Morgunblaðið - 08.03.1984, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MARZ 1984
23
Týr, félag ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi:
Fundaröð um Sovétríkin
„Sjóleiðin til
Bagdad“á
Kirkjubæjar-
klaustri
UNGMENNAFÉLAGIÐ Ármann í
Kirkjubajarklaustri frumsýndi sl.
laugardag leikrit Jokuls Jakohssonar
“Sjóleiðin til Kagdad". Leikritið var
frumsýnt á Kirkjubæjarklaustri og var
vLstmönnum Dvalarheimilis aldraðra
að vanda boðið á frumsýninguna.
Leikritið verður sýnt víðar en á
Kirkjubæjarklaustri, í kvöld verður
það sýnt í Aratungu og föstudaginn
9. mars í Félagsheimilinu í Kópa-
vogi. Að Flúðum verður leikritið
sýnt á laugardag og í Félagsheimili
Vestur-Eyfellinga á sunnudag.
Leikstjóri er Jónína Kristjáns-
dóttir og er þetta þriðja leikritið sem
hún setur upp hjá Ungmennafélag-
inu. Leikendur eru sjö, en hafa 16
manns unnið að sýningunni.
(Úr rrétutilkynninfni.)
Lýst eftir vitnum
UM KLUKKAN 04 aðfaranótt sunnu-
dagsins 26. febrúar síðastliðinn varð
harður árekstur á mótum Kringlumýr-
arbrautar og Suðurlandsbrautar. Þar
skullu saman Daihatsu-bifreið, sem ek-
ið var suður Kringlumýrarbraut og
hugðist ökumaður beygja austur Suð-
urlandsbraut, og Oldmobile-bifreið
sem ekið var norður Kringlumýrar-
braut. Lögreglan í Reykjavík biður þá,
sem vitni urðu að árekstrinum, vinsam-
lega að gefa sig fram.
Þann 20. febrúar síðastliðinn varð
árekstur á Miklubraut og aðrennslis-
braut frá Grensásvegi. Þar lenti
Land Rover-jeppi aftan undir vöru-
bifreið. Lögreglan biður þá, sem
vitni kunna að hafa orðið að árekstr-
inum, vinsamlega að gefa sig fram.
SENN fer að Ijúka endurmenntunar-
námskeiði um störf kjötiðnaðarmanna
í stórverslunum og um notkun hjálpar-
efna í kjötiðnaði sem haldið er á veg-
um Félags íslenskra kjötiðnaðar-
manna.
Vegna mikillar þátttöku varð að
hafa tvö fimm daga námskeið og
hófst það fyrra 27. febrúar og lauk
með sýnikennslu á útstillingu á
kjötvöru í Miklagarði. Seinna nám-
skeiðinu lýkur 9. mars. Hvort nám-
skeið skiptist í tvo hluta, fræðilegan
og verklegan.
Námskeiðin eru haldin í húsa-
kynnum Rannsóknastofnunar land-
búnaðarins og voru tveir Danir
fengnir til aðstoðar frá Slátraraskól-
anum í Hróarskeldu, þeir L. Lustrup,
cand. pharm., og Henning Fuhr,
kjötiðnaðarmeistari. Námskeið af
þessu tagi hefur ekki verið haldið
hérlendis síðan 1962.
Danirnir skoðuðu einnig svínabú
og kjötvinnslu Þorvaldar í Síld og
fiski og sögðu gæði vera sambærileg
við það sem best gerist í Danmörku
þar sem gæði svínakjöts séu afar
Wa.shington, 28. febrúar. AF.
í NÝIITKOMINNI bók um orrustuna
um Monte Casino-klaustrið á Ítalíu í
síðari heimsstyrjöldinni, leiða tveir rit-
höfundar rök að því að Þjóðverjar hafi
alls ekki haft aðsetur í klaustrinu þeg-
ar bandarískar sprengjuflugvélar
gerðu úrslitaárás í bardaganum og
jöfnuðu klaustrið nánast við jörðu og
eyðilögðu um leið ómetanleg listaverk
og fjársjóði.
Höfundarnir David Richardson og
David Hapgood byggja verk sitt á
misjöfn og mestu máli skipti að eldi,
slátrun, vinnsla og sala séu á sömu
hendi.
í framhjáhlaupi má geta þess að
væntanleg er skýrsla frá Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins um
rannsóknir á matvælum.
Fyrirlestur um
myndefni í málverk-
um impressionista
EDITH Desaleux listfræðingur, heldur
fyrirlestur um myndefni í málverkum
Impressionistanna, á Franska Bóka-
safninu, Laufásvegi 12, í dag, fimmtu-
daginn 8. mars, kl. 20.30. Aðgangur er
ókeypis.
Edith Desaleux lauk prófi í list-
fræði frá L’Institut d’Art et Archéo-
logie í París. Hún hefur meðal ann-
ars starfað hjá Alliance Francaise í
Bretlandi, Kína og Suður-Afríku.
Desaleux er meðlimur í alþjóðasam-
tökum kvennablaðamanna.
dagbókum ritara ábótans, Martino
Matronola og leyniplaggi sem F.
Jones majór í breska hernum vann
að fyrir bresk stjórnvöld og fjallaði
um eyðingu klaustursins. Matronola
varð ábóti í Monte Casino er það
hafði verið endurreist eftir stríðið og
lést hann áttræður árið 1982.
