Morgunblaðið - 16.03.1984, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. MARZ 1984
43
Á tískusýningum í París ný-
lega aýndi fatairamleióandinn
og tenniskappinn Björn Borg
þessi pils fyrir karlmenn.
Á síöari tímum hefur skemmt-
anaiðnaðurinn stytt mönnum
stundir með skemmtiþáttum og
leikritum í þessum dúr. Hver man
ekki eftir hinni sígildu Frænku
Charles, og nútímalegri útfærslu á
ekki ósvipuöu efni í kvikmyndinni
Tootsie. Karlmaður (Dustin Hoff-
man) klæöist konugervi og verður
þá margs vísari um þaö ójafnrétti
og fordóma, sem konur mega
þola. í nýjustu kvikmynd sinni,
Yentl, dulbýr Barbara Streisand
sig sem karlmann, en sú mynd hef-
ur hlotiö góðar undirtektir áhorf-
enda, svo eitthvað sé nefnt af því
nýjasta, sem boriö hefur fyrir sjón-
ir okkar í þessum efnum.
Það er þó ef til vill fyrst nú, sem
hlutverkaruglingur af þessu tagi er
oröinn nokkuð áberandi í daglegu
lífi. Má segja, að þaö sé popp-
stjarnan Boy George, sem eigi
heiöurinn . .. eða skömmina af
því. Þaö er ekki svo flett dagblaöi
eða tímariti, innlendu eöa útlendu,
aö þessi síöhæröi ungi maöur meö
plokkuöu augabrýnnar og rauð-
máluöu varirnar stari ekki fölleitu
andliti móti lesandanum. Sjálfur
segist hann bara vera venjulegur
ungur maöur, sem reyki ekki og
drekki sárasjaldan og fari á hverj-
um morgni á hjólinu sínu til aö
kaupa morgunblööin!
Önnur poppstjarna, Annie Len-
nox, söngvarinn í hljómsveitinni
Eurythmics, er meö álíka sjón-
hverfingar. Annie, sem hefur látiö
nær snoöklippa sig og litar háriö
appelsínugult, klæöist gjarnan
karlmannlegum jakkafötum. Um
hálsinn hefur hún rauða slæöu og
á höndum hanska í sama lit. Þann-
ig klæddist hún aö minnsta kosti á
hljómleikum Eurythmics í London
nýlega.
Konur i jakkafötum hafa sést á
reykvískum skemmtistöðum aö
minnsta kosti undanfariö eitt ár.
Þaö er heldur ekki svo ýkja nýtt aö
stelpur snoöi á sér kollinn, því stutt
hár hefur veriö vinsælt æ síöan
pönkiö tyllti niöur tánum. Þaö felst
því óneitanlega meiri nýjung í
kvenlegu útliti karlmannanna. Enn
sem komiö er, eru þeir ekki farnir
aö láta sjá sig á götum úti í kjól
eöa pilsi. Einstaka strákur málar
sig um augun, til aö skerpa línurn-
ar, hvaö sem síðar veröur. Því
tískuhönnuöir, sem öllu vilja ráöa
Boy George var á síöasta ári kosinn
ein at 10 verst klæddu konum heims.
um hverju fólk klæöist, eru fljótir
aö taka viö sér.
Á tískusýningu í París nýlega,
þar sem kynnt var sumarlínan fyrir
herra undir nafni tenniskappans
Björns Borg, mátti sjá sýningar-
herrana í pilsum. Og í nýlegu hefti
af tímaritinu Honey, þar sem veriö
var aö auglýsa nærföt fyrir dömur,
framleidd af ameríska tískuhönn-
uöinum Calvin Klein, voru þaö
karlar, sem sýndu undirfötin.
En þaö eru fleiri poppstjörnur en
Boy George og Annie Lennox, sem
rugla fólk í ríminu, hvaö útlit varö-
ar. Þeir, sem sáu hina þeldökku
söngkonu Grace Jones á hljóm-
leikum í Reykjavík á síöastliönu
ári, voru sumir ekki alveg vissir
hvort hér væri karl eöa kona á
ferðinni. Hefur veriö sagt aö hún
líkist hnefaleikakappanum Mu-
hammed Ali dulbúnum!
í hinum vinsæla breska sjón-
varpsþætti, TOP of the POPS kom
nýlega fram söngvari , sem kallar
sig Marilyn. Hans rétta nafn er Pet-
er Robinson. Hann segist kalla sig
Marilyn, vegna þess aö hann sé
aðdáandi Monroe. Framkoma
hans og útlit í fyrrnefndum sjón-
varpsþætti vakti nokkra hneykslan
í Bretlandi og létu margir í Ijós þá
skoðun, aö atriöi sem þetta heföi
ekkert aö gera í unglingaþætti eins
og TOP of the POPS.
Allt veröur að skýra og skil-
greina, annars getur maöurinn
ekki kallaö sig homo sapiens, hinn
vitiborna mann. Þeir, sem vilja
reyna aö skýra þá þróun mála,
sem hér hefur veriö lýst, benda á
sjötta áratuginn (hippatímabiliö),
þegar karlar létu sér vaxa sítt hár
og gengu i stuttum eöa síöum kirtl-
um. Segja þeir aö öfgar tískunnar
aukist meö hverju árinu, þ.e. aö
tískan í ár sé öfgafyllri en sú sem
var í fyrra o.s.frv. Þetta sé þróun,
sem eigi veröi stöövuö. Sumir vilja
aftur á móti líta svo á aö stílbrot
sem þessi geti haft þau áhrif aö
brjóta niöur siöi og reglur þjóöfó-
lagsins, og spyrja: Á hvaö veröur
ráöist næst? Aðrir vilja líta til
dæmis á uppátæki Boy George,
sem kosinn var ein af 10 verst
klæddu konum heims á síðastliðnu
ári, sem gamansemi sem sé til
þess fallin aö auka frelsi einstakl-
ings og því sé allt gott um þetta aö
segja.
Slitþols-
próftin
áklæða
Hvort
vantar
þig hornsófa?
Leður horn
Opið
fostudag
kl. 8—20
laugardag
kl. 4—16
IDE
húsgögn færa þér raunverulegan arö. Meö því aö vera hluthafi í IDE MOBLER
A/S stærstu innkaupasamsteypu Noröurlanda og taka þátt í sameiginlegum innkaupum 83ja
stórra húsgagnaverslana í Danmörku, víöa um lönd, tekst okkur aö hafa á boöstólum úrvals
húsgögn, öll meö 2ja ára ábyrgö, á miklu lægra verði en aðrar húsgagnaverzlanir geta boöiö.
Gæðaeftirlit IDE er svo geysistrangt að þú ert örugg(ur) um aö fá góö húsgögn þó verðið sé
svona lágt. Þú þarft aö æfa veröskyn þitt og líta til okkar.
HuSCAGNAHOLLlN
BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK S 91-81199 og 81410