Morgunblaðið - 08.03.1984, Blaðsíða 40
HLEKKUR í HEIMSKEÐJU
FIMMTUDAGUR 8. MARZ 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
MorgunblaAið/Friðþjófur.
Öskudagur yngsta fólksins
Yngsta kynslóðin brá á leik í gær og hélt upp á öskudaginn í hinum
ótrúlegustu búningum. Hefðarmeyjar og yngispilta, indíána og
ofurmenni, trúða og tatarastelpur mátti sjá skokka um götur víða
um land, öskupokar voru hengdir í þá eldri og ráðsettari, lagstúfar
voru launaðir með sætindum og loks virðist það orðinn siður víða
um land að berja köttinn úr tunnunni. Á Lækjartorgi voru ung-
mennin í hundraðatali í gærmorgun og þessar stöllur þeirra á
meðal. Á miðopnu eru fleiri myndir.
Heilbrigðiseftirlit og heilbrigðisráð:
Ströngustu viður-
lög til að fækka
hundum í borginni
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
hefur ekkert fjallað um hreinsun
á þeim fimmtán hundruð hund-
um sem talið er að séu í borginni.
Hefur heldur ekki uppi neinar
áætlanir í því máli. Þetta kom
fram þegar Mbl. spurðist fyrir
um þetta mál í framhaldi af frétt
um sullaveikitilfelli sem greind-
ist á Sjúkrahúsinu á Akureyri
nýlega.
Framkvæmdastjóri Heil-
brigðiseftirlits, Oddur Rúnar
Hjartarson, og Katrín Fjeld-
sted, formaður Heilbrigðisráðs
Reykjavíkur, voru sammála um
að beita þyrfti ströngustu við-
urlögum til að reyna að fækka
hundum í borginni. Katrín
sagði ennfremur að þetta
ástand væri óþolandi frá heil-
brigðissjónarmiði. Ef augunum
væri lokað í þessu máli myndi
það verða til þess að hundum
fjölgaði enn. Hún kvað Heil-
brigðisráð ekki hafa tekið af-
stöðu til þess, hvaða ráða væri
gerlegt að grípa til, varðandi
hreinsun á óleyfilegum hund-
um, enda ekki komið saman
síðan fréttir bárust af sulla-
veikitilfellinu á Akureyri.
Sjá nánar á miðopnu,
bls. 20 og 21.
Fjórðungslækkun á
loðnu frá áramótum
Seljendur mótmæla harðlega nýju loðnuverði og
segja verðið í Færeyjum 108% hærra en hér á landi
YFIRNEFND Verðlagsráðs sjávar-
útvegsins ákvað í gær að verð á loðnu
til bræðslu frá 2. marz til loka vetrar-
vertíðar þessa árs skuli vera 660
krónur fyrir hverja lest. Miðast verð-
ið við 8% fituinnihald og 16% fitufrítt
þurrefnisinnihald. í janúarbyrjun var
gildandi verð 900 krónur og hefur
það því lækkað um 26,6% síðan þá og
um 17,5% síðan í febrúar, en þá var
verðið 800 krónur miöað við sama
hlutfall fitu og þurrefnis. Verðið var
ákveðið með atkvæðum oddamanns
nefndarinnar og fulltrúa kaupenda,
en fulltrúar seljcnda mótmæltu verð-
ákvörðuninni harðlega.
Verðið breytist um 66 krónur til
hækkunar eða lækkunar fyrir
hvert 1% sem fitu- eða þurrefnis-
innhald breytist um. Verð lækkar
þó ekki frekar fari fituinnihald
niður fyrir 3%. Ennfremur greiði
kaupendur tvær krónur fyrir
hverja lest til reksturs Loðnu-
nefndar. Lágmarksverð á úrgangs-
loðnu til bræðslu frá frystihúsum
skal vera 79 krónum lægra fyrir
hverja lest og ákvarðast á sama
hátt. Ekki verður lengur greitt í
Loðnuflutningasjóð.
Fulltrúar kaupenda létu bóka
eftirfarandi vegna verðákvörðun-
arinnar: „Við undirritaðir fulltrúar
útvegsmanna og sjómanna í yfir-
nefnd Verðlagsráðs sjávarútvegs-
ins mótmælum harðlega þessari
verðlagningu. Frá þeim tíma, sem
verðlagning fór síðast fram, hefur
afurðaverð lækkað um 8 til 9%, en
með þessari verðlagningu er hrá-
efnisverð lækkað um 19%. Enn-
fremur viljum við benda á að þessa
dagana eru íslenzk loðnuskip að
landa afla sínum í Færeyjum og fá
þar greitt 108% hærra verð en hér
er ákveðið."
Fulltrúar seljenda voru Ágúst
Einarsson og Ingólfur Stefánsson,
fulltrúar kaupenda Jón Reynir
Magnússon og Guðmundur Kr.
Jónsson og oddamaður Bolli Þór
Bollason.