Samkvæmt dagbókum ritarans
voru þýskir hermenn ekki í klaustr-
inu undir það síðasta, hins vegar
höfðu þeir komið fyrir vélbyssu-
hreiðrum rétt við veggi þess og
geymdu skotfæri í stórum stíl
skammt frá. Þeir höfðu flutt mikið
af helstu listaverkunum á brott, en
önnur ekki, til dæmis málverk eftir
Luca Giordano, en sprengja frá
bandarískri sprengjuflugvél eyði-
lagði það. Fallbyssukúla frá Þjóð-
verjunum sá hins vegar um brons-
hurðirnar frægu. Hermann Göring
marskálkur fékk mörg af mestu
listaverkunum í einkasafn sitt.
Þáttaskil urðu í orrustunni um
Monte Casino 15. febrúar 1944, er
239 B-17 og B-26 sprengjuflugvélar
vörpuðu 453,5 tonnum af sprengjum
á klaustrið og umhverfi þess. Aldrei
fyrr eða síðar var jafn miklu magni
af sprengiefni varpað á jafn litið
skotmark. Það furðulega var, að
upphaflega var ætlunin að tefla
fram 36 orrustuflugvélum Nýsjá-
lendinga. Enginn virðist vita hvers
vegna breytt var um eða hver réð
því. Martin Blumenstein, sem ritaði
annál um atburðinn fyrir banda-
riska herinn sagðist telja að Banda-
ríkjamenn hefðu viljað sýna Bretum
að þeir gætu hæft jafn lítil skotmörk
og klaustrið þó úr mikilli hæð væri.
Bókarhöfundar komast að þeirri
niðurstöðu, að Bernard Freyberg
hershöfðingi frá Nýja Sjálandi hafi
átt mikla sök á því að sprengjum var
beint að mannlausu klaustrinu og
byggja það meðal annars á dulbún-
um hótunum hans um að draga her-
menn sína úr orrustunni nema að
gengið væri úr skugga um að þýskir
hermenn héldu ekki til í klaustrinu.
Úr myndinni „Spacehunter"
Stjörnubíó
sýnir „Space-
hunter“
STJÖRNUBÍÓ hefur hafið sýningar á
bandarísku kvikmyndinni Spacehunt-
er. Kvikmyndin fjallar um ævintýr í
geimnum.
Aðalhlutverk í myndinni leikur
Peter Strauss, sem gat sér orð fyrir
leik í sjónvarpsþáttunum „Rich Man,
Poor Man“ og kvikmyndunum „Sol-
dier Blue“ og „Angel on My Should-
er“, og Molly Ringwald, en hún hlaut
Golden Globe-verðlaunin sem bezta
leikkona ársins 1982, fyrir leik sinn í
kvikmyndinni „Tempest", en sú
mynd verður bráðlega sýnd í
Stjörnubíói.
Ný-mannúðar-
stefna kynnt
Brasilíumaóurinn Ac. Manik flytur
fyrirlestur um ný-mannúðarstefnu á
vegum Amanda Marga í kvöld kl.
20.30, í Aðalstræti 16.
Aukheldur verður um helgina mót
í Ölfusborgum þar sem kennd verður
andleg heimspeki.
Kjötiðnaðarnámskeið
fyrsta sinni í 20 ár
Verö: Páskaferöin kr. 16.388,- Aörar feröir: kr. 18.370 í 14 daga, hver
aukavika kr. 4.830. Aukagreiösla fyrir enskunám 1 tíma á hverjum virkum
degi: kr. 1.930 fyrir 14 daga en kr. 970 fyrir hverja aukaviku.
Auk knattspyrnunámskeiöanna í Birmingham verða knattspyrnunámskeiö í
Exmouth, þaö fyrsta 24. júní—8. júlí, 8.-22. júlí, 22. júlí til 5. ágúst, 5.—19.
ágúst, 19. ágúst til 2. sept.
Auk knattspyrnu er hægt að stunda eingöngu nám í tennis og útreiðum í
Birmingham og Exmouth og eingöngu „windsurfing“ og köfun í Exmouth að
viöbættu enskunámi.
Sérstakir bæklingar á ensku, einnig videospólur um knattspyrnu. Kynnið
ykkur skóla okkar Sandfield International.
veröa í Birmingham
13.—22. apríl, 1,—15. júlí,
15,—29. júlí, 5.—19.
ágúst, 19. ágúst til 2. sept.
Flogið er meö
Flugleiðum Keflavík - London - Kefla-
vík. Nemendum veröur ekiö til Birm-
ingham báöar leiðir. Gist verður í
heimahúsum í Great Barr hverfinu
skammt frá leikvöllum Aston Villa. 1—3
nemendur gista á hverju heimili, fullt
fæöi og þjónusta innifalin. /Efingar
daglega, fyrir og eftir hádegi, einstakl-
ings- og hópþjálfun. Sérstakir þjálfar-
ar frá enska knattspyrnusambandinu
ásamt þekktum leikmönnum úr liðum
Aston Villa, West Bromwich Albion.
Tony Godden, markmaöur Luton
þjálfar markverði. Leiknir æfingaleikir
viö heimaliö, sýndar kennslukvik-
myndir, fariö á leiki, skoðunarferðir
um nágrenniö, alls konar aöstaöa til
leikja og íþrótta, sundlaug o.s.frv.
Fjöldi unglinga á aldrinum 12—25 ára
frá helstu knattspyrnulöndum Evrópu
og víöar sækja þessi námskeiö, þann-
ig gefst íslensku þátttakendunum
tækifæri til aö leika með jafnöldrum
sínum og reyna getu sína. Skólar
þessir eru opnir piltum sem stúlkum,
einstaklingum sem hópum.
Feröaskrifstofa
KJARTANS
HELGASONAR
Gnoöavog 44 - 104 Reykjavik
sími 86255.
Einkaumbod á íslandi.
SANDFIELD
INTERNATIONAL
BIRMINGHAM, EXM0UTH