Morgunblaðið - 08.03.1984, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MARZ 1984
IIMmí
STJÖRNULYKLAR
TOPPLYKLAR
LYKLASETT
BOLTAKLIPPUR
KÚLUHAMRAR
KLAUFHAMRAR
HAMRAR, m. nælonhaus
JÁRNSAGIR
SPLITT ATENGUR
VERKFÆRAKASSAR
SKRÚFÞVINGUR
HALLAMÁL
MÁLBÖND
SKRÚFSTYKKI
ALLAR STÆRÐIR
ÞJALIR
MIKID ÚRVAL
TRÉRASPAR
Þ JALABURSTAR
RIDGID.
RÖRSNITTTÆKI
RÖRTENGUR
RÖRHALDARAR
RÖRSKERAR
RÍMARAR
ÖFUGUGGAR
Vise-Grip
ORIGINAL
ÓTRÚLEGA
STERKAR OG
FJÖLHÆFAR
12 GERÐIR
VÍR- OG
BOLT AKLIPPUR
SANTO
SANDPAPPÍR
VATNSSLÍPIPAPPÍR
SMERGELLÉREFT
OPIÐ LAUGARDAGA 9—12.
Guðrún Agnarsdóttir, þingmaður af Kvennalista, gluggar í þingskjöl.
Stuttar þingfréttir
Lognið á undan storminum(?):
„Fjárlagagatið“ rætt
á Alþingi í dag
Matthías Bjarnason samgönguráðherra:
Engin skýrsla um
starfshætti Hafn-
armálastofnunar
ENGIN formleg skýrsla hefur verið
gerð á vegum Ríkisendurskoðunar
og Hagsýslustofnunar um stjóm og
starfshætti Hafnarmálastofnunar,
að því er Matthías Bjarnason, sam-
gönguráðherra, sagði í svari sínu við
fyrirspurn frá Jóni Baldvin Hanni-
balssyni, en hann spurðist fyrir um
það, hvort skýrsla um þessi efni,
sem hann taldi að gerð hafi verið,
yrði birt.
Sagði Matthías að þess væri
ekki að vænta að skýrsla sem ekki
væri til yrði birt, en hins vegar
hefðu forstöðumenn ríkisendur-
skoðunar og Hagsýslustofnunar
afhent sér blað siðastliðið vor, þar
sem ýmis atriði varðandi stofnun-
ina hefðu verið gagnrýnd. Sagðist
Matthías ekki sjá ástæðu til þess
að birta það blað, enda væru þau
atriði sem þar væru nefnd, til at-
hugunar og umfjöllunar.
Þá var í umræðunni vitnað til
fréttar DV um Hafnarmálastofn-
un og sagði Matthías að sú frétt
væri í meginatriðum röng. Hins
vegar sagði Matthías að vissir
annmarkar væru á starfsemi
stofnunarinnar, en úr þeim mál-
um yrði leyst í samvinnu við
stofnunina sjálfa.
Athugun á hagkvæmni lífefnaiðnaðar:
Athugun hefst í
þessum mánuði
Stafalogn á Alþingi
Deildafundir vóru á Alþingi í gær.
Halldór Ásgrímsson, sjávarút-
vegsráðherra, mælti fyrir frumvarpi
um Aflatryggingarsjóð sjávarút-
vegsins. Umræða, sem í kjölfar fór,
snerist í aðra röndina um kvótakerfi
og sjávarútvegsmál almennt. Jón
Helgason, dómsmálaráðherra, mælti
fyrir frumvarpi um framsai saka-
manna, sem vísað var til þingnefnd-
ar. Frumvarp um staðfestingu Al-
þjóðasamnings um varnir gegn
mengun frá skipum var afgreitt frá
neðri tii efri deildar. Umræða um
frumvarp um kosningar til Aiþingis,
sem flutt er í tengslum við frumvarp
til breytinga á stjórnskipunarlögum
(jöfnun á vægi atkvæða), var fram
haldið. Heldur var rólegt yfir þing-
störfum. Máske var gærdagurinn
iognið á undan storminum, en búizt
er við ókyrrð í þinghúsinu í dag, þeg-
ar svokallað „fjáriagagat" kemur til
umfjöllunar.
Söluskattur af raforku
til dælingar á heitu vatni
Sverrir Svcinsson (F) o.fl. þing-
menn Framsóknarflokks flytja til-
lögu til þingsályktunar um niðurfell-
ingu söluskatts af raforku til dæl-
ingar á hitaveituvatni. I greinargerð
er það ekki talið samræmast mark-
aðri stefnu um að dregið skuli úr
húshitunarkostnaði að innheimta
söiuskatt af raforku til dælingar á
hitaveituvatni.
Upplýsingamiðlun um
húsnæðis- og byggingamál
Guðmundur Einarsson (BJ) flytur,
ásamt meðflutningsmönnum úr öll-
um þingflokkum, tillögu til þings-
ályktunar, sem felur ríkisstjórninni,
verði hún samþykkt, að setja á lagg-
ir sjö manna nefnd til að skipuleggja
og hrinda í framkvæmd því verkefni
að efla upplýsingamiðlun um hús-
næðis- og byggingamál til almenn-
ings og aðila í byggingariðnaði með
eftirtöldum hætti: 1) Útgáfu hand-
bóka, 2) Námskeiðahaldi, 3) Upp-
byggingu tölvutækra gagna, 4) Öðr-
um aðferðum við söfnun og miðlun
upplýsinga. Nefndarmenn skulu
valdir af fagaðilum, sem nánar eru
tilgreindir í tillögunni.
Sullaveiki og hundahreinsun
Kolbrún Jónsdóttir (BJ) spyr heil-
brigðisráðherra:
• Hvað hyggst ráðherra gera til
varnar útbreiðslu sullaveiki?
• Hyggst ráðherra láta gera úttekt
á framkvæmd gildandi laga um
hundahreinsun?
í ÞESSUM mánuði mun starfshópur
á vegum iðnaðarráðuneytisins hefja
athuganir á hagkvæmni lífefnaiðn-
aðar, en árið 1982 var samþykkt
þingsályktunartillaga um þessi efni.
I máli Sverris Hermannssonar,
iðnaðarráðherra, sem svaraði
fyrirspurn frá Guðmundi Einars-
syni (BJ), þar sem spurst var fyrir
um framkvæmd þingsályktunar-
innar, kom fram að tillagan hefði
enga efnislega meðferð fengið í
iðnaðarráðuneytinu til þessa tíma.
Ekki hefði verið gert ráð fyrir at-
hugunum eða rannsóknum á þess-
um málum á fjárlögum og virtist
sem málið hefði týnst í ráðuneyt-
inu. Hins vegar sagðist Sverrir nú
hafa ákveðið að taka til hendinni í
málinu, ekki væri spurning um
það hvort lífefnaiðnaður væri
hagkvæmur, heldur hvernig best
væri að snúa sér í málinu. Sagðist
Sverrir hafa undirbúið að mynd-
arlega yrði ýtt úr vör í athugunum
á hagkvæmni lífefnaiðnaðar.
Garðabær:
Fræðsluerindi
um garðaúðun
FRÆÐSLUERINDI um garóaúóun
verður haldið í Safnaðarheimilinu
Kirkjuhvoli í Garðabæ kl. 20.00 í
kvöld, fimmtudag.
Dr. Jón Gunnar Ottósson mun
þar endurtaka erindi sitt frá því í
haust og sýna myndir varðandi
efni við úðun garða.
Erindið er flutt á vegum
Bræðrafélags Garðakirkju.
Fréttatilkynning.