeirra 177 einstakar árásir á
óvininn í dag og sökktu 11 skipum
eða bátum. Segjast þeir hafa fellt
50.000 íranska hermenn frá því að
íranir hófu nýja stórsókn 22. febrú-
ar sl. franir segjast aftur á móti
hafa hrundið öllum tilraunum fr-
aka til að ná aftur á sitt vald
Majnoon-eyju, sem franir hertóku
fyrir nokkru, en þar er talið mjög
olíuauðugt.
Nú hefur verið staðfest, að lest 15
skipa hafi orðið fyrir árás íraskra
orrustuvéla á föstudegi í fyrri viku.
Indverskt flutningaskip sökk eftir
árásina og annað tyrkneskt er talið
ónýtt. Tveir tyrkneskir sjómenn
féllu. Tryggingagjöld af skipum,
sem sigla á þessum slóðum, hafa af
þessum sökum verið tvöfölduð.
ið með vélbyssum á hugsanlegar und-
ankomuleiðir froskmanna. Leitin að
ókunna kafbátnum hefur nú staðið í
tæpan mánuð og er jafn áköf sem
fyrr. Ástandið í Karlskrona og ná-
grenni er nú líkast því sem er í her-
setnum bæ á stríðstímum.
1 nótt er leið sprengdi sænski
sjóherinn nokkrar sprengjuhleðsl-
ur í sjónum við Karlskrona og
einnig var skotið af vélbyssum og
handsprengjum varpað við eyna
Almö þegar hermenn urðu þar ein-
hvers varir. Viðbúnaður sænska
hersins og aðgerðir eru miklu meiri
á nóttunni, enda er talið líklegra,
að froskmenn reyni undankomu á
þeim tíma.
Ástandið í Karlskrona er nú lík-
ast því, sem er á stríðstímum. Her-
menn með alvæpni eru á hverju
strái og íbúar á eyjunum í skerja-
garðinum verða að sýna skilríki til
að komast heim eða heiman. Eftir-
lit er haft með öllum ferðum
manna í nágrenni við flotastöðina
og jafnvel fylgst með farþegum í
strætisvögnum.
Sovétmaðurinn Shevsjenko, fyrr-
um aðstoðarframkvæmdastjóri hjá
SÞ, hefur skýrt frá því, að gerðir
hafi verið uppdrættir að norskum
og sænskum fjörðum og hyggist
Sovétmenn koma þar fyrir kafbát-
um, búnum kjarnorkueldflaugum,
ef til styrjaldar komi. Telja Sov-
étmenn, að þar með eigi þeir að
vera óhultir fyrir vestrænum
kjarnorkusprengjum.
Sjá ennfremur á bls. 18.
Chernenko náði glæsilegu kjöri
í kosningum til Æðsta ráðsins
Moskvu, 7. mars. AP.
KONSTANTIN Chernenko,
leiðtogi Sovétríkjanna, náði
kjöri í kosningunum á dög-
unum og hefur nú fengið í
hendurnar kjörbréf sem fé-
lagi í Æðsta ráðinu. Sagði
Tass-fréttastofan sovéska frá
þessu í dag.
Chernenko var I fram-
boði í Kuibyshevsky-
kjördæmi í Moskvu og var
hann einn um hituna. í
kosningunum, sem fram
fóru sl. sunnudag, voru
kjörnir 1499 fulltrúar í báð-
ar deildir þingsins en í einu
kjördæmi varð að fresta
kosningunum þvi að fram-
bjóðandinn dó á síðustu
stundu. Kosningaþátttakan
var 100% eða því sem næst.
Tass-fréttastofan segir,
að Chernenko hafi þakkað
kjósendum sínum „hrærð-
um huga og af hjartans
einlægni“ fyrir það traust,
sem þeir sýndu honum með
Konstantin Chernenko.
því að velja hann þingmann
sinn. „Konstantin Chern-
enko hét því, að sem þing-
maður myndi hann láta
einskis ófreistað til að vera
traustsins verður og þjóna
af trúmennsku flokknum,
fólkinu og hugsjónum
kommúnismans,“ sagði
Tass.
Það hefur vakið nokkra
athygli, að Chernenko og
átta aðrir frammámenn í
stjórnmálaráðinu voru
viðstaddir sýningu í
Bolshoi-leikhúsinu á al-
þjóðlega kvennadeginum.
Voru Chernenko gerð góð
skil í sjónvarpinu og er það
í þriðja sinn síðan hann var
valinn eftirmaður Andro-
povs. Þykir það benda til,
að eftirleiðis muni honum
verða mikið hampað sem
leiðtoga opinberlega ólíkt
því, sem var með Andropov,
sem sjaldan var sýndur.
Auknar horfur
á friði í Líbanon