Morgunblaðið - 08.03.1984, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MARZ 1984
7
Innilegar þakkir til allra þeirra sem heimsóttu mig og
sendu mér skeyti, blóm og gjafir á 80 ára afmæli mínu
23. febrúar sl.
Sérstakar þakkir til bama minna, bamabama, tengda-
bama og barnabamabama fyrir einstaka umhyggju nú
og alla tíd.
LifiðheiL
Lorenz Halldorsson.
Veriö
velkomin.'
opavogsbúár
athugið!
Við bjóðum alla almenna hársnyrtingu svo sem:
Permanent, klippingu, lagningu, hárþvott, litun,
tástur, strípur, skol, djúpnæringu o.s.frv.
Opið fra kl. 9—18 á virkum dögum
og kl. 9—12 á laugardögum.
Pantanir teknar í síma 40369.
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
ÞINGHÓLSBRAUT 19.
Nú bregða
hestamenn á
leik
Fjölskylduskemmtun hestamanna veröur haldin í fé-
lagsmiðstööinni Geröubergi í Breiöholti, fimmtudag-
inn 8. mars kl. 20.30. Kynnir veröur Gunnar Eyjólfsson.
Fram koma meðal annarra, Bergþóra Árnadóttir og
Pálmi Gunnarsson, Bessi Bjarnason, Jón Sigur-
björnsson og Leynitríóiö.
Húsiö opnar kl. 19.30 og gefst þá kostur á aö skoöa
málverkasýningu lista- og hestamannsins Péturs
Behrens. Ennfremur veröa til sýnis gömul reiðtygi
sem tilheyrt hafa íslenska hestinum.
Allir hestunnendur velkomnir meöan húsrúm leyfir.
Miðasala á skrifstofu Fáks, Ástund, Hestmanninum
og Sport Laugavegi 13.
Fræðslunefnd Fáks.
13ítamazlcn^uiinn
^fiattirgötu 12-18
VOLVO 245 GL STATIO.'; 1S82
Blásans., eklnn 34 þús. Sjáltsklptur. Aflstýrl,
snjó- og sumardekk. Læst drlf og fl. Verö
470 þús. Sklptl.
CHEVROLET SUBERBAN 20 1960
Brúnn, ekinn 76 þús.
DÍESEL 6 CYL: BEDFORD
EKINN 5 ÞÚS.
Aflstýri, útvarp, fljótandi öxlar, meö mællr,
sæti fyrir 12 fulloröna. Verö 900 þús.
Greióslukjör meö ýmsu mótl. Skipli.
HONDA ACCORD 1981
Blár, eklnn 19 þús., 5 gíra, útvarp. Verð 270
bús.
M. BENZ 240 D 1982
Ðlár, ekinn 154 þús., útvarp, segulband,
snjó- og sumardekk. Verö 600 þús. Skipti
ath.
PEUGEOT 505 SRD TURBO 1982
Hvítur, eklnn 160 þús. Diesel, útvarp og aeg-
ulþand. Verö 410 þús. Sklptl ath.
LADA SPORT 1978
HONDA CIVIC 1980
Rauöur, ekinn 56 þús. Sjálfskiptur. Verö 170
þús.
Gulur og brúnn, eklnn 90 þús., útvarp og
segulband. snjó og sumardekk á felgum.
BOI í góóu ástandl. Veró 120 þús.
SAAB 99 GL 1982
RENAULT 9 GTS 1983
Blásans., ekinn 25 þús. Snjó- og somar- Sllfúrgrá, eklnn 24 þús„ 5 gfra. Verð 290
dekk. Verð 330 þús. Skipti ath. Þ>,s (Skipti).
Montand-
fyrirbrigdið
Óvinsældir vinstrimennsku
Vinstrimennskan á ekki jafn mikiö upp á pallborðið um
þessar mundir og oft áður sama hvort litið er til efnahags-
mála eða utanríkismála. Kommúnistar standa verst aö vígi
enda þola þeir síst allra aö fortíöin sé skoðuö. í Staksteinum
í dag er sagt frá herför Yves Montand, franska leikarans,
gegn kommúnistum og vinstrisinnum í Frakklandi. Þá er
einnig rætt um nýjustu tilraunina hér á landi til að bera
dálítið í bætifláka fyrir Arne Treholt. Höfundi þeirrar greinar
svíöa óvinsældir vinstrimennskunnar sárt.
Nú eru erlend blöð farin
aö birta greinar eftir
stjórnmálaskýrendur um
Montand-fyrirbrigðið í
Frakklandi en með þessum
orðum er vísað til póli-
tískra áhrifa Yves Mon-
tand, hins heimsfræga
franska leikara og söngv-
ara. Síðustu skoðanakann-
anir benda til þess að
Montand sé orðinn vinsæl-
asti maður í Frakklandi,
hann er vinsælli en nokkur
stjórnmálamaður, leikari
eða íþróttamaður. Nýlega
kom Montand fram i sjón-
varpsþætti scm hét „Lifi
kreppan** og ræddi um
efnahagsmál. Rannsóknir
sýndu að fleiri horfðu á
þennan þátt en nokkurn
sjónvarpsþátt þar sem
Francois Mitterrand,
Frakklandsforseti, hefur
skýrt þjóðinni afstöðu sína
til stjórnmála.