Viðræður Dagsbrún-
ar og skipafélaganna
Starfsmenn Eimskips sem lögðu niður
vinnu fá ekki greidd laun fyrir þann tíma
VIÐRÆÐUR um sérkjarasamning fyrir hafnarvinnu í Reykjavík hefjast
klukkan 10.00 í dag í húsnæði Vinnuveitendasambands Islands, milli
Dagsbrúnar og starfsmanna við höfnina annars vegar og VSÍ og skipafélag-
anna Hafskips og Eimskips hins vegar. Samkomulag um viðræður tókst
skömmu fyrir hádegi í gær, en eftir hádegi í fyrradag lagðist vinna í Sunda-
höfn niður og vofðu sams konar aögerðir yflr hjá Sambandinu í gær, en
samkomulag um viðræður tókst áður en til þeirra aðgerða kæmi. Þá hefur
viðræðufundur milli Dagsbrúnar og SÍS verið ákveðinn á morgun, fostudag,
og einnig hafa viðræður verið ákveðnar við Mjólkurstöðina og VSÍ á föstu-
dag.
og gerðust önnur skipafélög aðilar
að honum síðar. Samningurinn fel-
ur meðal annars í sér prósentuálag
ofan á kauptaxta. Þröstur Ólafsson,
framkvæmdastjóri Dagsbrúnar,
sagði kröfur hafnarverkamanna
fela í sér hækkun á þessu álagi.
Einnig væri í kröfugerðinni ýmis
atriði varðandi öryggi, aðbúnað og
sérkröfur. Þá kæmu kaupliðirnir
inní, tillögur um taxtatilfærslur og
auk þessa væri einnig um ýmsar
almennar kröfur að ræða.
„Umræðurnar í morgun snerust
um öryggismál, aðbúnað á vinnu-
staðnum og vinnuskipulag. Kaup og
Hlaðmenn hjá Flugleiðum á
Reykjavíkurflugvelli leggja kröfur
sínar fram í dag. Brynjólfur Yngva-
son, trúnaðarmaður þeirra, sagði að
þeir hygðu ekki á aðgerðir fyrr en
ljóst væri hver viðbrögð við kröfum
þeirra yrðu, en þar er einkum að
hans sögn um kaupkröfur að ræða,
en hvað laun snerti hefðu þeir dreg-
ist aftur úr. Hann kvað bæði verk-
föll og yfirvinnubann koma til
greina yrði þeim neitað um viðræð-
ur.
Sá sérkjarasamningur sem um
ræðir við hafnarvinnu var gerður
milli Eimskips og Dagsbrúnar 1974,
kjör voru ekki til umræðu, þar sem
Eimskip lýsti yfir og ítrekaði að
VSÍ færi með þau mál fyrir Eim-
skip, eins og aðra félaga í samtök-
unum. Það virðist gæta viss mis-
skilnings í túlkun fjölmiðla og því
vildi ég leggja áherslu á að Eimskip
vill nú sem áður ræða öryggismál
við sína starfsmenn," sagði Valtýr
Hákonarson, framkvæmdastjóri
flutningasviðs Eimskipafélagsins.
Valtýr kvað það segja sig sjálft
að menn sem ekki ynnu fengju ekki
borgað, er hann var spurður hvort
Eimskip myndi borga starfs-
mönnum sínum, sem lögðu niður
vinnu, laun fyrir þann tíma.
„VSÍ hefur aldrei neitað viðræð-
um við Dagsbrún. Við höfum hins
vegar ítrekað það að við höfum það
sama að bjóða þeim og við höfum
samið um við. aðra aðila innan
ASÍ,“ sagði Magnús Gunnarsson,
framkvæmdastjóri VSÍ, er hann
var spurður hvort þetta þýddi að
viðræður Dagsbrúnar og VSÍ væru
að nýju komnar í gang. Hann sagði
að VSÍ yrði aðili að þessum fundi,
til að verða til svara ef kjaramál
bæri á góma.
Dómarar í Hæstarétti í gær, talið frá vinstri: Magnús Thoroddsen, Sigurgeir Jónsson, Magnús Þ. Torfason, Þór Vilhjálmsson, forseti Hæstaréttar, Ármann
Snævarr, Björn Sveinbjörnsson og Halldór Þorbjörnsson. Björn Helgason, hæstaréttarritari, er lengst til hægri. Aðeins einn hæsUréttardómari er ekki í
dóminum, en það er Guðmundur Jensson.
Sjö dómarar Hæstaréttar skipuðu dóm
í GÆR skipuðu sjö dómarar Hæsta-
réttar dóminn í fyrsta sinn í sögu
réttarins. Með lagabreytingu, sem
gerð var árið 1979, var heimilað að
hæstaréttardómarar, sem venjulega
sitja þrír eða fimm í dómi, væru sjö í
mjög mikilvægum málum.
Málið, sem tekið var fyrir, er
skaðabótamál vegna umferðar-
slyss. Ágreiningsefnið er hvernig
reikna beri tjón konu af varanlegri
örorku, sem hún hlaut í umferðar-
slysi, einkum með tilliti til þess
hvaða vaxtafót eigi að nota.
Mbl. sneri sér til Þórs Vil-
hjálmssonar, forseta Hæstaréttar,
og spurði hvort rétturinn væri með
þessu að svara gagnrýni, sem fram
hefði komið á réttinn, einkum með
tilliti til fordæmisgildi dóma.
„Svo er ekki. Þetta ágreinings-
efni er ekki eitt þeirra, sem hafa
verið gagnrýnd. Það hafa verið
önnur vandamál tengd ákvörðun
vaxta, en eru ekki uppi í þessu
máli. Þetta ágreiningsefni hefur
verið erfitt úrlausnar og ekki ljóst
hvernig skuli leysa," sagði Þór Vil-
hjálmsson.
Lögmenn í rnálinu eru Hjörtur
Torfason, hrl., og Jón Hjaltason,
hrl.