Kommúnistar í Frakk-
landi hrugðust hinir verstu
við sjónvarpsþætti Mon-
tands, sögðu hann einhliða
áróður og bæru skoðanir
leikarans keim af því að
hann vildi uppgjöf í efna-
hagsmálum, hefði misst
sjónar á hinni þjóðlegu
reisn og þatti Frökkum
fyrir bestu að þeir væru
ofurseldir öðrum.
Paul Betts, fréttaritari
Financial Times í Frakk-
landi, bendir á að þessi
árás kommúnista á Mon-
tand veki mikla athygli
meðal Frakka. I*ar minn-
ast margir þess þegar leik-
arinn og eiginkona hans,
Simone Signoret, leikkon-
an heimsfræga, voru alltaf
til staðar þar sem komm-
únistar óskuðu og fóru
meðal annars til Moskvu
til að ræða við Nikita
Krútsjoff. Var þetta á þeim
árum þegar þau hjón voru í
hópi vinstrisinnaðra lista-
og bókmenntamanna í
Frakklandi. Nú er sá hópur
orðinn að engu og fran.ski
kommúnistafiokkurinn
getur ekki lengur kallað
listamenn á vettvang þegar
honum hentar til að berjast
fyrir hinu málinu eða
þessu. Vekur niðurlæging
franskra vinstrisinna að
þessu leyti verðskuldaða
athygli um heim allan.
Yves Montand stendur
nú í fremstu röð þcirra sem
harðast gagnrýna KremF
verja, franska kommúnista
og vinstrisinna almennt.
Þetta hefur orðið honum til
álitsauka meðal alls al-
mennings en vakið sár
reiðiviðbrögð hjá vinstri-
sinnum. Sjónvarpsmaður
spurði Montand hvort
hann ætlaði kannski að
feta í fótspor leikarans
Ronalds Reagan, Montand
svaraði að Reagan væri
góður forseti en hann væri
sjálfur góður leikari —
sem Reagan hcfði ekki
verið.
Til varnar
Treholt
Eftir að Svavar tíestsson
hafði farið halloka fyrir
Þorsteini Pálssyni á kapp-
ræðufundi i Hafnarfirði
var kallað í nokkra skrif-
glaða flokksmenn í Al-
þýðubandalaginu og þeir
beðnir að taka upp hansk-
ann fyrir formanninn í
blöðunum. Hallgrímur
Hróðmarsson, kennari í
Menntaskólanum i
Hamrahlíð, gekk fram fyrir
skjöldu í Dagblaðinu-Visi
og var það vasklega gert. f
gær gengur Hallgrímur
Hróðmarsson enn á ný
fram fyrir skjöldu í Dag-
blaðinu-Vísi íyrir vinstri-
sinna sem á undir högg að
sækja, Arne TreholL út-
sendara KGB í Noregi.
í upphafi greinarinnar
setur Hallgrímur fram þá
nýstárlegu kenningu að
stöðuhækkanir Treholts
innan norska stjórnkerfis-
ins hafi i raun verið sam-
særi til að gera fall hans
sem mest þegar hann yrði
afhjúpaður, því að þá sé ör-
ugglega unnt að nota af-
hjúpunina til svæsinna
hernaðaraðgerða í þágu
NATO. I>essi kenning er í
sama dúr og ávirðingar
Sovétmanna í garð Svía í
sambandi við kafbátaleit-
ina við Karlskrona — þó
hefur Sovétmönnum ekki
enn dottið í hug að segja að
það séu sænskir kafbátar
sem sænski herinn er að
eltast við.
Hallgrímur heldur uppi
vörnum fyrir samning Jens
Evensen og Treholts um
„gráa svæðið", óskasamn-
ing Sovétmanna í Bar-
entshafi, með þeim oröum
að það sé „kannski hugs-
anlegt að Evensen og Tre-
holt hafi látið Rússana
snúa á sig f samningun-
um“!
Loks bætist Hallgrímur í
hóp þeirra vinstrisinna sem
sjá ástæðu til að fjargviðr-
ast yfir því að Morgunblað-
ið birti kafla úr skýrslu til
utanríkisráðherra um há-
degisverð íslendinga með
Treholt í New York í des-
ember 1971. Telur hann
„umfjöllun Morgunblaös-
ins um skýrsluna eitt Ijót-
asta dæmi um subbuskap í
íslenskum blaðaheimi nú
síðustu árin“. Og hvers
vegna? Jú, af því aö skýrsl-
an var ekki birt í heild.
Telur Hallgrímur að Morg-
unblaðið birti ekki skýrsl-
una í heild vegna þess að
það vilji halda verndar-
hendi yfir embættis-
mönnum íslensku utanrík-
isþjónustunnar. Þessi síð-
asta fullyröing er dæmi um
út í hvaða fen vinstrisinnar
vilja að „umræðan" um
Treholt þróisL Hún á helst
að snúast um heimatilbún-
ar ávirðingar íslenskra fjöl-
| miðla og embættismanna!
ASEA
rafmótorar
RÖN^K^*
Nú eru ASEA rafmótorar í næsta nágrenni viðskiptavina sinna: —
AUSTURLAND: Rafmagnsverkstæði Leifs Haraldssonar, Seyðisfirði
VESTMANNAEYJAR: Geisli, Vestmannaeyjum.
SUÐURNES: Rafiðn, Keflavík
VESTFIRÐIR: Póllinn, ísafirði
Sölumenn okkar veita frekari upplýsingar ef óskað er.
./r'RÖNNING
Sundaborg,
simi 84000